Fleiri fréttir

Icesave situr í evrópskum þingmönnum

Þingmenn Evrópuþingsins telja neitun Íslendinga á Icesave samningum geta haft slæm áhrif á umsókn okkar í sambandið. Viðræður um sjávarauðlindir okkar eru enn ekki hafnar. Þetta segir Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, en hún sat fund sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins í gær.

Hraðakstur í Hafnarfirði - áfram hátt brotahlutfall

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í suðurátt, gegnt Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 103 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51. Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 52-54% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 42-45 km/klst.

Guðlaugur Þór hótar að kæra Björn Val fyrir meiðyrði

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sent Birni Vali Gíslasyni, þingmanni Vinstri grænna, bréf þar sem honum er hótað málsókn á grundvelli meiðyrðalaga, dragi hann ekki orð sín til baka um að styrkir sem Guðlaugur hlaut, væru mútur.

Vara við aukabúnaði á vélorfum

Vinnueftirlitið varar við hættulegum aukabúnaði á vélorfum sem framleiddur er af öðrum en framleiðendum orfanna. Er þar meðal annars átt við snúningshausa með ýmsum gerðum af keðjum, keðjur með skurðarblöðum á endum eða skurðarblöðum sem fest eru við snúningshausinn með boltum eða hnoðum. „Þessi aukabúnaður eykur hættu á slysum umfram notkun nælonþráðar eða einblaða skurðarbúnaðar. Bæði er aukin hætta á að hlutar af, eða brot úr, skurðarbúnaðinum þeytist til, sem og smásteinar. Við hönnun á vélorfum er ekki gert ráð fyrir notkun slíks aukabúnaðar og sem dæmi er því hlífabúnaður orfanna ekki nægilega öflugur til að fyrirbyggja hættu af notkun slíks aukabúnaðar. Vélorfin með slíkum aukabúnaði eru því hættuleg og hefur notkun þeirra þegar valdið slysum, m.a. dauðaslysi,“ segir á vef Vinnueftirlitsins.

Sittu heima ódámurinn þinn

Boð til sendiherra Sýrlands um að vera viðstaddur brúðkaup þeirra Vilhjálms prins og Kate Middleton hefur verið dregið til baka. Boðið hefur sætt gagnrýni vegna þeirrar hörku sem stjórnvöld í Sýrlandi beita andófsmenn.

Ódýr matur er dýrkeypt blekking

Mikils tvískinnungs gætir í umræðum um velferð búfjár og matvælaverðs. "Þannig gerir jafnvel sama fólkið kröfu um að búin stækki og matarverð lækki, en hins vegar að dýrin fái að njóta eðlislægs atferlis við sem náttúrulegastar aðstæður líkt og í lífrænum búskap," segir Ólafur R. Dýrmundsson, landsráðunautur Bændasamtaka Íslands í lífrænum búskap og landnýtingu. Ólafur hélt erindi á málþingi um aðbúnað dýra í íslenskum landbúnaði sem haldinn var í Norræna húsinu á þriðjudag. "Ódýr matur er ein af dýrkeyptustu blekkingum 20. aldar," segir Ólafur. "Við verðum að gera okkur raunverulegum kostnaði við framleiðsluna og taka meira tillit til gæða og hollustu matvara." Í raun sé þannig hægt að segja að afurðir af lífrænt öldum dýrum sé á "réttu" verði á meðan ódýri maturinn sé einfaldlega ódýr þar sem kostnaðurinn hefur verið færður yfir á illa meðferð búfjár, slæma meðferð lands, mengun frá stórbúum og aukna notkun lyfja í búfjárhaldi. Við berum öll ábyrgð Það er einföld staðreynd að afurðir af dýrum sem alin eru lífrænt eru dýrari en afurðir af dýrum sem alin í svonefndum verksmiðjubúskap. Ólafur, sem einnig er formaður Dýraverndarsambands Íslands, segir að meðferð búfjár hafi versnað með árunum í því skyni að auka hagræði og lækka vöruverð. "Umfram allt verðum við að átta okkur á að ekki er við bændur eina að sakast. Mergur málsins er að við öll; þjóðfélagið, neytendur, stjórnmálamenn og fleiri, berum töluverða óbeina ábyrgð á því hvernig komið er fyrir velferð búfjár í ýmsum greinum landbúnaðar," segir Ólafur. Eitt af því sem Ólafur telur mikilvægast til að bæta velferð dýra í íslenskum landbúnaði er að auka meðvitund neytenda þannig að þeir taki sínar ákvarðanir með veskinu. "Við þurfum að upplýsa neytendur betur um framleiðsluhætti í landbúnaði og endurvekja tengsl milli sveita og þéttbýlis," segir hann.

