Fleiri fréttir

Skerðing á þjónustu Strætó staðfest í borgarráði

Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar felldi tillögu Vinstri grænna um að koma í veg fyrir þjónustuskerðingu Strætó bs á borgarráðsfundi í dag þrátt fyrir að allmargir fulltrúar Besta flokksins, þar með talinn borgarstjórinn sjálfur hefðu fullyrt að þeir myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að tryggja óbreytta þjónustu.

Arnold fer aftur á hvíta tjaldið

Arnold Schwarzenegger, fyrrverandi ríkisstjóri í Kalíforníu, mun líklegast snúa sér að kvikmyndaleik á nýjan leik. Hann lét af embætti ríkisstjóra í byrjun ársins.

Eygló ósátt við aðkomu ríkisins að Sjóvá

„Eins og við sjáum á athugasemdum ESA þá virðist vera að okkur bar engin skylda til að standa í þessu, og þarna er í raun verið að yfirfæra skuldir sem hefðu lent á þeim sem voru með tryggingar hjá Sjóvá, yfir á alla skattgreiðendur," segir segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

Saksóknari líkti níumenningum við pólskt glæpagengi

Lára V. Júlíusdóttur, settur ríkissaksóknari, segir að árás níumenningana hafa verið fyrirframskipulögð og öryggi Alþingis hafri verið stefnt í hættu. Hún vísaði í Keilufellsmálið, þar sem hópur Pólverja réðust vopnaðir hnífum, sleggjum og hömrum inn í hús og misþyrmdu húsráðendum, máli sínu til stuðnings.

Ætlaði bara að vekja hræðslu

Muhammed Geele, 29 ára gamall maður frá Sómalíu, segist ekki hafa ætlað að drepa danska skopmyndateiknarann Knut Wester­gaard þegar hann réðst inn á heimili hans vopnaður öxi og hníf á nýársdag 2010.

Tekist á um forystusætið í VR

Það verður tekist á um leiðtogastólinn hjá VR á næstunni. Kosið verður um formennsku í félaginu í mars. Lúðvík Lúðvíksson tilkynnti um framboð sitt í gær en áður hafði Stefán Einar Stefánsson siðfræðingur tilkynnt um framboð.

Cameron vill sameinuð Norðurlönd

Forsætisráðherra Bretlands, David Cameron, hvatti Norðurlöndin til þess að mynda hagsmunabandalag á leiðtogafundi Bretlands, Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.

Telur of erfitt að segja upp ríkisstarfsmönnum

Full ástæða er til að breyta lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna til að auðvelda forstöðumönnum ríkisstofnana að segja upp starfsmönnum, að mati Ríkisendurskoðunar.

Ætti að forðast skærlituð föt

Hákarlar virðast vera litblindir samkvæmt rannsókn ástralskra vísindamanna. Þeir vonast til þess að upplýsingarnar nýtist til að verjast árásum hákarla á sundfólk og til að forða hákörlum frá því að festast í netum. Hákarlarnir skynja birtu en ekki liti, og þess vegna sjá þeir betur það sem er í skærum litum. „Kannski væri best að forðast flúorgular sundbuxur þegar fólk fær sér sundsprett," segir Dr. Nathan Scott Hart, forsvarsmaður rannsóknarinnar.

Rannsaka rusl við strendur landsins

Umhverfisráðuneytið, í samráði við Umhverfisstofnun, aflar nú upplýsinga um rusl og úrgang á ströndum hér við land og um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til við hreinsun stranda á undanförnum árum. Í þeim tilgangi hefur ráðuneytið sent öllum sveitarfélögum sem eiga land að hafi bréf þar sem þau eru beðin um að leggja mat á það hvort rusl á ströndum sé útbreytt vandamál innan sveitarfélagsins og hvort það ógni lífríki hafs og stranda, heilsu manna eða hafi önnur neikvæð áhrif á notkun strandarinnar. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins.

