Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslendingar verði tæplega hálf milljón Samkvæmt djörfustu spám verða Íslendingar orðnir tæplega 500 þúsund árið 2060. Í nýuppfærðri mannfjöldaspá Hagstofu Íslands segir að Íslendingar verði í mesta lagi orðnir 491 þúsund, en að minnsta kosti orðnir 384 þúsund talsins. Miðspáin gerir ráð fyrir að Íslendingar verði 433 þúsund. 31.5.2011 09:12
Enn syrtir í álinn hjá Silvio Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu á ekki sjö dagana sæla nú um stundir og í gær tapaði flokkur hans kosningum í heimaborginni Milanó. Berlusconi hafði beitt sér persónulega í borgarstjórnarkosningunum í Mílanó en allt kom fyrir ekki og nú hafa vinstrisinnar náð völdum í borginni í fyrsta sinn í tvo áratugi. 31.5.2011 09:09
Viðræður Gaddafís og Zuma árangurslausar Jacob Zuma forseti Suður Afríku heimsótti Gaddafí leiðtoga Líbíu í gær til þess að reyna að koma á vopnahléi í landinu og fá leiðtogann til að stíga til hliðar. Viðræðunum lauk án niðurstöðu. Zuma segir að Gaddafí sé tilbúinn til að lýsa yfir vopnahléi en að hann sé ófánlegur til þess að fara frá völdum. 31.5.2011 09:04
Áfrýjun Mladic tekin fyrir Stríðsglæpadómstóllinn í Serbíu tekur í dag fyrir áfrýjun stríðsherrans Ratko Mladic sem berst nú gegn því að verða framseldur til alþjóðlega stríðsglæpadómstólsins í Haag. Mladic er sakaður um þjóðarmorð í Bosníustríðinu árið 1995 og var hann handtekinn í síðustu viku, en lögfræðingar hans og læknar segja hann of veikburða til þess að mæta fyrir rétt. 31.5.2011 09:00
Lýsi bælir niður áfengisþorsta Lýsi bælir niður áfengisþorsta og gagnast í baráttunni við sálræna kvilla, er niðurstaða bandarískra vísindamanna við Indiana-háskóla. Rannsókn á músum sem staðið hefur yfir um árabil sýnir að að efni sem eru í miklu magni í lýsi hafa áhrif á sömu heilastöðvar og geðlyf. 31.5.2011 09:00
Ræddu litla kvótamálið fram á nótt Umræður um svonefnt minna frumvarp stjórnvalda um stjórn fiskveiða, sem nær meðal annars til hækkunar veiðigjalda og smábátaveiða, stóð á Alþingi fram undir miðnætti, uns hlé var gert á þeim, og verður þeim fram haldið í dag. 31.5.2011 08:44
Tuttugu og þrír stútar teknir úr umferð Tuttugu og þrír ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu um helgina þar sem þeir höfðu ekið undir áhrifum, þar af sex vegna fíkniefnaneyslu og 23 vegna áfengisneyslu. Einn ökumaðurinn var með barn með sér í bílnum auk fullorðins farþega, en hann var líka ölvaður og gat ekki tekið við akstrinum. 31.5.2011 08:42
Dráttarvél varð eldi að bráð Dráttarvél gjöreyðilagðist í eldi að bænum Gullberastöðum í Lundareykjadal í Borgarfirði í gær. Hún hafði verið skilin eftir i gangi fyrir utan íbúðarhúsið, en þegar heimilisfólki var litið út skömmu síðar, stóð hún í björtu báli. Slökkvilið var kallað á vettvang til að slökkva eldinn, sem ekki náði að teygja sig í nálæg hús. Eldsupptök eru ókunn. 31.5.2011 08:40
Mjólkurbíll valt vegna hálku Mjólkurflutningabíll valt á leið sinni til Súgandafjarðar snemma í gærmorgun. Ökumaður bílsins var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði en reyndist ekki alvarlega slasaður. 31.5.2011 07:30
Lögreglan lýsir eftir stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Kristnýju Huld Einarsdóttur, sem er 15 ára, grannvaxin, 168 sentímetrar á hæð, með blá augu og sítt ljóst hár með bleikum strípum. Talið er að hún sé í svartri hettupeysu og svörtum þröngum íþróttabuxum. Síðast sást til hennar á Laugavegi í Reykjavík í gærkvöldi. Sími lögreglunnar er 444-1000. 31.5.2011 07:09
Flugumferðarstjórar semja Flugumferðarstjórar undirrituðu nýjan kjarasamning við viðsemjendur sína hjá Ríkissáttasemjara undir morgun og á samningurinn að gilda til fimm ára. Flugumferðarstjórar hafa jafnframt aflýst boðuðum aðgerðum, sem áttu að þrýsta á samningagerð. Ekki liggur fyrir hvað felst í samningnum. 31.5.2011 07:08
