Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
LÍÚ: Nýtingartími verði minnst 30-40 ár „Við erum alfarið ósátt við þessar hugmyndir,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, sem gerir miklar athugasemdir við frumvarpsdrögin, meðal annars um nýtingartímann sem þyrfti að vera mun lengri. 29.11.2011 06:00
Tveir voru kærðir fyrir nauðgun Nauðgun var kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nú eftir helgina. 29.11.2011 05:45
Tap nú 5,3 milljarðar Orkuveita Reykjavíkur (OR) tapaði ríflega 5,3 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Það er talsverður viðsnúningur frá sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn var tæplega 17 milljarðar króna. Þetta kemur fram í árshlutareikningi OR sem lagður var fram í gær. 29.11.2011 05:15
Meiri áhersla á byggðamál Frumvarpsdrög starfshóps Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að fiskveiðistjórnunarlögum hafa sætt gagnrýni fyrir verklag ráðherra, en ekki er að sjá efnislegar grundvallarbreytingar frá „Stóra kvótafrumvarpinu“ sem lagt var fram síðasta vor. Þó eru þættir tengdir byggðasjónarmiðum fyrirferðarmeiri í nýju drögunum. 29.11.2011 04:30
Færri umsóknir en meira fé Hjálparstarf kirkjunnar gerir ráð fyrir því að umsóknir um aðstoð fyrir jólin verði færri en að meira fé fari samt í úthlutun. 29.11.2011 04:00
Segir ekkert um jarðaleigu Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra vildi ekki tjá sig um mögulega afstöðu sína komi fram beiðni frá kínversku fjárfestingarfélagi varðandi leigu á Grímsstöðum á Fjöllum. Ráðherrann veitti félaginu ekki undanþágu til kaupa á jörðinni. 29.11.2011 03:30
Viðurkenningar fyrir skreytingar Orkuveita Reykjavíkur hyggst veita viðurkenningar fyrir fallegustu jólaskreytingarnar fyrir jólin líkt og undanfarin ár. 29.11.2011 03:15
Fá engin svör frá Jóni Bjarna Neytendasamtökin hafa í tvígang ítrekað við Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að reglugerð um kjöt og kjötvörur skuli endurskoðuð. Er það gert í ljósi gæðakönnunar sem birt var í mars árið 2010 á nautahakki. Frá þessu er greint í Neytendablaðinu. 29.11.2011 03:00
Undir tvítugu í vopnuðu ráni Tveir karlmenn, báðir innan við tvítugt, hafa verið ákærðir af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu fyrir rán. 29.11.2011 02:45
Rússar sólgnir í skyr og smjör Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra skrifaði í Moskvu í gær undir samning sem gerir Íslendingum kleift að selja skyr og aðrar mjólkurafurðir til Rússlands. Með samningnum fallast Rússar á vottunarkerfi sem gerir útflutninginn mögulegan. Nú þegar er verulegur áhugi af hálfu Rússa að kaupa mjólkurduft, en Össur telur einnig mikla möguleika á að vinna góðan markað fyrir íslenskt skyr. 29.11.2011 02:00
Veitt með öngli fyrr en talið var Nýfundnir steingervingar benda til þess að mannfólkið hafi veitt djúpsjávarfiska með færi og önglum af bátum löngu fyrir þann tíma sem talið var að slík veiðarfæri hafi verið þróuð. 29.11.2011 02:00
Óveðrið kostaði fjóra lífið í Noregi Talsverð röskun var enn á samgöngum á Norðurlöndum, Lettlandi og Eistlandi í gær í kjölfar óveðursins sem gekk yfir á þessum slóðum um helgina. Í Svíþjóð, þar sem tugir þúsunda voru enn án rafmagns, höfðu tré sem rifnuðu upp með rótum eða brotnuðu í óveðrinu fallið á lestarteina og í Noregi var hluti aðaljárnbrautarleiðarinnar til Bergen hulinn þriggja metra djúpri aurskriðu. 29.11.2011 01:00
