Fleiri
Tveir þriðju sögðu já 22.10.2012 06:00 30 gera athugasemdir við breytingar á Hjartagarði Alls bárust borginni 32 athugasemdir um skipulag á Hljómalindarreitnum í miðborg Reykjavíkur. Þrjátíu þeirra fjalla að einhverju eða öllu leyti um Hjartagarðinn, þar sem breytingar á honum eru gagnrýndar. 22.10.2012 00:00 Hjólreiðamaðurinn var skotinn fyrst Vitnisburður Zainab al-Hilli, sjö ára stúlku sem lifði af skotárás í Frakklandi, hefur breytt þeirri mynd sem franska lögreglan hafði gert sér af atburðarásinni. Svo virðist sem hjólreiðamaður, sem fannst látinn skammt frá bifreið fjölskyldu stúlkunnar, hafi fyrst verið skotinn. 22.10.2012 00:00 Í eina sæng eftir næstu áramót Sveitarfélögin Álftanes og Garðabær munu sameinast, undir merkjum hins síðarnefnda, í upphafi næsta árs. Sameining var samþykkt í báðum sveitarfélögum um helgina. 22.10.2012 00:00 Djúpar boranir ollu jarðskjálfta á Spáni Níu manns létu lífið og nærri 300 hlutu meiðsli þegar jarðskjálfti, sem mældist 5,1 stig, reið yfir bæinn Lorca á Spáni þann 11. maí árið 2011. 22.10.2012 00:00 Lítt hjálpleg úrslit Andstæðingar spænsku ríkisstjórnarinnar unnu sigur í héraðsstjórnarkosningum í Baskalandi í gær, samkvæmt útgönguspám, en stjórnarflokkurinn vann aftur á móti sigur í Galisíu. 22.10.2012 00:00 Ósáttir við stjórnina Hundruð manna hafa undanfarna daga barist við hersveitir, hliðholla Líbíustjórn, í bænum Bani Walid, sem er um 140 kílómetra suðaustur af höfuðborginni Trípolí. Þar í bæ voru stuðningsmenn Múammars Gaddafí öflugir og enn eru margir ósáttir við þau stjórnvöld sem tóku við eftir að Gaddafí hafði verið steypt af stóli. Í höfuðborginni Trípolí komu síðan um tvö hundruð manns saman fyrir utan þinghúsið og hvöttu til þess að þessum átökum linnti, enda kosti þau aðallega saklausa borgara lífið. 22.10.2012 00:00 "Það er kannski verið að eyðileggja líf þessa unga manns“ Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari segir að dómstólar hafi í seinni tíð gert of vægar sönnunarkröfur í kynferðisbrotamálum. Mun vægari kröfur en í öðrum tegundum sakamála. Hann segir að allt bendi til þess að ungur maður hafi fyrr á þessu ári verið dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisbrot sem hann framdi ekki. 21.10.2012 18:30 Telur brýnt að stofna millidómstig Álagið á Hæstarétti er allt of mikið og afar brýnt að stofnað verði millidómstig, til dæmis í sakamálum. Þetta segir Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari. Hann telur rétt að fækka dómurum við Hæstarétt og til kasta réttarins komi aðeins stærri mál, líkt og þekkist erlendis. 21.10.2012 16:24 Sjá næstu 50 fréttir
Notar eigin verðlaunapumpu en gefur ekkert upp um sentímetra Íslenskt hugvit vekur enn á ný heimsathygli, nú fyrir hönnun á hjálpartæki ástarlífsins fyrir karlmenn. Tækið var sett á markað í sumar og selst víst eins og heitar lummur. 22.10.2012 20:30
Skjálftinn gæti orðið af stærri gerðinni Skjálftahrinan út af Norðurlandi er enn í fullum gangi en með vægari kippum en í gær. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir að hrinan geti komið af stað stærri atburði og brýnt sé að taka upp strangari vöktun. Þannig megi sjá fyrir stóran skjálfta. Fyrir norðan er fólki brugðið og þótt jarðskjálftafræðingurinn segi ekkert benda til að meira sé yfirvofandi telur hann hrinuna geta hrundið af stað atburðarás sem leiði til stórs skjálfta. 22.10.2012 19:45
