Þrjú ungmenni beittu Karl Vigni líkamlegu og andlegu ofbeldi heila nótt: Bundu Karl Vigni við stól og píndu Sunna Valgerðardóttir skrifar 9. janúar 2013 08:00 Hrönn Sveinsdóttir „
Við fórum með stráknum upp til karlsins og földum okkur þegar hann opnaði hurðina. Þá stóð hann nakinn með handklæði utan um sig. Þeir fara að tala saman og þá stökkvum við vinur minn á hann, handklæðið dettur af honum og við setjum hann á stól og bindum hann. Hann verður ógeðslega hræddur, strákurinn brjálaðist og sagði honum að staðfesta það sem karlinn hefði gert honum. Hann viðurkenndi allt. Þá verðum við alveg brjáluð og byrjum að lemja hann og rústuðum öllu í íbúðinni hans. Við börðum hann samt ekki illa, það sást ekkert á honum." Svo lýsir Hrönn Sveinsdóttir kvikmyndagerðarkona reynslu sinni á nýársnótt árið 1994 í samtali við Fréttablaðið. Hún og vinur hennar, þá sautján ára unglingar, hittu ungan mann í miðborg Reykjavíkur sem sagði þeim frá ofbeldi sem hann hafði orðið fyrir af hálfu Karls Vignis Þorsteinssonar í fjölda ára. Hún greindi frá atvikinu á Facebook eftir umfjöllun Kastljóss á mánudagskvöld, þar sem Karl játaði að hafa níðst kynferðislega á allt að fimmtíu börnum undanfarin fjörutíu til fimmtíu ár.Ekki beinlínis löglegt Hrönn og vinur hennar fóru með drengnum heim til Karls bundu hann við stól og létu hann játa skriflega að hafa misnotað drenginn og fjölda annarra barna og unglinga. Þau ræddu aldrei við lögreglu. „Við sögðumst ætla að fara með þetta allt til löggunnar, hann færi í fangelsi og við myndum aldrei sjá hann aftur. En eftir á að hyggja urðum við hrædd við það sem við gerðum, því það var nú ekki beinlínis löglegt," segir hún. „Þetta var svo skrýtið allt saman. Maður hugsaði með sér að svona maður, sem hafði viðurkennt allt, að það væri örugglega búið að taka hann fyrir löngu," segir Hrönn. „En þegar ég sá Kastljósið leið mér hræðilega að hafa ekki gert eitthvað annað og meira en að pína hann og skemma íbúðina hans. Við hefðum auðvitað átt að fara til lögreglunnar." Krakkarnir yfirgáfu íbúð Karls Vignis á nýársmorgun og skildu hann eftir í stólnum, bundinn og nakinn. Hann lagði aldrei fram kæru vegna næturinnar, sem Hrönn lýsir sem afar undarlegri. „Við skildum hann eftir svona í íbúðinni, allt í rúst. Fórum með játninguna en gerðum aldrei neitt við hana. Við þorðum ekki að fara með hana til löggunnar því við höfðum auðvitað hegðað okkur eins og bjánar. En við héldum að við hefðum hrætt úr honum líftóruna."Átti miklar sakir við hann Drengurinn sagði Karl hafa boðið sér húsnæði og peninga eftir að hafa lent á götunni mörgum árum áður. Hann hefði misnotað drenginn öll þau ár sem hann dvaldi hjá Karli. „Strákurinn átti svo miklar sakir við hann og fer að rifja upp allt sem hann hafði gert honum – byrjar að tala um aðra krakka líka – og karlinn viðurkennir allt. Eins og sást í Kastljósinu er hann ekkert ófús að viðurkenna þessa hluti og verður voða aumur," segir hún. „Við verðum rosalega reið, erum auðvitað bara 17 ára unglingar, og ég fer inn í íbúðina og sný öllu við í stofunni. Ég eyðilagði ekkert en sneri öllum myndum við, öllum blómapottum og húsgögnum. Ég heyri bara í þeim og labba um til að sjá hvað ég get gert meira. Svo fór ég reglulega inn í borðstofu og öskraði meira á hann."Þvinguðu fram játningu Hún segir Karl Vigni hafa verið afar óttasleginn. „Hann var bara bundinn við stól og var að drepast úr hræðslu. En við bara nutum þess. Strákurinn las líka yfir honum hvað hann væri mikið ógeð og réttast væri að drepa hann. Hann viðurkenndi að hafa misnotað fullt af öðrum krökkum," segir hún. „Við fundum einhverjar möppur inni í skáp hjá honum með fullt af nöfnum með einhverjum krökkum. Við þvinguðum hann til að skrifa undir játningu og skrifa niður fullt af nöfnum á börnum sem hann hafði misnotað, og hann gerði það. En hann var náttúrulega drulluhræddur, allsber í stól." Hún segir það hafa komið sér á óvart að Karl Vignir hefði haldið áfram að misnota börn. „Hálfur bærinn vissi af þessu, þar á meðal ég, en samt gerðist ekkert. En á þessum árum hefði löggan sennilega bara kært okkur. Við vorum bara krakkabjálfar og þetta voru orð gegn orði og játning sem var þvinguð fram. En ég sá aldrei eftir þessu. Mér leið aldrei illa yfir því að hafa gert þetta. Það eina erfiða var að hafa hitt svona ógeðslegan mann. Þetta skrímsli sem hann sagðist sjálfur vera."
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira