Innlent

Meðalafli 11 tonn á bát

Meðalafli á hvern strandveiðibát í sumar var rösklega ellefu tonn, en strandveiðunum í ár lauk endanlega á miðnætti. Meðal aflaverðmæti á bát var 3,4 milljónir sem er þriggja prósenta aukning frá því í fyrra.

Heildaraflaverðmæti jókst hinsvegar um 14 prósent milli ára, en vegna fjölgunar báta nú, urðu meðalafli og aflaverðmæti hlutfallslega minni, því heildar þak er á veiðunum.

Engin alvarleg slys urðu á strandveiðunum í sumar þrátt fyrir að margir bátar hafi þurft aðstoð vegna bilana úti á miðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×