Fleiri
Eignarnám HS Orku er ekki á dagskránni 26.1.2011 00:01 Lögreglan vildi ekki hneyksla almenning Hæstiréttur felldi úr gildi í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni á þrítugsaldri sem var handtekinn á Leifsstöð með um 4 kg af fíkniefnum í ferðatösku. Lögreglan krafðist þess að maðurinn yrði í gæsluvarðhaldi til að særa ekki réttarvitund almennings og valda hneykslun í samfélaginu. 25.1.2011 22:32 Gerir það gott í Hollywood Nánast önnur hver manneskja í Hollywood er leikari svo lífsbaráttan snýst um að vinna sig áfram og þá gildir dugnaður, ákveðni og vinnusemi," segir Andrea Ösp, sem hefur búið í Los Angeles í þrjú ár. 25.1.2011 21:30 Peter Habeler með fyrirlestur um háfjallagöngur Peter Habeler, einn frægasti fjallgöngumaður allra tíma, verður heiðursgestur og fyrirlesari á ráðstefnu 66°Norður og Félags Íslenskra Fjallalækna um háfjallagöngur sem verður haldin í Háskólabíói á morgun, miðvikudaginn 26. janúar kl. 20. 25.1.2011 21:30 Segir íhaldið hrætt við auðlindaákvæði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í lokaræðu sinni á Alþingi í kvöld að íhaldið væri „skíthrætt" við að komið yrði á ákvæði í stjórnarskrá um að auðlindirnar eigi að vera í þjóðareign. Það væri dapurlegt að það hlakki í stjórnarandstöðunni vegna ákvörðun Hæstaréttar. 25.1.2011 20:05 Sveik rándýran páfagauk af Furðufuglum Nítján ára piltur hefur verið ákærður fyrir fjölmörg þjófnaðar- og fjársvikamál. Meðal annars er hann ákærður fyrir að hafa svikið út páfagauk, búr og fóður fyrir rúmlega hálfa milljón úr versluninni Furðufuglum. Gaukurinn er af sjaldgæfri tegund, svokallaður grænvængjaður arnpáfi, og með dýrari fuglum í heimi. Hann sveik pilturinn út á stolið greiðslukortanúmer í gegnum síma og nefndi hann Húgó. 25.1.2011 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Mosi gæti virkað í baráttunni gegn krabbameini og malaríu Líkur eru á að íslenskur mosi búi yfir efnum sem gætu virkað í baráttu gegn krabbameini og malaríu. Lyfjafræðingar sem rannsaka þessa jurt líkja henni við fjársjóðsleit. 26.1.2011 18:31
Margt bendi til að pólitík hafi ráðið Stjórnlagaþingsfulltrúi segir að hæstiréttur hafi gengið of langt með því að ógilda kosningarnar. Margt bendi til að pólítik hafi ráðið því að framkvæmd kosninganna var kærð. 26.1.2011 18:30
Fimmtán hundruð bíða greiðsluaðlögunnar Fimmtán hundruð manns bíða nú eftir því komast í greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara. Fjöldi mála hefur nær tvöfaldast á fjórum mánuðum og biðtíminn hefur verið átta mánuðir. 26.1.2011 19:01
Óvíst um stuðning stjórnarandstöðu - fjárlaganefnd margklofin Óvíst er hvort að ríkisstjórnin geti reitt sig á stuðning stjórnarandstöðunnar í Icesave málinu. Fjárlaganefnd er margklofin. 26.1.2011 18:45
Ef um svindl væri að ræða ætti einhver að axla ábyrgð Innanríkisráðherra segir stjórnarmeirihlutann staðráðinn í að stjórnlagaþing verði haldið og kjósa þurfi aftur til þess. Hann segir engan hafa gert athugasemdir við frumvarp um framkvæmd kosninganna, heldur hafi menn deilt um hvort yfirleitt ætti að boða til stjórnlagaþings. 26.1.2011 18:40
Auknar heimildir til loðnuveiða Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur gefið út reglugerðir um auknar heimildir til loðnuveiða. Aukningin nemur alls 125 þúsund tonnum, segir á vef sjávarútvegsráðuneytisins. 26.1.2011 17:56
Fundur landskjörstjórnar hafinn Fundur landskjörstjórnar hófst klukkan fimm í dag. Stjórnin ætlar að ráða ráðum sínum eftir tíðindi gærdagsins þegar að Hæstiréttur úrskurðaði að kosningin til stjórnlagaþings væri ógild. 26.1.2011 17:38
Íslendingar flykkjast til Tælands Í gögnum íslensku flugleitarinnar Dohop kemur fram að Tæland var vinsælasti áfangastaður Íslendinga frá því síðasta sumar og hélt sætinu í allt haust. 26.1.2011 17:15
Námuverkamenn fórust í gassprengingu Að minnsta kosti fimm námuverkamenn fórust þegar að sprenging varð í kolanámu í norðaustur Kólumbíu. Fyrstu fregnir af málinu greindu frá því að þrjátíu námuverkamenn væru fastir neðanjarðar en yfirvöld hafa nú staðfest að þrettán hafi lokast inn í námunni. 26.1.2011 16:58
ASÍ hættir öllum þreifingum við SA Miðstjórn ASÍ lýsir yfir megnri óánægju með þá stöðu sem upp er komin í yfirstandandi kjarasamningsviðræðum. Í ályktun miðstjórnar segir að samningsaðilar hafi á undanförnum vikum kannað forsendur fyrir því að samið verði til allt að þriggja ára á grundvelli samræmdrar launastefnu og aðgerðaáætlunar í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum. „Allt benti til þess að hægt væri að ná breiðri samstöðu um slíka leið. Nú hafa Samtök atvinnulífsins lýst því yfir að samtökin muni taka efni slíks samnings og nota sem þvingunaraðgerð við stjórnvöld til að knýja fram að væntanlegar breytingar á fiskveiðistjórnarlöggjöfinni verði þóknanlegar LÍÚ.“ 26.1.2011 16:10
Icesave afgreitt úr fjárlaganefnd Meirihluti fjárlaganefndar afgreiddi Icesave frumvarpið út úr nefndinni í morgun. Málið fer nú til annarar umræðu í þinginu. Fulltrúar minnihlutans í fjárlaganefnd, þeir Höskuldur Þórhallsson Framsóknarflokki og Þór Saari, Hreyfingunni greiddu atkvæði gegn afgreiðslu málsins. Reiknað er með að Alþingi taki málið fyrir í annarri umferð í næstu viku. 26.1.2011 16:02
Fréttaskýring: Hvað vilja atvinnurekendur? Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að ekki verði hvikað frá kröfu um „sátt í sjávarútvegsmálum" í yfirstandandi kjaraviðræðum. 26.1.2011 15:30
Magnús Geir í stjórn Ríkisútvarpsins Alþingi kaus í dag í stjórn Ríkisútvarpsins til eins árs. Ein breyting var gerð á fyrri stjórn og hún er sú að Magnús Geir Þórðarson Borgarleikhússtjóri sest í stjórnina í stað Kristínar Edwald. Aðrir aðalmenn í stjórninni eru Margrét Frímannsdóttir, Svanhildur Kaaber, Ari Skúlason og Magnús Stefánsson. 26.1.2011 15:16
Breiðavíkursamtökin verða Samtök vistheimilabarna Breiðavíkursamtökin hafa breytt um nafn og heita nú Samtök vistheimilabarna. Þetta var samþykkt á aðalfundi samtakanna sem haldinn var í gær. Nafnabreytingin er hugsuð sem liður í frekari útvíkkun samtakanna, en reynslan þykir hafa sýnt að það hefur hamlað vexti samtakanna að kenna þau við eitt vistheimilanna umfram önnur. 26.1.2011 15:06
Á sex hjólum á Suðurpól Íslendingar frá Arctic Trucks voru fengnir til að fylgja eftir Hermann Maier og fleiri skíðagörpum sem kepptu í ofurkeppni á Suðurskautslandinu. Ferðin tók mánuð og óku þeir 6x6 Hiluxbílum sem eru nýjasta afurð fyrirtækisins. 26.1.2011 14:45
Prófessor: Landskjörstjórn hlýtur að íhuga stöðu sína Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að landskjörstjórn hljóti að íhuga stöðu sína í ljósi niðurstöðu Hæstaréttar í gær. 26.1.2011 14:09
Uppsagnir hjá Kópavogsbæ - 70 milljónir sparast á ársgrundvelli Töluverðar skipulagsbreytingar hjá stjórnsýslu Kópavogsbæjar voru samþykktar á bæjarstjórnarfundi í gærkvöld en í nýsamþykktri fjárhagsáætlun bæjarins er gert ráð fyrir því að talsverðum sparnaði verði náð með skipulagsbreytingum og hagræðingu í stofnunum og yfirstjórn bæjarins. Fækkað er um ellefu störf innan stjórnsýslunnar og munu tólf einstaklingar fá uppsagnarbréf þar sem í sumum tilfellum var um hlutastörf að ræða. Á meðal þess sem lagt er niður er starf sviðstjóra menningarsviðs, en Guðrún Pálsdóttir gegndi því starfi áður en hún var ráðin bæjarstjóri. 26.1.2011 14:04
