Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Saab fær aukið fjármagn Hinir núverandi kínversku eigendur Saab hafa gert fjárfestingarsamning við borgina Qingdao. Fjárfestingasjóður í Qingdao borg greiðir með honum 40 milljarða króna, eignast 22% í Saab og byggð verður Saab verksmiðja í borginni. Áform eigenda Saab eru að búa til rafmagnsbíla úr núverandi 9-3 bíl Saab og breyta honum ekki í útliti í fyrstu. Koma fyrstu bílarnir á markað eftir um eitt ár. Qingdao telur að mikill markaður verði fyrir rafmagnsbíla í Kína í nánustu framtíð og stjórnvöld þar greiða götu þess með öllum ráðum og verja til þess miklu fjármagni. Núverandi eigandi Saab er National Electric Vehicle Sweden en stofnandi þess og stærsti eigandi er kínversk-sænskur auðmaður að nafni Kai Johan Jiang. Þetta samkomulag sem tryggir Saab umtalsvert meira fjármagn eykur líkurnar á því að merkið muni lifa og að brátt fari að sjást aftur Saab bílar á götunum. 9.1.2013 09:00
Þrjú ungmenni beittu Karl Vigni líkamlegu og andlegu ofbeldi heila nótt: Bundu Karl Vigni við stól og píndu "Við fórum með stráknum upp til karlsins og földum okkur þegar hann opnaði hurðina. Þá stóð hann nakinn með handklæði utan um sig. Þeir fara að tala saman og þá stökkvum við vinur minn á hann, handklæðið dettur af honum og við setjum hann á stól og bindum hann. Hann verður ógeðslega hræddur, strákurinn brjálaðist og sagði honum að staðfesta það sem karlinn hefði gert honum. Hann viðurkenndi allt. Þá verðum við alveg brjáluð og byrjum að lemja hann og rústuðum öllu í íbúðinni hans. Við börðum hann samt ekki illa, það sást ekkert á honum.“ 9.1.2013 08:00
Staðfest að Amy Winehouse lést af áfengiseitrun Búið er að staðfesta að breska söngkonan Amy Winehouse lést af völdum áfengiseitrunnar. 9.1.2013 07:41
Mikla fýlur leggur af rotnandi síld í Kolgrafarfirði Megn óþefur er nú ríkjandi við Kolgrafarfjörð á norðanverðu Snæfellsnesi, eftir síldardauðann þar í desember. 9.1.2013 07:27
Urðu að aflífa hest eftir að keyrt var á hann í Kömbunum Lögreglumenn urðu að aflífa stór slasaðan hest á vettvangi, eftir að hann varð fyrir bíl neðst í Kömbunum á móts við Hveragerði í gærkvöldi. 9.1.2013 07:24
Fíkniefni til staðar í öllum málum lögreglunnar í nótt Fíkniefni komu við sögu í nær öllum málum sem komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. 9.1.2013 07:23
Leikarinn Depardieu mætti ekki fyrir rétt í París Franski leikarinn Gerard Depardieu mætti ekki fyrir rétt í París í gærdag þar sem tekin var fyrir ákæra gegn honum fyrir ölvunarakstur. Í staðinn eyddi leikarinn deginum í Montenegro. 9.1.2013 07:21
Hanna risavaxið loftskip með mikla burðargetu Bandaríski herinn hefur hannað risavaxið loftskip sem er með þrefalda burðargetu á við þær flugvélar sem herinn notar til flutninga í dag. 9.1.2013 07:19
Fundu fimm skammbyssur og skotfæri í Kristjaníu Lögreglusérsveitin Task Force Pusherstreet lét til skarar skríða gegn fíkniefnasölum í Kristjaníu í gærdag. 9.1.2013 07:17
Kólnandi veður auðveldar slökkvistarf í Ástralíu Veður hefur farið kólnandi undanfarinn sólarhring í Ástralíu og hefur það auðveldað vinnu slökkviliðsmanna sem berjast við skógarelda víða í suðurhluta landsins. 9.1.2013 07:14
