Erlent

Reyktu í flugstjórnarklefanum og spjölluðu allan tímann

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Flugmennirnir stilltu sér upp ásamt vinkonunum í myndatöku.
Flugmennirnir stilltu sér upp ásamt vinkonunum í myndatöku.
Flugfélagið Malaysia Airlines rannsakar nú ábendingar um það að aðstoðarflugmaður farþegavélarinnar sem hefur verið saknað frá því á laugardag með 239 innanborðs hafi boðið tveimur konum í flugstjórnarklefa í flugi fyrir tveimur árum.

Jonti Roos segir aðstoðarflugmanninn Fariq Abdul Hamid og annan flugmann hafa leyft sér og vinkonu sinni að vera í klefanum meðan á fluginu stóð, stillt sér upp á myndum með þeim og reykt sígarettur í flugstjórnarklefanum. Ef rétt reynist er um alvarlegt brot á flugreglum að ræða.

Roos sagði í samtali við áströlsku sjónvarpsstöðina Channel Nine að vinkonurnar hafi verið í klefanum bæði í flugtaki og við lendingu, en flugið tók um eina klukkustund og var frá Taílandi til Kúala Lúmpúr.

Hún segir flugmennina hafa talað við þær allan tímann og ekki veitt sjálfu fluginu athygli. Áhöfn vélarinnar hafi lítið kippt sér upp við það og svo hafi virst sem þetta væri ekki óvenjulegt fyrirkomulag.

Flugvél Malaysian Airlines er enn leitað en ekkert hefur til hennar spurst frá því á laugardag.

Reynist ásakanirnar réttar er um brot á flugreglum að ræða.
Flugmennirnir eru sagðir hafa reykt sígarettur í flugstjórnarklefanum.

Tengdar fréttir

Hugsanlegar leifar þotunnar fundnar

Yfirvöld í Víetnam hafa staðfest fund leitarflugvélar á leifum sem að gætu tengst týndri farþegaþotu Malaysia Airlines.

Farþegaflugvélin breytti um stefnu

Týnda Boeing-farþegaflugvélin í Malasíu breytti um stefnu. Samkvæmt ratsjá var hún komin hundruð kílómetra frá því svæði sem síðast var vitað um ferðir hennar. Ekkert er vitað um ástæðuna fyrir þessari dularfullu stefnubreytingu vélarinnar.

Ekkert bendir til hryðjuverka

Mennirnir tveir sem fóru með stolin vegabréf um borð í flugvél Malaysia Airlines, sem hefur verið saknað frá því á laugardag, eru taldir hafa ætlað að flytja til Evrópu.

Óttast að 239 séu látnir

Forsætisráðherra Malasíu segir of snemmt að kalla hvarf farþegaþotunnar í dag hryðjuverk.

Farþegavél hvarf af ratsjá

Víðtæk leit stendur yfir á Suður- Kínahafi að farþegaþotu Malaysian Airlines sem hvarf af radar í gærkvöldi. 239 manns voru um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×