Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Frönsk kona villtist af leið Frönsk kona villtist af leið við Hvannagil í Lóni í dag. Björgunarsveitir frá Höfn og Djúpavogi voru kallaðar til leitarinnar sem og leitarhundateymi af Austurlandi. Konan fannst síðan klukkan hálf tíu í kvöld. 22.8.2012 22:22
Berst gegn einmanaleika Sunna Rós Baxter er 25 ára gömul einstæð móðir. Hún berst nú gegn einmanaleika í íslensku samfélagi og hefur því stofnað samtökin Bjarta ljósið en þau eru hugsuð fyrir fólk sem hefur einangrast í samfélaginu. 22.8.2012 21:30
Madeline prjónaði sex þúsund ungbarnahúfur Hin 89 ára gamla Madeline Umhoefer er orðin að hálfgerðri goðsögn í heimabæ sínum í Bandaríkjunum. Hún var á unglingsaldri þegar hún lærði að prjóna. Síðan þá hefur hún prjónað ungbarnahúfur af miklum móð. 22.8.2012 20:45
Skólavörur nemenda í fyrsta bekk kosta hátt í átta þúsund krónur Skólavörur fyrir nemanda í fyrsta bekk í grunnskóla í Reykjavík kosta hátt í átta þúsund krónur. Kaupmaður í ritfangaversluninni Úlfarsfell, sem selt hefur tilbúna skólapakka til grunnskólanema í fimmtán ár, segir verðið hafi hækkað eftir hrun en innihald pakkanna breytist lítið. 22.8.2012 20:30
Fagna hertari löggjöf um smálán Meðalaldur þeirra sem taka smálán eru tæp þrjátíu og tvö ár, og meðallánsfjárhæðin rúmar sautján þúsund krónur. Þetta kemur fram í gögnum sem samtök smálánafyrirtækja hafa tekið saman. 22.8.2012 19:45
Miklabraut við Skeiðarvogsbrú lokuð vegna umferðarslyss Loka þurfti Miklubraut við Skeiðarvogsbrú eftir að nokkrir bílar lentu saman á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar á sjöunda tímanum í kvöld. 22.8.2012 19:40
Hleypt af byssu í Garðabæ Karlmaður var handtekinn í Garðabæ á fimmta tímanum í dag. Hafði hann hleypt af skotvopni í íbúðarhúsi við Sunnuflöt. Maðurinn er nú í haldi lögreglu en um þrjátíu lögreglumenn tóku þátt í aðgerðinni. Loka þurfti hverfinu í stuttan tíma á meðan maðurinn var handsamaður. Mikill viðbúnaður var vegna málsins og var sérsveit lögreglunnar kölluð út. 22.8.2012 19:24
Gengi krónunnar mun ekki falla að mati Seðlabankans Seðlabankastjóri óttast ekki að gengi krónunnar muni hrynja þegar líða fer á haustið. Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir allar greiningar benda til þess að gengið sé of lágt skráð. 22.8.2012 18:30
Hryllingsmyndameistari heiðursgestur á RIFF Ítalski kvikmyndagerðarmaðurinn Dario Argento verður heiðursgestur RIFF árið 2012. Kvikmyndahátíðin hefst 27. september næstkomandi og verður úrval mynda Argentos á dagskrá. Þá mun hann einnig ávarpa gesti hátíðarinnar. 22.8.2012 21:15
A4 - Office 1 oftast með lægsta verðið A4 - Office 1 var oftast með lægsta verðið á nýjum og notuðum bókum í verðkönnun ASÍ á skólabókum síðasta þriðjudag. Könnunin tók til 33 nýrra titla og var A4 - Office 1 með ódýrasta verðið á 15 titlum. Forlagið á Fiskislóð var í öðru sæti. Eymundsson var aftur á móti oftast með hæsta verðið. 22.8.2012 16:17
Stundum er eins og tilgangurinn sé að skemma sem allra mest Miklar skemmdir voru unnar á tveimur bifreiðum í Heiðmörk við Furulund í gærkvöld. Eigendur þeirra höfðu brugðið sér í hjólreiðatúr og skilið bílana eftir á meðan. Ófögur sjón mætti þeim þegar þeir komu til baka. Flestar rúður höfðu verið brotnar og greipar látnar sópa um bílana, m.a. hvarf fartölva úr öðrum þeirra. 22.8.2012 15:16