Stjórnarkreppa í uppsiglingu í Venesúela Stjórnarkreppa er í uppsiglingu í Venesúela eftir að ríkisstjórn landsins tilkynnti í gærkvöld að Hugo Chavez forseti gæti ekki svarið embættiseið á morgun eins og lög kveða á um. 9.1.2013 07:08
Stór og góð loðna við Langanes Loðnuskipin landa nú eitt af öðru fyrstu loðnuförmunum og komu tvö skip HB Granda, Faxi RE og Ingunn AK, til Vopnafjarðar í gærmorgun með rúmlega tvö þúsund tonn. Fékkst sá afli aðallega í flottroll á togsvæðinu norður af Langanesi. 9.1.2013 07:00
Milljón Sýrlendingar svelta Ein milljón Sýrlendinga er við hungurmörk og hjálparvana eftir 22 mánaða borgarastyrjöld í landinu. Þetta er mat Sameinuðu þjóðanna. 9.1.2013 06:00
David Bowie snýr aftur - nýtt lag og myndband Breski tónlistarmaðurinn David Bowie rauf áralanga þögn sína í gær þegar nýtt lag eftir hann birtist í vefverslun Apple, iTunes. Smáskífan ber heitið „Where Are We Now?" og er af væntanlegri plötu Bowie, „The Next Day." 8.1.2013 23:33
Fílafjölskylda drepin af veiðiþjófum í Kenía Heil fílafjölskylda féll fyrir hendi veiðiþjófa í Tsavo þjóðgarðinum Kenía á dögunum. Náttúruverndarsamtök þar í landi segja að ellefu fílar hafi fallið í árásinni. Veiðiþjófarnir voru á höttunum eftir skögultönnum fílanna. Líklegt þykir að fílabeinin hafi verið flutt til Kína en þar eru þau seld dýrum dómum. 8.1.2013 23:06
Allur að koma til eftir krabbameinsuppskurð og ætlar sér að spila í febrúar "Ólíkt oft áður þá er enginn heimsendir þó ég nái ekki bikarleiknum í Febrúar.“ Þetta segir Hannes Jón Jónsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta og atvinnumaður í Þýskalandi sem var skorinn við krabbameini á þremur stöðum í þvagblöðru í október. Hann fer í lyfjameðferð nú í janúar en segir að líkaminn sé allur að koma til. 8.1.2013 22:47
Fá úrræði fyrir þá sem þjást af barnagirnd "Það er hægt að koma í veg fyrir að fólk fremji brot gegn börnum, en það er ekki endilegt hægt að breyta hugsunarferli fólks,“ segir Annar Kristín Newtown, sálfræðingur. Um fátt annað er rætt þessa dagana en brot barnaníðingsins Karls Vignis Þorsteinssonar, sem tíunduð voru Kastljósi Ríkisútvarpsins. 8.1.2013 22:17
„Samfélagið allt var í afneitun á þessum tíma“ "Ég að við þurfum að hafa í huga það tímabil sem er verið að fjalla um í þessum efnum, það hefur mikið vatn runnið til sjávar á þessum tíma. Það sem kemur við mann í þessum málum eru þessi ítrekuðu brot. Ég ætla rétt að vona að slíkt sé ekki mögulegt í dag. En þáttur Kastljós í gær var góð áminning um það sem getur gerst þegar samfélagið heldur ekki árverkni sinni.“ 8.1.2013 21:11
Fórnarlamb Karls Vignis lýsir áhugaleysi lögreglu - "Þetta er sálarmorð“ "Þetta er sálarmorð," segir Henry Ragnarsson en hann greindi frá því í Kastljósi Ríkisútvarpsins í kvöld þegar hann lenti í klónum á Karli Vigni Þorsteinssyni sem viðurkennt hefur að hafa beitt allt að 50 börn kynferðislegu ofbeldi síðustu áratugi. 8.1.2013 20:17
Stjórnvöld í Suður-Kóreu með ítök í sérleyfi á Drekanum Ríkisolíufélag Suður-Kóreu er komið í lykilstöðu á Drekasvæðinu, sem stærsti eigandi Faroe Petroleum. Forstjóri Faroe vonast til að koma með borpall á Drekann eftir þrjú til fjögur ár og segir félagið nægilega sterkt til að standa fyrir borunum. Olíufélag sem stofnað var í Færeyjum fyrir fimmtán árum þykir einhverjum kannski ekki líklegt til stórræðanna á Drekasvæðinu en það er engu að síður orðinn handhafi 67 prósenta í stærsta sérleyfi til olíuvinnslu á landgrunni Íslands. 8.1.2013 19:15