Slapp naumlega þegar bíllinn fór í sjóinn Karlmaður á miðjum aldri slapp naumlega út úr bíl sínum, sem rann fram af bryggju við kaffivagninn á Grandagarði á örðum tímanum í nótt og sökk til botns. Vitni kallaði á björgunarlið og hélt maðurinn sér við bryggjuna, í sjónum, þegar lögregla og sjúkraflutningamenn komu á vettvang. 31.5.2011 07:02
Sífellt fleiri reyna að smygla læknadópi Smygl á fíkniefnum til fanga á Litla-Hrauni hefur gerbreyst á síðustu tveimur árum. Nú er mun meira um að fangaverðir stöðvi sendingar af lyfjum á borð við rítalín og contalgín en ólöglegum fíkniefnum. 31.5.2011 07:00
Tekist á um kvótafrumvarpið á Alþingi Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra mælti fyrir því minna af tveimur frumvörpum ríkisstjórnarinnar um breytingar á kvótakerfinu á Alþingi í gær. Í kjölfarið fóru fram fjörugar umræður um málið sem stóðu langt fram á kvöld. 31.5.2011 06:15
Peningaöflin senda jaðarbyggð skilaboð Stjórn Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands fordæmir þá ákvörðun Framtakssjóðs Íslands að leggja ekki fé í álkaplaverksmiðju á Seyðisfirði. "Ljóst er af öllu að megin ástæða afstöðu sjóðsins ræðst af staðsetningu verksmiðjunnar, en ekki fjárhagslegum forsendum. Stjórn Atvinnuþróunarsjóðsins lýsir jafnframt yfir vandlætingu sinni á því hvernig þeir sem fara með fé almennings í lífeyrissjóðum landsins leyfa sér að koma fram við jaðarbyggðir á Íslandi," segir stjórnin í ályktun sem samþykkt var að tillögu Ólafs Hr. Sigurðssonar, bæjarstjóra á Seyðisfirði. 31.5.2011 06:00
Boðar átak gegn notkun munntóbaks Í það minnsta 28 krabbameinsvaldandi efni hafa fundist í munntóbaki, auk þess sem notkun þess er tengd hjartasjúkdómum og sykursýki. Landlæknisembættið ætlar að beina sjónum sínum sérstaklega að sívaxandi munntóbaksnotkun hér á landi á alþjóðlegum Degi án tóbaks í dag. 31.5.2011 06:00
Flug gæti raskast í næstu viku Flugvirkjafélag Íslands boðar vinnustöðvun hjá Icelandair eftir viku náist ekki að gera nýjan kjarasamning fyrir þann tíma. Leggja á niður vinnu milli klukkan sex og tíu að morgni dagana 8. til 10. júní. 31.5.2011 06:00
Neysla mælist svipuð og fyrri ár Niðurstöður evrópsku vímuefnarannsóknarinnar ESPAD 2011 eru að neysla 15 til 16 ára unglinga á hassi og marijúana hér á landi er svipuð og hún var fyrir sextán árum. Árið 1995 höfðu tíu prósent unglinga á þessum aldri prófað kannabisefni en ellefu prósent í ár. 31.5.2011 06:00
Sló mann með glerglasi í andlit Ein líkamsárás var kærð til lögreglunnar á Selfossi um nýliðna helgi. Atvikið átti sér stað um þrjúleytið að næturlagi við skemmtistaðinn 800 Bar á Selfossi. Þar hafði maður slegið annan mann í andlitið með bjórglasi. 31.5.2011 06:00
Rekstur Heimilis og skóla fór úr böndum Rúmlega tuttugu milljóna króna tap var á rekstri samtakanna Heimilis og skóla á síðasta ári. Rúmlega tveggja milljóna hagnaður var af rekstrinum árið áður. Félagskjörnir skoðunarmenn samtakanna vöktu athygli á þessu í ársskýrslu. Þeir segja þar að „rekstur samtakanna hafi farið úr böndum og að eftirliti hafi verið ábótavant“. 31.5.2011 05:30
Þýskir afhuga Danmörku Útlit er fyrir að danskur ferðamannaiðnaður muni skaðast vegna nýrra laga um hert landamæraeftirlit. Margir Þjóðverjar hafa afpantað sumarhús undanfarið, að því er fram kemur í Politiken. Þar sem Þjóðverjar eru þriðjungur gesta í dönskum sumarhúsum óttast rekstraraðilar að tjón geti orðið verulegt. - þj 31.5.2011 05:30
Hraðamyndavélar í notkun Nýjar hraðamyndavélar verða teknar í notkun á Kjalarnesi við Árvelli á morgun. Myndavélarnar eru á hringveginum. Uppsetning vélanna, sem eru tvær, er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda, sem miðar að því að draga úr hraða á þjóðvegum og fækka slysum. 31.5.2011 05:15