Sætanýtingin verri þó farþegum fjölgi Þrátt fyrir að farþegum milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar hafi í ár fjölgað um rúmlega 2400 hefur sætanýtingin í flugum verið verri en í fyrra. Það skýrist af umtalsvert fleiri flugferðum milli staðanna og munar þar mest um tilkomu WOW air. 22.8.2012 15:07
Þingað um heilbrigði hreindýra Alþjóðlegur hópur sérfræðinga þingar um heilbrigði hreindýra á Skjöldólfsstöðum 23. og 24. ágúst. Þetta er annar fundur hópsins sem var stofnaður í Noregi 2011. Á fundunum verður farið yfir víðan völl en meðal annars sérstaklega fjallað um íslensk hreindýr, en sú umfjöllun verður á fimmtudeginum. Náttúrustofa Austurlands hefur haft veg og vanda af skipulagningu fundarins í samstarfi við Carlos. 22.8.2012 14:55
Óþekktur maður í gæsluvarðhald Óþekktur maður var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald en maðurinn var stöðvaður við vegabréfaskoðun 18. ágúst síðastliðinn. Hann framvísaði þá fölsuðu vegabréfi og þegar lögregla gekk á hann um hver hann raunverulega er vildi hann ekkert segja. 22.8.2012 14:41
Skólasetning í MR Menntaskólinn í Reykjavík var settur í dag þegar 920 nemendur skólans mættu í blíðskapar veðri og fengu smjörþefinn af skólastarfi vetrarins. Í ár byrja 265 nýnemar við skólann. Skólasetningin fólst í stuttri athöfn en skólastarf hefst með hefðbundnum hætti í fyrramálið. 22.8.2012 14:14
Mál Snorra í Betel minnir á Pussy Riot Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður, líkir dómnum í Rússlandi þar sem stúlkurnar þrjár úr pönkhljómsveitinni Pussy Riot voru dæmdar í tveggja ára fangelsi við brottvikningu Snorra í Betel úr kennarastarfi á Akureyri í nýjum pistli á bloggsíðu sinni. 22.8.2012 14:01
Hægt að klára öll prófmálin á þremur mánuðum Ef allir leggjast á eitt, verður hugsanlega hægt að klára og dæma í öllum prófmálunum vegna gengislánanna í Héraðsdómi á tveimur til þremur mánuðum, segir staðgengill varadómstjóra í Héraðsdómi Reykjavíkur. 22.8.2012 12:15
Ísland orðið dýr og síðri kostur fyrir marga "Ætla stjórnvöld að fara að slátra mjólkurkúnni loksins þegar hún er farin að virka," segir Sævar Skaptason, framkvæmdarstjóri ferðaþjónustu bænda um fyrirhugaða virðisaukaskattshækkun. 22.8.2012 12:09
Sjónskertir ósáttir við arkitektatyppin og auglýsingaskiltin Þrjár sjónskertar stúlkur eyddu sumrinu í að taka út aðgengismál fatlaðra og blindra að Laugaveginum í Reykjavík. Í nýlegri skýrslu sem stúlkurnar birtu fyrir hönd Blindrafélagsins kemur fram að þrjú atriði hafi truflað stúlkurnar mest á ferðum sínum niður Laugaveginn, það voru auglýsingaskilti sem stóðu á miðjum gangstéttum, þröskuldar og tröppur inn í verslanir og veitingastaði og litlir staurar sem standa víða upp úr gangstéttinni á Laugaveginum. 22.8.2012 12:08
Rafhjól eru engin leiktæki Notkun rafhjóla hefur aukist mjög á landinu síðustu ár. Akstur þeirra er að mörgu leyti mjög frábrugðinn hefðbundnum reiðhjólum. Lögreglu hafa reglulega borist tilkynningar um rafhjól sem ekið er ógætilega, jafvel af börnum, hjálmlausum og stundum með mörgum farþegum. Því hefur Umferðarstofa gefið út leiðbeiningar sem eigendur rafhjóla ættu að hafa bakvið eyrað. 22.8.2012 11:13