Síminn hjá Stígamótum hefur verið rauðglóandi Síminn hefur varla stoppað hjá Stígamótum í dag, í kjölfar umfjöllunar Kastljóss um barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteinsson. Sóknarprestur Áskirkjuprestakalls segir að viðurkenning sem veitt var Karli Vigni hafi orkað tvímælis á sínum tíma. 8.1.2013 18:15
Blindrafélagið rannsakar störf Karl Vignis Karl Vignir Þorsteinsson, sem viðurkennt hefur að hafa beitt allt að 50 börn kynferðislegu ofbeldi síðustu áratugi, var sjálfboðaliði fyrir Blindrafélagið á tíunda áratug síðustu aldar. 8.1.2013 17:39
Audi SQ5 – 345 hestöfl Á bílasýningunni í Detroit sem hefst eftir tvær vikur mun Audi sýna Q5 jepplinginn í S-útfærslu. Að sjálfsögðu er hann knúinn bensínvél, það þýðir ekki að bjóða Bandaríkjamönnum annað. Í Evrópu er hann boðinn með díselvél. Þessi lúxusútgáfa jepplingsins sem þeim vestra býðst er snarpur í meira lagi, enda með 345 hestöfl undir húddinu. Þau koma frá sömu 6 strokka og þriggja lítra vél og finnst í Audi S5 bílnum. Sjálfskiptingin í bílnum er 8 gíra og sendir aflið til allra hjólanna. Hann er ekki nema 5,2 sekúndur í hundraðið og hámarkshraðinn er takmarkaður við 250 km. S-útgáfan er 3 sentimetrum lægri en venjulegur Q5 og fjöðrunin öll stífari. Hann verður á 20 tommu álfelgum og aðeins boðinn í tveimur litum, svartur og Estoril blár. Efnisnotkun í innanrými einkennist nokkuð af áli og sætin eru úr Nappa leðri og Alcantara efni. Sala bílsins hefst á haustmánuðum. 8.1.2013 17:00
Grunuð um aðild að fjórum innbrotum Par, karlmaður og kona, sem var handtekið á fimmtudag eftir innbrot í hús á höfuðborgarsvæðinu mun sæta gæsluvarðhaldi fram á föstudag. Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness vegna málsins í dag. 8.1.2013 16:44
Slökkviliðið fór í 25 þúsund útköll Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) sinnti yfir 25 þúsund útköllum á árinu 2012. Þar af voru rúmlega 1.200 útköll vegna slökkviliðs en yfir 24 þúsund útköll vegna sjúkraflutninga, eða í kringum 95% allra útkalla SHS. Heildarfjöldi útkalla jókst um 618 á milli ára. 8.1.2013 16:19
Þrír af sakborningunum í Delí neita sök Þrír af fimm mönnum sem grunaðir eru um að hafa rænt, nauðgað og myrt 23 ára gamla konu í Delí á Indlandi munu neita sök. Þetta segir Manohar Lal Sharma í samtali við BBC fréttastofuna. Hann segir að mennirnir, sem heita Mukesh Singh, Akshay Thakur og Ram Singh, eigi rétt á sanngjörnum réttarhöldum. Allir mennirnir fimm voru leiddir fyrir dómara í gær og réttarhöld halda áfram á fimmtudag. Sjötti grunaði maðurinn er einungis sautján ára gamall. Réttað verður yfir honum fyrir unglingadómstól. Verði mennirnir sakfelldir munu þeir hugsanlega hljóta dauðarefsingu. 8.1.2013 16:07
Myndaði fjölda háhyrninga í Grundarfirði - návígið ótrúlegt "Ætli þetta hafi ekki verið um 15-20 hvalir þar sem við vorum, þeir voru,“ segir björgunarsveitarmaðurinn, bjórsafnarinn Tómas Logi Hallgrímsson, sem náði ótrúlegu myndbandi af háhyrningum sem leituðu ætis í Grundafirði síðasta sunnudag. 8.1.2013 16:05
