Fleiri fréttir

Opnun Hlíðarfjalls framlengd til sunnudags

Góð snjóalög eru nú á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli og gott skíðafæri. Gert er ráð fyrir björtu en svölu veðri á næstunni og því hefur verið ákveðið að framlengja opnun skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli til sunnudagsins 29. apríl.

Alþingi fari ekki með ákæruvald

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra áréttaði þá skoðun sína í dag að breyta þyrfti lögum um Landsdóm og ráðherraábyrgð sem fyrst. Þetta sagði hún þegar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hana út í málið á Alþingi í dag. "Ég tel að ekki sé heppilegt að ákæruvaldiið sé í höndum Alþingis,“ sagði Jóhanna á Alþingi í dag. En hún sagði að þau lög sem unnið var eftir í málinu gegn Geir hafi verið þau lög sem voru í gildi þegar ákvörðun um ákæruna gegn honum hafi verið tekin. Nú þegar það mál sé frá sé tækifæri til þess að breyta lögunum.

Lögreglumenn fá ekki að bera vitni í Vítisenglamáli

Tveir lögreglumenn, fulltrúi hjá Europol aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, fá ekki að vera vitni í máli gegn Vítisenglum og fólki tengdum þeim, sem nú er rekið fyrir héraðsdómi. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar sem með úrskurði sínum sneri ákvörðun héraðsdómara við. Mennirnir höfðu starfað í rannsóknarhópi lögreglunnar um starfsemi Vítisengla og vildi saksóknari leiða mennina sem vitni fyrir dóminn.

Geir fundar með grasrótinni

Geir H. Haarde, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, mætir á fund Varðar - fulltrúaráðsins í Reykjavík á sjötta tímanum í kvöld. Boðað var til fundarins fyrir hádegi í dag.

Sprengjutilræðið í Osló sett á svið

Öryggisvörður sem var í stjórnarbyggingu í Osló þegar bílasprengja fjöldamorðingjans Anders Breiviks sprakk segist hafa verið að kanna númeraplötu bílsins þegar hörmungarnar dundu yfir.

Hvað myndir þú segja í fyrsta skipti?

Ég er raunverulegur, voru fyrstu orð Kela Þorsteinssonar. Keli, sem er einhverfur, er orðinn kunnur víða um heim eftir að mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar leikstjóra og Margrétar Dagmar Ericsdóttur kom út fyrir fáeinum árum. Síðar var hún gefin út með ensku tali, en þá var Kate Winslet sögumaður.

Sveitungar Steingríms óttast pólitíska spillingu með kvótafrumvörpum

Sveitarstjórn Langanesbyggðar telur að kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar vegi ekki aðeins að heilu byggðarlögunum heldur leiði einnig til pólitískrar spillingar. Þetta segir í umsögn sem send hefur verið atvinnuveganefnd Alþingis um stjórnarfrumvörp Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til laga um stjórn fiskveiða og um veiðigjöld.

Sakfelling kom ekki á óvart

Andri Árnason, verjandi Geirs Haarde, segir að hann hafi alltaf gert ráð fyrir að það gæti myndast meirihluti í Landsdómi sem ekki myndi vilja sýkna alveg í málinu. Geir var í gær sakfelldur fyrir brot gegn 17. grein stjórnarskrárinnar um að hafa látið farast fyrir að halda ráðherrafundi um mikilvæg málefni. Geir var sýknaður í þremur liðum ákærunnar

Fjölskylduhjálpin heiðrar sjálfboðaliða

Þau Ásgeir Örn Þórðarson og Inga Björk Auðardóttir voru heiðruð síðastliðinn sunnudag fyrir störf sín hjá Fjölskylduhjálp Íslands og útnefnd Sjálfboðaliðar ársins 2011. Ásgeir Örn og Inga Björk fengu fallegar viðurkenningarstyttur og glæsilegar ávaxtakörfur sem Bananar hf. gáfu.

Jörðin gleypti hana

Skólastúlka átti sér einskis ills von þar sem hún var á göngu í Norður Kína á dögunum en eins og meðfylgjandi myndband sýnir er eins og jörðin hafi gleypt hana. Gangstéttin brotnaði undan henni og hún féll niður í sex metra djúpa holu.

Framkvæmdastjórn ESB fær aðild að Icesave-málinu

EFTA-dómstóllinn í Lúxemborg hefur orðið við beiðni Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að fá að ganga inn í mál ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, gegn Íslandi vegna Icesave reikninga Landsbankans.