Lýst eftir alskeggjuðum, sköllóttum og þybbnum manni Lögreglan í Hafnarfirði leitar að karlmanni um fertugt en sá er grunaður um að hafa kveikt í Bryndísarsjoppu við Hringbraut, steinsnar frá Flensborgarskóla. 22.8.2012 11:04
Reykspúandi bifreið ræsti slökkviliðið Slökkviliðið var kallað út um hálf níu leytið í morgun vegna reykjarmakkar í austurhluta Reykjavíkur. Þegar viðbragðsaðilar komu á svæðið kom í ljós að um reykspúandi bifreið var að ræða og viðbragðsaðilum var snúið frá. 22.8.2012 10:49
Lygilegt langlífi systkina - 818 ára gömul Elstu systkini í heimi eru samanlagt yfir 800 ára gömul og búa þau á eyjunni Sardiníu. 22.8.2012 10:46
Rignir áfram næstu daga Sumarið hefur verið fádæma þurrt í borginni en síðdegis í gær opnuðust himnarnir. Veðurfræðingar Veðurstofunnar segja að borgarbúar geti búist við vætu fram eftir vikunni og sérstaklega um helgina. 22.8.2012 10:43
Bryndísarsjoppa brann Eldur kom upp í yfirgefnu húsi nærri Flensborgarskólanum í Hafnarfirði í morgun, en húsið er yfirleitt kallað Bryndísarsjoppa. Eldurinn kom upp klukkan sjö í morgun. Slökkviliðismenn voru að störfum í tvo klukkutíma áður en þeir náðu að slökkva eldinn. Ekkert rafmagn er í húsinu og byrjað var að rífa það niður, grunur er um íkveikju. Mikill eldur var í sjoppunni. 22.8.2012 09:06
Meðalafli 11 tonn á bát Meðalafli á hvern strandveiðibát í sumar var rösklega ellefu tonn, en strandveiðunum í ár lauk endanlega á miðnætti. Meðal aflaverðmæti á bát var 3,4 milljónir sem er þriggja prósenta aukning frá því í fyrra. 22.8.2012 08:43
Sárasótt skekur klámmyndaiðnaðinn Bandarískt fyrirtæki sem sér um dreifingu á fullorðinsmyndum tilkynnti í gær að framleiðsla á slíkum myndum í Los Angeles yrði hætt tímabundið eftir að einn leikaranna greindist með sárasótt, en það er sjúkdómur sem getur blossað upp eftir að fólk gamnar sér saman. 22.8.2012 08:27
Hákarlar syntu í kringum ömmuna Hin sextíu og þriggja ára Diana Nyad þurfti að játa sig sigraða í gærkvöldi þegar hún reyndi að synda frá Kúbu til Bandaríkjanna eftir að hún var stungin af marglyttu. Auk þess voru nokkrir hákarlar farnir að hringsóla í kringum hana. 22.8.2012 07:12
Skilnaðurinn genginn í gegn Skilnaður Tom Cruise og Katie Holmes er genginn í gegn lögformlega, eftir því sem E! sjónvarpsstöðin greindi frá í gærkvöld. Sjónvarpsstöðin hafði eftir heimildarmanni sem var náinn vinur Cruise að hann væri mjög ánægður og honum væri létt yfir því að nú gæti hann horft fram á veginn. Hann myndi leggja allt kapp á að standa sig í föðurhlutverkinu. 22.8.2012 07:10
Stuðningsmenn Romney gætu verið í hættu Hætta getur stafað af hitabeltisstorminum Isaac, sem nú er að myndast á karabískahafinu, fyrir Flórída-ríki í Bandaríkjunum í næstu viku. Samkvæmt mælingum veðurfræðinga verður stormurinn orðinn að fellibyl á næstu dögum. 22.8.2012 06:56
Hótaði að drepa Obama Bandaríska leyniþjónustan handtók rúmlega þrítugan karlmann í borginni Seattle í gær sem er grunaður um að hafa hótað Barack Obama, bandaríkjaforseta, lífláti í tölvupósti á dögunum. 22.8.2012 06:50
Telja leka Gunnars til fjölmiðla vera einstakt tilfelli FME og Landsbankinn létu kanna hvort upplýsingaleki sem leiddi til ákæru Gunnars Andersen hefði verið einstakt tilfelli. Niðurstaða beggja var að svo sé. Starfsmaður Landsbankans er enn í ótímabundnu leyfi. 22.8.2012 06:30
