Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segist ekki hafa séð neitt um hagnað ríkissjóðs af jarðakaupum Nubos Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kvaðst á Alþingi í gær ekki hafa séð neitt sem gæfi til kynna að ríkissjóður myndi hagnast á kaupum Kínverjans Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum. Skýrsla Arion banka, um gríðarlega jákvæð áhrif fjárfestinga hans á efnahagslífið, var engu að síður send honum persónulega í síðasta mánuði, en einnig ráðuneytinu og birt opinberlega. 9.11.2011 12:00
Skálholt skyndifriðað Skálholtsskóli, Skálholtskirkja og nánasta umhverfi hefur verið skyndifriðað. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi Húsafriðunarnefndar í gær. Nikulás Úlfar Másson forstöðumaður nefndarinnar segir að þetta þýði að hætta verði öllum framkvæmdum við Þorláksbúð. Innan tveggja vikna þarf svo að taka endanlega ákvörðun um hvort svæðið verði friðað. 9.11.2011 11:58
Ábyrgðarlaust að afneita fölskum minningum Reynir Harðarson sálfræðingur ræddi falskar minningar í þættinum Í bítið í morgun. Fyrirbærið hefur verið mikið rætt síðustu daga í kjölfar yfirlýsingar frá fjölskyldu Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur sem sakað hefur föður sinn Ólaf Skúlason biskup um kynferðisbrot gegn sér. Fjölskyldan heldur því fram að Guðrún Ebba fari með rangt mál og þeim möguleika hefur verið velt upp að um falskar minningar sé að ræða. 9.11.2011 11:26
Eiríkur Guðnason borinn til grafar Eiríkur Guðnason, fyrrverandi seðlabankastjóri, verður borinn til grafar frá Hallgrímskirkju í dag. Hann lést á hjartadeild Landspítalans þann 31. október 2011. Eiríkur starfaði í 40 ár við Seðlabankann, var aðalhagfræðingur, aðstoðarbankastjóri og bankastjóri. Hann var bankastjóri þegar mest gekk á í efnahagslífi Íslendinga á árinu 2008. 9.11.2011 11:17
Ríkt fólk endurnýjar lúxusbílaflota landsins „Þeir sem eiga peninga eru að kaupa bíla,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi. 9.11.2011 11:00
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda í Reykjanesbæ rétt fyrir klukkan átta í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum varð slysið með þeim hætti að karlmaður var að ganga yfir gangbraut, á móts við Íslandsbanka efst á Hafnargötunni, þegar ekið var á hann. Maðurinn var flutt á slysadeild en hann er ekki alvarlega slasaður, samkvæmt varðstjóra hjá lögreglu. 9.11.2011 10:21
Davíð Þór beðinn afsökunar Siðanefnd vefsíðunnar Innihald.is hefur komist að þeirri niðurstöðu að María Lilja Þrastardóttir hafi gerst brotleg við siðareglur vefsins þegar hún skrifaði opið bréf til Davíðs Þórs Jónssonar sem birtist á vefnum. Bréfið hefur nú verið tekið úr birtingu. 9.11.2011 10:18
Forsetinn heimsækir Ísafjörð Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Samtök iðnaðarins munu heimsækja Menntaskólann á Ísafirði og fyrirtæki í bæjarfélaginu á morgun. 9.11.2011 10:03
Bjarni Ben hjá Audda Blö: Við erum ekki ósátt "Já, við höfum alltaf verið ágætir vinir,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, um tengsl sín og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarfulltrúa sem tilkynnti um formannsframboð sitt í síðustu viku. 9.11.2011 09:21
