Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tína 800 epli af einu eplatré á Akranesi Fulltrúar frá Hvatafélaginu Á-vexti eru um þessar mundir að reyna að sannfæra landann um að hægt sé að rækta ávexti eins og epli með góðu móti hér á landi. Þá kemur sér vel að geta bent á Ingibjörgu Eygló Jónsdóttur frá Akranesi en hún er með 35 ára gamalt eplatré í garðinum hjá sér og uppskar 800 epli í fyrra af þessu eina tré. 16.8.2011 07:30
Áfram spáð úrhelli í Danmörku Ekkert lát er á úrkomunni í Danmörku og nú spáir veðurstofa lands því að von sé á nýju úrhelli í landinu undir lok þessarar viku. Mikið úrhelli í fyrrinótt olli því að samgöngur fóru víða úr skorðum á Sjálandi og á Fjóni. 16.8.2011 07:28
Kynlíf eykst í takti við aukið jafnrétti kynjanna Í löndum þar sem jafnrétti meðal kynjanna er mest stundar fólk meira kynlíf en í þeim löndum þar sem jafnréttið er minna. 16.8.2011 07:17
Leikskólar í Reykjavík munu skerða þjónustu Leikskólum Reykjavíkurborgar verður ekki lokað þó að leikskólakennarar sem eru í Félagi leikskólakennara (FL) fari í verkfall næsta mánudag, segir Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri leikskólasviðs borgarinnar. Öllum leikskólum á vegum Akureyrarbæjar mun hins vegar verða lokað. 16.8.2011 07:00
Sýndu snarræði og slökktu eld Starfsmenn Vélsmiðjunnar Héðins í Hafnarfirði sýndu snarræði í gær þegar kviknaði í magnesíumkari í smiðjunni. Magnesíumsag logaði skært, en hvorki vatn né froða dugar til að slökkva eld í efninu. 16.8.2011 06:30
Í anda stefnu flokksins að klára viðræður Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir á sunnudag að draga beri aðildarumsókn Íslands að ESB tafarlaust til baka. Þótt Bjarni hafi áður lýst þessari skoðun hafa orð Bjarna verið talin afdráttarlausari en fyrri yfirlýsingar hans um málið. Benedikt Jóhannesson, formaður Sjálfstæðra Evrópumanna, segir það óráð að draga umsóknina til baka. 16.8.2011 06:00
Vinstri flokkar yfir í könnunum Stjórnarandstöðuflokkarnir á danska þinginu halda forskoti sínu í skoðanakönnunum. Nýjustu tölur sýna að vinstri flokkarnir hafa tæplega 54 prósenta fylgi, sem myndi skila þeim 95 þingsætum, gegn 45,8 prósentum og 80 þingsætum hjá hægriflokkunum sem hafa stýrt landinu í tíu ár. 16.8.2011 05:30
Stígandi í sölu nýrra bíla Fyrstu sjö mánuði þessa árs voru skráðir 3.500 nýir fólksbílar á Íslandi. Þar af voru 2.145 bílaleigubílar, samkvæmt upplýsingum frá Bílgreinasambandinu. Einstaklingar hafa þess vegna keypt 1.355 nýja fólksbíla á tímabilinu. 16.8.2011 05:00
Þarf að sigrast á félagslegum vandamálum „Þetta hefur orðið til þess að vekja okkur upp hér í landi. Félagsleg vandamál sem hafa grafið um sig áratugum saman hafa nú sprungið framan í okkur,“ sagði David Cameron, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Íhaldsflokksins. 16.8.2011 04:30
Talin látin eftir fall í Niagara fossana Nítján ára gömul japönsk stúlka féll í nótt í hina heimsfrægu Niagara fossa, sem standa á landamærum Bandaríkjanna og Kanada. Leit að líki stúlkunnar hefur ekki enn borið árangur, en hún er nú talin látin. 15.8.2011 23:00
Smár skjálfti fannst greinilega í Hveragerði Skjálfti sem mældist 1,8 á richterskalanum varð 1,5 km austur af Hrómundartindi rétt fyrir klukkan hálf tíu í kvöld, og fannst hann greinilega í Hveragerði að sögn heimamanna. 15.8.2011 22:30
Íslenskt kennslumyndband í anda The Office vekur athygli Nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í tölvuöryggismálum hefur vakið athygli hjá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Leyndarmálið er að ná athygli starfsmanna með húmor. 15.8.2011 21:30
Árásir í Írak gætu haft áhrif á veru bandaríska hersins í landinu Samstilltar spreningar í Írak hafa orðið að minnsta kosti 74 manns að bana og sært 250 manns. Árásin gæti haft áhrif á brottför bandaríska hersins úr landinu. 15.8.2011 21:00
Íslensk börn hreyfa sig of lítið Níu ára íslensk börn hreyfa sig of lítið og þrek þeirra fer versnandi ef marka má niðurstöður nýrrar doktorsritgerðar í íþrótta- og lýðheilsufræði. 15.8.2011 20:30
Grjóti kastað í Benz - vitni óskast Grjóti var kastað í Mercedes Benz bifreið þar sem hún stóð við Fljótsmörk 6 í Hveragerði aðfaranótt laugardagsins 13. ágúst. Þá voru spjöll unnin á bifreið, gröfu og fleiru á athafnasvæði gróðrastöðvar við Reykjamörk en þar hefur grafa verið gangsett og notuð til að velta um gömlum bíl sem þar var geymdur. Lögreglan óskar eftir því að þeir sem búa yfir vitneskju um hver hafi valdið þessu tjóni geri lögreglu viðvart. 15.8.2011 15:45
Hollráð fyrir foreldra í skólabyrjun Lögreglan beinir því til foreldra að leiðbeina börnum sínum um hentugar leiðir til og frá skóka, og fylgja þeim yngstu á meðan þau læra á leiðina og þær hættur sem þar kunna að leynast. 15.8.2011 16:32
Brotist inn í skrifstofugám Brotist var inn í skrifstofugám frá Grímsnes- og Grafningshreppi þar sem hann var staðsettur við gámasvæði við Seyðishóla um liðna helgi. Litlu mun hafa verið stolið en tjón er á munum og óskar lögreglan eftir upplýsingum um mannaferðir við gámasvæðið hafi einhver tekið eftir einhverju óvenjulegu þar. 15.8.2011 16:27
Átta stútar - fjórir þeirra án ökuréttinda Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina. Fjórir þeirra voru stöðvaðir á laugardag, þrír á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 16-49 ára og þrjár konur, 20-40 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi. 15.8.2011 16:08
Tólf dópaðir undir stýri Um helgina voru tólf ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Níu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, sex á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru níu karlar á aldrinum 20-42 ára og þrjár konur á þrítugsaldri. Sjö þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. 15.8.2011 15:51
Erill á Selfossi Í liðinni viku voru 7 ökumenn eða farþegar kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti bifreiðar sinnar í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. 26 voru kærðir fyrir að aka of hratt og voru flestir þeirra á ferð á Suðurlandsvegi og á Biskupstungnabraut, meðal annars innan þeirra marka við þéttbýlið á Borg þar sem leyfður hámarkshraði er 70 km/klst Mælingar á Þingvallavegi, á Mosfellsheiði og á nýjum vegi yfir Lyngdalsheiði hafa ekki gefið til kynna að þar sé mikið um hraðakstur en lögð hefur verið áhersla á hraðamælingar á þessum vegum liðnar vikur og verður svo áfram. Árekstur varð á gatnamótum Engjavegar og Tryggvagötu þann 10. ágúst. Þar rákust saman tveir fólksbílar og slasaðist ökumaður annars þeirra lítillega. Þá varð árekstur tveggja bifreiða við gatnamót Eyrabakkavegar og Valsheiðar þann 11. ágúst. Þar rákust saman tveir bílar, báðir með kerru og varð af tölvert eignatjón auk þess sem farþegi í öðrum bílnum kenndi eymsla í brjósti. Þriðji áreksturinn varð á gatnamótum Biskupstungnabrautar og Skeiða - og Hrunamannavegar skammt ofan við Geysi þegar ökumaður sem ók suður Biskupstungnabraut beygði til vinstri inn á Skeiða- og Hrunamannaveg í veg fyrir bifreið sem ekið var norður Biskupstungnabraut. Tveir voru í hvorum bíl og þurftu allir á læknisaðstoð að halda eftir óhappið en áreksturinn var harður. Þá varð óhapp á Austurvegi á Selfossi þegar bifreið var snúið við á akbrautinni (tók U beygju) í veg fyrir ökumann á vespu sem ekið var austur Austurveginn. Ökumaður vespunnar hlaut brunasár af útblástursröri hjólsins en slapp ómeiddur að öðru leiti. 15.8.2011 15:18