Njósnatölva fannst á þingi - hafa Wikileaks grunaða

Dularfull tölva fannst í húsnæði á vegum Alþingis í febrúar á síðasta ári sem grunur leikur á að hafi haft þann tilgang að brjótast inn í tölvur þingmanna og tölvukerfi Alþingis. Morgunblaðið greinir frá því að starfsmenn Alþingis hafi kallað lögregluna á höfuðborgarsvæðinu á sinn fund í febrúar í fyrra, eftir að fartölva fannst í auðu herbergi í húsnæði á vegum Alþingis við Austurstræti.

Leynilögga giftist umhverfisverndarsinna

Bresku lögreglumaður giftist og eignaðist börn með aðgerðarsinna sem hann átti að njósna um. Maðurinn starfaði á laun hjá lögreglunni innan hóps umhverfisverndarsinna. Maðurinn er fjórði lögreglumaðurinn sem upplýst hefur verið um í breskum fjölmiðlum sem starfaði á laun innan aðgerðarsinna.

Fjölskylda Ben Ali handtekin

Fjölskylda fyrrverandi forseta Túnis var handtekin þegar hún reyndi að fara úr landi í gærkvöldi samkvæmt fréttavef BBC. Alls voru 33 meðlimir fjölskyldunnar handteknir en forsetinn hefur þegar flúið land eftir óeirðir þar í landi.

Peningakassinn verðmætari en innihaldið

Innbrot var framið í verslun í miðborginni í nótt og þaðan stolið sjóðsvél, eða peningakassa, í heilu lagi. Talið er að í honum hafi verið um það bil tíu þúsund krónur í skiptimynt, en kassinn er margfalt þess virði. Þjófurinn spennti upp hurð og komst þannig inn. Hann er ófundinn.

Fimmtán ára handtekin fyrir innbrot

15 ára piltur er nú vistaður á vegum lögreglunnar á Selfossi eftir að hann var handtekinn á Eyrarbakka í gærkvöldi vegna ráns sem hann framdi á Selfossi undir kvöld.

Spara á 540 milljónir í skólum Reykjavíkur

Draga á saman um helming í starfsemi bókasafna grunnskóla Reykjavíkur og skera niður námsráðgjöf um tíu prósent, samkvæmt nýrri fjárhagsáætlun menntasviðs borgarinnar. Auk þess á að lækka viðbótarstjórnendakostnað um tíu prósent, sem og kostnað vegna matráða í mötuneytum, við ritara og umsjónarmenn húsnæðis.

17 ára piltur í einangrun

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sautján ára pilti sem er grunaður um innbrot og þjófnað á töluverðum verðmætum í Reykjavík. Hann var handtekinn síðustu helgi og daginn eftir úrskurðaður í varðhald til föstudags.

Ræningjar handteknir í nótt

Tveir karlmenn um tvítugt frömdu rán í Bónus-vídeo við Smiðsbúð í Garðabæ undir miðnætti með því að hóta starfsstúlku með hnífi.

Segir það sérkennilegt að Gunnar gagnrýni

Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, hafnar gagnrýni Gunnars I. Birgissonar, bæjarfulltrúa og fyrrverandi bæjarstjóra, vegna veislu sem bæjarfulltrúar og nokkrir yfirmenn hjá bænum ásamt mökum sátu fyrir jól.

Formaður segir starf á áætlun

Róbert R. Spanó, formaður rannsóknarnefndar sem rannsaka á viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar í kjölfar ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi, segir starf nefndarinnar vera á áætlun.

Reyna að styrkja sambandið

Hu Jintao, forseti Kína, snæddi kvöldverð með Barack Obama Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu á þriðjudagskvöld. Þeir ræddu síðan betur saman í gærmorgun og héldu blaðamannafund á eftir. Þar fengu tveir bandarískir fréttamenn og tveir kínverskir að bera fram eina spurningu hver. Loks snæddu þeir aftur kvöldverð í gær.

Nemendur úr Verzló með hæstu einkunn

Þeir nemendur Háskóla Íslands (HÍ) sem koma úr Verzlunarskólanum mældust með hæstu meðaleinkunn í úttekt HÍ á nemendum fimm framhaldsskóla síðustu þrjú ár. Skólaárið 2009 til 2010 var meðaleinkunn þeirra 4.115 nemenda úr Verzlunarskólanum 7,04. Nemendur frá Menntaskólanum Hraðbraut, sem voru 692 talsins, mældust með lægstu meðaleinkunnina, 6,35.

Ólína segir kerfið vera að kyrkja byggðirnar

„Það má ekki dragast lengur að koma á gagngerum breytingum á fiskveiðistjórn okkar, kerfið er að kyrkja byggðirnar,“ sagði Ólína Þorvarðardóttir, Samfylkingu, á Alþingi í gær.

Fyrstu blokkirnar friðaðar

Mennta og menningarmálaráðherra hefur friðað fjölbýlishús við Hringbraut 35 til 41 og 43 til 49 í Reykjavík að tillögu Húsafriðunarnefndar.

Bandarísk fyrirtæki hirða neyðaraðstoð

Óttast er að íbúar Haítí fái í sinn hlut einungis brotabrot af tugmilljarða aðstoð eftir jarðskjálftann þar fyrir rúmu ári. Prófessor gagnrýnir harðlega að bandarísk stórfyrirtæki hirði megnið af aðstoðinni.

Virðist engan stuðning hafa

Jean-Claude Duvalier, fyrrverandi einræðisherra á Haítí, virðist ekki njóta mikillar hylli meðal íbúa landsins. Fundir til stuðnings honum hafa verið fámennir.

Stal snyrtitösku og klinki

Snyrtitösku og klinki var stolið úr bíl í Reykjanesbæ í morgun. Bíllinn var ólæstur og hafði þjófurinn rótað talsvert í bílnum. En það sem hann hafði upp úr krafsinu var snyrtitaska og smá klink. Þjófurinn fannst ekki.

Hákarlar hugsanlega litblindir

Hákarlar eru að öllum líkindum litblindir, samkvæmt ástralskri rannsókn. Vísindamenn sem rannsökuðu sautján mismunandi hákarla komust að því þeir hafa einungis eina frumu í augunum sem skynjar liti. Mennirnir hafa þrjár mismunandi frumur sem greina bláan, grænan eða rauðan lit, sem gerir flestum kleift að greina alla liti.

Pilturinn fundinn - losaði sig við hnífinn

Lögreglan á Selfossi fann 15 ára gamlan pilt, sem framdi vopnað rán á Selfossi í dag, innanbæjar á Eyrarbakka. Þar var pilturinn á rölti í bænum en ekki er vitað hvernig hann komst þangað, en grunur leikur á að hann hafi tekið strætó.

Umboðsmaður Alþingis sendir forsætisráðherra tóninn

Umboðsmaður Alþingis bendir forsætisráðherra á að stjórnvöld hafi haft tækifæri til aðhafast í Magma-málinu en sleppt því, í bréfi sem fréttastofa hefur undir höndum. Þá virðast hann draga það í efa að ríkisstjórnin viðhafi vandaða stjórnsýsluhætti.

Flestir hinna látnu eru konur og börn

Sprengja sem komið var fyrir í vegkanti varð að þrettán óbreyttum borgurum að bana í bænum Khoshamand í Afganistan í dag. Flestir sem fórust eru konur og börn.

„Það er alltaf von, ég ætla ekki að missa hana“

„Það fyrsta sem ég fékk að heyra þegar ég vaknaði aftur var: Þú ert ekkert að fara labba aftur,“ segir Pétur Kristján Guðmundsson sem féll fram af snjóhengju í Ausurríki á gamlárskvöld.

Beljan Glæta spáir Noregi sigri

Beljan Glæta frá Kotlaugum í Hrunamannahreppi hefur ekki klikkað í spádómum sínum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Svíþjóð. Hún hefur spáð Íslandi sigri í öllum leikjum mótsins og það hefur allt gengið eftir enda er Ísland taplaust á mótinu. En nú hefur Glæta tekið aðra stefnu og spái Noregi sigri í leiknum gegn Íslandi á morgun.