Ben Ali eftirlýstur um allan heim Stjórnvöld í Túnis hafa gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Zine Ben Ali, fyrrverandi forseta landsins sem hraktist í útlegð á dögunum vegna mikilla mótmæla í landinu. Handtökuskipunin nær einnig til nánustu fjölskyldu Ben Alis. Dómsmálaráðherra Túnis segir að alþjóðalögreglan Interpol hafi verið beðin um að hafa hendur í hári forsetans fyrrverandi en hann er sagður staddur í Sádí Arabíu. Yfirvöld vilja ákæra leiðtogann fyrrverandi fyrir þjófnað og fjárdrátt. 26.1.2011 13:41
Námi við lögregluskólann frestað Námi við grunnámsdeild Lögregluskóla ríkisins, sem hefjast átti um næstu mánaðarmót hefur verið frestað. Tuttugu nýnemar höfðu verið valdir til að hefja nám við grunnámsdeild skólans en forsenda þess að nám geti hafist er að áður verði búið að gera breytingar á lögreglulögum og kjarasamningi lögreglumanna varðandi launagreiðslur til nemenda í grunnnámi skólans. 26.1.2011 13:33
Séra Örn biðst fyrirgefningar - vissi ekki að drengurinn væri ólögráða Séra Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Vísis frá því í gær þar sem greint var frá samskiptum hans og fimmtán ára gamals drengs. 26.1.2011 13:09
Fulltrúi á stjórnlagaþingi: Ólétt og atvinnulaus Hin tuttugu og fjögurra ára gamla Ástrós Gunnlaugsdóttir, sem náði kjöri á stjórnlagaþing, segir niðurstöðu Hæstaréttar mikil vonbrigði. Hún eyddi sparifénu í kosningabaráttuna, tók sér frí frá námi og situr nú ólétt heima. Hún íhugar að leita réttar síns og vonar að einhver grípi inn í. 26.1.2011 12:16
Ögmundur vill kjósa aftur til stjórnlagaþings Innanríkisráðherra vill að kosið verði aftur til stjórnlagaþings. Það kemur honum á óvart hvað Hæstiréttur túlkar lögin um kosningar til þingsins þröngt. 26.1.2011 12:09
Loðnuverkfall samþykkt Verkfall var samþykkt hjá starfsmönnum loðnuvinnslustöðva á Austurlandi með yfirgnæfandi meirihluta. 26.1.2011 11:56
Stal tækjum fyrir þrjár milljónir og fær tvo mánuði á skilorði Karlmaður var í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvö innbrot þar sem hann stal tölvum og flatskjám að verðmæti hartnær þriggja milljóna króna. 26.1.2011 11:30
Telja atkvæði um verkfallsboðun Trúnaðarmenn starfsmanna í loðnuvinnslu sitja nú við að telja atkvæði um hvort boðað skuli til verkfalls sem myndi þá hefjast í byrjun febrúar, verði það samþykkt. 26.1.2011 11:00
Uppnám hjá starfsmönnum „Það er alveg óráðið hver okkar verkefni verða næstu dagana,“ segir Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri undirbúningsnefndar stjórnlagsþingsins. Hann hefur starfað að undirbúningi þingsins síðan í ágúst. Nú vinna fimm manns fyrir þingið og eru störf þeirra í uppnámi. 26.1.2011 11:00
Landskjörstjórn fundar síðar í dag Landskjörstjórn ætlar að hittast á fundi klukkan fimm í dag til þess að ráða ráðum sínum eftir tíðindi gærdagsins þegar Hæstiréttur ákvarðaði að kosning til stjórnlagaþings skyldi ógildast. Undirbúningur og framkvæmd kosningarinnar sem Hæstiréttur ógilti var í höndum landskjörstjórnar og er formaður hennar Ástráður Haraldsson. Hann hefur ekki viljað tjá sig um niðurstöðu Hæstaréttar og mun ekki gera það fyrr en landskjörstjórn hefur fundað. 26.1.2011 10:43
Telur samtalið skipta miklu máli Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, er ósammála því mati Oddnýjar G. Harðardóttur, formanns fjárlaganefndar, að samtal seðlabankastjóra Íslands og Bretlands haustið 2008 breyti engu um stöðu Icesave-málsins. 26.1.2011 10:30
Lagaprófessorar ekki einhuga um túlkun Ekki er einhugur meðal lagaprófessoranna Eiríks Tómassonar og Sigurðar Líndal um ákvörðun Hæstaréttar um að ógilda kosningarnar til stjórnlagaþings. 26.1.2011 10:30
Eldur í gróðurhúsi - óttast um tómatauppskeru Eldur kviknaði í rafmagnstöflu í gróðurhúsum að bænum Böðmóðsstöðum í Bláskógabyggð um klukkan sex í morgun. Slökkviliðið á Laugarvatni var kallað á vettvang en þegar það kom höfðu heimamenn náð að slá á eldinn. 26.1.2011 10:27
Blönduós tekur 95 milljón króna lán fyrir sundlaug Blönduósbær ætlar að taka 95 milljón króna lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga til að fjármagna framkvæmdir við nýja sundlaug í bænum samkvæmt fréttamiðlinum Húni.is. 26.1.2011 10:19
Sonur Mubaraks flýr land Sonur Hosni Mubaraks, forseta Egyptalands, flúði land í gær samkvæmt arabískum fjölmiðlum eftir að óeirðir brutust út í Kairó með þeim afleiðingum að þrír létust og þúsundir slösuðust. 26.1.2011 09:08
Selja börn óléttra kvenna Búlgarska lögreglan hefur upprætt mansalshring þar í landi sem flytur þungaðar konur til Egyptalands þar sem þær eru neyddar til þess að eignast börnin og þau svo seld. 26.1.2011 08:49
Þungarokkið bjargaði lífi norsks drengs 13 ára gamall drengur frá Noregi komst heldur betur í hann krappan á dögunum. Svo virðist sem þungarokk hafi bókstaflega bjargað lífi drengsins. 26.1.2011 08:44
Rússar syrgja í dag - Ekkert skemmtiefni í sjónvarpinu Rússar syrgja í dag þá sem létust í sprengjutilræðinu á flugvelli við Moskvu fyrir helgi. Þá létust 35 og fjöldinn allur slasaðist. Flaggað verður í hálfa stöng í Moskvu. 26.1.2011 08:42
Þrír látnir og þúsundir slasaðir eftir mótmæli í Kairó Að minnsta kosti þrír létust í ofbeldisfullum mótmælum í Kairó í Egyptalandi í gær en lögreglan batt í nótt enda á óeirðirnar. Skipuleggjendur mótmælanna segja óeirðirnar í gær marka upphafið af endinum á valdatíð núverandi stjónrvalda. 26.1.2011 08:38
Bensínverð lækkaði um tvær krónur í gærkvöldi Olíufélagið N1, sem fyrst olíufélaganna hækkaði bensínverð um fimm krónur á lítrann í fyrraköld, lækkaði það aftur um tvær krónur í gærkvöldi. 26.1.2011 08:35
Hljóp með stolnar matvörur í fangið á lögreglunni Mörg lögbrot hlóðust í einu vettvangi upp í fangið á lögreglunni á Selfossi í gær þegar hún ætlaði að hafa afskipti af konu á bíl fyrir utan verslun Krónunnar, vegna gruns um fíkniefnaakstur. 26.1.2011 08:33
Fíkniefnaakstur algengari en ölvunarakstur á virkum dögum Einn ökumaður var tekinn úr umferð í Reykjavík i nótt fyrir að aka undiR áhrifum fíkniefna, en fíkniefnaakstur virðist vera orðinn algengari á virkum dögum en ölvunarakstur. 26.1.2011 08:32
Lögreglan vildi ekki hneyksla almenning Hæstiréttur felldi úr gildi í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni á þrítugsaldri sem var handtekinn á Leifsstöð með um 4 kg af fíkniefnum í ferðatösku. Lögreglan krafðist þess að maðurinn yrði í gæsluvarðhaldi til að særa ekki réttarvitund almennings og valda hneykslun í samfélaginu. 25.1.2011 22:32
Gerir það gott í Hollywood Nánast önnur hver manneskja í Hollywood er leikari svo lífsbaráttan snýst um að vinna sig áfram og þá gildir dugnaður, ákveðni og vinnusemi," segir Andrea Ösp, sem hefur búið í Los Angeles í þrjú ár. 25.1.2011 21:30
Peter Habeler með fyrirlestur um háfjallagöngur Peter Habeler, einn frægasti fjallgöngumaður allra tíma, verður heiðursgestur og fyrirlesari á ráðstefnu 66°Norður og Félags Íslenskra Fjallalækna um háfjallagöngur sem verður haldin í Háskólabíói á morgun, miðvikudaginn 26. janúar kl. 20. 25.1.2011 21:30
Segir íhaldið hrætt við auðlindaákvæði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í lokaræðu sinni á Alþingi í kvöld að íhaldið væri „skíthrætt" við að komið yrði á ákvæði í stjórnarskrá um að auðlindirnar eigi að vera í þjóðareign. Það væri dapurlegt að það hlakki í stjórnarandstöðunni vegna ákvörðun Hæstaréttar. 25.1.2011 20:05
Sveik rándýran páfagauk af Furðufuglum Nítján ára piltur hefur verið ákærður fyrir fjölmörg þjófnaðar- og fjársvikamál. Meðal annars er hann ákærður fyrir að hafa svikið út páfagauk, búr og fóður fyrir rúmlega hálfa milljón úr versluninni Furðufuglum. Gaukurinn er af sjaldgæfri tegund, svokallaður grænvængjaður arnpáfi, og með dýrari fuglum í heimi. Hann sveik pilturinn út á stolið greiðslukortanúmer í gegnum síma og nefndi hann Húgó. 25.1.2011 00:01