Um 1,2 milljarðar greiddir úr sjúkrasjóði VR greiddi um 1,2 milljarða króna úr sjúkrasjóði félagsins á nýliðnu ári. Þetta er það mesta sem greitt hefur verið úr sjóðnum á einu ári. Sjúkradagpeningar voru ríflega helmingur upphæðarinnar og hafa aukist um þriðjung frá árinu 2011. Stefán Einar Stefánsson, formaður VR, segir þessa aukningu áhyggjuefni en fagnar sterkri stöðu sjóðsins sem geti veitt félagsmönnum öflugan stuðning þegar þörf er á. 8.1.2013 14:34
Dópuð með börnin í aftursætinu Kona var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Hún var undir áhrifum fíkniefna samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 8.1.2013 14:17
Hinn fullkomni kvikmyndatökubíll Ekkert er ómögulegt í Hollywood og þar er sjaldan sparað. Þegar útbúa skal myndatökubíl sem tekur á ferð er Porsche Panamera af dýrustu gerð fenginn til verksins. Hann hefur þó sýnilega kosti til verksins því bíllinn þarf að vera með mjög öfluga vél, frábæra fjöðrun, gríðargóðar bremsur, vera stór og svo sterkbyggður að hann geti borið þunga myndavélabómu á þakinu. Þá er líka keyptur bíll sem kostar 160.000 dollara eða ríflega 20 milljónir króna. Bíllinn er mattlakkaður svo hann skemmi ekki tökur með endurkasti ljóss. Bíllinn hefur ennfremur verið þannig útbúinn að á skotti hans hefur verið settur myndavélagluggi svo taka megi myndir afturúr bílnum. Svona hlutir gætu bara gerst í henni Hollywood! 8.1.2013 14:00
Dæmd í 17 ára fangelsi fyrir morðið á syni sínum Indversk móðir, búsett í Bretlandi, var á dögunum dæmd til 17 ára fangelsvistar fyrir að berja sjö ára son sinn til dauða með spítu. Atvikið átti sér stað í júlí 2010 og kvað móðirin, Sara Ege ástæðuna vera þá að drengnum gekk illa að læra utanbókar texta úr heilagri bók múslima, Kóraninum. Eftir hrottalegt morðið brenndi Sara svo lík sonar síns til að fela sönnunargögnin. 8.1.2013 13:56
Þefaði af öllum jólapóstinum Lögregluhundurinn Klettur, sem starfar hjá ríkislögreglustjóra, var fenginn til þess að þefa af öllum jólapóst sem sendur var með flugi frá Keflavíkurflugvelli í desember. 8.1.2013 13:06
Sjá eftir að hafa heiðrað barnaníðing vegna umfjöllunar Kastljóss Í yfirlýsingu frá Áskirkju kemur fram að það hafi verið rangt hjá kirkjunni að veita Karli Vigni Þorsteinssyni viðurkenningu fyrir störf sín í þágu kirkjunnar sem sjálfboðaliði. 8.1.2013 12:48
Foreldrar standa vörð við Foldaskóla Foreldrar barna í Foldaskóla hafa tekið sig saman um að standa umferðarvakt við skólann. Þeir vilja minna ökumenn á umferðarreglurnar og draga úr hættu á slysum. 8.1.2013 11:38
Nítján ára piltur búinn að kæra hópnauðgun Nítján ára piltur hefur lagt fram kæru vegna hópnauðgunar sem hann á að hafa orðið fyrir um helgina. Maðurinn hafði samband við lögreglu við tónlistarhúsið Hörpu en ekki er ljóst nákvæmlega hvar árásin á að hafa átt sér stað. 8.1.2013 11:32
Þriggja strokka BMW Þýski bílaframleiðandinn BMW mun bráðlega kynna til leiks fyrstu þriggja strokka vél sína. Mun hún birtast fyrst í BMW 1-línunni. Var þessi vél kynnt fyrst í öðrum bíl BMW á bílasýningunni í París í fyrra, Concept Active Tourer tvinnbíl. Vélin smáa hefur 1,5 lítra sprengirými og styðst við forþjöppu. Þrátt fyrir smæð sína skilar þessi vél 175 hestöflum og hendir þessum smáa bíl í hundraðið á 7 sekúndum. Ekki slæmt fyrir þriggja strokka bíl. BMW áformar einnig að smíða 1,2 lítra þriggja strokka vél. Þessi nýja vél BMW hefur fengið framleiðslunafnið B38. Hún er ein af nýrri röð véla sem framleiddar eru undir merkjum Efficient Dynamics, en þar undir eru einnig fjögurra og sex strokka vélar sem notaðar verða í bíla með undirvagni gerða fyrir framhjóladrif og einnig í tvinnbíla sem hlaða má með heimilisrafmagni. 8.1.2013 11:31