Telur heimildir ráðherra kunna að brjóta í bága við stjórnarskrána Umboðsmaður Alþingis tekur ekki afstöðu til kvörtunar Samtaka verslunar og þjónustu vegna meðferðar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins á úthlutunum tollkvóta til innflutnings á landbúnaðarvörum. Ástæða þessa er að hann telur að þær heimildir sem ráðherra eru veittar af Alþingi kunni að brjóta í bága við stjórnarskrána. Umboðsmaður Alþingis beinir því til ráðuneytisins, og eftir atvikum fjármálaráðherra, að bregðast við þeirri niðurstöðu að viðkomandi ákvæði tollalaga um framleiðslu, verðlagningu og sölu búvara séu ekki í samræmi við stjórnarskrána. Þá hefur umboðsmaður ákveðið að tilkynna Alþingi um málið. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið birti hins vegar tilkynningu á vef sínum í morgun um þetta álit umboðsmanns Alþingis. Þar segir orðrétt: "Í áliti sínu staðfestir umboðsmaður að framkvæmd ráðherra er í samræmi við sett lög en tilefni álitsgerðarinnar er einmitt kæra Samtaka verslunar og þjónustu þar sem því er haldið fram að ráðuneytið hefði í reglugerðum farið út fyrir valdheimildir tollalaga nr. 88/2005.“ 15.8.2011 14:37
Vagnstjórar Strætó sigruðu í ökuleikni Strætisvagnabílstjórar Strætó bs. sigruðu á Norðurlandamóti í ökuleikni vagnstjóra, sem haldið var í Stokkhólmi í Svíþjóð nýlega. Í tilkynningu frá Strætó segir að Svíar hafi verið í öðru sæti og Finnar í því þriðja, en þeir sigruðu á þessu móti í fyrra. 15.8.2011 14:07
Umferðaröngþveiti í London vegna prufumóts Endurskoðun mun fara fram á leiðinni sem farin verður þegar keppt verður í hjólreiðum á Ólympíuleikunum í Lundúnum eftir rétt tæpt ár. Ástæðan er sú að gríðarlegt umferðaröngþveiti myndaðist í borginni í gær þegar leiðin var prófuð í gær. Loka þurfti rúmlega þúsund götum og hafa margir áhyggjur af því hvað gerist þegar á sjálfa Ólympíuleikana er komið, en þá mun keppnin taka heila fimm daga. 15.8.2011 14:01
Magnesíum brann í Vélsmiðjunni Héðni Eldur kom upp í vélsmiðjunni Héðni við Gjáhellu í Hafnarfirði í dag. Gríðarlegur reykur steig upp af húsinu enda hafði kviknað í kari fullu af magnesíum, sem er gríðarlega eldfimt efni. 15.8.2011 14:00
Leiguhúsnæði verði fjórðungur íbúða í nýjum hverfum Í nýjum hverfum miðsvæðis í Reykjavík verður gert ráð fyrir að leiguhúsnæði verði minnst fjórðungur íbúðarhúsnæðis, nái tillögur vinnuhóps um mótun húsnæðisstefnu borgarinnar til ársins 2020 fram að ganga. Umrædd hverfi eru til að mynda í Vatnsmýri, við Mýrargötu og við Hlemm. Vinnuhópurinn skilaði af sér tillögum til borgarráðs í byrjun júlí og eru þær í umsagnarferli til vikuloka. Helsta markmiðið með tillögunum er að tryggja öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði fyrir alla borgarbúa. Þá er þar sérstaklega fjallað um hlutfall leiguhúsnæðis í hverfum borgarinnar. Sem stendur er hlutfall leiguíbúða talið vera vel undir 20% af öllu íbúðarhúsnæði í borginni, en stefna á að því að það verði fjórðungur. Þá er í tillögunum kveðið á um að við skipulag íbúðahverfa skuli tryggt að fimmtungur íbúða, hið minnsta,. miðist við þarfir tekjuminni hópa. 15.8.2011 13:00
Neytendasamtökin vilja innflutning á kjöti Neytendasamtökin krefjast þess að innflutningur á kjöti verði heimilaður þegar í stað og tollar afnumdir eða í það minnsta lækkaðir til muna. Fram hefur komið að skortur er á kjöti í landinu. Jafnframt hefur komið fram í áliti Umboðsmanns Alþingis við erindi Samtaka verslunar og þjónustu að þau lög sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra byggir ákvarðanir sínar á við ákvörðun á háum tollum gangi gegn stjórnarskránni. Þessum lögum verður tafarlaust að breyta. 15.8.2011 12:25