Ennþá er óhætt að klippa trjáplöntur

Þrátt fyrir að komið sé fram í lok apríl og farið sé að örla á síðbúnu sumri er enn ekki of seint að klippa garðplöntur líkt og tré og runna.

Gyrðir á toppi metsölulistans - kiljur vinsælastar

Smásagnasafn Gyrðis Elíassonar, Milli trjánna, er komið í fyrsta sæti yfir mest seldu bækurnar á Íslandi, samkvæmt nýjum lista frá rannsóknarsetri verslunarinnar. Vinsældir Gyrðis koma ekki á óvart þar sem hann fékk fyrr í þessum mánuði bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir einmitt þessa bók. Næstar á metsölulistanum eru þýddar skáldsögur, Konan í búrinu eftir Jussi Adler-Olsen í öðru sæti, þá Morð og möndlulykt eftir Camillu Läckberg og Djöflastjarnan eftir Jo Nesbø í fjórða sætinu. Spennusaga Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig, er í því fimmta. Metsölulistinn tekur til tímabilsins frá 10. apríl til 23. apríl. Þegar farið er yfir uppsafnaða sölu frá áramótum trónir Yrsa hins vegar á toppnum. Vakin er athygli á að 10 mest seldu bækurnar eru allar kiljur. Þær sem þarna koma næst á eftir eru: Myrkraslóð eftir Åsa Larsson, Mundu mig, ég man þig eftir Dorothy Koomson, Betri næring - betra líf eftir Kolbrúnu Björnsdóttur, Furðustrandir eftir Arnald Indriðason eru í níunda sæti og loks Sumardauðinn eftir Mons Kallentoft í því tíunda. Þegar litið er sölutölur frá áramótum

Hótel mamma vaxandi vandamál í Evrópu

Margir foreldrar eiga erfitt með að sjá á eftir börnum sínum út í lífið þegar þau flytja af heiman. Það er þó ekki raunin alls staðar því víða í Evrópu er það vandamál hvað afkvæmin eru þaulsetin í heimahögunum.

Brúðkaupsæði í Japan eftir jarðskjálftann

Sérkennilegar afleiðingar í Japan eftir jarðskjálftann í mars síðastliðnum, er brúðskaupsæði sem virðist hafa gripið þjóðina samkvæmt CNN sjónvarpsstöðinni.

Deilt um yfirlýsingu vegna ofbeldis í Sýrlandi

Óeining er innan öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um viðbrögð vegna árása öryggissveita í Sýrlandi á mótmælendur. Hundruð manna hafa fallið í árásum öryggissveitanna undanfarnar vikur. Rússar eru sagðir standa í vegi fyrir aðgerðum að hálfu Sameinuðu þjóðanna.

Fatah og Hamas semja um bráðabirgðastjórn

Skriður er kominn á samningaumleitanir milli Fatah hreyfingar Abbasar forseta Palestínu á Vesturbakkanum og Hamas hreyfingarinnar á Gaza, að sögn Sveins Rúnars Haukassonar formanns samtakanna Ísland-Palestína.

David Petraeus verður yfirmaður CIA

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að hershöfðinginn David Petraeus yrði næsti yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, CIA.

Skipa þarf nýja kjörstjórn innan þjóðkirkjunnar

Skipa þarf nýja kjörstjórn innan þjóðkirkjunnar til að sjá um kjör vígslubiskups eftir að síðasta kjörstjórn sagði af sér í gær, vegna mistaka sem urðu við kosningu til vígslubiskups.

Lyfjakostnaður gæti lækkað um 70 prósent

Ríkisstjórnin samþykkti í gær frumvarp frá velferðarráðherra sem ætlað er að lækka lyfjakostnað þeirr sem hvað mest þurfa á lyfjum að halda. Nái frumvarpið fram að ganga gæti lyfjakostnaður öryrkja lækkað um rúm sjötíu prósent.

Vilja færa gjaldtöku af bensíni í vegtolla

Samtök atvinnulífsins hafa kynnt ríkisstjórninni hugmynd um breytta gjaldtöku í samgöngumálum. Hugmyndin snýst um að færa gjöld af eldsneyti yfir í vegtolla, og gæti komið stórum vegaframkvæmdum af stað, er mat samtakanna. Hugmyndinni er fálega tekið af Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra sem segir að um aukna skattpíningu sé að ræða með breyttum formerkjum.

Íslenskur ríkisborgari eftirlýstur af Interpol

Margdæmdur ofbeldismaður, Chigozie Óskar Anoruo, sem er íslenskur ríkisborgari, er nú eftirlýstur af Interpol. Íslensk lögregluyfirvöld sendu beiðni til alþjóðalögreglunnar 20. apríl síðastliðinn um að lýst yrði eftir honum.

Treysta á eftirlitsmyndavélar

Lögreglan á Fjóni er enn engu nær um þann sem myrti hjónin Bjarne Johansen og Heidi Nielsen í skógi við Óðinsvé fyrir um tveimur vikum, en vonast til þess að upptökur úr eftirlitsmyndavélum komi þeim á sporið.

Ný rannsókn sýnir fjölgun örlaxa í ám

Rannsóknir Veiðimálastofnunar sýna að svokölluðum örlöxum, löxum af stærðinni 43 til 50 sentimetrar, hefur fjölgað í ám á Austur- og Norðausturlandi á undanförnum árum. Kenningar um smæð þessara laxa standast hins vegar ekki.

Tekur við af Dalaí Lama

Lobsang Sangay, þjóðréttarfræðingur menntaður í Harvard, verður forsætisráðherra útlagastjórnar Tíbeta á Indlandi. Hann tekur því við af Dalaí Lama sem pólitískur leiðtogi Tíbeta.

Obama stokkar upp í yfirstjórn hermála

Talið er að miklar mannabreytingar verði í yfirstjórn Bandaríkjahers og leyniþjónustunnar CIA í sumar í tengslum við varnarmálaráðherraskipti, sem fyrirhuguð eru þegar Robert Gates hættir.

Vígslubiskupskjör: Kjörstjórnin segir af sér

Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur sagt af sér í framhaldi af því að ákveðið hefur verið að kjósa þurfi að nýju til vígslubiskups í Skálholti. Ástæða þess að kjósa þarf að nýju er að tvö atkvæði sem póstlögð voru 11. apríl voru tekin með en samkvæmt bréfi kjörstjórnar átti að póstleggja atkvæðin í síðasta lagi 8. apríl.

Stefán Einar: Hafa engan rétt til þess að halda launafólki í gíslingu

Stefán Einar Stefánsson tók formlega við embætti formanns VR á aðalfundi félagsins sem fram fer nú í kvöld. Í ræðu sinni gerði hann kjarasamningaviðræður síðustu vikna að umtalsefni og gagnrýndi Samtök atvinnulífsins harðlega og það hvernig þau hafa blandað fiskveiðistjórnunarmálum inn í samningaviðræðurnar. „Þar hafa forsvarsmenn samtakanna gengið alltof langt og alltof lengi í því að beita fyrir sig kjarasamningum á vinnumarkaði, í þeirri viðleitni sinni að hafa sitt fram. Þeir sem þar ráða för hafa engan siðferðislegan eða lagalegan rétt til þess að halda launafólki í landinu í gíslingu vegna þessa máls,“ sagði Stefán Einar.

Víst snýr Quarashi aftur

Sölvi Blöndal, forsprakki hinnar fornfrægu rappsveitar Quarashi, staðfesti í Kastljósi í kvöld að sveitin hyggi á endurkomu í sumar og að hún muni spila þann 9. júlí. Sveitin mun koma fram á Bestu útihátíðnni á Suðurlandi en endanleg staðsetning liggur ekki fyrir. Vísir greindi raunar frá þessum fyrirætlunum í lok mars en sú frétt var snarlega borin til baka af Sölva í Fréttablaðinu sem sagði hana algjörlega úr lausu lofti gripna. "Maður fer nú ekki að vekja upp þennan dauða hest. Eins vænt og mér þykir um Quarashi þá er þetta ekki að fara að gerast."

Vilja samstarfshóp um framtíðarstaðsetningu Gæslunnar

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum vill halda áfram hagkvæmnisgreiningu á flutningi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja. Þá vill stjórnin mynda samstarfshóp um málið þar sem sveitarfélögin á svæðinu og stjórnvöld eigi sæti.

Segir hækkunina nema 27 prósentum

Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að hækkun gjaldskrár á bílastæðum við Leifsstöð nemi 27 prósentum en ekki 50 prósentum eins og Félag íslenskra bifreiðaeigenda heldur fram. Hækkunin miðast við að lagfæra í samræmi við vísitölubreytingar frá síðustu hækkun sem var að sögn Hjördísar árið 2006.

Björn að leggja lokahönd á bók um Baugsmálið

Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra er að leggja lokahönd á bók sem hann hefur skrifað um Baugsmálið. Í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag sagði Björn að bókin lýsti umræðunum sem voru í blöðunum og á stjórnmálavettvangi á þessum tíma, sem voru að hans sögn tímar mikilla umbrota og átaka í íslensku samfélagi.

Stefndu á Grundartanga en vísað til Húsavíkur

Finnsku fyrirtæki, sem skoðað hefur möguleika á að reisa efnaverksmiðju á Grundartanga, hefur verið beint til Húsavíkur. Landsvirkjun kveðst nú vísa öllum áhugasömum orkukaupendum norður.

Verkfall hefði gríðarlegar afleiðingar

Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir atvinnurekendum stríð á hendur. Verkfallsboðun um miðjan maí er nú raunverulegur möguleiki haldist afstaða SA óbreytt að mati ASÍ.

150 þúsund króna sekt fyrir að keyra á 157 í Ártúnsbrekku

Sautján ára piltur var staðinn að hraðakstri í Ártúnsbrekku í gærkvöld en bíll hans mældist þar á 157 km hraða. Kauði á nú yfir höfði sér sekt upp á 150 þúsund krónur auk þess sem hann missir bílprófið í þrjá mánuði. Þá fær hann þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá sína. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að ekki virðist vera vanþörf á því að strákurinn hvíli skírteinið, því þrátt fyrir ungan aldur hefur hann áður verið tekinn fyrir hraðakstur.

Tekur við formennsku á umbrotatímum

"Þetta er spennandi verkefni. Það verður ekki sagt að ég sé að taka við á rólegustu tímum í sögu félagsins. Við höfum vísað kjaradeilu okkar til ríkissáttasemjara,“ segir Stefán Einar Stefánsson, sem tekur við embætti formanns VR á aðalfundi félagsins í kvöld. Hann var kjörinn í embættið í netkosningu sem lauk í lok mars.

Reykjavíkurborg metanvæðir bílaflotann

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að auglýsa eftir tilboðum í 49 fólksbifreiðar sem hafa tvíeldsneytisvél. Það er vél sem gengur fyrir metani og bensíni. Leitað er eftir kaupum á minni fólksbifreiðum, en þær verða einkum notaðar vegna heimahjúkrunar. Gert er ráð fyrir að bifreiðarnar fáist afhentar í sumar og tekur það mið af samningstíma núgildandi rekstrarsamninga.

Minna af áfengi selt í páskavikunni

Sala á áfengi var 8,8 prósentum minni í páskavikunni í ár en á síðasta ári. Nú seldust 462 þúsund lítrar af áfengi en í fyrra seldust 507 lítrar. Viðskiptavinum í Vínbúðunum fækkaði einnig milli ára í páskavikunni. Nú voru þeir ríflega 85 þúsund en um 90.500 í fyrra, sem er um 6 prósenta fækkun. Þetta kemur fram á vef Vínbúðanna. Páskarnir 2010 voru í kringum mánaðarmótin mars-apríl, en voru þriðju vikuna í apríl ár.