Skiptir um skoðanir á ESB reglulega

Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík segir í dagbók sinni á Facebook að hann skipti reglulega um skoðanir á Evrópusambandinu reglulega en hann sat kynningarfund um ESB í dag.

Leita áfram að 15 ára gömlum pilti sem framdi vopnað rán á Selfossi

Leit stendur enn yfir af 15 ára gömlum pilti sem framdi vopnað rán í verslun Samkaupa á Selfossi klukkan hálf sex í dag. Verið er að leita á Selfossi sem og í nálægum bæjum, svo sem Eyrarbakka, Stokkseyri og Hveragerði. Pilturinn ógnaði afgreiðslustúlku með hníf.

Finni og Dani unnu 47 milljónir í Víkingalottóinu

Finni og Dani voru með allar tölur réttar í Víkingalottóinu í kvöld. Þeir fá sitthvorar 47 milljónirnar í vasann. Tveir Íslendingar voru með fjórar tölur réttar í röð og fá þeir 100 þúsund krónur hvor.

Kemur vel til greina að taka hlutafélag af skrá

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir vel koma til greina að taka hlutafélag af skrá, skili menn ekki ársreikningum eins og mörg dæmi sýni. Það hefði í för með sér að eigendur félaganna bæru ótakmarkaða persónulega ábyrgð á rekstri og skuldum félaganna.

Bréfberinn sleppti að bera út bréfin

Um það bil þrjú hundruð manns í Grafarvogi fengu póst stimplaðan í sumar afhentan nú í vikunni ásamt afsökunarbréfi frá Íslandspósti. Starfsmaður Íslandspósts, sem nú hefur verið sagt upp, hafði sleppt því að bera út bréfin.

Vopnað rán á Selfossi: Sýndi afgreiðslustúlku hníf

Lögreglan á Selfossi leitar nú að manni sem framdi vopnað rán í verslun Samkaupa við Tryggvagötu á Selfossi klukkan hálf sex í dag. Þegar lögreglan fékk tilkynningu um ránið fór hún strax á vettvang en þá var ræninginn á bak og burt.

Sigurjón vísaði á forstjóra FME

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins sat í stjórn aflandsfélags sem hélt utan um kauprétti starfsmanna Landsbankans og hefur Sigurjón Þ. Árnason vísað á hann í skýrslutökum hjá embætti sérstaks saksóknara.

Leggjast gegn staðgöngumæðrun

Starfshópur heilbrigðisráðuneytisins um staðgöngumæðrun leggjst gegn því að staðgöngumæðrun yrði heimiluð hér á landi. Í sama streng tekur siðfræðiráð Læknafélagsins. Þrátt fyrir þetta hafa nokkrir þingmenn, tveir fyrrverandi heilbrigðisráðherrar þar á meðal, lagt til að hún verði heimiluð. Forstöðumaður Siðfræðistofnunar, segir að enn sé mörgum spurningum ósvarað um staðgöngumæðrun.

Neitar að hafa ætlað að myrða skopmyndateiknarann

Maðurinn sem braust inn til skopmyndateiknarans, Kurt Westergaard, fyrir ári síðan neitaði fyrir rétti í Árósum í dag að hafa ætlað að myrða teiknarann. Hann er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Hann játaði þó að hafa brotist inn til hans með exi.

Röktu spor innbrotsþjófsins

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í Árbæ í gærkvöld en sá hafði brotist inn í hús í hverfinu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu tók þjófurinn fartölvu, myndavél og skartgripi en hinum stolnu munum var komið aftur í réttar hendur. Þjófurinn skildi eftir spor utan við húsið sem voru rakin eftir allnokkurn spotta.

73 of margir á hundrað manna vínveitingastað

173 gestir voru á einum þeirra vínveitingastaða sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði um síðustu helgi, en staðurinn hafði aðeins leyfi fyrir 100 gestum að hámarki.

Sjá næstu 50 fréttir