Fleiri fréttir

Illugi nýr þingflokksformaður

Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið við stöðu þingflokksformanns að nýju. Hann staðfestir þetta í samtali við Vísi. "Þetta var tillaga formanns sem var síðan rædd og síðan varð hún niðurstaðan,“ segir Illugi í samtali við Vísi.

Framsókn leggst gegn nýjum spítala

Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur telur byggingu nýs spítala við Hringbraut örlagarík mistök samkvæmt ályktun sem stjórnin sendi á alla fjölmiðla í dag. Þar skorar stjórn félagsins á stjórnvöld og Alþingi að stöðva nú þegar það "stórslys sem er í uppsiglingu í Þingholtunum“. Stjórnin skorar jafnframt á formann og þingflokk Framsóknarflokksins að beita sér að fullu afli gegn málinu.

Vill kjósa fyrr frekar en að upplifa annan vitleysisvetur

"Við eigum ekki að þurfa upplifa einhvern vitleysisvetur, þjóðin á að fá að taka afstöðu til lykilmála og veita stjórnmálaöflum umboð til þess að halda áfram,“ sagði Lúðvík Geirsson, þingmaður Samfylkingarinnar í útvarpsþættinum Í Bítið á Bylgjunni í morgun þar sem hann sat fyrir svörum ásamt Vigdísi Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins.

Hugsanlegt að lík sem fannst sé af Sigrid

Ekki er útilokað að lík sem fundist hefur í Noregi sé af hinni sextán ára gömlu Sigrid Schjetne, sem leitað hefur verið að í um mánuð. Líkið fannst á bak í skógi á bakvið bensínstöð við Kolbotn. Lögreglan segir að á þessari stundu sé ekkert hægt að segja um kyn eða aldur þess sem líkið er af.

Á annan veg keppir um verðlaun Norðurlandaráðs

Kvikmyndin Á annan veg, eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson, er framlag Íslands til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Auk hennar keppa fjórar aðrar afar ólíkar norrænar kvikmyndir um hin eftirsóttu verðlaun. Verðlaunin, að andvirði 350.000 danskra króna eða um sjö milljónir íslenskra króna, eru veitt kvikmynd sem á rætur í norrænni menningu og býr yfir miklum listrænum gæðum. Kvikmyndin á einnig að sýna listræna nýsköpun og jafnframt þróa kvikmyndalistina með því að sameina hinar ýmsu hliðar hennar í sannfærandi og heilsteyptu verki.

Steingrímur: Mikil vonbrigði hvað viðræður hafa tafist

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra og formaður Vinstri grænna, segir að tafir á aðildarviðræðum við Evrópusambandið séu fullkomlega á skjön við það sem ákveðið var eftir kosningarnar 2009. Hann segir það mikil vonbrigði hvað aðildarviðræðurnar hafa tafist mikið.

Töluverð skjálftavirkni á Bláfjallasvæðinu

Töluverð skjálftavirkni hefur verið á Bláfjallasvæðinu í gærkvöldi og í nótt, en skjálftarnir hafa allir verið innan við tvö stig, en skjálfti upp á 4,6 stig varð þar í hádeginu 30. ágúst.

Bálhvasst víða á landinu í nótt

Bálhvasst hefur verið víða í nótt, einkum suðaustanlands. Á sjötta tímanum í morgun voru til dæmis 24 metrar á sekúndu á Vatnsskarði Eystra og 27 metrar á sekúndu í Hraunsfirði, sunnan við Djúpavog, og hvassara í hviðum.

Draugaskip vekur athygli í Bandaríkjunum

Brakið úr gömlu strönduðu skipi undan strönd Alabama í Bandaríkjunum hefur vakið töluverða athygli en Bandaríkjamenn kalla þetta skip núna draugaskipið.

Norska lögreglan boðar til blaðamannafundar vegna líkfundar

Norska lögreglan hefur boðað til blaðamannafundar vegna líkfundar í úthverfi Oslóar í gærkvöld. Nú eftir hádegið í dag var ekki orðið ljóst hvort umrætt lík er af Sigrid Schjetne sem saknað hefur verið frá því í byrjun ágúst. Jørn Kristian Jørgensen, hjá samskiptamiðstöð norsku lögreglunnar, segir að í dag muni fara fram vinna við að bera kennsl á líkið.

