Fleiri fréttir

Segir hermenn Gadafís ræna konum og nauðga þeim

Iman al-Obeidi gekk inn á hótel þar sem erlendir fréttamenn voru að borða morgunmat fullyrti að líbískir hermenn hefðu nauðgað sér eftir að þeir handtóku hana við eftirlitshlið í Trípólí. Hún segist hafa dvalið í fangelsi í tvo daga og fimmtán menn hafi nauðgað sér á meðan.

Óbreyttir borgarar féllu í skotárás Nató

Sjö óbreyttir borgarar féllu þegar að flugsveitir Nató skutu á tvo bíla á Helmandsvæðinu í Afganistan í gær. Talsmaður Nató segir að fregnir hafi borist af því að leiðtogi talíbana og fylgdarsveinar hans væru í öðrum bílnum.

67 kaupsamningum þinglýst í vikunni

Sextíu og sjö kaupsamningum vegna fasteignakaupa var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Heildarveltan nam rúmum sautján hundruð milljónum króna.

Myndi ekki slá hendinni á móti djammi með Charlie Sheen

"Þetta væri fínt tækifæri til að flýja veruleikann á Íslandi og upplifa eitthvað nýtt,“ segir fyrrum útvarps- og blaðamaðurinn Atli Már Gylfason sem er kominn í lotu númer þrjú um að verða næsti aðstoðarmaður leikarans Charlie Sheen.

Sjórinn við Fukushima geislavirkur

Geislavirkni hefur mælst í sjónum nálægt Fukushima kjarnorkuverinu í Japan, en mælingin sýnir töluvert magn af geislavirkni í sjónum. Geislavirknin var mæld þrjú hundruð metrum frá landi en japanir óttast að geislavirknin breiðist nú í öll vötn á svæðinu.

Þúsundir í mótmælagöngu í Lundúnum

Búist er við allt að 250 þúsund manns taki þátt í mótmælagöngu í miðborg Lundúna í dag gegn niðurskurðaráformum bresku ríkisstjórnarinnar.

Höfðu betur gegn hersveitum Gaddafís

Líbískir uppreisnarmenn hafa nú náð olíuborginni Ajdabiya á sitt vald og höfðu þar betur gegn hersveitum Gaddafís einræðisherra í nótt. Gaddafí virðist þó ekki vera á þeim buxunum að gefast upp.

Skálmöld slær í gegn

Víkingarokkssveitin Skálmöld situr nú í toppsæti Tónlistans aðra vikuna í röð með plötu sína Baldur. Þetta telst að mörgu leyti óvenjulegt, yfirleitt eiga harðar rokksveitir á borð við Skálmöld ekki upp á pallborðið hjá almenningi en blómstra frekar í einangruðum kreðsum tónlistarinnar.

Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK

Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK, Vatnaskóg, Vindáshlíð, Ölver, Kaldársel og Hólavatn hefst á vorhátíð félagsins á Holtavegi 28 í dag kl. 12:00. Í sumar verður 51 dvalarflokkur í boði fyrir ólíka aldurshópa.

Rétt slapp

Ökumaðurinn sem lögreglan á Selfossi stöðvaði í gærkvöldi slapp heldur betur með skrekkinn, ef svo má að orði komast.

Pústrar á 800 bar á Selfossi

Einn ökumaður var tekinn grunaður um fíkniefnaakstur í umdæmi lögreglunnar á Akureyri í gærkvöldi. Þá voru þrír ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur á höfuðborgarsvæðinu og tvær minniháttar líkamsárásir komu upp í miðbænum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var heldur fámennt í bænum.

Með 36 þúsund e-töflur og 4000 skammta af LSD

Karl og kona á þrítugsaldri voru tekin með um 36 þúsund skammta af e-töflum á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt miðvikudags. Parið var að koma frá Las Palmas þegar tollverðir stöðvuðu þau. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, þar segir einnig að samkvæmt heimildum blaðsins hafi þau einnig verið tekin með yfir 4000 skammta af ofskynjunarlyfinu LSD.

Þjóðaröryggisstefna mótuð

Tillaga utanríkisráðherra um þingsályktun um mótun öryggisstefnu Íslands í þjóðaröryggismálum var rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. Tillagan verður lögð fram á þingflokksfundum í næstu viku, en efnislega vill utanríkisráðuneytið ekki gefa upplýsingar um tillöguna fyrr en hún hefur verið kynnt þingflokkunum.

Viðamesta þýðing íslenskrar ritsögu

Stefnt er að því að allar Íslendingasögurnar komi út í nýjum þýðingum á norsku, dönsku og sænsku árið 2012. Útgáfan var kynnt á kynningarfundi á Hótel Loftleiðum í gær. Um er að ræða umfangsmesta þýðingarverkefni í sögu íslenskra bókmennta, jafnvel í heiminum að mati Jóhanns Sigurðssonar, útgefanda hjá Sögu forlagi, sem stendur að verkefninu.

Finnar tefja afgreiðslu Evrópusambands

Ein stærsta snurðan sem hljóp á þráð leiðtogafundar Evrópusambandsins stafar af tregðu finnsku stjórnarinnar til að fallast á aukna fjárhagslega ábyrgð Finnlands á hugsanlegum aðgerðum til bjargar evruríkjum í vanda.

Sex þúsund lán enn í óvissu

Íslandsbanki hefur enn ekki skilað endurútreikningi þriðjungs gengistryggðra húsnæðis- og bílalána viðskiptavina sinna þótt mánuður sé liðinn frá því að frestur bankans til þess rann út lögum samkvæmt. Engin viðurlög eru við drætti á endurútreikningnum.

Færri feður í orlof eftir efnahagshrun

Mun færri feður nýta sér fæðingarorlof eftir efnahagshrunið en áður. Á síðustu þremur árum hefur hámark á fæðingarorlofsgreiðslum verið lækkað í þrígang og er hámarkið nú 300 þúsund krónur. Orlofsgreiðslum til feðra hefur fækkað um níu prósent frá árinu 2008, en greiðslum til mæðra fjölgað um 4,5 prósent.

Uppfyllir allar evrópskar kröfur

Jón Jónsson, flugáhugamaður og bifvélavirki, segir í grein í Fréttablaðinu í gær að Dash-8, flugvél Flugfélags Íslands, sé „fljúgandi dauðagildra“.

Frumvarp ekki talið tímabært

Meirihluti félags- og tryggingamálanefndar Alþingis telur að frumvarp um lögleiðingu staðgöngumæðrunar sé ekki tímabært. Nefndin skilaði áliti til heilbrigðisnefndar í vikunni. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður félags- og tryggingamálanefndar, segir meirihlutann telja að ekki eigi að samþykkja þingsályktunartillögu um lögleiðingu óbreytta. „Það þarf að skoða ýmsar hliðar á þessu máli og fara yfir löggjöf í nágrannalöndum okkar áður en ákvarðanir eru teknar,“ segir Sigríður Ingibjörg. - sv

Brenndu tvö göt á görn í aðgerð

Íslenska ríkið hefur verið sýknað af sjö milljóna skaðabótakröfu konu sem lenti í því að tvö göt voru brennd á görn hennar í ófrjósemisaðgerð á spítala. Ófrjósemisaðgerðin fór fram með þeim hætti að brennt var fyrir eggjaleiðarana. Önnur aðferð og hættuminni er möguleg í sama tilgangi og felst hún í því að klemma fyrir eggjaleiðarana.

Becromal lofar umbótum strax

Umhverfisstofnun hefur gefið fyrirtækinu Becromal Iceland við Akureyri frest til 4. apríl til að skila áætlun um úrbætur eftir að aflþynnuverksmiðja þess gerðist brotleg við þrjú ákvæði starfsleyfis. Verksmiðjan hefur verið starfandi frá árinu 2009.

Ölvaður ók á barn og flúði

Betur fór en á horfðist þegar ölvaður maður ók skellinöðru á barnavagn í Óðinsvéum á fimmtudag. Hálfs árs gömul stúlka sem var í vagninum þeyttist tíu metra vegalengd, en lenti sem betur fer á grasbala við göngustíg og meiddist ekkert.

