Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verkfallsboðun Sinfó dæmd lögmæt Boðað verkfall Sinfóníuhljómsveitar Íslands var í dag dæmt lögmætt fyrir Félagsdómi. Íslenska ríkið stefndi hljómsveitinni fyrir Félagsdóm með þeim rökum að ekki væri um verkfall að ræða heldur verkföll, en hljómsveitin hafði boðað til verkfalla nánar tilgreinda daga í nóvember. Á þessi málfræðilegu rök ríkisins var ekki fallist fyrir Félagsdómi og verkfallsboðunin talin lögmæt. 3.11.2011 14:10
Icelandair vann markaðsverðlaun fyrirtækja Íslensku markaðsverðlaunin 2011 voru afhent í dag á hótel Nordica. Þrjú fyrirtæki voru tilnefnd til markaðsverðlauna fyrirtækja, en þau voru veitt í 21. sinn í dag. Fyrirtækin voru Icelandair, Nova og Össur. Verðlaunin í ár hlaut Icelandair. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, tók við verðlaununum. Hann þakkaði Íslensku auglýsingastofunni gott samstarf og tilkynnti að fyrirtækið myndi á næsta ári enn auka við markaðsstarf sitt og leggja í það tvo milljarða króna. 3.11.2011 13:59
Tillögur að orkustefnu Stýrihópur um mótun heildstæðrar orkustefnu fyrir Ísland skilaði í dag tillögum sínum til Katrínar Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra. Orkustefnan er byggð svoleiðis upp að fyrst er sett fram leiðarljós; þá eru meginmarkmið ákveðin í samræmi við leiðarljósið; loks eru afmarkaðari leiðir ákvarðaðar út frá þeim meginmarkmiðum. Leiðarljós orkustefnunnar er „Að orkubúskap Íslands verði hagað með sjálfbærum hætti, samfélaginu og almenningi til hagsbóta." 3.11.2011 13:37
Með andlit á eista Læknar sem meðhöndluðu mann sem fann fyrir verkjum í eista urðu furðu lostnir þegar þeir skoðuðu röntgenmyndir af eistanu. Við þeim blasti mynd af andliti. Röntgenmyndin birtist í grein í vísindaritinu Urology og barst þaðan til allra helstu dagblaða og vefrita í heimi, enda þykir myndin einstök. 3.11.2011 13:30
Ólafur Ragnar selur fyrsta Neyðarkallinn Neyðarkall björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður seldur um land allt nú um helgina. Salan hefst í dag, fimmtudag en þetta er í sjötta sinn sem þessi fjáröflun fer fram og er hún orðin ein sú mikilvægasta fyrir björgunarsveitir landsins. Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefur söluna í dag með því að selja Magnúsi Gunnlaugssyni, sem á líf sitt björgunarsveitum að launa eftir að bátur hans sökk norður af Akurey í mars á þessu ári, fyrsta Neyðarkallinn. 3.11.2011 13:30
Umhverfishættur ógna lífskjaraþróun „Sjálfbærni er ekki eingöngu og ekki einu sinni aðallega umhverfismál,“ sagði Helen Clark, yfirmaður Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, þegar hún kynnti nýjustu þróunarskýrslu stofnunarinnar í Kaupmannahöfn í gær. 3.11.2011 13:30
Telur aðild Palestínu að UNESCO ekki til góðs „Aðild Palestínu að stofnunum Sameinuðu Þjóðanna (SÞ) er engum til góðs," sagði Ban Ki-moon, aðalritari SÞ, í viðtali í gær. Hann benti á að afleiðingar þess að fjármagn stofnananna minnki í kjölfar umsókna Palestínu muni bitna á milljónum manna. Sem kunnugt er fékk Palestína inngöngu í UNESCO fyrr í vikunni. Í kjölfarið hættu Bandaríkin og Kanada að styðja stofnunina. Þar með missti stofnunin um einn fjórða hluta fjármagns síns. 3.11.2011 13:04
Papandreou að segja af sér? Búist er við því að forsætisráðherra Grikklands, George Papandreou, segi af sér á næsta hálftímanum samkvæmt upplýsingum fréttamiðilsins BBC. Papandreou mun hitta gríska forsetann í dag strax eftir að neyðarfundi í ríkisstjórninni sem hann situr þessa stundina lýkur. Gera menn ráð fyrir því að þar muni hann bjóðast til að láta af völdum og leggja til að mynduð verði samsteypustjórn með Lucas Papademos, fyrrverandi varaforseta seðlabanka Evrópu, í forsvari. 3.11.2011 12:43