Byggja upp ódýrt húsnæði fyrir ungt fólk og tekjulága Sérstök áhersla er lögð á að byggja upp ódýrt húsnæði fyrir ungt fólk og tekjulága hópa, samkvæmt stefnumótun vinnuhóps um húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar. Markmiðið er að efla leigumarkaðinn í borginni þannig að allir borgarbúar eigi kost á öruggu húsnæði á viðráðanlegu verði. Vinnuhópur um húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar til ársins 2020 skilaði af sér tillögum til borgarráðs í byrjun júlí. Tillögurnar eru nú í umsagnarferli en frestur til að skila inn umsögnum rennur út í vikulok. Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar er formaður starfshópsins. Hún segir brýna þörf á að efla leigumarkaðinn í borginni. Í skýrslu hópsins er lagt til að félagasamtök og húsnæðissamvinnufélög sem bjóða ungu fólki og tekjulágum upp á leiguíbúðir og búseturéttaríbúðir á viðráðanlegum kjörum, fái forgang á úthlutun lóða, að uppfylltum skilyrðum Reykjavíkurborgar. Mat starfshópsins er að mest þörf sé á ódýrara húsnæði fyrir þessa hópa og því lagt til að úthlutanir á lóðum í nánustu framtíð taki mið af því. Þá er hvatt til þess að Reykjavíkurborg hafi forystu í að endurskoða og samræma reglur um sérstakar húsaleigubætur, í samvinnu við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, í því skyni að létta greiðslubyrði til tekjulágs fólks sem jafnframt á í félagslegum vanda. Samkvæmt nýjum reglum verði stuðningur óháður því hver á eða rekur húsnæði, heldur fari hann eftir aðstæðum og greiðslubyrði hvers leigjanda. Vinnuhópurinn mælist ennfremur til þess að Félagsbústaðir reki áfram húsæði fyrir þá sem ekki geta leit á almennum markaði, þrátt fyrir sérstsakan stuðning. Þá verði kannaður sá möguleiki að Félagsbústaðir sinni félagslegu húsnæði á öllu höfuðborgarsvæðinu Meðal þeirra sem skila umsögn um tillögurnar eru Neytendasamtökin, Félagsstofnun stúdenta og Öryrkjabandalagið. Almenningi er einnig frjálst að senda inn umsagnir. Skýrsluna má nálgast á vef Reykjavíkurborgar 15.8.2011 12:05
Vatnsberinn loks á réttum stað Styttan Vatnsberinn eftir Ásmund Sveinsson var í dag flutt þangað sem hún verður endanlega staðsett, á horni Lækjargötu og Bankastrætis. Styttan hefur staðið á holtinu við Veðurstofu Íslands frá árinu 1967, en þó nokkrar deilur spruttu upp þegar staðsetja átti Vatnsberann í borgarlandinu á sínum tíma. 15.8.2011 11:53
Æðarkollan var aflífuð Æðarkolla varð fyrir því óláni að fljúga inn í flugeldaskothríðina þegar boðið var upp á flugeldasýningu í Vogum á Vatnsleysuströnd í tilefni af fjölskylduhátíðinni þar í bæ í fyrrakvöld. 15.8.2011 10:30
Samningafundur leikskólakennara að hefjast Verkfall leikskólakennara hefst eftir viku ef ekki nást samningar fyrir þann tíma. Samningafundur fulltrúa leikskólakennara og samninganefndar sveitarfélaga hófust hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu. Vika er síðan síðasti fundur var haldinn. 15.8.2011 10:10
Tíkin týnd í þrjá mánuði Rottweilertíkin Chrystel, sem rænt var úr vörslu lögreglu í byrjun maímánaðar, er enn ófundin. Á þriðja mánuð er síðan lögreglan á Selfossi sendi beiðni til allra dýralækna á landinu, á allar lögreglustöðvar og til þeirra starfsmanna sem sjá um skráningu dýra, um að hafa samband ef tíkin kemur í leitirnar. Þess utan hefur lögreglan takmörkuð úrræði til að finna tíkina, önnur en að bíða og vona að hún komi í leitirnar. Þeir sem hafa upplýsingar um hvar tíkina er að finna eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögreglu. Chrystel skal aflífa samkvæmt úrskurði héraðsdýralæknis og síðar úrskurðarnefnd um hollustuhætti og mengunarvarnir sem tók málið upp eftir að eigandi tíkarinnar kærði úrskurð héraðsdýralæknis. Eins og komið hefur fram í fréttum beit Chrystel konu í handlegginn í byrjun marsmánaðar. Áður hafði hún bitið dóttur konunnar. 15.8.2011 09:51