Langþráðar kosningar hófust í gær Biðraðir tóku að myndast fyrir utan kjörstaði í Egyptalandi snemma í gærmorun þegar langþráðar kosningar hófust í landinu. Víðast hvar virtist stemningin vera góð. Fólk var ánægt með að fá að greiða atkvæði í kosningum, sem talist geta nokkurn veginn frjálsar en áratugum saman hefur litlu skipt hvernig atkvæði féllu. 29.11.2011 00:30
Frægasti hafur Svíþjóðar Gävle-hafurinn hefur verið settur upp í bænum Gävle í Svíþjóð, eins og venja er í upphafi aðventu. Hafur hefur verið reistur á aðaltorgi bæjarins ár hvert síðan 1966. Oftar en ekki hefur verið kveikt í hafrinum áður en jólin ganga í garð. Bæði hafurinn og það að kveikja í honum eru hefðir í bænum. Brenni hann fyrir Lúsíuhátíðina 13. desember er nýr settur í staðinn. 29.11.2011 00:00
Ein elsta kirkja Bandaríkjanna fundin Fornleifafræðingar telja sig hafa fundið eina elstu kirkju Bandaríkjanna. Þekktur bandarískur fræðimaður segir Pocahontas og John Rolfe hafa gengið í það heilaga í kirkjunni. 28.11.2011 23:22
Sakaður um að hafa nauðgað dóttur sinni 500 sinnum Réttarhöld eru hafin yfir þýskum karlmanni sem sakaður er um að hafa nauðgað dóttur sinni oftar en 500 sinnum. Hún eignaðist þrjú börn eftir föður sinn. 28.11.2011 22:30
Finnst heilbrigðiskerfið hafa brugðist móður sinni "Ég vil bara að hún fái aukna sjúkraþjónustu,“ segir Páll Blöndal, sem hefur tvívegis þurft að horfa upp á 87 ára gamla móður sína fá heilablóðfall. Í annað skiptið lá hún meðvitundarlaus yfir nótt í eigin ælu. Það var nokkrum mánuðum eftir að honum var synjað um að fá aukna sjúkraþjónustu fyrir móður sína. 28.11.2011 20:52
Náði myndum af Curiosity að hefja leið sína til Mars Ástralinn Duncan Waldron náði fyrstu myndum af könnunarflauginni Curiosity er hún hóf 8 mánaða ferðalag til plánetunnar Mars. 28.11.2011 23:00
Þraukaði ekki eina kvikmynd með dótturinni - "Mamma er full" Foreldrahlutverkið reynist sumum erfitt. Móðir í San Francisco í Bandaríkjunum virðist hafa fengið nóg af barnamyndunum þegar dóttir hennar vildi sjá nýju Strumpa-myndina í bíó. Hún drakk heila vodkaflösku á meðan myndinni stóð. 28.11.2011 22:45
Aldraðar ruðningshetjur takast á - myndband Það eru 48 ár síðan varnarmaðurinn Angelo Mosca braut illa á leikstjórnandanum Joe Kapp. En óvildin er enn staðar eins og gestir á kvöldverði þeim til heiðurs komust að. 28.11.2011 22:00
Sökuð um krúttlegt rán Ung kona í Arizona í Bandaríkjunum reyndi að framkvæma eitt allra sætasta búðarrán sem vitað er um. 28.11.2011 21:00
Ætla að auglýsa Grímsstaði á Fjöllum á EES svæðinu „Nú verðum við að auglýsa jörðina til sölu á evrópska efnahagssvæðinu því þar búa um 500 milljónir manna sem mega kaupa jörðina og þurfa ekki að bera það undir Ögmund,“ segir Jóhannes Haukur Hauksson, landeigandi á Grímsstöðum á Fjöllum, í viðtali við Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. 28.11.2011 20:30
Andar köldu á milli embætta - Haraldur neitar að afhenda upplýsingar Ríkislögreglustjóri og Ríkisendurskoðandi eru komnir í hár saman en fyrrnefnda embættið, neitar að afhenda Ríkisendurskoðun upplýsingar sem embættið hefur óskað eftir um viðskipti ríkislögreglustjóra við Radíóraf, nema Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, segi sig frá málinu. 28.11.2011 19:19
Athvarf fyrir asna sótt heim Skammt vestur af Malaga á suðurströnd Spánar, í bænum Nerja, er athvarf fyrir asna sem eru gamlir eða hafa sætt illri meðferð. Stefán Karlsson ljósmyndari Fréttablaðsins sótti athvarfið heim síðasta sumar og heillaðist af þessu óvenjulega heilsuhæli þar sem dýr eiga öruggt skjól. 28.11.2011 17:25
Vill að menntamálaráðherra rannsaki íþróttahús vegna ósiðlegs athæfis Móðir stúlku sem nítján ára karlmaður braut á í íþróttahúsi á Vestfjörðum á síðasta ári, hefur óskað eftir því við menntamálaráðuneytið að opinber rannsókn fari fram á því hvernig eftirlit með íþróttahúsinu, þar sem brotið átti sér stað, sé háttað. Þetta kemur fram á vefsíður Bæjarins bestu, bb.is. 28.11.2011 17:24
Dæmdur fyrir að reyna smygla kókaíni til Íslands Bandarískur karlmaður var dæmdur í tíu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn reyndi að smygla um 380 grömmum af kókaíni hingað til lands í september í fyrra en fíkniefnin, samtals 68 einingar, flutti maðurinn til landsins frá New York, falin í líkama sínum. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi og þótti dómara tíu mánað fangelsi hæfileg refsing. 28.11.2011 16:36
Fella niður flug til London á miðvikudag Icelandair hefur fellt niður síðdegisflug til og frá London á miðvikudaginn kemur vegna verkfalls á Heathrow Um er að ræða verkfallsaðgerðir starfsmanna bresku flugmálastjórnarinnar. Búist er við miklum töfum og erfiðleikum vegna verkfallsins og hafa bresk stjórnvöld hvatt flugfélög til þess að fella niður flug svo forða megi neyðarástandi. Þetta var ítrekað á fundi með flugrekendum nú síðdegis. 28.11.2011 16:30
Skólasókn minnst meðal innflytjenda Skólasókn er mest meðal einstaklinga sem fæddir eru erlendis af íslenskum foreldrum en minnst meðal innflytjenda. 28.11.2011 13:56
Mikil hætta á að ungt fólk með ADHD noti vímugjafa Meiri líkur eru á að ungt fólk með athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) reyki, noti áfengi og ólögleg fíkniefni en fólk sem ekki hefur ADHD. Þetta sýna niðurstöður nýrrar íslenskrar rannsóknar sem unnin var af rannsóknarteymi undir stjórn Gisla Guðjónssonar prófessors í sálfræði við Kings College í Lundúnum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að fólk með ADHD sé með slíkri vímugjafanotkun að reyna að meðhöndla eigið ástand upp á eigin spýtur (e. self medication). 28.11.2011 13:00
Starfsmaður sakaður um að taka myndir á farsíma í kvennaklefa Rannsóknadeild lögreglunnar á Akureyri rannsakar nú kæru á hendur starfsmanni sundlaugarinnar í Varmahlíð í Skagafirði, sem er gefið að sök að hafa tekið myndir í kvennaklefa sundlaugarinnar með földum farsíma. 28.11.2011 09:53
Björn Valur: Það er ágreiningur og við munum leysa hann „Það blasir við ágreiningur, á því er enginn vafi, og við ætlum að leysa hann,“ sagði Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, í viðtali í Kastljósinu í kvöld, þar sem hann sat fyrir svörum ásamt Ólöfu Nordal, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins. 28.11.2011 20:00
Katrín afar bjartsýn á olíuleitina Iðnaðarráðherra segir að þung áhersla verði lögð á að þjónustumiðstöð vegna olíuleitar á Drekasvæði verði á Íslandi fremur en Jan Mayen og lýsir mikilli bjartsýni um yfirstandandi útboð. 28.11.2011 19:03
Jón Bjarnason: "Ég er enn sjávarútvegsráðherra, eins og þú sérð“ Breytingar á ríkisstjórninni virðast óhjákvæmilegar því hvorki forsætisráðherra né fjármálaráðherra eru tilbúin að lýsa því yfir að Jón Bjarnason njóti trausts þeirra til að gegna embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 28.11.2011 18:36
Isavia styrkir Landsbjörg Isavia ohf. hefur stofnað sjóð til að styðja björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Tilgangur sjóðsins er að efla hópslysaviðbúnað björgunarsveita félagsins með sérstaka áherslu á hlutverk björgunarsveita í viðbúnaðaráætlunum áætlunarflugvalla. Markmið verkefnisins er að björgunarsveitir, og þar með viðbúnaðarkerfi landsins, séu ávallt sem best búnar þess að takast á við hópslys. Verkefnið er til þriggja ára og ráðgerir Isavia að styrkja björgunarsveitir Slysavarnafélagsins um 5 milljónir króna árið 2011 og 8 milljónir árið 2012 og 2013, samtals um 21 milljón króna, segir í tilkynningu. 28.11.2011 15:59
300 stoppaðir um helgina - bara tveir ölvaðir Um þrjú hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að tveir ökumenn hafi reynst ölvaðir við stýrið og voru þeir sviptir ökuréttindum til bráðabirgða. „Tveimur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum.“ 28.11.2011 15:49
Jón er enn ráðherra Jón Bjarnason landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra sagði eftir þingflokksfund Vinstri grænna sem lauk rétt fyrir klukkan þrjú í dag, að hann væri enn í embætti. Mikill styr hefur staðið um störf Jóns síðustu daga og hefur hann verið harðlega gagnrýndur af samfylkingarfólki en einnig af nokkrum samflokksmönnum sínum. 28.11.2011 15:30
Veist þú um fallega jólaskreytingu? Láttu Orkuveituna vita Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir tilnefningum almennings á fegurstu, smekklegustu og snotrustu jólaskreytingum á íbúðarhúsum og fyrirtækjum. Fyrirtækið hefur um árabil veitt viðurkenningar fyrir fallegustu skreytingarnar en það eru húseigendur eða íbúar eftir atvikum sem viðurkenninguna. 28.11.2011 14:58
Þingflokkar Samfylkingar og VG funda Þingflokkur Vinstri grænna situr nú á fundi en á honum mun Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, þurfa að gefa skýringar á því að hafa unnið að nýju frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða án vitneskju ríkisstjórnarinnar. Þingflokkur Samfylkingarinnar fundar einnig um málið á Alþingi núna. 28.11.2011 14:17
Stal meðal annars nautalund - dæmdur í 5 mánaða fangelsi Karlmaður um þrítugt var í morgun dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir þjófnaði, skjalafals og fíkniefnalagabrot. 28.11.2011 14:01
Jón Bjarna segist njóta fulls trausts Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segist njóta fulls trausts Steingríms J. Sigfússonar til að vera áfram í ríkisstjórninni. Þá segist hann gera ráð fyrir að njóta trausts forsætisráðherra þó hún hafi gagnrýnt störf hans. 28.11.2011 12:20
Sigmundur Davíð vill kosningar - opinn fyrir myndun þjóðstjórnar Formaður framsóknarflokksins segir það réttast að ríkisstjórnin boði til nýrra kosninga. Framsóknarflokkurinn myndi ekki verja minnihlutastjórn falli en er opinn fyrir hugmyndum um myndun þjóðstjórnar. 28.11.2011 12:15
Nóg að gera hjá lögreglunni á Selfossi um helgina Nóg var að gera hjá lögreglunni á Selfossi um helgina þar sem meðal annars slökkvitæki var stolið og tvö hundruð lítrar af gambra voru haldlagðir á sveitabæ. 28.11.2011 11:48
Miklar frosthörkur fram undan Veður fer kólnandi á landinu á næstu dögum. Spáð er allt að 18 stiga frosti á Hvanneyri á miðvikudag en þá spáir 13 stiga frosti í Reykjavík, 16 stiga frosti á Suðurlandi og 12 stigum á Egilsstöðum. 28.11.2011 11:30
Norska Vítisenglinum verður vísað úr landi Norskur vítisengill, sem lögreglan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði við komuna hingað til lands í gærkvöldi til að vera viðstaddur aðalmeðferð í máli hans gegn íslenska ríkinu, fékk ekki að fara inn í landið og verður sendur aftur til Noregs við fyrsta tækifæri, að sögn lögreglustjóranum á Suðurnesjum. 28.11.2011 11:25
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar til miðvikudagsins 7. desember næstkomandi en ástæðan er dýpi í Landeyjahöfn. Ekkert hefur verið hægt að dýpka þar undanfarið vegna öldurhæðar. 28.11.2011 11:20