Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Knattspyrnustjarna tók upp kynlífsmyndband Knattspyrnustjarna sem leikur í efstu deild á Englandi tók upp kynlífsmyndband með liðsfélaga sínum í landsliðinu og tveimur stelpum á hótelherbergi á dögunum. 28.1.2011 22:45
Sprengdi sig í loft upp í stórverslun Að minnsta kosti átta fórust þegar maður sprengdi sig í loft upp í vinsælli stórverslun í höfuðborg Afganistan, Kabúl, í dag. Konur og börn eru á meðal hinna látnu. 28.1.2011 22:30
Niðurdrepandi að lifa á ölmusu Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir fyrir Jussanam Da Silva. Í marga mánuði hefur hún beðið eftir því að fá svar um atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi og hefur því þurft að framfleyta sér með aðstoð velgjörðarmanna. Hún sagði Sigríði Björgu Tómasdóttur frá lífinu á Íslandi, draumavinnunni á frístundaheimilinu Hlíðaskjóli og tónlistaráhuganum. 28.1.2011 22:00
Hreyfingin skorar á ríkisstjórnina Hreyfing skorar á Jóhönnu Sigurðardóttur og ríkisstjórnina að krefjast þess að stjórnvöld í Egyptalandi hlusti á kröfur almennings auk þess að fordæma harðlega ritskoðun, glæpsamlegt harðræði og frelsisskreðingu Hosni Mubaraks. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. 28.1.2011 21:32
Halldór og Eiki stofna snjóbrettafyrirtæki Halldór Helgason keppir á X Games í annað sinn um helgina. Snjóbrettaíþróttin er hans aðalstarf en hann og Eiríkur bróðir hans hafa stofnað fyrirtækið Lobster og hanna snjóbretti undir því nafni. 28.1.2011 21:30
Þjóðverjar kalla alla hermenn heim Þýska þingið kaus um heimkvaðningu hermanna í Afganistan í dag. Þeir skulu vera komnir heim í lok árs 2014. 28.1.2011 21:15
„Björgunarliðið stóð sig frábærlega“ „Auðvitað er ég ánægður því nóttin var ekki sérlega þægileg," segir fimmtugur Þjóðverji sem björgunarsveitir leituðu að á Eyjafjallajökli í alla nótt og fundu undir morgun, hann segir að björgunarlið hafa sýnt mikla fagmennsku í aðgerðum sínum. Hann óttaðist aldrei um líf sitt og stefnir á að fara upp á Vatnajökul við fyrsta tækifæri. 28.1.2011 18:53
Kísilver í Helguvík frestast Fulltrúar frá bandarísku fyrirtæki, sem vill reisa kísilver í Helguvík, héldu heim í dag án þess að samningar kláruðust en búist hafði verið við undirskrift í þessari viku. Vonir eru bundnar við að málið komist í höfn í febrúar. 28.1.2011 18:46
Sérstakur saksóknari fær gögnin frá Lúxemborg Hæstiréttur Lúxemborgar hefur úrskurðað að lögregluyfirvöld afhendi sérstökum saksóknara á Íslandi öll gögn úr Banque Havilland bankanum í Lúxemborg. Gögnin eru talin hafa verulega þýðingu fyrir rannsókn á Kaupþingi. 28.1.2011 18:36
Ekki tilefni til afsagnar „Það er mín persónulega skoðun að ekki hafi verið tilefni til afsagnar, hvorki af hálfu landskjörstjórnar né af hálfu annarra aðila sem önnuðust framkvæmd þessarar kosningar," segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Hann segir þó að um sé að ræða sjálfstæða stjórn sem taki eigin ákvarðanir á eigin forsendum. „Fyrst þetta er þeirra mat þá bera að virða það,“ segir Ögmundur. 28.1.2011 19:28
Landskjörstjórn segir af sér Landskjörstjórn hefur sagt af sér, þetta kemur fram í tilkynningu sem send hefur verið fjölmiðlum. 28.1.2011 18:23
Ungmenni játuðu innbrot í Reykjavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst tvö innbrot sem voru framin í Reykjavík í nótt. Við sögu komu fjögur ungmenni á aldrinum 17 til 19 ára og voru tvö þeirra vistuð í fangageymslu fram eftir degi. Hinum stolnu munum hefur verið komið aftur í réttar hendur, segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 28.1.2011 17:37