Úrskurður kærunefndar alvarlegur fyrir Samfylkinguna

„Nýlegur úrskurður kærunefndar jafnréttismála er alvarlegur fyrir stjórnsýsluna og flokk sem kennir sig við kvenfrelsi," segir í ályktun kvennahreyfingar Samfylkingarinnar sem samþykkt var í dag. Sem kunnugt er komst kærunefnd jafnréttismála að þeirri niðurstöðu á dögunum að Jóhanna Sigurðardóttir hefði gerst sek um brot á jafnréttislögunum þegar hún réð karlmann í starf skrifstofustjóra stjórnsýslu- og samfélagsþróunar.

Neysla neftóbaks aukist um 50%

Þrír starfsmenn í litlum skúr við Stuðlaháls sjá um að tappa á 25 tonn af neftbóki á ári hverju, en neysla á íslensku neftbóki hefur aukist um fimmtíu prósent á aðeins þremur árum.

Ríkisstjórnin samþykkir að fjölga aðstoðarmönnum ráðherra

Aðstoðarmönnum ráðherra verður fjölgað, samkvæmt nýju frumvarpi um stjórnarráðið sem samþykkt var í ríkisstjórn í morgun. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að þetta sé gert til að efla stefnumótun í ráðuneytum. Auk aðstoðarmannsins sem ráðherra hefur nú þegar heimild til að ráða sér muni ráðherra geta ráðið sérstakan ráðgjafa án auglýsingar.

73 stjórnendur í skólum fá uppsagnarbréf

Sextíu leikskólastjórnendur og 13 grunnskólastjórnendur fá uppsagnarbréf, samkvæmt tillögum Reykjavíkurborgar um hagræðingu í menntakerfi borgarinnar. Þar af eru 70 konur og þrír karlar. Þetta kemur fram í umsögn Kennarasambands Íslands um tillögurnar.

Björn beit 12 ára dreng

Tólf ára gamall drengur var bitinn af birni í Härjedalen í miðhluta Svíþjóðar. Lögreglan í Jämtland segir að ekki liggi fyrir hversu alvarlega slasaður drengurinn er. Drengurinn var á skíðum með jafnöldrum sínum við Funäsdalsberget þegar björninn beit hann í báða fótleggina. Hann var einnig bitinn í hrygginn. Sjúkraþyrla var send á vettvang til að sækja drenginn.

Vill samstarf ólíkra skólastiga

Á annað hundrað grunnskólanemenda úr Hlíðaskóla tók á dögunum við viðurkenningu fyrir að hafa tekið þátt í Hringekju HR. Hringekjan er samstarf Háskólans í Reykjavík við efri deildir grunnskólanna. Markmið þess er að gefa grunnskólanemendum nýja sýn á heim tækninnar og vekja forvitni þeirra og áhuga á tækni- og raungreinum.

Hugrás vekur athygli á Jesú og Jóni Sigurðssyni

Þeir Jesú og Jón Sigurðsson eiga það sameiginlegt að vera meðal viðfangsefna í veffyrirlestrum sem opnaðir voru í dag á Hugrás, vefriti Hugvísindasviðs. Með þessu framtaki, sem er liður í aldarafmælsidagskrá Háskóla Íslands, opnar Hugvísindasvið fyrir aðgang allra að fjölbreyttu efni í flutningi fræðimanna sviðsins.

Ríkisendurskoðun: Bændasamtökin með of víðtækt stjórnsýsluhlutverk

Bændasamtökum Íslands hefur verið falið of víðtækt hlutverk við stjórnsýslu landbúnaðarmála. Þetta er álit Ríkisendurskoðunar sem fram kemur í nýrri skýslu en þar segir að endurskoða þrufi fyrirkomulagið. Þá verði stjórnvöld að efla eftirlit sitt með framlögum til landbúnaðar.

Sóley: Fyrirfram ákveðin niðurstaða

Fulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks lögðu til á fundi íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar í dag að umsagnarfrestur skólaráða verði lengdur, enda virðist sem þau hafi byggt á röngum upplýsingum frá formönnum menntaráðs og íþrótta- og tómstundaráðs. Þetta segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna. Tillögunni var frestað en farið hefur verið fram á aukafund í ráðinu til að klára málið sem fyrst. Sóley segir að þrátt fyrir að sameiningartillögur meirihluta Besta flokks og Samfylkingar séu enn í umsagnarferli, og sérstakur starfshópur skoði nú hvort og þá með hvaða hætti best væri að sameina yfirstjórnir grunnskóla og frístundaheimila virðist Oddný Sturludóttir og Eva Einarsdóttir, formenn menntaráðs og íþrótta- og tómstundaráðs vera búnar að ákveða niðurstöðuna. „Í tölvupósti frá þeim stöllum til Félags skólastjórnenda í Reykjavík, sem jafnframt var sendur skólaráðum grunnskólanna fullyrða þær að skólastjórar muni verða óyggjandi yfirmenn sameinaðra grunnskóla og frístundaheimila, en að starfshópurinn óski eftir að umsjónarmaður frístundaheimilisins verði hluti af stjórn skólans, til dæmis deildarstjóri frístundarstarfs,“ segir Sóley. Hún segir að formennirnir hafi engar heimildir til að túlka vilja eða sýn starfshóps sem enn er að störfum og hefur engar ákvarðanir tekið. Því er nauðsynlegt að þessi skilaboð verði afturkölluð með skýrum hætti gagnvart skólastjórnendum. Jafnframt telur hún er nauðsynlegt að lengja umsagnarfrest skólaráðanna svo þeim gefist kostur á að endurskoða umsagnir sínar með tilliti til þessara rangfærslna. „Þessi vinnubrögð eru enn eitt dæmið um skeytingarleysið sem meirihlutinn sýnir lýðræðinu, starfsfólki borgarinnar og íbúum. Ákvarðanirnar hafa fyrir löngu verið teknar og greinilegt að enginn af öllum heimsins starfshópum eða umsögnum kemur til með að breyta þeim. Slík vinnubrögð eru meirihlutanum til skammar,“ segir Sóley.

Vika eftir af Mottumars: 20 milljónir komnar

Rúmar 20 milljónir króna hafa safnast í árvekniátaki Krabbameinsfélags Íslands, Mottumars. Tæp vika er nú eftir af átakinu. Um 1.800 einstaklingar og 400 lið hafa skráð sig til leiks. Lið Byko er nú í efsta sæti í liðakeppninni en í einstaklingskeppninni er það Magnús Guðmundsson, sem lést úr krabbameini fyrr í mánuðinum. Baráttan við krabbamein getur skilað miklum árangri og biðlar Krabbameinsfélagið því til allra Íslendinga um að taka þátt í söfnun áheita á mottumars.is og leggja sitt af mörkum. Fjármunir sem safnast í átakinu verða notaðir í fræðslu, forvarnir, rannsóknir og ráðgjöf sem tengist baráttunni við krabbamein hjá karlmönnum. Keppninni lýkur þann 31. mars en þá verða þeir sem safnað hafa mestum áheitum, bæði einstaklingar og lið, verðlaunaðir og hljóta titilinn Mottan 2011. Fagfélag rakarameistara mun velja flottustu mottuna og fer fljótlega í gegnum myndirnar á www.mottumars.is http://krabb.herstjorinn.is/l.aspx?mid=661&lbid=94&sid=0B2FDB66-FC8B-11DB-ABB3-132756D89593 svo nú er um að gera að setja inn nýjustu myndirnar! Á morgun, laugardag, verða haldnir tónleikar á Sódómu til styrktar átakinu. Allur ágóði rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins og allir þeir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína. Það kostar 1.500 krónur inn á tónleikana, en húsið opnar kl. 21:30, en þeir sem skarta mottu fá að sjálfsögðu veglegan afslátt og kostar miðinn þá einungis 1.000 krónur. Eftirfarandi listamenn koma fram: Böddi úr Dalton Morgan Kane Morning after youth Noise The Vintage caravan Endless Dark Finnegan

Byko í efsta sæti liðakeppni Mottumars

Tæp vika er nú eftir af Mottumars átakinu og um að gera að spýta í lófana og hvetja sem flesta til að heita á magnaða mottukappa eða lið á mottumars.is.

Fundu kannabis, stera og haglabyssu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 20 kannabisplöntur en ræktunin var vel á veg komin.

Miklir kjarreldar í Colorado

Rúmlega 8500 manns hafa neyðst til að yfirfega heimili sín í Denver í Colorado í Bandaríkjunum þar sem nú geisar miklir kjarreldar. Eldurinn hefur breiðst út á 6,5 ferkílómetra svæði og um hundrað slökkviliðsmenn berjast nú við hann en mikill vindur gerir þeim erfitt um vik. Engar fregnir hafa borist af meiðslum á fólki en íbúðarhús eru sumstaðar í hættu.

Búið að safna 17 milljónum fyrir Japan

Rauði krossinn í Japan hefur stóreflt neyðaraðgerðir sínar fyrir fórnarlömb hamfaranna miklu sem riðu yfir landið fyrir hálfum mánuði. Rauði krossinn sinnir allri heilbrigðisþjónustu á vettvangi og í fjöldahjálparstöðvum á hamfarasvæðunum þar sem nálægt þrjú hundruð þúsund manns eru enn. Í neyðarsveitum Rauða krossins eru einnig sérfræðingar sem veita sálrænan stuðning og áfallahjálp.

Þýskukennarar áhyggjufullir

Félag þýzkukennara lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu og framtíð tungumálanáms í framhaldsskólum landsins. Þýskukennarar eru uggandi yfir fyrirhugaðri skerðingu á tungumálakennslu og telja hana leiða til einsleitari hóps íslenskra ungmenna sem hefur takmarkaðri aðgang að Evrópu og alþjóðasamfélaginu. Á aðalfundi Félags þýzkukennara sem haldinn var 18. mars 2011 spunnust miklar umræður um stöðu og framtíðarhorfur þýskunáms og -kennslu í framhaldsskólum landsins, í ljósi nýrra laga og drögum að námsskrá. Þar var samþykkt eftirfarandi ályktun: "Engum dylst nauðsyn þess að læra erlend tungumál og þá fleiri en ensku til þess að auka enn frekar menningarlæsi og víðsýni nemenda. Í því samhengi vill félagið undirstrika mikilvægi þess að Íslendingar hafi þýsku á valdi sínu. Löng hefð er fyrir menningar- og viðskiptatengslum milli Íslands og þýskumælandi þjóða. Þýskaland er eitt mikilvægasta viðskiptaland okkar og eru þýskumælandi ferðamenn einn fjölmennasti hópurinn sem sækir Ísland heim á hverju ári. Lykillinn að því að Íslendingar geti áfram stundað nám og aflað sér þekkingar í þýskumælandi löndum felst í góðu valdi á tungumálinu. Íslendingar eiga greiðan aðgang að háskólum í þýskumælandi löndum og skólagjöld eru þar fremur lág. Minni kunnátta getur seinkað námi og kostnaður við það aukist, þar sem viðkomandi nær ekki inntökuprófi í þýsku. Mikilvægt er að skólakerfið stuðli að því að Íslendingar geti nýtt þau fjölmörgu og fjölþættu tækifæri sem í góðri þýskukunnáttu felast.“

Blaðamannafundur um afnám gjaldeyrishafta

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur boðað til blaðamannafundar klukkan fjögur í dag þar sem kynnt verður áætlun um afnám gjaldeyrishafta. Undanfarið hefur sérstakur stýrihópur, sem í eiga sæti efnahags- og viðskiptaráðherra, fjármálaráðherra, seðlabankastjóri og forstjóri Fjármálaeftirlitsins, haft forystu um mótun áætlunar um afnám gjaldeyrishafta. Stýrihópurinn hefur unnið náið með sérfræðingum ráðuneyta og stofnana. Stefnt hafði verið að því að tekin yrði afstaða til tillagna stýrihópsins í ríkisstjórn þann 11. mars og að í kjölfarið yrði áætlunin birt opinberlega. Enn var þá nokkur vinna framundan til þess að stýrihópurinn geti lokið tillögugerð sinni til ríkisstjórnarinnar. Afgreiðslunni var því frestað til dagsins í dag.

Sjá næstu 50 fréttir