Fleiri fréttir

Ekki von á skuldaaðgerðum fyrir áramót

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sagði á Alþingi í morgun að ólíklegt sé að hægt verði að ráðast í aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna á þessu ári. Málið sé þó enn á forgangslista ríkisstjórnarinnar.

Bjartsýni um samninga í makríldeilunni

Bjartsýni ríkir um að samkomulag kunni á nást í makríldeilunni á samningafundi í næstu viku og að Evrópusambandið sé tilbúið að veita Íslendingum og Færeyjingum stærri hlutdeild í veiðunum en vilji hefur verið til hingað til.

WHO: Loftmengun veldur krabbameini

Loftmengun veldur lungnakrabbameini. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Alþjóðlegu krabbameinsrannsóknastofnuninni (IARC) í dag, en það er undirstofnun Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Þessi yfirlýsing byggir á rúmlega 1.000 rannsóknum sem gerðar hafa verið.

Fimm ríki kosin í öryggisráðið

Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna verður í dag atkvæðagreiðsla um það, hvaða fimm ríki taka sæti í öryggisráðinu.

Ráðgera friðarráðstefnu um Sýrland í næsta mánuði

Ráðstefna til að finna pólitíska lausn á borgarastyrjöldinni í Sýrlandi verður haldin í Genf í Sviss, dagana 23. og 24. nóvember. Qadri Jamil, varaforsætisráðherra Sýrlands, staðfesti þetta í samtali við fjölmiðla í Moskvu í morgun.

Má taka sjálfstæðar ákvarðanir

Ricardo Aldair, tuttugu og fimm ára mexíkani með Asperger heilkennið, vann í morgun mál í Hæstarétti sem hann höfðaði gegn mexíkóska ríkinu.

Stofnandi eBay stofnar nýjan fjölmiðil

Bandaríski blaðamaðurinn Glenn Greenwald tekur til starfa hjá nýjum fjölmiðli í eigu franska milljarðamæringsins Pierre Omidyar, en sá stofnaði sölusíðun eBay.

Endurskrifuðu kerfi Mentors

Upplýsingakerfið Mentor hefur verið endurskrifað frá grunni og verður það innleitt í áföngum á þessu skólaári og því næsta.

ESB bannar paraben í snyrtivörum

Framleiðendur hafa ekki sýnt fram á að fimm paraben séu örugg til notkunar. Fyrirhugað bann góðar fréttir, segir teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun.

Kennarar í verkfall

Þúsundir skólastofnana á Englandi loka í dag vegna verkfalla kennara sem krefjast hærri launa, betri eftirlauna og úrbóta á vinnuaðstöðu.

Þrjátíu milljónir manna búa við þrældóm

Þetta kemur fram kemur í nýrri rannsókn sem náði til 162 landa en verst er ástandið á Indlandi þar sem álitið er að fólk í þrældómi telji um fjórtán milljónir.

Aðsend grein braut gegn lögum

"Mér finnst það náttúrulega ótrúlegt að það sé hægt að úrskurða svona grein ólögmæta,“ segir Játvarður Jökull Ingvarsson, framkvæmdastjóri símafyrirtækisins Hringdu.

UMFÍ skuldar 200 milljónir og afnemur bílahlunnindi

Ungmennafélag Íslands er mjög skuldsett þrátt fyrir miklar tekjur. Fráfarandi gjaldkeri félagsins vill skera niður bifreiðahlunnindi sem formaður félagsins nýtur. Lagði til að höfuðstöðvar UMFÍ yrðu seldar.

Leita ráðgjafar í örvæntingu

Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur um nokkurra ára skeið veitt innflytjendum ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu Reykjavíkurborgar

Kennitöluflakk kostar tugi milljarða á ári

"Samfélagslegt tjón vegna kennitöluflakks fyrirtækja skiptir tugum milljarða á ári þannig að það er svo sannarlega mikið vandamál,“ segir Halldór Grönvold,

Solberg og Jensen teknar við

Ný stjórn Hægri flokksins og Framfaraflokksins er tekin við í Noregi. Leiðtogar flokkanna, þær Erna Solberg og Siv Jensen, kynntu ráðherra stjórnarinnar í morgun.

Vina-Vopnafjörður í eina viku

Unglingar í æskulýðsfélgi kirkjunnar á Vopnafirði standa nú fyrir Vinaviku á Vopnafirði í fjórða skipti.

Mótmæla rétttrúnaðarkirkju á Mýrargötu

Íbúasamtök Vesturbæjar segja rússneska rétttrúnaðarkirkju við Mýrargötu verða of umfangsmikla og vilja hana burt. Samtökin segja söfnuðinn sjálfan tilbúinn að fara annað fáist til þess ný lóð og bætur frá borginni.

Elda uppáhaldsmat fyrir skólabörnin

Reykjavíkurborg stefnir að því að auka ánægju grunnskólabarna og foreldra með mat grunnskólabarna með markvissari hráefniskaupum og auknu gæðaeftirliti.

Ríkisstofnanir í Bandaríkjunum opna á ný

Fulltrúadeildin á Bandaríkjaþingi samþykkti seint í nótt frumvarp sem gerir það að verkum að ríkisstofnanir sem hafa verið lokaðar í tæpar þrjár vikur opna á ný.

Samráð við Hafnfirðinga

Vefurinn betrihafnarfjordur.is fór í loftið í gær. Vefurinn er hugsaður sem samráðsvettvangur þar sem bæjarbúum gefst tækifæri til að setja fram hugmyndir um málefni er varða þjónustu og rekstur bæjarins, að því er segir í fréttatilkynningu.

Unglingar sitja nefndarfundi

Tímamót voru á Seltjarnarnesi í gær þegar fulltrúi Ungmennaráðs sat sinn fyrsta nefndarfund á vegum bæjarins.

Var boðinn einkadans í kampavínsklúbbi

Fréttastofa hefur undir höndunum nýlegt hljóðskeið með samskiptum manns og starfsstúlku á VIP club. Á hljóðskeiðinu má hlýða á brot úr samræðum fólksins, en maðurinn fór í 15 mínútur með stúlkunni á afmarkað svæði inni á staðnum.

Varð tvisvar fyrir lest og lifði af

Tæplega þrítug kona í Utah í Bandaríkjunum lifði af þegar hún ók bifreið sinni á lest á ferð. Ekki nóg með það, heldur varð hún strax fyrir annarri lest í kjölfarið.

Áslandsskóli stækkaður

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag fjárveitingu vegna undirbúnings og hönnunar á síðari áfanga Áslandsskóla.

Sjá næstu 50 fréttir