Bæjarstjóri afsakar óreiðu við RÚV-þátt 22. ágúst 2012 05:00 Kátt var á hjalla á Hornafirði dagana 15. til 18. júní í sumar þegar þáttagerðarmenn Ríkisútvarpsins mynduðu framkvæmdagleði bæjarbúa. Á bæjarskrifstofunum voru menn í áfalli. Mynd/Sigurður Mar Halldórsson
Gríðarleg óreiða var í stjórnsýslu Hornafjarðar í aðdraganda þáttagerðar RÚV á Höfn í júní. Kostnaður fór margfalt fram úr áætlun. Skipulagstjórinn íhugaði að fá lögbann á söluhjalla sem reistir voru. Skiptar skoðanir eru um þættina. „Þetta er mjög alvarlegt mál,“ segir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri í Hornafirði, um það að útgjöld bæjarins í tilefni þáttagerðar Ríkissjónvarpsins í sumar urðu meira en fjórfalt hærri en áætlað var. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu skýringa á málinu. Í svörum sem lögð voru fyrir bæjarráð kemur fram að kostnaður bæjarins, með beinum útgjöldum og vinnuframlagi, nemi 13,8 milljónum króna. Kostnaðaráætlun sem bæjaráð samþykkti var um þrjár milljónir. Munurinn er 360 prósent. „Þetta gerist með miklum hraða í aðdraganda þessara þátta. Bæjarráðinu var stillt upp með vonda valkosti skömmu fyrir töku þáttanna um hvort þeir eigi að fara fram eða hvort menn ættu hreinlega að sleppa þessu,“ segir Hjalti bæjarstjóri. Með þátttöku í verkefninu sáu menn tækifæri til kynningar á sveitarfélaginu, meðal annars á Norðurlöndunum. Ráðist var í alls kyns framkvæmdir og stjórnsýslan var í molum. Skipulagsstjóri bæjarins hafði miklar efasemdir um söluhjalla sem reisa átti. „Ljóst er að uppsetning söluhjalla á svæðinu hefði þarfnast lögformlegrar umfjöllunar og íhugaði hann að setja lögbann á framkvæmdina. Hér þarf að hafa í huga að forsvarsmenn sveitarfélagsins voru settir í vonda stöðu nokkrum dögum fyrir töku sjónvarpsþáttanna. Þá voru hugmyndir um söluhjallana fyrst kynntar og ljóst að valið stæði þá á milli þess að láta hugmyndina verða að veruleika eða taka fyrir verkefnið og beina tökuliði RÚV á aðra staði,“ er útskýrt í svörum bæjaryfirvalda. Allra handa óvænt útgjöld dúkkuðu upp. Til dæmis kostuðu skemmdir á ljósleiðara 359 þúsund og ökuferð á elleftu stundu á Sauðárkrók eftir stenslum fyrir götumerkingar kostaði 113 þúsund krónur. „Það er ekki auðvelt að útskýra þetta opinberlega. Það var farið fram hjá ákvörðun bæjarráðs í framkvæmdinni en við höfum breytt til í stjórnsýslunni og erum enn þá að endurskipuleggja okkur. Það mun klárast í haust,“ segir Hjalti sem kveður flestar ef ekki allar framkvæmdirnar munu nýtast áfram. Að sögn Hjalta eru afar skiptar skoðanir í bænum um úrvinnslu efnisins sem sýnt var á RÚV í sumar. Mikið myndefni sé hins vegar til sem bærinn hafi aðgang að. „Það eru til dæmis myndir af hreindýrum, fólki á fjórhjólum og vélsleðaferðum upp á jökul sem við getum nýtt í kynningu fyrir ferðaþjónustuna. Það var gulrótin sem við sáum.“gar@frettabladid.is
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira