Fleiri fréttir 11 þúsund krefjast úrbóta fyrir börn sem verða vitni að heimilisofbeldi Barnaheill - Save the Children á Íslandi afhentu í dag Jóni Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur undirskriftir tæplega 11000 einstaklinga þar sem þeir skora á yfirvöld að tryggja börnum, sem eru vitni að heimilisofbeldi, tilhlýðilegan stuðning. Rannsókn samtakanna sem kynnt var febrúar leiddi í ljós að þessum börnum standa ekki nægileg úrræði til boða af hálfu félagslega kerfisins í Reykjavík. Skortur virðist á samráði milli þeirra stofnana, sem að þessum málaflokk koma, þegar börn eru annars vegar. Misbrestur er á að rætt sé við börn og líðan þeirra metin og tæplega helmingi heimilisofbeldismála, sem tilkynnt eru til barnaverndar, lýkur með bréfi til þolanda ofbeldisins, oftast móður, með almennum upplýsingum um úrræði en án frekari eftirfylgdar. Rannsóknin var kynnt um miðjan febrúar en í kjölfar hennar fóru Barnaheill - Save the Children á Íslandi í vitundarvakningu um málefni barna, sem eru vitni að ofbeldi á heimilum sínum. Auka þarf vitund um að synir og dætur þolenda, oftast kvenna, sem verða fyrir ofbeldi af hálfu maka, eru einnig fórnarlömb ofbeldisins. Liður í þeirri vitundarvakningu var undirskriftasöfnun á netinu. Í mars sl. voru velferðarráðherra afhentar þær undirskriftir sem þá höfðu safnast en nú þegar undirskriftasöfnun er formlega lokið hafa 10980 einstaklingar skrifað undir áskorun til stjórnvalda um bætt úrræði til handa börnum í þessum aðstæðum. Talið er að minnst 2000 börn verði á ári hverju vitni að ofbeldi gegn móður eða ofbeldi á milli foreldra á heimilum sínum, en þær tölur eru ekki áreiðanlegar og að mati Barnaheilla - Save the Children er hér um falið vandamál að ræða. Þegar litið er yfir það verklag sem tíðkast í Reykjavík í málum af þessum toga má segja að flestir líti svo á að með því að tilkynna um mál til barnaverndar sé tryggt að börn sem eru vitni að heimilisofbeldi fái þann stuðning og öryggi sem þau þurfa. En í raun og veru er gap á milli þeirra væntinga sem viðmælendur hafa til barnaverndar og þess hvernig barnavernd tekur og getur tekið á málum. Í félagslega kerfinu virðist ekki vera skimað sérstaklega eftir því hvort börn eru vitni að heimilisofbeldi né lagt markvisst mat á líðan þeirra svo hægt sé að veita þeim viðeigandi aðstoð. Í dag er í boði eitt hópúrræði á vegum Barnaverndarstofu fyrir börn sem verið hafa vitni að heimilisofbeldi. Skilyrði fyrir þátttöku í þeirri meðferð er að ofbeldi sé ekki lengur til staðar á heimili, barnið sé eldra en fimm ára og tali íslensku. 30.5.2011 13:28 Sló mann í höfuðið með bjórglasi og braut þrjár rúður Karlmaður var handtekinn og kærður fyrir að slá annan mann í andlitið með bjórglasi á skemmtistaðnum 800 Bar á Selfossi um helgina. Sá sem var sleginn fékk skurð á ennið. 30.5.2011 12:04 Tvær hraðamyndavélar settar upp á Kjalarnesi Tvær hraðamyndavélar á Hringvegi á Kjalarnesi við Árvelli verða teknar í notkun þann 1. júní. Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar. Vegagerðin, innanríkisráðuneytið, ríkislögreglustjóri og Umferðarstofa vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna. Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða. 30.5.2011 12:04 Jón mælir fyrir minna kvótafrumvarpinu Nú rétt fyrir hádegið náði Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, að mæla fyrir minna kvótafrumvarpinu, eftir að lungi þingfundar í morgun hafði farið í að ræða hvort halda eigi kvöldfund eða ekki. 30.5.2011 12:01 Eldstöðin sofnuð og tiltektin langt komin Eldstöðin í Grímsvötnum hefur ekkert bært á sér í rúma tvo sólarhringa og bendir nú flest til þess að gosinu hafi lokið á laugardagsmorgun. Í Skaftárhreppi er hreinsunarstarf langt komið en þó eru enn nokkrir dagar í að sundlaugin á Kirkjubæjarklaustri verði opnuð. 30.5.2011 11:51 Grunaður morðingi lagður inn á Sogn Maður á þrítugsaldri, sem er í haldi grunaður um að hafa orðið barnsmóður sinni að bana fyrr í þessum mánuði, hefur verið lagður inn á réttargeðdeildina á Sogni samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 30.5.2011 11:30 Dæmdur fyrir dónaleg smáskilaboð til konu sem hann þekkti nær ekkert Fertugur karlmaður á Akureyri var dæmdur í morgun fyrir að særa blygðunarkennd konu sem hann þekkti nær ekkert með því að senda henni 22 smáskilaboð frá október 2010 til mars 2011. 30.5.2011 11:12 Black Pistons hálfgildir meðlimir: Hamingjuóskir frá Evrópu „Við höfum fengið fregnir af því að þeir hafi hlotið þessa stöðu,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um nýja stöðu vélhjólaklúbbsins Black Pistons, sem nú er orðinn Outlaw prospect. 30.5.2011 10:52 Íslenskar stelpur fá að heita Ripley Mannanafnanefnd hefur samþykkt kvenmannsnafnið Ripley og hefur það verið fært á mannanafnaskrá. Nafnið tekur eignarfallsbeyginguna Ripleyjar. Kvenmannsnöfnin Kía, Módís og Maísól voru einnig samþykkt sem gild íslensk nöfn, samkvæmt úrskurði mannanafnafnanefndar frá 18. maí. Karlmannsnöfn sem þá voru samþykkt eru Huxley og Benidikt. Einnig hefur millinafið Linddal verið samþykkt. Hafnað var kvenmannsnafninu Lydia og karlmannsnafninu Sigurðz. 30.5.2011 10:42 Foreldrar ánægðir með leikskóla borgarinnar Mikill meirihluti foreldra leikskólabarna í Reykjavík er ánægður með þá þjónustu sem boðið er upp á í leikskólum borgarinnar. Í nýrri viðhorfskönnun meðal foreldra kemur fram að 97% þeirra telja að börnunum þeirra líði mjög vel og séu ánægð í leikskólanum. Foreldrar eru einnig afar ánægðir með samskipti við starfsfólk leikskólanna og telja 95% þau vera góð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Í könnuninni, sem gerð var á vegum tölfræði- og rannsóknarþjónustu Menntasviðs, kom einnig fram að 92% foreldra telja leikskólanum vel stjórnað og er það umtalsvert meiri ánægja en mældist á árinu 2009 þegar síðast var gerð sambærileg könnun. Viðhorf foreldra til leikskólastarfs í borginni hafa verið könnuð um árabil en slíkar kannanir eru afar mikilvægur mælikvarði á gæði fagstarfsins og þjónustu. Könnunin nú sýnir vaxandi ánægju foreldra með fagstarfið, viðmót starfsfólks, upplýsingamiðlun leikskólans og stjórnun. Heildaránægja með leikskólastarfið er sambærileg og mældist á árinu 2009 en þeim sem eru mjög ánægðir með leikskólann hefur þó fjölgað úr 68% í 72%. 30.5.2011 10:25 Greenpeace í aðgerðum á Grænlandi Meðlimir í Greenpeace samtökunum hafa farið um borð í olíuborpall undan ströndum Grænlands og ætla að reyna að koma í veg fyrir að pallurinn geti borað eftir olíu. Pallurinn sem heitir Leifur Eiríksson er í eigu Cairn Energy og er um 100 mílur undan strönd Grænlands. Cairn er eina fyrirtækið sem ætlar að leita að olíu á svæðinu en talsmenn Greenpeace segjast óttast að finni þeir olíu muni hálfgert gullæði brjótast út sem hefði skelfilegar afleiðingar fyrir umhverfið. Talsmenn heimastjórnarinnar á Grænlandi segja hinsvegar að aðgerðir Greenpeace manna séu ólöglegar og að mótmælendurnir verði fjarlægðir af lögreglu haldi þeir aðgerðum sínum áfram. 30.5.2011 08:55 Atvinnuleysið mælist mest í Efra-Breiðholti 30.5.2011 08:30
Sjá næstu 50 fréttir
11 þúsund krefjast úrbóta fyrir börn sem verða vitni að heimilisofbeldi Barnaheill - Save the Children á Íslandi afhentu í dag Jóni Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur undirskriftir tæplega 11000 einstaklinga þar sem þeir skora á yfirvöld að tryggja börnum, sem eru vitni að heimilisofbeldi, tilhlýðilegan stuðning. Rannsókn samtakanna sem kynnt var febrúar leiddi í ljós að þessum börnum standa ekki nægileg úrræði til boða af hálfu félagslega kerfisins í Reykjavík. Skortur virðist á samráði milli þeirra stofnana, sem að þessum málaflokk koma, þegar börn eru annars vegar. Misbrestur er á að rætt sé við börn og líðan þeirra metin og tæplega helmingi heimilisofbeldismála, sem tilkynnt eru til barnaverndar, lýkur með bréfi til þolanda ofbeldisins, oftast móður, með almennum upplýsingum um úrræði en án frekari eftirfylgdar. Rannsóknin var kynnt um miðjan febrúar en í kjölfar hennar fóru Barnaheill - Save the Children á Íslandi í vitundarvakningu um málefni barna, sem eru vitni að ofbeldi á heimilum sínum. Auka þarf vitund um að synir og dætur þolenda, oftast kvenna, sem verða fyrir ofbeldi af hálfu maka, eru einnig fórnarlömb ofbeldisins. Liður í þeirri vitundarvakningu var undirskriftasöfnun á netinu. Í mars sl. voru velferðarráðherra afhentar þær undirskriftir sem þá höfðu safnast en nú þegar undirskriftasöfnun er formlega lokið hafa 10980 einstaklingar skrifað undir áskorun til stjórnvalda um bætt úrræði til handa börnum í þessum aðstæðum. Talið er að minnst 2000 börn verði á ári hverju vitni að ofbeldi gegn móður eða ofbeldi á milli foreldra á heimilum sínum, en þær tölur eru ekki áreiðanlegar og að mati Barnaheilla - Save the Children er hér um falið vandamál að ræða. Þegar litið er yfir það verklag sem tíðkast í Reykjavík í málum af þessum toga má segja að flestir líti svo á að með því að tilkynna um mál til barnaverndar sé tryggt að börn sem eru vitni að heimilisofbeldi fái þann stuðning og öryggi sem þau þurfa. En í raun og veru er gap á milli þeirra væntinga sem viðmælendur hafa til barnaverndar og þess hvernig barnavernd tekur og getur tekið á málum. Í félagslega kerfinu virðist ekki vera skimað sérstaklega eftir því hvort börn eru vitni að heimilisofbeldi né lagt markvisst mat á líðan þeirra svo hægt sé að veita þeim viðeigandi aðstoð. Í dag er í boði eitt hópúrræði á vegum Barnaverndarstofu fyrir börn sem verið hafa vitni að heimilisofbeldi. Skilyrði fyrir þátttöku í þeirri meðferð er að ofbeldi sé ekki lengur til staðar á heimili, barnið sé eldra en fimm ára og tali íslensku. 30.5.2011 13:28
Sló mann í höfuðið með bjórglasi og braut þrjár rúður Karlmaður var handtekinn og kærður fyrir að slá annan mann í andlitið með bjórglasi á skemmtistaðnum 800 Bar á Selfossi um helgina. Sá sem var sleginn fékk skurð á ennið. 30.5.2011 12:04
Tvær hraðamyndavélar settar upp á Kjalarnesi Tvær hraðamyndavélar á Hringvegi á Kjalarnesi við Árvelli verða teknar í notkun þann 1. júní. Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar. Vegagerðin, innanríkisráðuneytið, ríkislögreglustjóri og Umferðarstofa vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna. Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða. 30.5.2011 12:04
Jón mælir fyrir minna kvótafrumvarpinu Nú rétt fyrir hádegið náði Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, að mæla fyrir minna kvótafrumvarpinu, eftir að lungi þingfundar í morgun hafði farið í að ræða hvort halda eigi kvöldfund eða ekki. 30.5.2011 12:01
Eldstöðin sofnuð og tiltektin langt komin Eldstöðin í Grímsvötnum hefur ekkert bært á sér í rúma tvo sólarhringa og bendir nú flest til þess að gosinu hafi lokið á laugardagsmorgun. Í Skaftárhreppi er hreinsunarstarf langt komið en þó eru enn nokkrir dagar í að sundlaugin á Kirkjubæjarklaustri verði opnuð. 30.5.2011 11:51
Grunaður morðingi lagður inn á Sogn Maður á þrítugsaldri, sem er í haldi grunaður um að hafa orðið barnsmóður sinni að bana fyrr í þessum mánuði, hefur verið lagður inn á réttargeðdeildina á Sogni samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 30.5.2011 11:30
Dæmdur fyrir dónaleg smáskilaboð til konu sem hann þekkti nær ekkert Fertugur karlmaður á Akureyri var dæmdur í morgun fyrir að særa blygðunarkennd konu sem hann þekkti nær ekkert með því að senda henni 22 smáskilaboð frá október 2010 til mars 2011. 30.5.2011 11:12
Black Pistons hálfgildir meðlimir: Hamingjuóskir frá Evrópu „Við höfum fengið fregnir af því að þeir hafi hlotið þessa stöðu,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um nýja stöðu vélhjólaklúbbsins Black Pistons, sem nú er orðinn Outlaw prospect. 30.5.2011 10:52
Íslenskar stelpur fá að heita Ripley Mannanafnanefnd hefur samþykkt kvenmannsnafnið Ripley og hefur það verið fært á mannanafnaskrá. Nafnið tekur eignarfallsbeyginguna Ripleyjar. Kvenmannsnöfnin Kía, Módís og Maísól voru einnig samþykkt sem gild íslensk nöfn, samkvæmt úrskurði mannanafnafnanefndar frá 18. maí. Karlmannsnöfn sem þá voru samþykkt eru Huxley og Benidikt. Einnig hefur millinafið Linddal verið samþykkt. Hafnað var kvenmannsnafninu Lydia og karlmannsnafninu Sigurðz. 30.5.2011 10:42
Foreldrar ánægðir með leikskóla borgarinnar Mikill meirihluti foreldra leikskólabarna í Reykjavík er ánægður með þá þjónustu sem boðið er upp á í leikskólum borgarinnar. Í nýrri viðhorfskönnun meðal foreldra kemur fram að 97% þeirra telja að börnunum þeirra líði mjög vel og séu ánægð í leikskólanum. Foreldrar eru einnig afar ánægðir með samskipti við starfsfólk leikskólanna og telja 95% þau vera góð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Í könnuninni, sem gerð var á vegum tölfræði- og rannsóknarþjónustu Menntasviðs, kom einnig fram að 92% foreldra telja leikskólanum vel stjórnað og er það umtalsvert meiri ánægja en mældist á árinu 2009 þegar síðast var gerð sambærileg könnun. Viðhorf foreldra til leikskólastarfs í borginni hafa verið könnuð um árabil en slíkar kannanir eru afar mikilvægur mælikvarði á gæði fagstarfsins og þjónustu. Könnunin nú sýnir vaxandi ánægju foreldra með fagstarfið, viðmót starfsfólks, upplýsingamiðlun leikskólans og stjórnun. Heildaránægja með leikskólastarfið er sambærileg og mældist á árinu 2009 en þeim sem eru mjög ánægðir með leikskólann hefur þó fjölgað úr 68% í 72%. 30.5.2011 10:25
Greenpeace í aðgerðum á Grænlandi Meðlimir í Greenpeace samtökunum hafa farið um borð í olíuborpall undan ströndum Grænlands og ætla að reyna að koma í veg fyrir að pallurinn geti borað eftir olíu. Pallurinn sem heitir Leifur Eiríksson er í eigu Cairn Energy og er um 100 mílur undan strönd Grænlands. Cairn er eina fyrirtækið sem ætlar að leita að olíu á svæðinu en talsmenn Greenpeace segjast óttast að finni þeir olíu muni hálfgert gullæði brjótast út sem hefði skelfilegar afleiðingar fyrir umhverfið. Talsmenn heimastjórnarinnar á Grænlandi segja hinsvegar að aðgerðir Greenpeace manna séu ólöglegar og að mótmælendurnir verði fjarlægðir af lögreglu haldi þeir aðgerðum sínum áfram. 30.5.2011 08:55
Ríkið semur við SFR Skrifað var undir nýjan kjarasamning rétt fyrir klukkan eitt í nótt á milli ríkisins og SFR. Samningurinn er á svipuðum nótum og sá sem gerður var á almennum markaði fyrr í sumar og gildir hann frá 1. maí og fram í mars 2014, að því er fram kemur á heimasíðu SFR. Samningurinn gerir ráð fyrir 50.000 króna eingreiðslu ef hann verður samþykktur, sem og álagsgreiðslum upp á 25.000 krónur á yfirstandandi ári. Einnig er gert ráð fyrir hækkunum á orlofs- og desemberuppbót. 30.5.2011 08:18
Kvótafrumvörpin á dagskrá þingsins Bæði sjávarútvegsfrumvörp ríkisstjórnarinnar verða á dagskrá Alþingis í dag. fyrst verður minna frumvarpið svonefnda á dagskrá, sem meðal annars nær til hækkunar á veiðileyfagjöldum, en síðan á að taka frumvarpið um heildarendurskoðun fyrir. 30.5.2011 08:11
Maltverjar vilja lögleiða skilnaði Íbúar Möltu sögðu í gær já við því í þjóðaratkvæðagreiðslu að leyfa skilnaði. Kosningin er óbindandi fyrir ríkisstjórnina en um 75 prósent þáttaka var í atkvæðagreiðslunni. Hingað til hefur Malta, sem er kaþólskt ríki, verið eina landið í Evrópusambandinu þar sem hjónaskilnaður er bannaður með lögum. 30.5.2011 08:09
Þjóðverjar ætla að loka öllum kjarnorkuverum sínum Ríkisstjónin í Þýskalandi hefur ákveðið að slökkva á öllum kjarnorkuverum sínum á næsta áratug. Þetta var ákveðið á fundi stjórnarinnar sem hófst í gær og stóð langt fram á nótt. Mikil umræða hefur verið í landinu um kjarnorkumál í kjölfar slyssins í Fukushima kjarnorkuverinu í Japan og mótmæltu þúsundir manna kjarnorkunni víða um land. 30.5.2011 08:04
Strandveiðibátar ná ekki upp í kvóta Ljóst er að strandveiðibátar á svæðinu frá Ströndum að Greinivík við Eyjafjörð munu hvergi nærri ná að veiða maí kvótann því hátt í hundarð tonn eru eftir af kvótanum. Afgangurinn flyst þá yfir á júníkvótann. Fá tonn eru eftir á svæðinu frá Grenivík til Hafnar í Hornafirði og veiðast þau væntanlega í dag. 30.5.2011 08:01
NATO biður Afgana afsökunar á drápum á óbreyttum borgurum Fjölþjóðalið NATO í Afganistan hefur beðist afsökunar á loftárás sem gerð var suðvesturhluta landsins á laugardag en að minnsta kosti fjórtán óbreyttir borgarar létu þar lífið. Æðstu hershöfðingjar bandalagsins segja í yfirlýsingu að ávallt sé reynt að koma í veg fyrir mannfall á meðal óbreyttra og að slík tilvik séu ætíð rannsökuð til hlítar. 30.5.2011 07:59
Mótmæltu handtöku Mladics Ratko Mladic, fyrrverandi yfirherforingi í her Bosníu-Serba, ætlar að áfrýja framsalskröfu á hendur sér en hann hefur verið eftirlýstur af Stríðsglæpadómstólnum í Haag síðustu ár. Mladic, sem var handtekinn á dögunum í Serbíu, er sakaður um þjóðarmorð í Bosníustríðinu árið 1995, hann er meðal annars sagður hafa fyrirskipað morð á tæplega átta þúsund múslimskum mönnum og drengjum í bænum Srebrenica. Þúsundir serbneskra þjóðernissinna mótmæltu handtöku Mladics í Belgrad í gær og voru um 100 handteknir eftir átök við lögreglu. 30.5.2011 07:58
Mælt fyrir smærra kvótafrumvarpinu Bæði kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar hafa verið sett á dagskrá Alþingis. Það sama gildir um kvótafrumvarp Hreyfingarinnar. Þetta varð niðurstaðan af fundi forseta Alþingis með formönnum þingflokka síðdegis í gær. 30.5.2011 07:30
Kveikti í nýlegum Audi Gerð var tilraun til að kveikja í nýlegum Audi fólksbíl, sem stóð við Tangarhöfða í Reykjavík í nótt. Vitni tilkynnti um reyk úr bílnum, en þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang var hann að mestu út dauður, en greinileg ummerki voru um að bensíni hafði verið hellt inn um aðra aftur hurðina og eldur borinn að. 30.5.2011 07:14
Laða ferðamenn að fuglaskoðun Náttúrustofa Vesturlands og Háskólasetur Snæfellsness, með styrk frá Nýsköpunarsjóði, munu standa fyrir öflun upplýsinga um fuglalíf á Snæfellsnesi og í Dölum. Verkefnið er til að styðja við ferðaþjónustuna og laða að áhugafólk um fuglaskoðun. 30.5.2011 07:00
Æðarvarp varð illa úti í hreti Æðarvarp á Norðurlandi virðist hafa orðið mjög illa úti í vorhretinu sem þar gekk yfir á dögunum. Siglo.is segir frá því að allt að 60 prósent af hreiðrum í Siglufirði hafi verið yfirgefin. 30.5.2011 06:30
Meiri peningar í sautjánda júní Framlag borgarsjóðs til hátíðarhalda á sautjánda júní hækkar úr tíu milljónum í þrettán milljónir króna samkvæmt ákvörðun borgarráðs. Framlagið lækkaði úr 25 milljónum króna í tíu milljónir eftir hrunið. 30.5.2011 06:00
Óæskileg hegðun nemenda er helmingi minni en áður Jákvæð samskipti kennara og nemenda í þremur skólum í Reykjanesbæ; Njarðvíkurskóla, Myllubakkaskóla og Holtaskóla, hafa aukist til muna. Óæskileg hegðun nemenda hefur snarminnkað. Þetta eru niðurstöður nýrrar umfangsmikillar rannsóknar á innleiðingu PBS (Positive Behavior Support) í skólana þrjá og árangur sem af því hlaust. 30.5.2011 06:00
Vatnsberinn verður fluttur í Bankastræti Höggmynd Ásmundar Sveinssonar, Vatnsberinn, verður flutt úr Öskjuhlíð á sunnanvert horn Bankastrætis og Lækjargötu. Borgarráð ákvað þetta á fimmtudag. Upphafleg tillaga gerði ráð fyrir að styttan yrði á miðju Austurstræti við gatnamótin að Lækjargötu. 30.5.2011 05:30
Skorað á ESB að endurskoða sölubann afurða Vestnorræna ráðið skorar á Evrópusambandið að endurskoða bann sitt við innflutningi selafurða til sambandsins. Bannið hefur nú þegar haft alvarlegar efnahagslegar afleiðingar fyrir fjölskyldur veiðimanna og smærri byggðir veiðimanna á Grænlandi. 30.5.2011 05:30
Kefluðu mann og rændu hann Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í átján mánaða fangelsi, meðal annars fyrir rán og frelsissviptingu. Þá var hann dæmdur til að greiða fórnarlambinu 450 þúsund krónur í miskabætur. 30.5.2011 05:00
Íbúðir skili arði og efli samfélag Bæjarráð Fljótsdalshéraðs vill að Íbúðalánasjóður ræði við aðila á Austurlandi um stofnun eignarhaldsfélags utan um íbúðir sem sjóðurinn á þar í fjórðungnum og seljast ekki. 30.5.2011 05:00
Hjóluðu 831.000 kílómetra í átaki Mun fleiri tóku þátt í átakinu Hjólað í vinnuna nú en í fyrra. Rúmlega ellefu þúsund manns tóku þátt frá 694 vinnustöðum í 1.628 liðum sem skráð voru til leiks. 30.5.2011 05:00
NATÓ rannsakar hvers vegna loftárásin varð tólf börnum að bana NATÓ rannsakar nú hvers vegna lofttárás varð tólf börnum og tveimur konum að bana í gærkvöldi. Loftárásin var gerð í suðvestur Afganistan í Helmands-héraði en ástæða hennar er sú að talíbanar réðust á bandaríska herstöð á svæðinu á dögunum. Loftskeytið lenti ekki á aðstöðu uppreisnarmannanna heldur tveimur heimilum almennra borgara. 29.5.2011 20:30
Flest efnahagsbrotamál í ákærumeðferð á árinu 2013 Búast má við að stærstur hluti mála sem eru á borði Sérstaks saksóknara verði í ákærumeðferð á árinu 2013, segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Ákærur verði þó gefnar út jafnóðum og rannsókn mála ljúki. 29.5.2011 18:49
Verjandi Mladic segir hann ekki færan um að koma fyrir dóm Verjandi Radko Mladic segir ómögulegt að halda uppi vitænum samræðum við stríðsherrann fyrrverandi, sem hafi í þrígang fengið heilablóðfall og þrugli nú tóma vitleysu. Hann sé ekki fær um að koma fyrir dóm. 29.5.2011 18:42
Ekki forsendur fyrir nýjum flokki með Evrópusinnuðum sjálfstæðismönnum Þorsteinn Pálsson segir ekki forsendur fyrir að breikka grunn Samfylkingarinnar í nýjum flokki með Evrópusinnuðum sjálfstæðis- og framsóknarmönnum, eins og Jóhanna Sigurðardóttir bauð upp á í ræðu sinni á flokksstjórnarfundinum í dag. Jóhanna hafi fært Samfylkinguna of langt til vinstri til að svo megi verða. 29.5.2011 18:39
Boðar fjárfestingu upp á hundruð milljarða í orkufrekum iðnaði Forsætisráðherra boðar fjárfestingar í orkufrekum iðnaði og tengdum virkjanaframkvæmdum upp á þrjú til fjögur hundruð milljarða á næstu þremur til fimm árum. Þá vill hún þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingar á kvótakerfinu strax næsta haust. 29.5.2011 18:30
Fékk að leiða Pedro Rodríguez inn á Wembley „Skemmtilegast af öllu var að fá að ganga út á grasið," segir Steinar Óli Sigfússon sjö ára gamall piltur sem fékk að leiða Pedro Rodríguez leikmann Barcelona út á völlinn í úrslitaviðureign Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær. 29.5.2011 18:25
Ákveða hvaða mál verða afgreidd fyrir sumarleyfi Formenn þingflokka funda þessa stundina þar sem reynt verður að ná samkomulagi um hvaða mál verða afgreidd áður en Alþingi fer í sumarleyfi í næstu viku. 29.5.2011 17:04
Strangar reglur fyrir lögreglumenn í Víetnam Víetnamskir lögreglumenn mega ekki vera með svört sólgleraugu, spjalla saman, reykja eða hafa hendur í vösum á meðan þeir sinna skyldustörfum á opinberum stöðum. 29.5.2011 15:45
Mladic segist ekki hafa fyrirskipað fjöldamorðin Fyrrverandi hershöfðinginn Ratkó Mladic segist ekki hafa fyrirskipað fjöldamorð á mörg þúsundum múslima í Srebrenica árið 1995. Þetta hafa fjölmiðlar eftir Darko syni hans sem spjallaði við fjölmiðla eftir að hann heimsótti föður sinn í Serbíu í dag. 29.5.2011 15:27
Giftu sig loksins eftir að hafa verið trúlofuð í 28 ár Loksins, hefur eflaust einhver sagt þegar að breska parið Ivan Brown og Barbara Furlonger giftu sig í síðustu viku. Þau voru búin að vera trúlofuð í 28 ára, hvorki meira né minna. 29.5.2011 13:30
Nóg að þjóðin hafi þurft að greiða fyrir síðasta gleðskap þessa fólks "Þó enn sé víða við erfiðleika að glíma og enn sé óvissa varðandi ýmis mál hefur ekki verið bjartara yfir íslensku efnahagslífi um langa hríð,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar á flokkstjórnarfundi flokksins í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ í dag. 29.5.2011 13:17
Samfylkingin ræðir umbótatillögur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar ávarpaði flokksstjórnarfund flokksins klukkan ellefu í morgun og fór þar yfir stöðu flokksins og helstu viðfangsefni ríkisstjórnarinnar. 29.5.2011 11:48
Verðmætar myndir Bandarískur áhugaljósmyndari datt heldur betur í lukkupottinn á dögunum þegar hann var að gramsa í dóti á bílskúrssölu og fann þar gamlar ljósmyndafilmur. Hann greiddi einungis tvöhundruð og þrjátíu íslenskar krónur fyrir fundinn en varð ljóst við framköllun að hann var mun verðmætari. Myndirnar voru nefnilega af leikkonunni Marilyn Monroe og teknar áður en hún komst til frægðar. Fréttastofa CNN hefur fengið leyfi til að birta þær næstkomandi þriðjudag, einum degi fyrir afmælisdag leikkonunnar, en Monroe hefði orðið áttatíu og fimm ára þann fyrsta júní. 29.5.2011 11:15
Brúnka getur verið lífshættuleg Katrín Vilhelmsdóttir greindist fyrst með sortuæxli á bakinu fyrir sex og hálfu ári. Fyrir rúmu ári uppgötvaðist fyrir tilviljun að hún var með sortuæxli innvortis sem hefur breiðst út. 29.5.2011 11:00
Þjóðin leyfir hjónum að skilja Samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu á Möltu í gær að setja lög sem leyfa hjónaskilnaði. Malta er nú ekki lengur eina Evrópuríkið þar sem ólöglegt er fyrir hjón að skilja. Það er nú í höndum þingsins að samþykkja lögin sem 72 prósent þjóðarinnar samþykktu í gær. 29.5.2011 10:55