Sjálfboðaliðar óskast við gerð Mæðrablóma

Nýstofnaður Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur óskar eftir sjálfboðaliðum í Ráðhús Reykjavíkur í dag klukkan 17 til 21 til að aðstoða við að búa til Mæðrablómið 2012.

Erfitt að spá fyrir um niðurstöðu í maí - fréttaskýring

Í fyrstu umferð frönsku forsetakosninganna á sunnudag gerðist það í fyrsta sinn að sitjandi forseti varð undir í atkvæðagreiðslunni. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, var með næstflest atkvæði í kosningunni, og 27 prósenta fylgi. Í fyrsta sætinu var François Hollande, með 28,44 prósenta fylgi. Í frönskum fjölmiðlum er því haldið fram að staða Hollande sé sterkari en forsetans fyrir kosningarnar 6. maí þegar kosið verður á milli þeirra, enda hafi hann haft betur í fyrstu umferðinni.

Fjórðungur útgjalda ákveðinn fyrirfram

Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis telur að of stór hluti útgjalda ríkisins hvert ár sé fastur í mörkuðum tekjustofnum. Nú lætur nærri að um fjórðungur útgjalda sé fyrirfram ákveðinn og telur nefndin það allt of hátt hlutfall.

Bannið innan ramma laganna

„Þetta er að mínu mati hálfslöpp gestrisni og ekki í takt við það sem Íslendingar hafa hingað til sýnt og við viljum vera þekkt fyrir,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, um ákvörðun Kerfélagsins að meina kínverskum og íslenskum ráðamönnum að skoða náttúruperluna um síðustu helgi. Þeir voru á ferð um svæðið á hópferðabíl um helgina.

Var sakfelldur fyrir alvarlegasta liðinn

"Ég taldi alltaf að þessi liður væri sá skýrasti og jafnframt alvarlegasti liður ákærunnar. Stjórnarskránni var einfaldlega ekki fylgt og afleiðingin var sú að mikilvægum upplýsingum var haldið frá ríkisstjórninni sem ógnaði efnahagnum, stjórnskipuninni og lýðræðinu í landinu. Undir það tel ég að Landsdómur sé að taka,“ segir Eygló Harðardóttir, þingkona Framsóknarflokksins, um þann ákærulið sem Geir var sakfelldur fyrir.

Þörf á endurskoðun

Nú þegar Landsdómur hefur lokið störfum sínum í fyrsta skipti, með úrskurði í máli Geirs Haarde, telur Róbert Spanó, lagaprófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, tilefni til að endurskoða fyrirkomulag málshöfðunar til Landsdóms.

Höfum þegar brugðist við gagnrýninni

"Það er mjög gott að komin sé niðurstaða í þetta erfiða mál. Hún kom mér aðeins á óvart, en ég hafði ekki séð ástæðu til þess að ákæra Geir. Hann er sýknaður í þremur af fjórum atriðum og það má kannski segja að það sem hann er sakfelldur fyrir sé það sem kom fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þar var verulegur áfellisdómur á stjórnsýsluna og skort á formfestu,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Norður-Kórea hótar árásum

Yfirmenn hersins í Norður-Kóreu hótuðu í gær að eyða stjórnvöldum í Suður-Kóreu á örskotsstundu, ef ekki yrði lát á meintum ögrunum þaðan.

Segist fórnarlamb kynþáttamisréttis

Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik segir umræðu um geðheilsu sína einkennast af kynþáttamisrétti. Þetta sagði hann fyrir dómi í gær, en þar með lauk vitnisburði hans í málinu.

Hefði verið erfiðara að meina Færeyingum að skoða Kerið

"Ég viðurkenni að ef þetta hefðu verið vinir okkar frá Færeyjum, þá hefði verið erfiðara að taka þessa ákvörðun,“ sagði Óskar Magnússon í viðtali í Reykjavík síðdegis þar sem rætt var um ákvörðun félags hans auk annarra, sem á Kerið, um að meina forsætisráðherra Kína og föruneyti að skoða Kerið um helgina ásamt íslenskum ráðherrum.

Kötturinn Meow: Feitur en fallegur

Starfsmönnum í dýraathvarfi í Santa Fe í Bandaríkjunum brá heldur í brún þegar kötturinn Meow var færður undir þeirra umsjá í síðustu viku.

Lék Júdas og hengdi sig fyrir slysni

Brasilískur leikari sem fór með hlutverk Júdasar þegar píslarsaga Krists var sett á svið um páskana lést þegar hann túlkaði sjálfsvíg hans.

Vill kláf upp Esjuna

"Það er bráðnauðsynlegt að eiga drauma,“ svarar Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri í viðtal í Reykjavík síðdegis í dag en þar ræddi hann grein sem hann ritaði í Morgunblaðið í dag þar sem hann viðraði nýstárlegar hugmyndir um notkun fjalla nærri höfuðborginni.

Sneri aftur og hannar barnaleikföng

Íslensk börn geta brátt farið að hanna sín eigin viðarleikföng, mála þau og setja saman. Iðnhönnuður sem hefur stofnað fyrirtækið Geislar sem sérhæfir sig í geislaskurði, segir börnin tengjast leikföngunum mun betur á þennan hátt.

Geir H. Haarde: Dómurinn pólitísk málamiðlun

"Dómararnir vildu ná pólitískri málamiðlun gagnvart fólkinu á Alþingi sem stóðu fyrir þessu gönuhlaupi,“ sagði Geir H. Haarde í viðtali við Þorbjörn Þórðarson í Íslandi í dag. Geir segir málið há-pólitískt, hann sé eldri en tvævetur í pólitík, "og ég finn lyktina af pólitík þar sem hana er að finna,“ sagði Geir.

Friðun Eldvarpa núna í efsta sæti hjá Ómari

Ómar Ragnarsson hefur nú sett Eldvörp á Reykjanesi í efsta sæti yfir þau svæði sem hann vill friðlýsa. Eldvörp eru í nýtingarflokki í drögum að rammaáætlun og áformar HS-orka þar allt að fimmtíu megavatta jarðhitavirkjun.

Segir niðurstöðuna stórsigur fyrir Geir

"Ég held að þetta sé stórsigur fyrir Geir,“ segir Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, um niðurstöðu Landsdóms í máli gegn Geir H. Haarde. Til stóð einnig að ákæra Árna auk tveggja annarra ráðherra, vegna sama máls, en niðurstaðan á Alþingi var sú að Geir einn skyldi verða ákærður.

Jóhanna: Allir fegnir því að málinu sé lokið

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist telja, aðspurð um viðbrögð sín við dómi Landsdóms frá því í dag, að allir séu fegnir því að málinu sé lokið enda hafi það reynst öllum erfitt. "Þessi niðurstaða kom mér á óvart. Ég var í hópi þeirra sem taldi ekki ástæðu til að ákæra Geir H. Haarde.“

Bjarni: Nær algjör fullnaðarsigur hjá Geir

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir meginniðustöðu dómsins yfir Geir Haarde í dag vera þá að þeir ákæruliðir sem báru uppi umræðuna á Alþingi í aðdraganda málsins og eiga rætur að rekja til rannsóknarskýrslunar, séu þeir liðir sem Geir er sýknaður af. "Þetta eru liðirnir sem voru taldir hafa átt með fall bankakerfisins að gera.“

Einn lést í bílveltu

Banaslys varð á Suðurlandsvegi við Skaftártunguveg, austan Kúðafljóts í morgun. Þrjú erlend ungmenni voru í bíl sem valt.

Ekki bara brot á formreglu

Sú háttsemi Geirs að láta farast fyrir að hlíta fyrirmælum 17. greinar stjórnarskrárinnar um að halda ráðherrafundi um þau mikilvægu stjórnarmálefni varð ekki eingöngu til þess að brotin væri formregla, heldur stuðlaði hún að því að ekki var á vettvangi ríkisstjórnarinnar mörkuð pólitísk stefna til að takast á við þann mikla vanda, sem ákærða hlaut að vera ljós í febrúar 2008.

Geir átti að bregðast við fundi með bankastjórum Seðlabankans

Á meðal þess sem Landsdómur telur að Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, hefði átt að gera ríkisstjórninni grein fyrir á fundi er fundur sem hann, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi utanríkisráðherra, og Árni M. Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, áttu með bankastjórum Landsbankans. Landsdómur telur að það mat Davíðs Oddssonar, þáverandi formanns bankastjórnar Seðlabankans, sem kom fram á umræddum fundi að íslensku bankarnir þrír væru í mikilli hættu og þar með íslenskt efnahagslíf hafi verið rétt.

Inga Jóna ánægð með sýknu í þremur ákæruliðum

"Ég ætla ekki að tjá mig við fjölmiðla um þetta," segir Inga Jóna Þórðardóttir, eiginkona Geirs H. Haarde, í samtali við Vísi. Geir var sakfelldur í einum ákærulið af fjórum, en sá liður snýr að því að hafa ekki haldið ráðherrafundi um mikilvæg málefni.

Sjá næstu 50 fréttir