Hreinsun lauk í gærkvöldi Slökkviliðsmenn á Sauðárkróki luku við hreinsun hafnarsvæðisins um klukkan átta í gærkvöldi, eftir að fimm þúsund lítrar af eitraðri saltsýru láku úr gámageymi þar í fyrrinótt. Miklu af sjó og fersku vatni var dælt fyir mengaða svæðið og síðan var um tonni af vítisóta dreift yfir. Þetta var endurtekð þar til Ph gildi sýndu að efnin voru orðin skaðlaus, samkvæmt kröfum heilbrigðisyfirvalda, og höfðu breyst í salt og vatn. 14 slökkviliðsmenn höfðu þá verið að störfum vegna lekans í hátt í sólarhring. Vinnueftirlitið mun nú rannsaka gáminn og fylgiskjöl hans, en tæring í honum olli lekanum. 8.1.2013 10:52
Dæmdur fyrir að svíkja fé af Magnúsi Ármann - þarf að endurgreiða um 40 milljónir Sextugur karlmaður var dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa svikið hátt í fjörtíu milljónir króna út af greiðslukorti í eigu athafnamannsins Magnúsar Ármann. 8.1.2013 10:24
Tíu óvinsælustu bílarnir í BNA Þrátt fyrir að bílar hafi mokselst í Bandaríkjunum á liðnu ári eru ekki allir bílar vinsælir þar vestra. Tekinn hefur verið saman forvitnilegur listi yfir þær 10 bílgerðir sem seldust verst í fyrra. Bílarnir á listanum mega ekki kosta yfir 13 milljónir króna, þeir þurfa að hafa verið í sölu allt árið og framleiðslu þeirra ekki hætt á árinu 2012. Eftirfarandi listi sýnir bílgerðirnar og fjölda seldra bíla: 1. Mitsubishi i-MiEV - 588 2. Mitsubishi Lancer – 702 3. Acura CDX – 772 4. Nissan GTR – 1.188 5. Cadillac Escalade EXT – 1.934 6. Suzuki Equator – 1.966 7. Subaru Tribeca – 2.075 8. Audi TT – 2.226 9. BMW Z4 – 2.751 10. Volvo C30 – 2.827 8.1.2013 10:04
Jón Bjarnason gefur ekki kost á sér í komandi þingkosningum Jón Bjarnason hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á framboðslista VG í Norðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. 8.1.2013 09:21
Reiði vegna giftingar manns á tíræðisaldri og 15 ára stúlku Mikil reiði ríkir í Saudi Arabíu eftir fregnir um að maður á tíræðisaldri hefði giftst 15 ára gamalli unglingsstúlku. 8.1.2013 09:02
Hita- og þurrkatíð eykur eldhættuna Stjórnvöld í Ástralíu óttast fleiri kjarrelda víðar í landinu. Í suðurhluta landsins var í dag spáð roki og allt að 43 stiga hita. Á eynni Tasmaníu hafa yfir hundrað heimili og byggingar orðið eldi að bráð. Í gær var hundrað manns enn saknað. 8.1.2013 08:00
Plánetur af sömu stærð og jörðin eru 17 milljarðar í Vetrarbrautinni Stjörnufræðingar telja nú að alls megi finna 17 milljarða af plánetum í Vetrarbrautinn sem eru á stærð við jörðina. 8.1.2013 07:52
Snemmbær kynþroski eykur sjúkdómahættu Eftir því sem stúlkur verða fyrr kynþroska eru meiri líkur á að þær látist af völdum hjarta- og æðasjúkdóma á fullorðinsaldri, samkvæmt nýrri rannsókn. Offita og ofþyngd hafa ekki áhrif. Rannsóknin náði til yfir þúsund íslenskra kvenna. 8.1.2013 07:00
Umræðan hefur opnað augu foreldra Viðtölum vegna transmála hjá Samtökunum 78 hefur fjölgað mikið. Unnið er að nýjum verkferlum innan BUGL vegna kynáttunarvanda barna og unglinga. 8.1.2013 07:00
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent