Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Notuðu sjúkrabíl í sjálfsmorðssprengjuárás Að minnsta kosti tólf eru látnir og rúmlega 60 slasaðir eftir bílsprengjuárás í miðhluta Íraks í dag. Ódæðismennirnir notuðu sjúkrabíl sem þeir höfðu fyllt sprengiefni og óku honum á lögreglustöð þar sem hann sprakk í loft upp. 19.1.2011 13:40
Jónína Ben aftur komin á topp 10 Almanak Háskóla Íslands 2011 er mest selda bókin í íslenskum bókaverslunum samkvæmt lista sem Rannsóknasetur verslunarinnar hefur tekið saman fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda. Listinn nær yfir fyrstu tvær vikur ársins og þarf því engan að undra að almanaksbók tróni þar á toppnum. 19.1.2011 13:30
Vestfirðingar buðu lægst í Vestfjarðaveg Verktakafyrirtækið KNH á Ísafirði átti lægsta boð í gerð nýs vegar um Skálanes á sunnanverðum Vestfjörðum, en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. KNH býðst til að leggja veginn fyrir 116 milljónir króna, sem er 68 prósent af kostnaðaráætlun, en hún hljóðar upp á 170 milljónir króna. 19.1.2011 12:08
FME hafði ekki heimild til að rannsaka brotin segir verjandi Sigurjóns Verjandi Sigurjóns Þ. Árnasonar telur að rannsókn sérstaks saksóknara á meintum brotum Sigurjóns sé ekki lögleg því Fjármálaeftirlitinu hafi ekki verið heimilt að rannsaka málið og vísar hann meðal annars til laga um rannsóknarnefnd Alþingis til að rökstyðja það, en rannsóknin grundvallast á kæru frá Fjármálaeftirlitinu. 19.1.2011 12:01
Staðgöngumóðir Jóels fékk 300 þúsund Indverska konan sem gekk með barn fyrir íslenskt par nýlega, vill halda staðgöngumæðrun áfram. Hún fékk um þrjú hundruð þúsund krónur í sinn hlut. Staðgöngumæðrun fer mjög vaxandi á Indlandi og eru dæmi um að greiðsla fyrir meðgöngu nemir margföldum árslaunum indverskrar fjölskyldu. 19.1.2011 12:01
Opinber tvíræðni í samningaferlinu að ESB Engin áform eru uppi um stofnun greiðslustofnun í landbúnaði, segir sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytið, þrátt fyrir að sótt hafi verið um sérfræðistyrki til ESB með milligöngu utanríkisráðuneytisins til að undirbúa slíka stofnun hér á landi. 19.1.2011 11:50
Níumenningar: Össur ber vitni fyrir dómi Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra segist hafa heyrt meiri læti í dómsal en þegar níumenningarnir, ásamt um 30 öðrum, þustu inn í Alþingi þann 8. desember 2008. Össur bar vitni í dag ásamt Einari K. Guðfinnssyni. 19.1.2011 11:50
Ófært að sinna fíkniefnaeftirliti vegna niðurskurðar Lögreglan á Akranesi hefur lítil tök á því að sinna markvissu eftirliti á borð við fíkniefnaeftirlit, þar sem ekki er hægt að tryggja öryggi lögreglumanna við slík störf, vegna niðurskurðar. Þetta kemur fram í ályktun sem Lögreglufélag Akraness sendi frá sér í gær. Í ályktuninni mótmælir 19.1.2011 11:36
Kúabú sektað fyrir brot á dýraverndarlögum Kúabú á Norðurlandi hefur verið sektað um 50 þúsund krónur að vanrækja að tryggja kúnum á búinu lögbundna átta vikna útiveru yfir árið. Matvælastofnun Íslands kærði níu kúabú til lögreglunnar fyrir brot á reglum um nautgripahald og lög um dýravernd. Kærurnar voru lagðar fram til lögregluembætta víðs vegar um landið í lok nóvember þar sem rökstuddur grunur var um að níu kúabú hefðu vanrækt að tryggja kúnum lögbundna útiveru. Rannsókn stendur enn yfir í sex málanna en rannsókn er ekki hafin í einu þeirra. 19.1.2011 11:34
Ríkisstarfsmenn sjaldan áminntir í starfi Það er afar fátítt að ríkisstarfsmenn séu áminntir í starfi, samkvæmt nýrri könnun Ríkisendurskoðunar. Slík áminning er þó forsenda þess að hægt sé að segja starfsmanni upp. 19.1.2011 11:00
Níumenningarnir: Lögga kölluð fífl í réttarsal Gert var hróp að lögreglumanni sem bar vitni fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í dag. "Þið munið aldrei neitt. Andskotans fífl," kallaði einn af áhorfendum í salnum en vitnisburður lögreglunnar hefur síst varpað skýrara ljósi á hvað átti sér stað þegar hin meinta árás á Alþingi var gerð. 19.1.2011 10:44
Árangurslaus leit að Matthíasi Eftirgrennslan eftir Matthíasi Þórarinssyni hefur enn engan árangur borið og fáar vísbendingar hafa borist um hvar hann gæti verið niðurkominn. „Við erum búnir að vera að púsla og fylla inn í púsluspilið, en raunverulega hefur það ekki borið neinn árangur. Við höfum fengið fáar vísbendingar um ferðir hans,“ segir Ágúst Svansson 19.1.2011 10:36
Reykjanesbær vill undirbúa flutning Gæslunnar Reykjanesbær er reiðubúinn til samstarfs við innanríkisráðuneytið um hagkvæmniathugun og undirbúning þess að flytja Landhelgisgæsluna til Suðurnesja í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands. Þetta kemur fram í bókun sem samþykkt var á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ í gær. 19.1.2011 09:49
Áhugaverð umfjöllun um heilsu kvenna Á næstunni stendur Líf, styrktarfélag kvennadeildar Landspítala háskólasjúkrahúss, fyrir röð hádegisfyrirlestra i Háskólanum í Reykjavík, um málefni tengd heilsu kvenna. Fyrsti fundurinn verður í hádeginu í dag 19.1.2011 09:24
Aðalmeðferð í máli níumenningana hafin að nýju Réttarhöldin yfir níumenningunum hófust aftur nú laust eftir klukkan níu. Í gær báru sakborningar og þingverðir vitni en í dag mun rétturinn hlýða á vitnisburð lögreglumanna og þingmanna. Dómsalur 101 í héraðsdómi er þéttskipaður. 19.1.2011 09:20
Gjöfunum rigndi yfir Obama og frú Listi yfir þær gjafir sem bandarísku forsetahjónin þáðu árið 2009 frá öðrum þjóðarleiðtogum hefur verið gerður opinber. Strangar reglur gilda um allt það sem bandaríski forsetinn fær að gjöf og eru þær allar geymdar á Þjóðskjalasafni Bandaríkjanna. 19.1.2011 08:19
Gæsluvarðhald yfir Sigurjóni - Jón Steinar á móti Jón Steinar Gunnlaugsson Hæstaréttardómari skilaði séráliti og lagðist gegn gæsluvarðhaldi yfir Sigurjoni Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, þegar Hæstiréttur tók í gær fyrir kæru vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar Héraðsdóms. Þetta kemur fram á heimasíðu Viðskiptablaðsins en úrskurðurinn hefur ekki verið birtur. 19.1.2011 08:16
Barnaníðingur fær 80 ár - misnotaði barn hér á landi Fyrrverandi starfsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins og sjóhersins var í gær dæmdur í áttatíu ára fangelsi fyrir barnaníð. 19.1.2011 08:14
Sterkur skjálfti í Pakistan Öflugur jarðskjálfti, sem mældist 7,2 á Richter skalanum, reið yfir Pakistan í gærkvöldi. Upptök skjálftans voru á óbyggðu svæði nærri afgönsku landamærunum og benda fyrstu fréttir til þess að skemmdir af völdum hans séu ekki miklar. 19.1.2011 08:09
Rammi kærir rækjumálið til Hæstaréttar Útgerðarfyrirtækið Rammi á Siglufirði hefur ákveðið að kæra niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í gær til Hæstaréttar, að því er fram kemur á heimasíðu Landssambands íslenskra útvegsmanna. 19.1.2011 08:08
Vilja ákæra Baby Doc Fyrrverandi einræðisherra á Haítí, Baby Doc Duvalier, sem á sunnudag snéri aftur til síns heima eftir áratugi í útlegð, hefur verið kærður fyrir spillingu og fjárdrátt í valdatíð sinni. 19.1.2011 08:06
Flóðin ógna bæjum í Viktoríu Öllum íbúum í bænum Kerang í Viktoríuríki í Ástralíu hefur verið fyrirskipað að yfirgefa heimili sín en óttast er að flóð muni skella á honum í dag. Eftir að regninu slotaði í Queensland ríki hefur byrjað að rigna í Viktoríuríki í staðinn og þegar hefur átta ára drengur látist í flóðunum. Íbúm í Kerang er sagt að líklegast muni bærinn einangrast vegna flóðanna í að minnsta kosti fimm daga. 19.1.2011 08:03