Keyptu og seldu gjaldeyri á Lækjartorgi - lögreglan fylgdist með úr fjarska Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, keypti gjaldeyri á Lækjartorgi í dag fyrir krónur. Samkvæmt tilkynningu frá SUS þá komu margir með gjaldeyri og keyptu íslenskar krónur af Heimdellingum. 22.10.2012 19:41
Bjartsýn á að umræðu ljúki fyrir jól - ekki yfir miklu að þumbast Þingið hefur fengið skýr skilaboð um að auðlindir skuli í þjóðareign, segir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Hún segir ekkert því til fyrirstöðu að ljúka fyrstu umræðu um breytingar á stjórnaskránni, fyrir jól. 22.10.2012 18:43
Lýsing segir dóminn ekki eiga við sig - Helgi vill frekari svör Lýsing telur að dómur Hæstaréttar á fimmtudag um gengistryggð lán eigi ekki við um sitt lánasafn og mun því ekki ráðast í endurútreikninga. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir Lýsingu þurfa að útskýra þá afstöðu nánar og hefur kallað forsvarsmenn fyrirtækisins aftur á fund nefndarinnar ásamt lögfræðingum. 22.10.2012 18:26
Barist við Lúpínu í Þórsmörk - best að efla birkiskóginn Tilraun til þess að stemma stigu við útbreiðslu Lúpínunnar í Þórsmörk með eitri árið 2009 mistókst gjörsamlega að sögn Svandísar Svavarsdóttur, umhverfis- og auðlindarráðherra. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Unnar Brá Konráðsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í dag, um aðgerðir sem hafa verið gripið til þess að hefta útbreiðslu þessarar lífseigu plöntu í Þórsmörk. 22.10.2012 17:51
Hríseyingar hvattir til að spenna beltin Hverfisráð Hríseyjar hefur áhyggjur af umferðarmenningunni á staðnum. Var málið sérstaklega rætt á síðasta fundi nefndarinnar. Ákveðið var að senda áskorun til íbúa og gesta um að virða umferðarlög og reglur. 22.10.2012 17:41
Fréttir á Gull Bylgjunni Fréttir frá fréttastofu Bylgjunnar, Vísis og Stöðvar 2 hljóma nú einnig á Gull Bylgjunni. Gull Bylgjan á marga dygga hlustendur sem njóta þess að hlusta á „þessi gömlu góðu" sem hljóma þar allan sólarhringinn. Nú hefur þjónusta við hlustendur stöðvarinnar verið stórbætt því þar hljóma nú fréttir frá klukkan sjö á morgnanna til klukkan fimm síðdegis. 22.10.2012 17:05
Jóhanna gefur fimleikastúlkum fimm milljónir Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita Fimleikasambandi Íslands fimm milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé sínu, til áframhaldandi uppbyggingarstarfs. Þetta er gert í viðurkenningarskyni fyrir glæsilegan árangur kvenna- og stúlknalandsliða Íslands á Evrópumótinu í hópfimleikum, þar sem bæði liðin unnu til gullverðlauna. 22.10.2012 16:47
Sex ára fangelsi fyrir að spá ekki fyrir um jarðskjálfta Sex ítalskir vísindamenn og einn fyrrverandi embættismaður voru í dag dæmdir í sex ára fangelsi fyrir að hafa brugðist almenningi og ekki varað við yfirvofandi jarðskjálfta. 22.10.2012 16:33
Borgari kyrrsetti ölvaðan ökuþór Húsráðandi í Reykjanesbæ kyrrsetti ölvaðan ökuþór þar til lögreglan á Suðurnesjum kom á vettvang í nótt. 22.10.2012 16:00
Vilja hækka hámarkshraða á Reykjanesbraut Æskilegt er að hækka hámarkshraða á Reykjanesbraut upp í 110 kílómetra á klukkustund til langs tíma litið, sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á Alþingi í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hann út í málið. Ögmundur sagði þó að ekki væri tímabært að gera þessa breytingu núna því að skilyrði væru ekki uppfyllt. 22.10.2012 15:59
Ráðist á forsætisráðherra Finnlands Karlmaður réðst á Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands, í Åbo í dag og reyndi að stinga hann með hnífi. Katainen slapp ómeiddur úr árásinni. Það voru lífverðir forsætisráðherrans sem gripu inn í og komu í veg fyrir að árásarmanninum tækist að vinna honum mein. Maðurinn var fluttur burt í handjárnum 22.10.2012 15:10
Tíbeti kveikti í sér Tíbeskur karlmaður á miðjum aldri bar eld að eigin skinni í klaustri í norðvesturhluta Kína í dag. 22.10.2012 15:07
Elsti eftirlifandi Auschwitz látinn Pólverjinn Antoni Dobrowlski lést í gær, 108 ára að aldri. Hann var elstur eftirlifenda úr Auschwitz-útrýmingarbúðunum. 22.10.2012 14:49
Sagðist vera grískur ferðamaður Á föstudag var karlmaður stöðvaður við komuna til landsins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en hann framvísaði fölsuðum skilríkjum. Maðurinn, sem var að koma frá Kaupmannahöfn, framvísaði grísku ferðaskilríki, sem lögreglumenn sáu að átt hafði verið við. Hann var færður á lögreglustöð, þar sem hann viðurkenndi að hann væri alls ekki grískur heldur annarar þjóðar. Málið er í rannsókn hjá lögreglu. 22.10.2012 14:47
Um 180 utangarðsmenn í Reykjavík Alls teljast 179 einstaklingar utangarðs, eða án heimilis samkvæmt nýrri skýrslu sem unnin var fyrir velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Þessir einstaklingar hafa leitað til ýmissa annarra stofnana og félagasamtaka eftir þjónustu og stuðningi. Í skýrslunni kemur fram að utangarðsfólk er almennt ánægt með þá þjónustu sem fyrir hendi er þó flestum finnist vanta sólarhringsúrrræði. 22.10.2012 14:38
Hættir í bæjarstjórn Árborgar og segir sig úr Sjálfstæðisflokknum Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Árborg hefur ákveðið að hætta í bæjarstjórn og segja sig líka úr Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn er með hreinan meirihluta í Árborg. Hún hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna málsins. 22.10.2012 14:26
Verdi á fjölunum - Keppast um hylli hefðarkonu Sígaunasonur og greifi keppast um hylli fagrar hefðarkonu í einu frægasta óperuverki Verdis, Il trovatore, sem nú er á fjölum íslensku óperunnar. Hugrún Halldórsdóttir og Baldur Hrafnkell myndatökumaður fóru í gær á frumsýningu óperunnar átakanlegu. 22.10.2012 13:34
Fá leitarskanna sem var notaður á Ólympíuleikunum Fangelsið á Litla Hrauni hefur fjárfest í notuðum leitarskanna frá Ólympíuleikunum í London í sumar, sem starfsmenn og gestir þurfa að ganga í gegnum á leið sinni inn í fangelsið. Öryggismál hafa verið í ólestri á Litla Hrauni vegna fjárskorts enda segir forstöðumaður fangelsins að öryggismálin hafa verið keyrð á sveitamennskunni hingað til. 22.10.2012 12:23
Þriðju kappræður forsetaframbjóðendanna í beinni á Vísi Vísir sýnir beint frá þriðju og síðustu kappræðum Baracks Obama, Bandaríkjaforseta, og Mitt Romney, forsetaefni Repúblikanaflokksins, sem fram fara klukkan eitt í Flórída í nótt. 22.10.2012 12:16
Amman ræktar epla- og appelsínutré við Drangajökul Amman í Skjaldfannardal í Ísafjarðardjúpi, Ása Ketilsdóttir, vakti athygli í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í gærkvöldi þegar hún sýndi skrúðgarðinn sem hún er búinn að rækta upp á bæ sínum, Laugalandi, inn undir Drangajökli. Þar er hún með á þriðja hundrað tegunda, þeirra á meðal margar sem teljast suðrænar, eins og bóndarós, og það á svæði sem þekkt er fyrir kuldaleg örnefni; Kaldalón, Snæfjallaströnd og Skjaldfönn. "Það er líka til Unaðsdalur," bætti Ása við og minnti á nafn næsta dals norðan Kaldalóns. 22.10.2012 11:47