Norðurskautsríkin ræddu málefni norðurslóða í ísbrjóti Þrír fulltrúar frá Íslandi sóttu ráðstefnu Norðurskautsráðsins sem var haldin á ísbrjótnum Yamal norður af Rússlandsströndum í vikunni og lauk í fyrradag. 15.8.2011 09:00
Eitt innbrot tilkynnt í borginni Tilkynnt var um innbrot í heimahús í höfuðborginni í nótt en þar hafði þjófur brotið sér leið inn og haft með sér sjónvarp fjölskyldunnar. 15.8.2011 08:20
Tveir jarðskjálftar fundust greinilega í Grindavík Tveir jarðskjálftar fundust greinilega í Grindavík rétt eftir klukkan hálf átta í morgun. Skjálftarnir mældust 2,4 og 2,0 á Richter og áttu upptök sín um 2,4 kílómetra norðan við bæinn. 15.8.2011 08:16
Lítill vilji til þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá Þingflokksformenn eru sammála um að mikilvægt sé að efna til opinnar umræðu í samfélaginu öllu um drög stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá lýðveldisins. Stjórnarskráin bindur hendur þingsins, en í henni er skýrt kveðið á um að samþykki tveggja þinga þurfi til að gera breytingar á henni. Óvíst er hvaða vægi þjóðaratkvæðagreiðsla um málið hefði. 15.8.2011 08:00
Minningarathöfn við Geirsgötu í nótt Fjöldi fólks kom saman við Geirsgötu um miðnætti í nótt til þess að minnast unga mannsins sem lést af völdum höfuðáverka á gjörgæslu í gær. 15.8.2011 07:38
Hitabeltisstormurinn Gert stefnir á Bermúda Hitabeltisstormurinn Gert stefnir nú í áttina að Bermúdaeyjum og hefur verið gefin út stormviðvörun á eyjunum vegna hans. 15.8.2011 07:25
Uppreisnarmenn að umkringja Trípólí Uppreisnarmenn í Líbíu sækja nú að tveimur mikilvægum bæjum í grennd við höfuðborgina Trípólí. Bardagar við báða bæina hafa staðið yfir alla helgina. Takist uppreisnarmönnum að ná þessum bæjum á sitt vald er Trípólí algerlega umkringd á landi en herfloti NATO einangrar borgina frá sjó. 15.8.2011 07:05
Mikil óánægja með störf Barack Obama Óánægja almennings í Bandaríkjunum með störf Baracks Obama bandaríkjaforseta hefur aldrei verið meiri frá því hann tók við embætti sínu. 15.8.2011 07:01
Úrhelli truflar aftur samgöngur í Danmörku Verulegar truflanir hafa verið á samgöngum víða á Sjálandi og Fjóni í Danmörku í morgun eftir að mikið úrhelli gekk þar yfir í gærkvöldi og nótt. 15.8.2011 06:56
Kýrin Yvonne vekur mikla athygli í Þýskalandi Þýska þjóðin fylgist nú spennt með tilraunum dýraverndunarsinna til að bjarga kú úr skóglendi Bæjaralands en þar hefur kýrin dvalið síðan hún flúði af bóndabýli sínu í vor. 15.8.2011 06:52
Chavez kominn til Venesúela Forseti Venesúela, Hugo Chavez, hefur snúið aftur til Venesúela eftir aðra umferð lyfjameðferðar sem hann fór í á Kúbu. 15.8.2011 06:30
Helmingi minna rusl Óflokkað heimilissorp á Akureyri hefur minnkað um helming frá síðasta hausti. Í ágúst 2010 setti Akureyrarbær af stað svokallaða B-leið í endurvinnslu á Eyjafjarðarsvæðinu og var flokkunartunnum komið á hvert heimili, sem eru um 7.230 talsins. 15.8.2011 06:00
Gera þátt um múslima á Íslandi Trúarlíf múslima á Íslandi hefur vakið áhuga sjónvarpsmanna frá arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera en þeir eru nú að taka upp þátt hér á landi. 15.8.2011 06:00
Íslenskt berg komið til ekta Íslendinga Steinasafn hjónanna Snjólaugar Maríu Dagsdóttur og Þorsteins Þorleifssonar, var flutt til Winnipeg í Kanada. Það er nú til sýnis á New Iceland Heritage Museum, eða Sögusafni Nýja-Íslands í Gimli í Manitoba. 15.8.2011 05:00