Tónlistarmenn styðja Kattholt Björgvin Halldórsson, Bubbi Morthens og Ragnheiður Gröndal eru meðal þeirra tónlistarmanna sem koma fram á tónleikum í Fríkirkjunni í kvöld. Tónleikarnir eru haldnir til styrktar Kattholti, athvarfi fyrir óskilaketti. 3.11.2011 12:30
Hálka á fjallvegum Hálka er á vegum víða um land samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Austurlandi er einkum hálka á fjallvegum en autt á láglendi. Vegagerðin vinnur sérstaklega að hálkuvörnum á Möðrudalsöræfum, en þar ku vera flughált sem stendur. 3.11.2011 12:23
Segir fjármálaráðherrann „stinga höfðinu í steininn“ Þingmaður Framsóknarflokksins, Vigdís Hauksdóttir, sakaði ríkisstjórnina um að hvetja til svartra atvinnustarfsemi hér á landi með skattastefnu sinni þegar hún gerði skýrslu ríkisskattstjóra og aðila atvinnulífsins um svarta atvinnustarfsemi að umtalsefni á Alþingi í morgun. 3.11.2011 12:03
Afhendir forsetahjónunum húsið um miðjan nóvember „Mig er farið að vanta geymsluhúsnæði,“ segir Jón Hjörleifsson, sem seldi forsetahjónunum húsið sitt að Reykjamel í Mosfellsbæ, en hjónin keyptu húsið á 70 milljónir og staðgreiddu eignina, eins og Pressan.is hefur áður greint frá. 3.11.2011 11:17
Bretar vara þegna sína við íslensku hvalkjöti Bresk stjórnvöld vara þegna sína við því að kaupa hvalkjöt á Íslandi. Viðurlög við því að koma með hvalkjöt til Bretlands eru þung sekt og jafnvel fangelsisdómur. Á dögunum gerðu náttúruverndarsamtök könnun á því hvort hægt væri að kaupa hrefnukjöt í verslunum í Leifsstöð og fullyrt var að starfsfólk verslunarinnar hefði gefið þær upplýsingar að óhætt væri að kaupa kjötið og fara með til Bretlands. 3.11.2011 11:14
Ingvari gert að greiða Kaupþingi 2,6 milljarða Héraðsdómur fellst á að rifta skuli niðurfellingu persónulegrar ábyrgðar og flutningi skuldar í hlutafélag. 3.11.2011 11:00
Málaferli vegna dauðrar rottu Þegar danska matvælaeftirlitið fékk tilkynningu frá fyrirtækinu Flex Pack, sem selur Nupo megrunarduftið, í apríl síðastliðnum um að fundist hefði dauð rotta í gámi með heslihnetum frá Tyrklandi ákvað eftirlitið að farminum, 24 tonnum, yrði eytt. Litið var svo á að hneturnar væru mengaðar af úrgangi frá rottum og þess vegna gætu þær verið heilsuspillandi. Þær væru ekki hæfar til neyslu. 3.11.2011 11:00
Ferja með 1.200 manns í ljósum logum á Rauða hafinu Ferja með yfir 1.200 manns innanborðs stendur nú í ljósum logum á Rauða hafinu. Ferjan var að sigla með egypska farandverkamenn frá höfninni í Aqaba í Jórdanínu og yfir til Egyptalands. 3.11.2011 10:11
Miðborgarstjóri vill hærri framlög til landamæraeftirlits Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri, skorar á innanríkisráðuneytið að tryggja hærri fjárframlög til landamæraeftirlits "með hliðsjón af vaxandi tíðni erlendra glæpagengja,“ eins og hann orðar það í grein sinni sem hann birti í Fréttablaðinu í dag og á Vísi. 3.11.2011 10:02
Neyddust til að nota árásarhnapp Starfsmenn í verslun Samkaupa á Selfossi óttuðust um eigið öryggi vegna skrílsláta ungmenna í versluninni á sunnudagskvöld og notuðu árásarhnapp til að kalla til lögreglu. 3.11.2011 10:00
Svavar sýknaður í meiðyrðamáli Jóns Ásgeirs Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Svavar Halldórsson, fréttamann á RÚV, af meiðyrðastefnu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. 3.11.2011 09:33
Breytingar á skjön við markmið Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda, sagði á aðalfundi LÍÚ á dögunum að fyrirliggjandi hugmyndir um breytingar á fiskveiðistjórn séu í hrópandi andstöðu við markmið ríkisstjórnarinnar um að skapa greininni sem best rekstrarskilyrði. Hann sagði að margt af því sem þegar hefur verið gert leiddi síst af öllu til sátta. „Strandveiðar eru eitthvað það alvitlausasta í þessum hugmyndum sem kynntar hafa verið og er þó af nægu að taka,“ sagði Eggert. 3.11.2011 09:30
Kvað lyfin flest í eigu draughræddrar konu Júlíus Þorbergsson kaupmaður, betur þekktur sem Júlli í Draumnum, kvaðst fyrir dómi í gær aldrei hafa selt lyfseðilsskyld lyf úr verslun sinni við Rauðarárstíg. 3.11.2011 09:15
Samvinna lykill að lausn úraránsins Náið samstarf tollgæslu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samræmi við samning frá árinu 2008, hefur skilað miklum árangri, nú síðast við að upplýsa ránið í úraverslun Franks Michelsen. Þetta kemur fram í frétt á vef Tollstjóra. 3.11.2011 09:15
Réttað yfir meintum morðingja Fyrri hluti aðalmeðferðar fer fram í morðmáli gegn hinum tæplega fertuga Redouane Naoui, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann var ákærður fyrir að hafa ráðist á karlmann vopnaður hnífi á veitingastaðnum Monte Carlo í miðborg Reykjavíkur í júlí síðastliðnum. Hann stakk hann í hálsinn. 3.11.2011 09:05
Múhameðsgrín vekur viðbrögð Tveimur eldsprengjum var varpað inn á skrifstofur franska skoptímaritsins Charlie Hebdo í fyrrinótt. Francois Fillon, forsætisráðherra Frakklands, fordæmdi árásina. 3.11.2011 09:00
Blý mælist ekki yfir mörkum Niðurstöður blýmælinga í hári og nöglum íbúa á Ísafirði, í Reykjavík, Vestmannaeyjum og á Kirkjubæjarklaustri, vegna mengunar frá sorpbrennslum liggja fyrir og voru allar innan þeirra marka sem eðlileg geta talist. 3.11.2011 09:00
Sölumaður dauðans á leið í lífstíðarfangelsi Bandarískur dómstóll hefur fundið fyrrum rússneska liðsforingjann Viktor Bout sekann um að hafa ætlað að selja Farc skæruliðunum í Kólombíu þungavopn. 3.11.2011 08:00
Afbrigðilegt veðurfar hrjáir jarðarbúa næstu árin Í nýrri skýrslu frá IPCC loftslagsráði Sameinuðu þjóðanna mun afbrigðilegt veðurfar halda áfram að hrjá jarðarbúa næstu árin. 3.11.2011 07:58
Bræla og hafís tefja loðnuveiðar Látlaus norðan og norðaustan bræla á Grænlandssundi og hafís, sem nú er kominn inn á svæðið , hefur nánast alveg komið í veg fyrir loðnuveiði, en talið er að stórloðnan haldi sig á þessu svæði. 3.11.2011 07:55
Lindsay Lohan aftur á leið í fangelsi Leikkonan Lindsay Lohan er aftur á leið í fangelsi og þarf að afplána 30 daga vegna brota á skilorði frá fyrri dómi. Henni er gert að mæta í afplánunina fyrir 9. nóvember næst komandi. 3.11.2011 07:54
Vilja ekki að áætlunarflug leggist af til Sauðárkróks Aðalfundur Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi hvetur samgönguyfirvöld eindregið til að beita sér fyrir þvi að áætlunarflug til Sauðárkróks verði ekki lagt af um áramót, eins og til stendur, með niðurfellingu ríkisstyrkja til flugsins. 3.11.2011 07:48
Björgunarsveit kölluð út upp á Steingrímsfjarðarheiði Björgunarsveitarmenn frá Hólmavík voru í gærkvöldi kallaðir upp á Steingrímsfjarðarheiði, þar sem ökumaður sat í föstum bíl sínum. Leiðangurinn gekk vel þrátt fyrir slæmt veður. 3.11.2011 07:46
Nær 15% Bandaríkjamanna þurfa á matarmiðum að halda Nær 15% Bandaríkjamanna reiða sig nú á matarmiða frá hinum opinbera til að eiga til hnífs og skeiðar. 3.11.2011 07:42
G-20 fundurinn hefst í dag í skugga Grikklands Fundur leiðtoga G-20 ríkjanna hefst í Cannes í Frakklandi í dag. Eins og á neyðarfundi leiðtoga Evrópusambandsins í sömu borg í gærdag verður Grikkland í brennidepli á G-20 fundinum. 3.11.2011 07:37
