Innlent

Dópuð með börnin í aftursætinu

Kona var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Hún var undir áhrifum fíkniefna samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Með í för voru börnin hennar, en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þeirra þágu og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Mamman var hins vegar handtekin og flutt á lögreglustöð. Því miður er mál sem þetta ekki einsdæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×