Enn allt á huldu vegna barnaárásar í Bökkunum

Enn hefur ekkert spurst til foreldra sem hlut eiga að máli í árás sem átti að hafa átt sér stað í Bökkunum í Breiðholti um helgina. Fréttablaðið greindi frá því á mánudaginn að fjórir piltar á aldrinum 12-13 ára hefðu gengið illilega í skrokk á sex ára gömlum dreng. Rætt var við Þórarinn Engilbertsson knattspyrnuþjálfara sem sagðist hafa komið að piltunum þar sem þeir voru að misþyrma drengnum.

Fær tvíhólfa hjálparhjarta

Hann er fyrsti Íslendingurinn sem fær svokallað tvíhólfa hjálparhjarta sem komið hefur verið fyrir utan á líkama hans. Tækið er svo sannarlega ekki af minni gerðinni eða hljóðlaust en fyrir Ágúst Þór Benediktsson er ekki annað í boði en að ferðast með það hvert sem hann fer. Ágúst bíður nú eftir að fá nýtt hjarta en hvenær kallið kemur er enn óvitað. Hann lætur þessa erfiðleika þó ekki á sig fá eins og Sindri Sindrason komst að þegar hann hitti þennan ótrúlega mann á dögunum.

Reynir á ráðherrann

Sú tímabæra breyting tók gildi um mánaðamótin að nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti tók til starfa. Hin gamla skipan mála var orðin löngu úrelt. Þar áttu fornir undirstöðuatvinnuvegir, sjávarútvegur og landbúnaður, auk iðnaðarins "sín“ráðuneyti og aðrar atvinnugreinar fengu takmarkaða eða handahófskennda athygli.

Tveir menn slösuðust í bílveltu

Tveir menn slösuðust þegar bíll þeirra valt út af Vatnaleið á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Þeir vour fyrst fluttir á heilsugæslustöðina í Stykkishólmi til aðhlynningar, en síðan áfram með sjúkrabíl á slysadeild Landsspítalans í Reykjavík. Fréttastofu er ekki nánar kunnugt um líðan þeirra eða hvernig slysið atvikaðist.

Ósammála um hvort bókað var

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra minnist þess ekki að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hafi óskað eftir sérstakri bókun í ríkisstjórn varðandi fyrirvara sína gagnvart samningsmarkmiðum Íslendinga í viðræðum við Evrópusambandið (ESB).

Sum barnatannkrem veita ónóga vernd

Borið hefur á því að tannkrem sem markaðssett eru sérstaklega fyrir börn hafi minni flúorstyrk en almennt er mælt með. Veita þau því minni vernd fyrir tannskemmdum en ráðlagt er.

Árásin ekki tilkynnt til lögreglu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú árás á sex ára dreng síðastliðinn föstudag. Lögreglumenn lásu um það í Fréttablaðinu í gærmorgun að þrír piltar hefðu ætlað að stela bolta af dreng í Breiðholti og ráðist á hann. Þeir hefðu sparkað í kvið hans og andlit.

Ósáttir við breytingar í Heiðmörk

Stjórn Fáks blæs nú til sóknar gegn fyrirhuguðum breytingum á deiliskipulagi Heiðmerkur. „Þar eru hestamenn settir til hliðar og ekki virt áratuga hefð hestamanna um notkun svæðisins til útivistar,“ segir stjórn Fáks í ákalli til félagsmanna.

Þurfa að lágmarki 28 metra á sekúndu

„Það þarf einfaldlega kolvitlaust veður,“ segir Hrafnkell Sigtryggsson, sem annast mál Red Bull Storm Chase-seglbrettakeppninnar hér á Íslandi.

Sigurvíma sundkappans Jóns Margeirs

Jón Margeir fagnaði vel og innilega eftir að hafa tryggt sér gullið í 200 metra skriðsundi. Þetta eru fyrstu verðlaun Íslendings á Ólympíumóti síðan í Aþenu 2004. Íslenska þjóðin samfagnaði Jóni Margeiri Sverrissyni þegar hann tryggði sér gullverðlaunin í 200 metra skriðsundi í flokki hreyfihamlaðra með nýju heimsmeti á Ólympíumóti fatlaðra í London á sunnudag.

Telur verkið nánast ómögulegt

Sýrlenski herinn varpaði í gær sprengjum á bæinn al Bab, sem er skammt frá tyrknesku landamærunum. Árásirnar kostuðu að minnsta kosti 19 manns lífið. Átökin í landinu hafa kostað meira en 23 þúsund manns lífið frá því þau hófust snemma á síðasta ári.