Útgöngubann sett á Egyptalandi Útgöngubann hefur verið sett í egypsku borgunum Kaíró, Alexandríu og Súez en tugir þúsunda mótmælenda hafa verið á götum landsins undanfarna daga til þess að mótmæla stjórn Mubaraks forseta. 28.1.2011 16:55
Gillz er opinn fyrir nýrri þáttaröð „Það rigndi inn sms-um í gær og það er alltaf jákvætt. Ef þú ert að byrja með nýjan þátt og færð engin sms að þá er það ekki jákvætt," segir Egill „Gillzenegger" Einarsson um nýja þáttinn sinn sem fór í loftið á Stöð 2 í gær. Þátturinn heitir Mannasiðir Gillz og byggir á bók sem Egill skrifaði. 28.1.2011 16:00
Hafnarfjarðarbær segir upp 20 manns Stöðugildum hjá Hafnarfjarðarbæ hefur verið fækkað um 20 og breytingar hafa verið gerðar á starfshlutföllum á nokkru stöðum. Breytingarnar taka gildi um mánaðarmótin. Þetta er liður í hagræðingaraðgerðum hjá Hafnarfjarðarbæ en sparnaður vegna fyrirhugaðra breytinga er áætlaður um 90 til 100 milljónir króna. Hlutaðeigandi starfsmönnum var kynnt um aðgerðirnar í morgun. 28.1.2011 15:44
Myndir frá björgunaraðgerðum á Eyjafjallajökli Freyr Ingi Björnsson liðsmaður björgunarsveitarinnar Ársæls tók meðfylgjandi myndir frá björgunaraðgerðum á Eyjafjallajökli í nótt. Leitað var að þýskum göngumanni sem hafði orðið viðskila við félaga sína. Maðurinn fannst í morgun heill á húfi en aðstæður á jöklinum voru slæmar miðað við árstíma því jökullinn er krossprunginn eftir eldgosið í fyrra. 28.1.2011 15:32
Borgin opnar ábendingagátt Á bilinu 5-600 manns hafa nú með beinum hætti komið að samráði um tækifæri til samrekstrar og/eða sameiningar leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila í borginni. 28.1.2011 15:31
Enn engin viðbrögð frá landskjörstjórn Ástráður Haraldsson, formaður landskjörstjórnar, vildi ekkert tjá sig um málefni landskjörstjórnar eða kosningarnar til stjórnlagaþingsins þegar Vísir náði tali af honum í dag. „Ég ætla ekkert að tjá mig um það núna,“ segir hann. 28.1.2011 15:27
Dæmdur fyrir vopnað rán í Sunnubúð Átján ára karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vopnað rán. Drengurinn játaði að hafa farið inn í verslunina Sunnubúð vopnaður hnífi, ógnað starfsmanni og skipað honum að afhenda sér peninga úr sjóðsvél. Drengurinn hafði á brott með sér 33 þúsund krónur. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en ránið átti sér stað í febrúarbyrjun 2010. 28.1.2011 14:36
Forsetinn um Icesave: „Þetta er auðvitað miklu betri samningur“ Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að nýja Icesave samkomulagið sé miklu betra en það gamla. Þetta kemur fram í viðtali við Bloomberg fréttaveituna í dag en Ólafur er nú staddur í Davos í Sviss á árlegri ráðstefnu World Economic Forum. Hann segir að Bretar og Hollendingar hafi nú fallist á málflutning Íslendinga þess efnis að fyrri samningurinn hafi verið ósanngjarn í grundvallaratriðum. „Þetta er auðvitað mikið betri samningur," segir Ólafur Ragnar. 28.1.2011 14:17
Orkuveitan verður ekki einkavædd Orkuveita Reykjavíkur verður ekki einkavædd á vakt sitjandi borgarstjórnarmeirihluta. Þetta segir Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra. Ummæli Haraldar Flosa Tryggvasonar í Morgunblaðinu í gær hafa vakið upp vangaveltur um hvort til standi að einkavæða Orkuveituna. Björn segir það af og frá. Hann telur þó alla umræðu um eignarhald á Orkuveitunni hins vegar holla, og vekur athygli á því að þar sem Orkuveitan er í opinberri eigu fylgi opinber trygging á greiðslum vegna lána sem fyrirtækið fær. Sú trygging hafi mögulega haft áhrif á hversu stórtækar fjárfestingar var farið út í á vegum fyrirtækisins á liðnum árum. 28.1.2011 13:51
Fésbókin stuðlar að vöruþróun Foreldrar sem voru þreyttir á því að geta ekki ferðast með opnar fernur af Stoðmjólk handa barninu sínu tóku sig til fyrir ellefu mánuðum og stofnuðu síðu á Fésbókinni þar sem því var beint til Mjólkursamsölunnar að framleiða Stoðmjólk með skrúftappa. Um níu hundruð manns skráðu sig í hópinn. 28.1.2011 13:25
Fór þrjár veltur á Reykjanesbraut - betur fór en á horfðist Ökumaður slapp án stórkostlegra meiðsla þegar fólksbíll sem hann ók fór þrjár veltur á Reykjanesbraut í gær og endaði á staur. 28.1.2011 13:20
Lögreglan á Hvolsvelli þakkar fyrir aðstoð Yfirlögregluþjónninn á Hvolsvelli, Sveinn Kristján Rúnarsson, þakkar öllum þeim sem komu að erfiðri björguna á Eyjafjallajökli í gærkvöld. Eftirfarandi er orðsending sem Sveinn bað fjölmiðla um að koma á framfæri. 28.1.2011 12:21
Heimilislæknar geta ekki lengur ávísað Rítalíni Heimilslæknar geta ekki lengur ávísað Rítalíni til sjúklinga eftir að verklagsreglum var breytt hjá ráðnuneytinu. 28.1.2011 12:07
Eignarhald OR: Boðað til eigendafundar Samþykkt var á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur sem var að ljúka nú skömmu fyrir fréttir, að eigendafundur verði haldinn sem fyrst þar sem eignarhald á Orkuveitunni verður rætt. 28.1.2011 12:06
Mandela útskrifaður af spítala Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður Afríku, var útskrifaður af spítala í morgun. Þar hafði hann dvalið í tvær nætur. Læknir hans sagði í samtali við fréttamenn að Mandela, sem er 92 ára gamall, þjáðist af kvillum sem væru algengir hjá fólki á hans aldri. Hann hefði það hins vegar gott. 28.1.2011 12:04
Flestir nota netið til þess að nálgast fréttir Ríflega helmingur svarenda í könnun Miðlunar sagðist nálgast fréttir í gegnum netmiðla í tölvu sinni eða 61,3 prósent. Fæstir nota útvarpið. 28.1.2011 11:48
Byltingin í Egyptalandi veldur uppnámi í Bandaríkjunum - fréttaskýring Mótmælin í Egyptalandi og krafan um að Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, segi af sér eftir þrjátíu ára valdasetu, setja áætlanir bandarískra yfirvalda í Mið-Austurlöndum í uppnám. 28.1.2011 10:58
Ríkissaksóknari tekur afstöðu til manndrápstilrauna Skotárásin í Ásgarði á aðfangadag og árásin á Ólaf Þórðarson, tónlistarmann í Ríó tríó, eru komnar á borð Ríkissaksóknara sem mun á næstu dögum taka ákvörðun um hvort ákært verður í málunum. Þau hafa verið til meðferðar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu undanfarnar vikur. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis hafa bæði málin verið rannsökuð sem tilraunir til manndrápa. 28.1.2011 10:51
Ólafur Ragnar í Davos: Ísland í betri stöðu en nokkur þorði að vona Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að efnahagskerfi Íslands sé á mun hraðari batavegi en nokkur þorði að vona. Ólafur Ragnar er staddur í Davos þar sem árleg ráðstefna World Economic Forum fer nú fram. 28.1.2011 10:16
Sóley mótmælir hugmyndum um einkavæðingu OR Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi vinstri grænna, mótmælir harðlega hugmyndum stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur um að æskilegt sé að einkavæða fyrirtækið. Stjórnarfundur Orkuveitunnar hófst nú klukkan níu og stendur til ellefu. Sóley gaf út fyrir fundinn að á honum myndi hún leggja fram tillögu þar sem hún krefst þess að eigendafundur verði kallaður saman til að fara yfir viðbrögð við einkavæðingarstefnu stjórnarformannsins. 28.1.2011 09:57