Herðir eftirlit með hlerunum Ríkissaksóknari, Sigríður J. Friðjónsdóttir, vill herða eftirlit með símhlerunum lögreglunnar. Hún hefur skrifað dómstólaráði bréf þess efnis að embætti hennar verði send afrit af dómsúrskurðum vegna símhlerana og sambærilegra úrræða jafnóðum og þeir eru kveðnir upp, hvort sem fallist er á kröfu lögreglu eða ekki. Þetta er liður í að endurskipuleggja og herða eftirlit embættis ríkissaksóknara með símhlerunum. 9.11.2011 09:00
Björgunarbát tók út af íslenskum togara Gúmmíbjörgunarbát tók út af íslenskum togara þegar alda reið yfir skipið út af Vestfjörðum í gær. 9.11.2011 08:08
Golfkúlnahríð ógnar fjölskyldu í Kópavogi "Maðurinn minn og nágranni voru úti á lóð í sumar og máttu þakka fyrir að þeir fengu ekki í sig golfkúlu sem hvein við hliðina á þeim áður en hún small í húsinu,“ segir Jóna Bryndís Gísladóttir, íbúi við Örvasali í Kópavogi. 9.11.2011 08:00
Rússar í vandræðum með geimfar á leið til Mars Rússar eru komnir í vandræði með geimfar sem Þeir skutu á loft í gærkvöldi og ætlað er að sækja jarðvegssýni á tunglið Phobos sem er á braut um Mars. 9.11.2011 07:55
Björgunarskipið Jón Oddgeir er óskemmt Björgunarskipið Jón Oddgeir, sem slitnaði frá bryggju í fárviðri í Njarðvíkurhöfn í gærmorgun og rak upp í grýtta fjöru, virðist ekkert haf skemmst. 9.11.2011 07:53
News of the World njósnaði um Vilhjálm Bretaprins Mappa með sönnunargögnum úr njósnamálinu sem rekið er gegn útgefendum slúðurblaðsins News of the World sýna að Vilhjálmur Bretaprins var meðal þeirra einstaklinga sem blaðið njósnaði um. 9.11.2011 07:44
Ný eyja að koma upp úr hafinu við Kanaríeyjar Ný eyja er að koma upp úr hafinu undan ströndum Kanaríeyja. Neðanjarðareldgos hefur staðið yfir síðan í vor suður af eyjunni El Hierro og strókar úr gosinu ná nú upp undir yfirborð sjávarins. 9.11.2011 07:41
Reyndu að brjótast inn í hótel Lögreglunni í Reykjavík var tilkynnt um tvo menn sem væru að reyna að brjóta upp bakdyr á hóteli við Laugaveg um klukkan fjögur í nótt. 9.11.2011 07:36
Enn er beðið eftir nýrri þjóðstjórn í Grikklandi Ekki tókst að mynda fyrirhugaða þjóðstjórn í Grikklandi í gærdag eins og stefnt var að. Grískir embættismenn segja að stjórnin verði tilkynnt í dag. 9.11.2011 07:28
Vankaður ökumaður í töluverðum vandræðum Liðlega tvítugur karlmaður, sem var einn á ferð í bíl sínum um tvö leitið í nótt, vankaðist svo alvarlega af höfuðhöggi, þegar bíll hans hafnaði úti í skurði austur í Flóa, að hann gat ekki gefið lögreglunni á Selfossi neina haldgóða lýsingu á staðsetningu. 9.11.2011 07:26
Litríkur pólitískur ferill Berlusconi kominn á endastöð Pólitískur ferill Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu er kominn á endastöð en hann hefur verið í litríkari hópi ítalskra stjórnmálamanna á síðustu tveimur áratugum. 9.11.2011 07:23
Brennuvargar ollu milljóna tjóni í Eyjum Lögreglan í Vestmannaeyjum leiltar nú brennuvarga, sem ollu milljóna tjóni með því að kveikja í síldarnót, sem stóð á athafnasvæði netaverkstæðisins Ísnets, en viðlíka nót kostar 50 til 60 milljónir króna. 9.11.2011 07:19
Neytendur fengu bætur greiddar út í gær Hátt í hundrað einstaklingar sem lögðu fram kæru vegna samráðs olíufélaganna á sínum tíma fengu bætur sínar greiddar í gær. 9.11.2011 07:00