Herforingjar flýja frá Líbíu Átta herforingjar frá Líbíu komu fram á blaðamannafundi á Ítalíu í gær, þar sem þeir sögðust hafa sagt skilið við Múammar Gaddafí, leiðtoga Líbíu. Þeir sögðu æ fleiri herforingja vera að hlaupast undan merkjum og nú væri geta hersins aðeins um fimmtungur af því sem hún var. 31.5.2011 05:00
Rýmdi leikskóla vegna sprengju Sprengjusveit lögreglunnar í Noregi var kölluð að leikskóla í Ósló í gærmorgun eftir að handsprengja hafði sést á þaki skólans. Fjörutíu börn og 21 starfsmaður voru flutt út úr húsinu á meðan lögregla athafnaði sig. 31.5.2011 05:00
Eldur í hlöðu og fjárhúsi í Borgarbyggð Allt tiltækt lið slökkviliðs Borgarbyggðar var kallað út á níunda tímanum í kvöld eftir að tilkynnt var um eld í hlöðu og fjárhúsi við bæinn Laxholt í Borgarbyggð. Á þriðja tug slökkviliðsmanna taka þátt í aðgerðum við bæinn. Tildrög eldsins eru óljós. 30.5.2011 21:49
Gerð verði löggæsluáætlun fyrir Ísland Lögð hefur verið fram á Alþingi þingsályktunartillaga um grundvallarskilgreiningar löggæslu hér á landi og gerð löggæsluáætlunar fyrir Ísland. Framlagning tillögunnar miðar að því að skilgreina eðli og umfang lögreglustarfsins auk þess að skilgreina ítarlega þau verkefni sem lögreglu er ætlað að sinna og hver kostnaður ríkissjóðs er af störfum lögreglu hverju sinni. 30.5.2011 21:39
Dúxinn í Kvennó með 9,79 Kvennaskólanum í Reykjavík var slitið í 137. sinn við hátíðlega athöfn í Hallgrímskirkju síðastliðinn föstudag þegar 145 stúdentar voru útskrifaðir. Hæstu einkunn á stúdentsprófi hlaut Olga Sigurðardóttir, nemandi á náttúrufræðibraut en hún útskrifaðist með 1. ágætiseinkunn 9,79, sem jafnframt er hæsta stúdentspróf sem tekið hefur verið við skólann, að því er fram kemur í tilkynningu frá skólanum. 30.5.2011 21:16
Vilja Ísland úr Nató Þingflokkur Vinstri grænna og þremenningarnir sem sögðu skilið við þingflokkinn fyrir skömmu hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að Ísland segi sig úr Atlantshafsbandalaginu, Nató. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. 30.5.2011 21:00
Ástæða til þess að hafa áhyggjur af tóbakssölu Bannað verður að selja tóbak annars staðar en í apótekum nái þingsályktunarályktun níu þingmanna, sem lögð var fram á Alþingi í dag, fram að ganga. Samkvæmt tillögunni verða reykingar á almannafæri bannaðar. 30.5.2011 19:37
Endeavour á leið til jarðar Geimferjan Endeavoour er á leið til jarðar. Hún leysti festar frá Alþjóðlegu geimstöðinni í gær. Þetta er síðasta ferð Endeavoour út í geiminn. Hún mun lenda á jörðinni á miðvikudag og þar verður hún sett á geimferðasafn í Kaliforníu. Þá verður aðeins eftir ein geimferja í bandaríska ferjuflotanum. Það er Atlantis sem fer í sína síðustu ferð í júlí næstkomandi. Þegar hún lendir verður lokið 30 ára merkum kafla í geimferðasögu Bandaríkjanna. 30.5.2011 19:25
Tekist á um kvótakerfið Tilraun ríkisstjórnarinnar til að umbylta kvótakerfinu hófst á alþingi í dag. Stjórnarandstaðan gagnrýndi að hækkun veiðigjaldsins rynni ekki óskipt aftur til landsbyggðar og knappan tíma til afgreiðslu málsins en stjórnarliðar sögðu nægan tíma til stefnu. 30.5.2011 18:53
Iðnaðarráðherra gat engu svarað Iðnaðarráðherra gat engu svarað um það á Alþingi í dag hvað liði áformum um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum. Stjórnarandstöðuþingmaður var rekinn úr ræðustól þegar hann reyndi að fá skýrari svör en ráðherrann sagði að engar fréttir væru góðar fréttir. 30.5.2011 18:49
Goslokum lýst yfir og hættuástandi aflétt Vísindamenn Veðurstofu og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands lýstu því yfir í dag að eldgosinu í Grímsvötnum væri lokið og hafa almannavarnir nú aflétt hættustigi. 30.5.2011 18:46
Kennarar samþykkja kjarasamning Félagsmenn í Félagi grunnskólakennara hafa samþykkt kjarasamning sem gerður var við Samband íslenskra sveitarfélaga, en skrifað var undir samninginn 14. maí með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Atkvæðagreiðslunni lauk í dag og greiddu um 73% félagsmanna atkvæði. Af þeim sögðu 2857 já eða rúmlega 86%. 30.5.2011 18:02