Handverksbrugg í stöðugum vexti

Lítil brugghús spretta fram hvert á fætur öðru hér á landi. Brugghúsin eru nú sex á landinu og starfrækja öll svonefnt handverksbrugg að meira eða minna leyti, en það felst í því að prufa eitthvað nýtt og þróa sérkenni í sínum afurðum.

Leita manns sem féll í Jökulsá

Björgunarsveitir voru kallaðar út í kvöld til að leita að manni sem féll í Jökulsá í Lóni fyrr í kvöld. Eins og stendur eru björgunaraðgerðir í hámarki. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á svæðinu auk leitarhunda og fjölmennra björgunarsveita frá Höfn í Hornafirði, Djúpavogi og Fáskrúðsfirði.

Ótrúlegt hve hratt Google lærði íslensku

Í síðasta mánuði gátu Íslendingar byrjað að tala íslensku við Google leitarvélina. Fyrrverandi starfsmaður fyrirtækisins og lektor við Háskólann í Reykjavík eru mennirnir á bakvið hugmyndina, sem þeir segja í upphafi hafa verið líkasta draumi. Í raun sé ótrúlegt hversu fljótt þeir náðu að kenna íslenskuna.

Lögregluforingjar kvöddu Geir Jón

Lögregluforingjar af höfuðborgarsvæðinu heimsóttu í dag samstarfsmann sinn til margra ára, Geir Jón Þórisson, til Vestmannaeyja og kvöddu hann. Þeir eyddu deginum í Eyjum, fóru í siglingu og eyddu kvöldinu á veitingastaðnum Einsa kalda á Hótel Þórshamri.

Harry grínast með sundlaugarpartíið

Harry Bretaprins tekur sjálfan sig augljóslega ekki of hátíðlega því þegar hann kom í dag fram opinberlega í fyrsta sinn síðan myndir af honum berum í sundlaugarpartíi í Las Vegas fóru eins og eldur í sinu um fjölmiðla heimsins gerði hann grín að uppátækinu.

Ósáttur við hvernig jafnréttislögin eru túlkuð

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði í Kastljósi fyrr í kvöld að hann væri ósáttur við hvernig jafnréttislögin eru túlkuð. Fram kom einnig að nú væri til skoðunar í ráðuneytinu hvort höfða bæri mál til að fá úrskurði kærunefndar jafnréttismála hnekkt.

Ögmundur þarf að bregðast við úrskurðinum

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra verður að víkja úr embætti ef dómstólar komast að sömu niðurstöðu og kærunefnd Jafnréttisstofu. Þetta segir, formaður þingflokks Vinstri grænna. Lögmaður konunnar segir að enn hafi ekki verið ákveðið hvort krefjast eigi skaðabóta, en konan hafi bæði orðið fyrir fjárhagstjóni og miska.

Herjólfur siglir í kvöld

Stefnt er að því að Herjólfur sigli síðustu ferð í dag, þ.e. frá Eyjum kl 20:30 og frá Landeyjahöfn 22:00.

Einstaka kennarar virðast gera lítið úr nemendum

15% nemenda í 5.-7. bekk í grunnskóla telja að kennarar geri oft eða stundum lítið úr einhverjum nemanda í skólastofunni. Hlutfallið hefur aukist á einu ári. Þetta kemur fram í skýrslu sem Umboðsmaður barna vann um starfsemi sína árið 2011.

Tvær létust af völdum leghálskrabbameins

Tvær ungar konur létust af völdum leghálskrabbameins á síðasta ári. Forstjóri Krabbameinsfélagsins segir það mikið áhyggjuefni að dregið hafi úr því að konur komi í krabbameinsleit.

Óskað eftir umsögnum um frumvarp til náttúruverndarlaga

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskaði í dag eftir umsögnum um ný drög að frumvarpi til náttúruverndarlaga. Drögin byggja á Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands, sem fól í sér heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi. Tekið hefur verið tillit til athugasemda um Hvítbókina sem bárust.

Reglubundin leghálskrabbameinsleit bjargar mannslífum

Kona sem greindist með leghálskrabbamein segir það bjarga lífi kvenna að fara nógu snemma í krabbameinsleit. Hún hafi verið kærulaus og dregið það enda hafi henni fundist fráleitt að jafn ung kona og hún gæti fengið slíkt krabbamein.

Sjá næstu 50 fréttir