Fleiri fréttir

Sveinn Rúnar enn fastur á Gasa

Sveinn Rúnar Hauksson læknir og formaður Ísland-Palestína komst ekki yfir landamærin frá Gasa til Egyptalands í dag en hann hefur árangurslaust reynt að komast yfir landamærin og áfram til Kairó í ellefu daga.

Formaður sérfræðingahóps: Skuldatillögum skilað í næstu viku

Sigurður Hannesson, formaður sérfræðingahóps ríkisstjórnarinnar um skuldavanda heimilanna, segir að hópurinn sé nú að leggja lokahönd á tillögur varðandi niðurfærslu skulda. Hópurinn mun skila tillögum til ríkisstjórnarinnar í næstu viku.

Kristinn Hrafnsson varar vini sína við njósnum

Kristinn Hrafnsson gerir ráð fyrir því að NSA njósni um sig og hefur hann sent út viðvörun til vina sinna á Facebook: Þeir megi gera ráð fyrir því að vera einnig undir eftirliti.

Heyrði öskur og hélt að það væri verið að drepa einhvern

Maður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að brjótast inn til fyrrverandi unnustu sinnar og setja sæng yfir andlit hennar svo hún átti erfitt með andadrátt. Vitni heyrði mikil öskur og hélt að það væri verið að drepa einhvern.

Fiskifræðingur segir síldina óútreiknanlega

"Það er ekkert hægt að fullyrða um það hvort að síldin gangi aftur í jafn miklum mæli í Kolgrafafjörðinn eins og hún gerði í fyrra,“ segir Guðmundur Óskarsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknarstofnuninni.

200 milljónir evra til Íslands

Íslendingar hafa fengið um 200 milljónir evra í styrki úr evrópskum áætlunum síðastliðin 20 ár. Styrkurinn hefur farið til fyrirtækja, stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga.

ASÍ segir Samtök atvinnulífsins falsa söguna

"Samtök atvinnulífsins setja fram dæmalausa sögufölsun í nýjum sjónvarpsauglýsingum. Í þeim er með sérlega ósmekklegum hætti látið í það skína að kröfur launafólks um launahækkanir séu ástæða hárrar verðbólgu á Íslandi.“

Klukkan hefur áhrif á þunglyndi

Við erum feitust þjóða, við hreyfum okkur ekki nóg og erum með kolvitlausa klukku sem kemur okkur í koll á veturna,“ segir Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS.

Ótti og mikil reiði í Bláskógarbyggð

Lettarnir tveir sem gengu í skrokk á Brynjari Dagbjartssyni í Bláskógabyggð hafa verið látnir lausir. Brynjar óttast það að ofbeldismennirnir komi og leiti sig uppi.

Frumvarp um frelsi Júlíu Tímósjenkó fellt

Þingið í Úkraínu felldi í morgun frumvörp sem hefðu heimilað að Júlíu Tímósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra, verði látin laus úr fangelsi, en hún hefur verið í haldi frá árinu 2011.

Breivik tekur ekki prófin

Norski hryðjuverkaðurinn Anders Behring Breivik, sem drap 77 samlanda sína og særði 158 í einhverjum verstu hryðjuverkjum seinni tíma í Evrópu í júlí 2011, hefur sagt sig úr þremur áföngum sem hann hafði skráð sig í við Háskólann í Osló. Hann mun því ekki taka lokaprófin.

Íslendingar eiga metið í notkun þunglyndislyfja

Mikil aukning hefur verið á notkun þunglyndislyfja hjá hinum iðnvæddu þjóðum heimsins síðasta áratuginn og hvergi er notkunin meiri en hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD, efnahags og samvinnustofnun Evrópu, sem birt verður í dag.

Ránalda skelfir íbúa Óslóar

Helmingurinn af íbúum í Ósló segist finna fyrir óöryggi á ferð um borgina. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem gerð var fyrir blaðið VG, en mikil bylgja rána hefur gengið yfir borgina það sem af er mánuðinum.