Hjólbarði fór undan bíl í Hvalfjarðargöngunum Um klukkan hálf tíu í morgun var tilkynnt um eld í bifreið í miðjum Hvalfjarðargöngum en þegar slökkvilið og lögregla komu á vettvang reyndist um minniháttar brima að ræða. Því var ekki talin þörf á að loka göngunum. Að sögn lögreglu hafði hjólbarði farið undan bifreið og við það komið upp eldur. Bifreiðin var fjarlægð af vettvangi með krana en engin slys urðu á fólki. 22.10.2012 11:23
Brennuvargur ætlar ekki að áfrýja Karlmaður sem grunaður erum að hafa borið eld að ýmsum stöðum á Selfossi að undanförnu ætlar ekki að áfrýja fjögurra vikna gæsluvarðhaldi sem hann var úrskurðaður í á fimmtudag. 22.10.2012 10:30
Aðalmeðferð í máli Arons Karlssonar Aðalmeðferð fer fram í dag í máli sérstaks saksóknara gegn Aroni Karlssyni kaupsýslumanni. Hann er grunaður um fjársvik í tengslum við sölu á stórhýsi við Skúlagötu til kínverska sendiráðsins. Þrjú ár eru síðan rannsókn málsins hófst. 22.10.2012 10:23
Braust inn á lögreglustöð og stal lögreglubíl Karlmaður braut rétt fyrir klukkan fjögur í nótt inn á lögreglustöðina á Ísafirði, þegar lögreglumenn á vakt sinntu útkalli vegna skemmda og ökuláta. Einn maður var þar að verki. Hann fór beint í bílgeymslu lögreglunnar, tók þar jeppabifreið lögreglu og ók honum út úr bílgeymslunni og um nokkrar götur í bænum. Talsverð hálka var á götum bæjarins. Lögreglan segir að af af vegsummerkjum að dæma hafi maðurinn ekið mjög ógætilega um bæinn og endaði akstur sinn á gangstíg í Miðtúni. Lögreglubifreiðin er mikið skemmd eftir akstur hans. 22.10.2012 09:14
Brú Ólafs Elíassonar orðin að dómsmáli í Kaupmannahöfn Bygging reiðhjólabrúar í Kaupmannahöfn sem hönnuð var af Ólafi Elíassyni er orðin að máli fyrir héraðsdómi í borginni. 22.10.2012 06:58
Stór hrefna reyndist hvalreki fyrir einhverja Stóra hrefnu rak nýverið á fjöru við bæinn Berg við Grundarfjörð, sem vart er í frásögu færandi, nema fyrir það að þetta hefur reynst einhverjum raunverulegur hvalreki. 22.10.2012 06:55
Íbúafundur hafnar háspennuloftlínu fyrir norðan Fundur íbúa á áhrifasvæði háspennuloftlínu, sem Landsnet fyrirhugar að leggja á milli Blöndu og Akureyrar, og haldinn var um helgina, hafnar hugmyndinni. 22.10.2012 06:51
Kínverjar stöðva nektardans við jarðarfarir Stjórnvöld í héraðinu Jiangsu í Kína hafa stöðvað allan nektardans við jarðarfarir í Donghai sýslu. 22.10.2012 06:49
Smygluðu 9 tonnum af hassi með flutningabílum Flutningafyrirtæki á Jótlandi telur sig illa brennt eftir að í ljós er komið að stórtækir hasssmyglarar notuðu flutningabíla þess til að smygla yfir níu tonnum af hassi frá Spáni til Danmerkur. 22.10.2012 06:44
Þyrla flutti slasaðan fjallgöngumann á slysadeild Fjallgöngumaður slasaðist þegar hann hrapaði í klettabelti í Botnsúlum inn af Hvalfirði í gærkvöldi og rann drjúgan spöl niður hlíðina. 22.10.2012 06:37
Skotmaðurinn í Milwaukee framdi sjálfsmorð Fjórir féllu og fjórir særðust í skotárás í baðhúsi og hárgreiðslustofu í úthverfi Milwaukee-borgar í Bandaríkjunum í gær. Einn þeirra sem féllu er skotárárarmaðurinn en hann fannst í gærkvöldi inni á baðhúsinu og hafði greinilega framið sjálfsmorð eftir áráina. 22.10.2012 06:35