Byggðarökin fyrir göngum nægja ekki - fréttaskýring Hvaða þættir skipta máli við forgangsröðun í samgönguframkvæmdum? Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á þriðjudag, þar sem rætt var um fyrirhuguð Vaðlaheiðargöng, spannst nokkur umræða um rök fyrir samgönguframkvæmdum. Einn nefndarmanna, Róbert Marshall, spurði Ögmund Jónasson innanríkisráðherra, sem þar sat fyrir svörum, hvort ráðherra horfði á málið eingöngu frá fjárhagslegu sjónarmiði, eða hvort hann horfði á það með heildstæðari hætti. Átti hann þá við byggðarök og samfélagsáhrif. 9.11.2011 07:00
Framsókn ósátt við reikninga AFA JCDecaux Ísland, sem á og rekur flest strætóskýli borgarinnar, hefur höfðað mál á hendur Framsóknarflokknum vegna birtingarkostnaðar á auglýsingum flokksins fyrir þingkosningarnar 2009. 9.11.2011 06:00
Nýsköpunarfyrirtæki fengu 440 milljónir Alls 53 lögaðilar fengu samtals 440,9 milljónir króna endurgreiddar frá ríkinu vegna rannsóknar- og þróunarstarfs á árinu 2010. 9.11.2011 05:45
Lítil samskipti milli ráðuneyta Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir gríðarlega þykka veggi milli ráðuneyta hér á landi. Það valdi oft upplýsingaskorti og geti verið til vansa. 9.11.2011 05:00
Segja 2010-börn fá inni næsta ár Reykjavíkurborg stefnir að því að öll börn fædd á árinu 2010 komist inn á leikskóla á árinu 2012 og er þannig leitast við að efna fyrirheit um að öll börn fái leikskólapláss árið sem þau verða tveggja ára. Nokkur styr hefur staðið um leikskólamálin í borginni þar sem gagnrýnt hefur verið að börn úr 2010-árgangi hafi ekki verið tekin inn nú í vetur þrátt fyrir að laus rými séu í mörgum skólum. 9.11.2011 05:00
Ferðir hnúfubaka afar líkar á milli ára Rannsóknir Hafrannsóknastofnunar á árstíðabundinni útbreiðslu og fari skíðishvala við Ísland hafa þegar varpað ljósi á ýmislegt sem tengist viðveru og fartíma hvala við landið. Rannsóknirnar hafa til dæmis gefið fyrstu vísbendingar um aðsetur hrefnu að vetrarlagi. 9.11.2011 04:30
Sögð setja byrðar á bágstödd sveitarfélög Sú ákvörðun að úthluta 300 milljónum af 700 milljóna aukaframlagi jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Álftaness var gagnrýnd harðlega á Alþingi í gær. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að með þessu væri verið að setja byrðar á þau sveitarfélög sem bágast stæðu. 9.11.2011 04:30
Allt óvíst um Grímsstaði Ekki liggur ljóst fyrir hvenær kínverska fjárfestinum Huang Nubo verður svarað varðandi áform hans um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði á Alþingi í gær að vanda yrði til úrskurðarins. 9.11.2011 03:00
Þúsundir hafa fallið í Sýrlandi Átökin í Sýrlandi síðustu átta mánuði hafa kostað að minnsta kosti 3.500 manns lífið, samkvæmt nýjum tölum frá mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. 9.11.2011 01:30
Ósátt við afskipti ríkisvalds Sveitarstjórnarfólk í Danmörku frábýður sér ofríki þjóðþingsins í Kristjánsborg. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem Jótlandspósturinn fjallar um. 9.11.2011 00:45
Á erfitt verk fyrir höndum Lúkas Papademos verður að öllum líkindum forsætisráðherra nýju bráðabirgðastjórnarinnar í Grikklandi, sem næstu vikurnar þarf að koma í framkvæmd óvinsælum aðhaldsaðgerðum í tengslum við björgunarpakka ESB. Skipun stjórnarinnar er hins vegar ekki lokið, þar sem erfiðlega hefur gengið að manna ráðherrastöðurnar. Papademos er fyrrverandi aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Evrópusambandsins og var áður seðlabankastjóri Grikklands. 9.11.2011 00:00