Sinfóníuhljómsveitin semur, verkfalli frestað Fulltrúar starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og samninganefnd ríkisins undirrituðu nýjan kjarasamning í gærkvöldi eftir rúmlega tólf klukkustunda samningafund og var verkfalli hljómsveitarmanna frestað fram yfir atkvæðagreiðslu um samninginn. 3.11.2011 07:28
Endurskoða brottvísanir norrænna ríkisborgara frá Danmörku Manu Sareen, samstarfsráðherra Danmerkur í Norðurlandaráði hefur lofað því að skoða löggjöf um brottvísun norrænna ríkisborgara með þörf fyrir félagsþjónustu frá Danmörku. 3.11.2011 07:18
Allt í hnút í kjaradeilu undirmanna hjá Hafrannsóknarstofnun Stuttum fundi undirmanna á skipum Hafrannsóknastofnunar við viðsemjendur, lauk hjá ríkissáttasemjara án árangurs í gær. 3.11.2011 07:16
Prestar vilja láta endurskoða starfsemi þjóðkirkjunnar Þrír af hverjum fjórum prestum í landinu telja þörf á að einfalda skipulag þjóðkirkjunnar. Fram hafa komið álit um að lög og starfsreglur kirkjunnar séu ógagnsæ, stjórnsýsla ekki viðunandi og endurskoða þurfi allt stjórnkerfi hennar og skipulag. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Biskupsstofu. 3.11.2011 07:00
Skoða peningastreymi til flokka Danir eiga nú að fá að vita meira um hvaðan féð til stjórnmálaflokkanna kemur. Ríkisstjórn Helle Thorning-Schmidt ætlar að skipa nefnd sérfræðinga sem eiga að skoða vel og vandlega reglurnar um fjárstuðning við stjórnmálaflokka. 3.11.2011 07:00
Bræla hamlar loðnuveiðum Loðnuveiðar hafa legið niðri undanfarna daga vegna mjög erfiðs tíðarfars og hafíss á Grænlandssundi, segir á heimasíðu HB Granda. Svo virðist sem stóra loðnan haldi sig á þessum slóðum en lítið hefur orðið vart við annað en smáloðnu á hafsvæðinu úti fyrir Norðurlandi. 3.11.2011 06:00
Sjúkrahús í Eyjum háð söfnun Bjarna „Þetta var síðasta gjöfin, enda er ég að verða áttræður,“ segir Bjarni Sighvatsson, fyrrverandi skipstjóri og útgerðarmaður, sem gaf Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannnaeyjum nýtt ómtæki í byrjun vikunnar. 3.11.2011 05:00
Framkvæmdastjórinn sáttur við samninginn Tíu mánaða löngum viðræðum milli Sólheima í Grímsnesi og sveitarfélaganna á Suðurlandi lauk í fyrradag með undirritun þjónustusamnings til þriggja ára. 3.11.2011 05:00
Gefa vinnu sína við jólakortin Eggert Pétursson listmálari og Þórarinn Eldjárn, ljóðskáld og rithöfundur, gengu til liðs við Barnaheill – Save the Children á Íslandi við gerð jólakorts samtakanna í ár. 3.11.2011 04:00
Monsúnflóðin brátt í rénun Taílands reyna sitt besta til að halda áfram daglegu lífi á flóðasvæðunum, sem nú þekja stóran hluta landsins. Flóðin hafa kostað meira en fjögur hundruð manns lífið. Guðsteinn Bjarnason tók saman nokkrar ljósmyndir. 3.11.2011 01:00
Verkfalli Sinfó frestað „Við erum bara sátt við þennan samning,“ segir Rúnar Óskarsson, formaður samningsnefndar starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands en á áttunda tímanum í kvöld var skrifað undir kjarasamning í húsakynnum ríkissáttasemjara. Fundurinn á mili Sinfó og Samninganefndar ríkisins hófst klukkan níu í morgun og lauk á áttunda tímanum í kvöld. Fyrirhuguðu verkfalli hefur því verið frestað og þeir tónleikagestir sem voru búnir að kaupa sér miða á tónleika annað kvöld og á föstudag þurfa því ekki að örvænta og geta mætt gleði og kátir á tónleikana. 2.11.2011 20:52
Salman Rushdie birtir limru um Kim Kardashian Það virðast allir hafa skoðun á skilnaði Kim Kardashian og Kris Humphries. Þar á meðal er rithöfundurinn og Booker-verðlaunahafinn Salman Rushdie. 2.11.2011 20:30