Trúarleiðtogi jarðsettur í glerkistu - jarðarförin í beinni

Indverski trúarleiðtoginn Sathya Sai Baba var jarðaður í dag, eftir að lík hans hafði verið til sýnis við trúarhof hans í þrjá daga. Sai Baba var 84 ára gamall en hann lést á sunnudag eftir langvinn veikindi. Samkvæmt siðum hindúa eru þeir yfirleitt brenndir eftir andlátið. Heilagir menn, hins vegar, eru jarðsettir. Fréttastofan Sky News greinir frá því að þúsundir hafi vottað Sai Baba virðingu sína við jarðarförina, þar á meðal trúarleiðtogar annarra trúarbragða, svo sem kristni og íslam, sem héldu þar tölu. Athöfnin hófst hins vegar á því að 21 hermaður skaut af byssu, Sai Baba til heiðurs. Henni var sjónvarpað í beinni útsendingu Sai Baba var jarðsettur í fæðingarbæ sínum, Puttaparthi sem er um 200 kílómetra norður af Bangalore. Hann var einhleypur og barnlaus þegar hann lést.

Birtu fæðingarvottorð Obama

Hvíta húsið gaf í dag út afrit af fæðingarvottorði Baracks Obama. Með þessu vilja forsvarsmenn Hvíta hússins reyna að stöðva kjaftasögur þess efnis að Obama sé ekki fæddur í Bandaríkjunum.

Rafmagn fór af í Reykjavík

Rafmagnslaust varð nú sunnan Hringbrautar í Reykjavík í kringum flugvallarsvæðið. Ástæðan er háspennubilun. Unnið er að viðgerð og samkvæmt upplýsingum Vísis er rafmagn að komast á aftur í þessum töluðu orðum.

Neyðarlögin staðfest - Annar úrskurður héraðsdóms

Icesave-innistæðurnar eru forgangskröfur samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll rétt í þessu. Um er að ræða mál sem almennir kröfuhafar höfðuðu gegn slitastjórn Landsbankans. Þetta er annar úrskurðurinn sem bendir til þess að neyðarlögin sem sett voru í október 2008 haldi, en á dögunum féll úrskurður þess efnis að heildsölulán

Rafiðnaðarsambandið vill deiluna til ríkissáttasemjara

Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands hefur lagt til að kjaradeilu sambandsins verði vísað til ríkissáttasemjara. Í ályktun sem miðstjórn samþykkti leggur hún til við þing sambandsins, sem kemur smaan á morgun, að kjaradeilu vegna almenna kjarasamnings sambandsins og kjarasamninga sem eru tengdir þeim samning verði vísað nú þegar til ríkissáttasemjara. Miðstjórn telur að þau stéttarfélög sem hafa staðið að gerða þessa samnings stefni sem fyrst á allsherjarverkfall. Þegar hafa Starfsgreinasambandið, Flóabandalagið, Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Landsamband verslunarmanna hafa öll ásamt félögum flugvirkja og flugumferðarstjóra vísað deilum sínum til Ríkissáttasemjara. Í ályktun miðstjórnar Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi gripið reglulega inn í kjaraviðræðurnar vegna sérdeilu sem Landssamband íslenskra útvegsmann á við stjórnvöld. "Rafiðnaðarsambandið er ásamt flestum öðrum stéttarfélögum ekki samningsaðili gagnvart LÍÚ. Með þessu hátterni hefur LÍÚ komið í veg fyrir að launafólk fái réttmætar launahækkanir og að atvinnulífið nái tilbaka eðlilegum styrk. Þetta lýsir óbilgirni sérhagsmunahóps sem beitir purkunarlaust fyrir sig almennu launafóli sem býr við skertan kaupmátt, á meðan útgerðarmenn hagnast á slakri stöðu krónunnar. Þeirra hagsmunir eru augljóslega fólgnir í að viðhalda þessari stöðu sem lengst og jafnframt því að verja stöðu sína í veiðiréttindamálum. En um það ríkja ákaflega misjafnar skoðanir meðal fólks og óbilgjarnt að tengja það saman við kjarabaráttu launamanna,“ segir í ályktun miðstjórnar.

Hafna skýringum vísindamanna

Ryanair flugfélagið hafnar algerlega fullyrðingum sem fram koma í skýrslu danskra og íslenskra vísindamanna um að eðlilegt hafi verið að setja flugbann þega Eyjafjallajökull gaus í fyrra. Þetta kemur fram á vefnum Air & Business Travel News.

Sjá næstu 50 fréttir