Einbirnum hættara við ofþyngd Börn sem ekki eiga systkini eru í helmingi meiri hættu en önnur börn á að verða feit. Þetta eru niðurstöður alþjóðlegrar könnunar á vegum vísindamanna við háskólann í Gautaborg í Svíþjóð. Norsk rannsókn hafði áður leitt í ljós samband milli ofþyngdar og einbirna, að því er kemur fram á fréttavef Dagens Nyheter. 22.8.2012 07:30
Búningaklefaþjófs enn leitað Lögregla leitar enn þjófsins, sem stal verðmætum úr búningsklefa íþróttahúss í austurborignni í gær. Þjófurinn náði að taka vörur út á einhver stolin kort áður en þjófnaðurinn uppgötvaðist og kortunum var lokað. 22.8.2012 07:19
Bílaumferð um Kjalveg minnkað í sumar Bílaumferð um Kjalveg hefur snar minnkað, eða um 22 prósent í sumar, samanborið við síðasta sumar, en þá jókst hún líka um álíka tölu, samkvæmt teljara Vegagerðarinnar í grennd við Blöndulón. 22.8.2012 07:03
Vilji fyrir varanlegri göngugötu „Við vitum að meðal margra rekstraraðila á Skólavörðustíg er mikill áhugi fyrir því að gera neðsta hluta götunnar að varanlegri göngugötu,“ segir Hjálmar Sveinsson sem sæti á í skipulagsráði Reykjavíkur. 22.8.2012 07:00
Þvottahús fæst ekki hækkað Dvalarheimilið Grund við Hringbraut fær ekki að byggja skrifstofur ofan á þvottahús stofnunarinnar. 22.8.2012 07:00
Var hótað með eigin haglabyssu Ríkissaksóknari hefur ákært tvo menn, Snorra Sturluson og Daniel Arciszewski, fyrir hrottalegt rán og frelsissviptingu í Breiðholti í júlí síðastliðnum. 22.8.2012 06:30
Rekstur Seðlabankans dýrari Rekstrarkostnaður Seðlabanka Íslands var 2.314 milljónir króna á síðasta ári en hann hækkaði um ríflega 400 milljónir á milli ára. Þetta kemur fram í svari Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns sem birt var á vef Alþingis í gær. 22.8.2012 06:30
Lögreglusamstarf í hættu án Schengen Breyta þyrfti Leifsstöð umtalsvert og fjölga lögreglumönnum og EES-samstarfið kæmist í uppnám ef Ísland segði sig úr Schengen. Svo segir í skýrslu Ögmundar Jónassonar til Alþingis. Telur þó mikilvægt að endurskoða aðildina reglulega. 22.8.2012 06:00
Lést eftir fall af torfæruhjóli Maðurinn sem lést eftir fall af torfærumótorhjóli við Lyklafell á Sandskeið á sunnudagskvöld hét Vilhjálmur Freyr Jónsson, fæddur 18. október 1965. 22.8.2012 05:30
Helle Thorning-Schmidt hingað Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, kemur í opinbera heimsókn til Íslands næstkomandi mánudag. 22.8.2012 05:30
Bæjarstjóri afsakar óreiðu við RÚV-þátt Gríðarleg óreiða var í stjórnsýslu Hornafjarðar í aðdraganda þáttagerðar RÚV á Höfn í júní. Kostnaður fór margfalt fram úr áætlun. Skipulagstjórinn íhugaði að fá lögbann á söluhjalla sem reistir voru. Skiptar skoðanir eru um þættina. 22.8.2012 05:00
Eignaspjöll oftast unnin um helgar Skráð brot á hegningarlögum voru töluvert fleiri í júlí síðastliðnum en síðustu ár, að því er fram kemur í nýútkomnum Afbrotatíðindum ríkislögreglustjóra. 22.8.2012 05:00
Fylgdin þorri allrar vinnu handhafa Forseti Íslands segir að ef sá siður yrði aflagður að handhafar forsetavalds fylgi forsetanum til og frá Leifsstöð þá væri jafnframt búið að afnema nánast allt vinnuframlag þeirra. 22.8.2012 04:30