Fylgið jafnt fyrir síðustu kappræðurnar Ný skoðanakönnum hjá NBC sjónvarpsstöðinni og Wall Street Journal sýnir að fylgi þeirra Baracks Obama og Mitt Romney mælist nú jafnt meðal líklegra kjósenda í Bandaríkjunum og fá þeir 47% atkvæða hvor. 22.10.2012 06:32
Eftirskjálfti upp á 4,1 stig fyrir norðan í morgun Eftirskjálfti upp á 4,1 stig mældist á skjálftasvæðinu út af Norðurlandi á sjötta tímanum í morgun, þar sem snörp hrina hófst í fyrrinótt. 22.10.2012 06:27
Ljúka fyrstu umræðu um nýja stjórnarskrá fyrir jól Lögfræðinganefnd skilar af sér skýrslu um stjórnarskrárdrög innan tveggja vikna. Frumvarp til nýrrar stjórnarskrár lagt fram í kjölfarið. Stjórn og stjórnarandstaða búast við að fyrstu umræðu ljúki fyrir jól. 22.10.2012 06:00
30 gera athugasemdir við breytingar á Hjartagarði Alls bárust borginni 32 athugasemdir um skipulag á Hljómalindarreitnum í miðborg Reykjavíkur. Þrjátíu þeirra fjalla að einhverju eða öllu leyti um Hjartagarðinn, þar sem breytingar á honum eru gagnrýndar. 22.10.2012 00:00
Hjólreiðamaðurinn var skotinn fyrst Vitnisburður Zainab al-Hilli, sjö ára stúlku sem lifði af skotárás í Frakklandi, hefur breytt þeirri mynd sem franska lögreglan hafði gert sér af atburðarásinni. Svo virðist sem hjólreiðamaður, sem fannst látinn skammt frá bifreið fjölskyldu stúlkunnar, hafi fyrst verið skotinn. 22.10.2012 00:00
Í eina sæng eftir næstu áramót Sveitarfélögin Álftanes og Garðabær munu sameinast, undir merkjum hins síðarnefnda, í upphafi næsta árs. Sameining var samþykkt í báðum sveitarfélögum um helgina. 22.10.2012 00:00
Djúpar boranir ollu jarðskjálfta á Spáni Níu manns létu lífið og nærri 300 hlutu meiðsli þegar jarðskjálfti, sem mældist 5,1 stig, reið yfir bæinn Lorca á Spáni þann 11. maí árið 2011. 22.10.2012 00:00
Lítt hjálpleg úrslit Andstæðingar spænsku ríkisstjórnarinnar unnu sigur í héraðsstjórnarkosningum í Baskalandi í gær, samkvæmt útgönguspám, en stjórnarflokkurinn vann aftur á móti sigur í Galisíu. 22.10.2012 00:00
Ósáttir við stjórnina Hundruð manna hafa undanfarna daga barist við hersveitir, hliðholla Líbíustjórn, í bænum Bani Walid, sem er um 140 kílómetra suðaustur af höfuðborginni Trípolí. Þar í bæ voru stuðningsmenn Múammars Gaddafí öflugir og enn eru margir ósáttir við þau stjórnvöld sem tóku við eftir að Gaddafí hafði verið steypt af stóli. Í höfuðborginni Trípolí komu síðan um tvö hundruð manns saman fyrir utan þinghúsið og hvöttu til þess að þessum átökum linnti, enda kosti þau aðallega saklausa borgara lífið. 22.10.2012 00:00
"Það er kannski verið að eyðileggja líf þessa unga manns“ Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari segir að dómstólar hafi í seinni tíð gert of vægar sönnunarkröfur í kynferðisbrotamálum. Mun vægari kröfur en í öðrum tegundum sakamála. Hann segir að allt bendi til þess að ungur maður hafi fyrr á þessu ári verið dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisbrot sem hann framdi ekki. 21.10.2012 18:30
Telur brýnt að stofna millidómstig Álagið á Hæstarétti er allt of mikið og afar brýnt að stofnað verði millidómstig, til dæmis í sakamálum. Þetta segir Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari. Hann telur rétt að fækka dómurum við Hæstarétt og til kasta réttarins komi aðeins stærri mál, líkt og þekkist erlendis. 21.10.2012 16:24