Cain mun ekki hætta við framboð Forsetaframbjóðandinn Herman Cain segist ekki ætla að hætta við framboð sitt eftir að nokkrar konur stigu fram og lýstu óviðeigandi hegðun hans. 8.11.2011 22:32
Berlusconi mun hverfa úr embætti Forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, hefur tilkynnt að hann ætli að segja af sér um leið og efnahagsumbætur verða samþykktar á þinginu. 8.11.2011 21:53
Fjarlægðu loftvarnarsprengju úr endaþarmi Króatíski fréttamiðillinn Slobodna Dalmacija greindi frá því í dag að læknar hefðu þurft að fjarlæga loftvarnarsprengikúlú úr endaþarmi fimmtugs karlsmans í Zagreb. Talið er að sprengjan hafi setið föst eftir að maðurinn kom henni fyrir í endaþarmi sínum. 8.11.2011 21:30
Aðeins fjórir húmoristar í símaskránni en 45 ljónatemjarar Íslendingar eiga hátt í fjörutíu geimfara, tíu kónga, eina barnastjörnu og einn apa ef marka má skráningar í Símaskránna. 8.11.2011 20:15
Mikið um árekstra í dag Alls urðu 20 árekstrar í dag, þar af einn verulega harður árekstur þar sem flytja þurfti tvo á spítala til frekari aðhlynningar. Sá árekstur var á Dalvegi í morgun samkvæmt upplýsingum frá Árekstri.is Báðir bílarnir voru að auki óökufærir. 8.11.2011 20:55
Ætla að ná í sýni af tungli Mars Á morgun munu Rússar skjóta eldflaug á loft frá Kasakastan. Markmið verkefnisins er að safna sýnum frá tunglinu Phobos en það er á sprotbraut um Mars. Verkefnið kallast Phobos-Grunt - rússneska orðið „Grunt" þýðir jarðvegur á íslensku. 8.11.2011 20:51
16 látast á trúarsamkomu á Indlandi Talið er að sextán manns hafi látist á fjöldasamkomu á norður-Indlandi í dag. Yfirvöld í bænum Haridwar segja að fólkið hafi látist í miklum troðningi sem átti sér stað á trúarsamkomu í bænum. 8.11.2011 19:50
Móður langveikra systra hótað að vera sett á lista Interpol Foreldrar tveggja langveikra systra standa uppi með allt að þrjátíu milljóna króna sjúkrahúsreikning vegna aðgerða á systrunum í Boston. Skuldin hefur verið sett í innheimtu og fá þau daglega símtöl þar sem þeim er hótað handtöku ef þau ekki borga. 8.11.2011 19:45
Berlusconi ætlar að segja af sér Silvio Berlusconi mun segja af sér sem forsætisráðherra Ítalíu eftir að hann tapaði meirihlutanum á þingi í dag þegar greitt var atkvæði um fjárlagafrumvarp. Það var þó samþykkt. 8.11.2011 19:16
Ögmundur ítrekað spurður hvenær og hvernig hann ætli að svara Nubo Pirringur Samfylkingarmanna í garð atvinnustefnu Vinstri grænna opinberaðist á Alþingi í dag þegar Kristján L. Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, reyndi að fá Ögmund Jónasson innanríkisráðherra til að svara því hvenær og hvernig hann hygðist afgreiða ósk Kínverjans Nubo um að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. 8.11.2011 18:56
Áhættumat vegna hryðjuverka: Vatnsból skotmörk Vatnsból höfuðborgarbúa eru talin geta verið skotmörk hryðjuverkamanna þar sem hægt er að menga þau. Þetta kemur fram í nýju áhættumati sem gert var fyrir svæðið. 8.11.2011 18:30
Stærsta fíkniefnamál ársins: Úrskurðaður í 4 vikna gæsluvarðhald Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag karlmann á sextugsaldri, sem grunaður er um að hafa staðið að innflutningi í umfangsmesta fíkniefnamáli ársins, í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhalds. Maðurinn hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar en hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðustu vikur. 8.11.2011 16:33