Sex óku undir áhrifum fíkniefna Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Þetta voru allt karlar á aldrinum 20-25 ára en einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi, að því er fram kemur á vef lögreglunnar. Tveir voru teknir á laugardag og fjórir á sunnudag. 30.5.2011 17:47
Berlusconi missir fylgi Berlusconi virðist vera að tapa fylgi í heimaborg sinni, Mílanó, en nú standa yfir kosningar í landinu. Svo virðist sem sitjandi borgarstjóri og flokksfélagi Berlusconis hafi tapað sæti sínu og hinn vinstrisinnaði Giuliano Pisapia muni setjast í borgarstjórastólinn í hans stað. Verði þetta niðurstaðan verður það í fyrsta skipti í tvo áratugi sem Berlusconi tapar meirihluta í borginni en auk þess virðist barátta flokksfélaga hans í Napólí vera töpuð. 30.5.2011 17:40
Hroðalegt að tapa ungu fólki „Það þurfa allir að standa vaktina svo við séum ekki að tapa ungu fólki - sem er náttúrlega bara hroðalegt," segir Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra. Guðbjartur fundaði í dag með Geir Gunnlaugssyni landlækni og Braga Guðbrandssyni, forstjóra Barnaverndastofu, vegna þeirrar umræðu sem hefur staðið yfir að undanförnu um ungmenni og misnotkunar á læknadópi. 30.5.2011 17:28
Meintur nauðgari skal sitja áfram í varðhaldi Ungur karlmaður sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá því í apríl og er grunaður um að hafa nauðgað tveimur stúlkum skal sitja áfram í varðhaldi til 24. júní. Hæstiréttur komst að þessari niðurstöðu í dag en maðurinn hafði áður kært úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar. 30.5.2011 17:14
Þriggja bíla árekstur í Ártúnsbrekkunni Þriggja bíla árekstur varð í neðri hluta Ártúnsbrekkunnar fyrir stundu. Samkvæmt ökumanni sem Vísir ræddi við, varð áreksturinn þar sem umferðin gengur Austur að Mosfellsbæ. 30.5.2011 16:34
Tímaspursmál hvenær bannið tekur gildi Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segist sannfærð um að almennt bann við sölu tóbaks, á öllum sölustöðum nema apótekum, verði að veruleika. Það sé aðeins tímaspursmál hvenær það taki gildi. 30.5.2011 16:28
Hugmyndir um reykingabann skerða listrænt frelsi Hugmyndir níu þingmanna um að setja kvaðir á listamenn um reykingarleysi skerðir listrænt frelsi. Þetta segir Kjartan Guðjónsson leikari þegar Vísir spyr hann út í málið. 30.5.2011 15:53
Femínistafélagið: Konur í badminton gerðar að sýningargripum Femínistafélag Íslands skorar á Badmintonsamband Íslands að standa með konum og mótmæla nýjum reglum um klæðaburð kvenna í badminton. 30.5.2011 15:49
Bjöllukonsert þingforseta: Höskuldur með hellu "Ég held að vinnueftirlitið ætti að koma hingað, ég er búinn að vera með hellu í eyrum síðan í morgun,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem lenti í harðri rimmu við Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta þingsins, í morgun. 30.5.2011 15:30
Nefndu dóttur sína eftir kvenhetjunni í Alien „Alien er í miklu uppáhaldi hjá mér og konunni minni. Þess vegna völdum við nafn aðal sögupersónunnar sem er mikil kvenhetja," segir Ragnar Hansson, leikstjóri, sem hefur nefnt dóttur sína Ripley. Ragnar segir að frá því hann kynntist konunni sinni hafi Alien verið þeim mjög kær. Því hafi blasað við að nefna dótturina eftir kjarnakonunni sem þar sýnir dugnað og þor í baráttu sinni við ósvífnar geimverur. Ripley litla er nú orðin þriggja vikna gömul. 30.5.2011 15:15
Njóta veðurblíðunnar í miðbænum Fjöldi fólks er samankominn í miðborginni, enda skín sólin skært í dag. Í Reykjavík er um það bil tíu stiga hiti og heiðskírt. Augljóst er að ferðamenn eru farnir að týnast hingað til lands því heyra má fólk mæla á erlenda tungu á kaffihúsunum í miðborginni, segir Sigurjón Ólason myndatökumaður sem tók meðfylgjandi mynd. Adam verður ekki lengi í Paradís því að á morgun er búist við mun þungbúnara veðri um land allt. 30.5.2011 15:07