Fósturlát líklegra en fæðing eftir að kona nær fertugu Eftir að kona hefur náð fertugu eru meiri líkur á fósturláti en að hún ali barn, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem greint er frá á fréttavef Daily Mail. 28.1.2011 09:53
Einnig mótmælt í Jemen í dag Skipuleggjendur mótmælanna í Jemen hafa lýst því yfir að áfram verði mótmælt í dag líkt og í Egyptalandi. Íbúar Jemen flykktust út á götur í gær eftir átökin í Egyptalandi og stjórnarbyltinguna í Túnis. 28.1.2011 08:25
Bora niður að vatni sem hefur verið einangrað í fimmtán milljónir ára Rússneskir vísindamenn eiga aðeins eftir að bora 50 metra niður í tæplega fjögurra kílómetra ísbreiðu á kaldasta stað veraldar á Suðurskautinu. Undir því er riastórt stöðuvatn sem hefur verið einangrað í fimmtán milljónir ára. 28.1.2011 08:19
Fimm handteknir vegna samúðarárása tengdum WikiLeaks Breska lögreglan hefur handtekið 5 tölvuhakkara í tengslum við tölvuárásirnar tengdar Wikileaks fyrir áramót. 28.1.2011 08:17
Slökkt á netinu til þess að lægja öldur í Egyptalandi Internetið hefur legið niðri í Egyptalandi í dag auk þess sem samskipti með farsímum hafa gengið treglega. Ástæðan er ótti egypskra yfirvalda um gríðarlega fjölmenn mótmæli út um allt landið í dag. 28.1.2011 08:15
Mandela mun ná sér Óþarfi er að óttast um heilsu Nelson Mandela að sögn varaforseta Suður-Afríku sem flutti tilkynningu í dag um að leiðtoginn myndi jafna sig á föllnu lunga. 28.1.2011 08:13
Læsti eiginkonuna í kjallaranum í átta ár Brasilíska lögreglan handtók karlmann í Brasilíu fyrir að halda konu sinni, sem er á sjötugsaldri, fanginni í kjallara á heimili þeirra í átta ár. Maðurinn sagði ástæðuna andlegir kvillar eiginkonunnar. 28.1.2011 08:08
Brotist inn í skátaheimili Fjögur innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru þau enn óupplýst. Brotist var inn í skátaheimilið í Mosfellsbæ og þar leitað að verðmætum í öllum hirslum, síðan inn í veitingahús í Árbæjarhverfi. Næst í fyrirtæki í Vogahverfi, þar sem tölvu var meðal annars stolið, og svo inn í vinnuskúr á byggingasvæði við Lindargötu, þaðan sem verðmætum var stolið. Lögreglu grunar hverjir voru að verki í að minnstakosti tveimur tilvikanna og er þeirra nú leitað. 28.1.2011 07:56
Hálkuslys í nótt Ökumaður, sem var einn í bíl sínum, slasaðist þegar bíllinn rann út af Reykjanesbrautinni í hálku á móts við Sprengisand, um klukkan tíu í gærkvöldi, og fór nokkrar veltur. 28.1.2011 07:55
Þýski jöklafarinn fundinn Þýskur fjallgöngumaður, sem leitað hefur veri að á Eyjafjallajökli síðan síðdegis í gær, fannst á lífi rétt fyrir klukkan sex í morgun, nánast á há bungu jökulsins. 28.1.2011 07:49
Hundurinn fundinn eftir hrakninga „Skjöldur er fundinn og kominn í góðar hendur eftir mikla hrakninga,“ segir Gunnar Ólafsson, sem leitað hefur ákaft að hundinum Skildi, sem hann þurfti að láta frá sér vegna búferlaflutninga. 28.1.2011 06:00
Bíða niðurstöðu blóðrannsóknar Lögreglan á Akureyri bíður eftir niðurstöðum blóðrannsóknar á ökumanninum sem var undir stýri þegar maður lést á Eyjafjarðarbraut 20. janúar síðastliðnum. 28.1.2011 05:00
Afsökun og ásakanir Hvað var sagt í umræðu um framkvæmd kosninga til stjórnlagaþings? Þriggja og hálfs klukkustundar umræða um ógildingu Hæstaréttar var um flest fyrirséð. Þingmenn töluðu eins og við mátti búast, málflutningur flokkanna var eintóna og línur skýrar. 28.1.2011 03:15