Innlent

Brýnt að kenna börnum forritun snemma

Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Það má í raun segja að börn í dag kunni að lesa en ekki að skrifa, út frá tækninni. Þetta segir framkvæmdastjóri menntafyrirtækisins Skema sem ætlar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík að efla kennslu barna í forritun, ekki síst með þarfir atvinnulífsins í huga.

Markmiðið fyrirtækisins Skema sem er að útbúa námsgögn fyrir kennslu í forritun í grunnskólum landsins og að forritun verði hluti af námi í að minnsta kosti 70 prósent grunnskóla landsins innan þriggja ára.

„Kennarar eru frekar hræddir í dag við tækina, sú hræðsla smitast til nemenda og afleiðingin er að of fáir sækja í tækninám. Það er meira verið að sækja í félagsbrautir og annað slíkt," segir Rakel Sölvadóttir, framkvæmdastjóri Skema.

Rakel vill gefa kennurum og börnum tækifæri á að útvíkka kennsluaðferðir og nýta forritunarumhverfið til að leysa verkefni í öðrum námsgreinum.

Mikilvægt sé að kenna börnum snemma á tungumál tölvanna - helst fyrir tólf ára aldur.

„Forritun er í raun tungumál. Það er bara samskiptamiðill milli manns og tölvu í stað tveggja manneskja," útskýrir hún.

Rakel segir að þótt börn séu flink við að nota tækni skilji þau ekki hvað knýr hana áfram.

„Það má eiginlega segja að börn í dag kunni að lesa en ekki skrifa út frá tækninni og við værum í svolítið slæmum málum ef við myndum sleppa skriftarkennslunni í dag."

Skema hefur að undanförnu staðið fyrir námskeiðum fyrir börn á aldrinum sex til sextán ára og segir Rakel það það hafa gengið vonum framar að ná fram vitundarvakningu í samfélaginu og menntakerfinu um mikilvægi forritunar. Háskólinn í Reykjavík hefur sýnt málinu áhuga. Ari Kristinn Jónsson, rektor í háskólanum byrjaði ungur að forrita og starfaði lengi sem forritari á vegum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA.

Hann segir að í dag fái hann sjaldnast tækifæri til að forrita en vill miðla þekkingunni til barna þeim til gagns og gamans en líka með þarfir atvinnulífsins í huga.

„Háskólinn í Reykjavík er í samstarfi við Skema um að efla forritunarkennslu fyrir börn og gera forritun aðgengilega fyrir börn. Háskólinn í Reykjavík er stærsti tækniháskóli landsins og vill sinna atvinnulífinu og þörfum þess fyrir tæknimenntað fólk. Eitt af því sem þarf að gera er að vekja áhuga barna snemma á tækni svo þau hugsi til þess þegar þau leita framtíðarleiðar," segir Ari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×