Með stysta fæðingarorlof á Norðurlöndum

Fæðingarorlof er styttra hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Ísland hefur jafnan verið á eftir hinum í þróuninni. Framkvæmdastýra Jafnréttisstofu segir brýnast að hækka hámarksgreiðslur í orlofi.

Öryggisvottunum oft ábótavant á sölusíðum

Slysavarnafulltrúi segir fólk þurfa að vera á varðbergi varðandi kaup á vörum í gegnum netsíður. Á síðum eins og AliExpress sé oft erfitt að sannreyna hvort vörur uppfylli öryggisstaðla. Einnig er varað við óvottuðum fjarskiptatækjum.

Byssumaðurinn í París nafngreindur

Yfirvöld í Frakklandi hafa nú nafngreint manninn sem handtekinn var í gær og er grunaður um nokkrar skotárásir í París síðustu daga. Maðurinn, Abdelhakim Dekhar var handsamaður klukkan sex í gærkvöldi á bílastæði í úthverfi borgarinnar.

Dópsali tekinn í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi karlmann í Hafnarfirði, sem er grunaður um fíkniefnasölu. Í fórum hans fanst eitthvað af fíkniefnum í skammta umbúðum og er hann vistaður í fangageymslum, þar sem hann bíður yfirheyrslu í dag. Ökumaður var svo stöðvaður á Vesturlandsvegi í nótt, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og var hann einnig réttindalaus.

Tvö innbrot í nótt

Brotist var inn í tölvuverslun í austurborginni í nótt og er nú verið að kanna hversu miklu var stolið þar. Þjófurinn, eða þjófarnir, komust undan og eru ófundnir. Þá var brotist inn í íbúðarhús í Hafnarfirði í nótt, en þegar íbúar urðu þjófsins varir, tók hann til fótanna og hvarf að öllum líkindum tómhentur út í náttmyrkrið. Ekki er vitað um nánari deili á honum.

Hálka í hlákunni

Mikil og óvænt ísing myndaðist víða á götum og vegum í gærkvöldi, einkum suðvestanlands. Nokkrir þurftu að leita læknis eftir slæmar byltur á svellbunkum og nokkrir bílar höfnuðu utan vegar, en ekki er vitað til að neinn hafi meiðst í þeim.

Úranvinnslan getur spillt ímynd Íslands

Úranvinnsla á Grænlandi ógnar ekki Íslandi með beinum hætti. Aðeins orðrómur um geislamengun á Grænlandi gæti ógnað efnahagslegum hagsmunum Íslands.

Farfuglar verpa fyrr með hlýnandi veðri

Loftslagsbreytingar hafa haft áhrif á komutíma íslenska vaðfuglsins jaðrakans. Þetta sýnir íslensk/bresk rannsókn. Fuglaáhugafólk víða um Evrópu safnaði upplýsingum um merkta fugla. Sama er talið eiga við um fleiri fuglategundir.

Góð veiði en rysjótt tíðarfar

Togarar Síldarvinnslunnar, Barði NK og Bjartur NK, hafa verið að veiðum í rysjóttu tíðarfari að undanförnu en afli hefur verið góður þegar færi hefur gefist til veiða.

„Hann ætti að fá að njóta vafans“

Lögmaður nígeríska hælisleitandans sem lögreglan leitar að segir óeðlilegt að henda manninum úr landi áður en rannsókn mansalsmáls hans er lokið.

Eiður vinsæll á Facebook

Meira en tuttugu og fjórum þúsundum líkar við Facebook-síðu sem var stofnuð til heiðurs Eiði Smára Guðjohnsen eftir landsleik Króatíu og Íslands í fyrrakvöld.

Pin-númerafólk iðki hreinlæti

Mikil pin-númeravæðing hefur verið hér á landi og nú er svo komið að viðskiptavinir þurfa víðast hvar sjálfir að slá inn pin-númerin er þeir borga með kortum.

Formaður sagði af sér með ljóðalestri

Elías Pétursson, formaður skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, segist ekki hafa efni á embættinu lengur og vilji ekki vera sakaður um spillingu með því að hann hafi verkefni fyrir bæinn. Elías kvaddi nefndina með lestri á ljóði Davíðs Stefánssonar.

Sjá næstu 50 fréttir