Vilja selja ríkinu land og auðlindir á Reykjanesi Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Reykjanesbæ vilja selja ríkinu land og jarðauðlindir, sem Reykjanesbær keypti af HS orku á sínum tíma, og yrði auðlindin þar með þjóðareign, segir í yfirlýsingu bæjarfulltrúanna um málið. 19.1.2011 08:01
Tilkynnt um tvö innbrot Brotist var inn í verslun við Laugaveg í Reykjavík eftir miðnætti. Ekki liggur fyrir hverju var stolið, en þjófurinn komst undan. 19.1.2011 08:00
Toppar í jólaveislu en tölvuskeyti á óbreytta Kostnaður vegna veislu sem bæjarstjórn Kópavogs hélt á Þorláksmessu fæst ekki uppgefinn á bæjarskrifstofnum. Að sögn Örnu Schram upplýsingafulltrúa liggja þessar upplýsingar enn ekki fyrir. 19.1.2011 08:00
Endurlífga útdauða tegund Japanskir vísindamenn ætla að freista þess að vekja loðfíla til lífsins á ný, tíu þúsund árum eftir að sú dýrategund leið undir lok. 19.1.2011 08:00
Staurabani á Selfossi Óþekktur ökumaður ók niður ljósastaur í útjaðri Selfoss í gærkvöldi og var kona rétt búin að aka á staurinn, sem lá þvert yfir veginn. Ökumaðurinn óþekkti hafði þá stungið af, en grillið og fleira smálegt framan af bílnum, lá eftir á vettvangi þannig að vitað er hvernig bíll þetta er og bíður lögreglan nú þess að staurabaninn gefi sig fram. 19.1.2011 07:59
Myndbútur að vali þingvarðar í dómi Yfirþingvörður í Alþingishúsinu ákvað upp á eigin spýtur að velja og geyma stuttan kafla úr öryggismyndavél, þar sem sjá mátti nímenningana hópast inn í Alþingishúsið 8. desember 2008. Aðrar upptökur, fyrir og eftir atburðinn, voru ekki varðveittar og eyddust sjálfkrafa á viku til tíu dögum. 19.1.2011 07:15
Karlmenn skrifa um jafnrétti Karlmenn fá tækifæri til að taka þátt í umræðunni um jafnréttismál bæði í Fréttablaðinu og á Vísi í árveknisátakinu Öðlingnum 2011. Átakið stendur í einn mánuð, hefst á bóndadaginn, 21. janúar, og lýkur á konudaginn, 20. febrúar. 19.1.2011 07:00
Óttast að ný borgarastyrjöld brjótist út Stuðningsmenn Hezbollah-samtakanna söfnuðust saman á nokkrum stöðum í Beirút, höfuðborg Líbanons, í gær, daginn eftir að fyrsta ákæran var lögð fram hjá Alþjóðlega sakadómstólnum í Haag vegna morðsins á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra. 19.1.2011 07:00
Mótmælendur kveikja í sér Ungur atvinnulaus maður lést á sjúkrahúsi í Egyptalandi í gær. Hann hafði kveikt í sjálfum sér í hafnarborginni Alexandríu, augljóslega að fyrirmynd annars ungs manns, Mohameds Bouazizi, sem kveikti í sér í Túnis í desember og hratt af stað uppreisn gegn stjórn forsetans þar í landi. 19.1.2011 07:00
Lítið að hafa á gulldeplunni Lítið er að hafa af gulldeplu á miðunum í Grindavíkurdjúpi. Sex skip stunda veiðarnar um þessar mundir. 19.1.2011 07:00
Kanna hvort lögregla vissi um flugumann Innanríkisráðuneytið mun kanna hvort íslensk löggæsluyfirvöld hafi vitað að flugumaður breskra löggæsluyfirvalda hafi komið hingað til lands á fölskum forsendum árið 2005. 19.1.2011 06:45
Hélt fólki nauðugu með hnífi á Hvanneyri Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á þrítugsaldri fyrir að halda þremur einstaklingum nauðugum inni á herbergi á Hvanneyri í Borgarbyggð. Atvikið átti sér stað aðfaranótt föstudagsins 24. september 2010. 19.1.2011 06:30
Bensín- og olíugjöld myndu lækka Við upptöku veggjalda, til að standa straum af kostnaði af umfangsmiklum vegaframkvæmdum á suðvesturhluta landsins, var ætlunin að lækka olíu- og bensíngjöld. 19.1.2011 06:15
REI-athugun tafin í tvö ár Umboðsmaður Alþingis sendi borgarstjórn Reykjavíkur bréf um áramót þar sem hann krefst svara við því „hvort teknar hafi verið einhverjar ákvarðanir eða gripið til einhverra viðbragða sem eru til þess fallin að koma í veg fyrir að sú staða sem kom upp í [REI-málinu] endurtaki sig.“ 19.1.2011 06:00
26 milljarðar koma til greiðslu í ár Áætlanir um greiðslur til Breta og Hollendinga vegna Icesave-samningsins miða við að 26 milljarðar króna komi til greiðslu úr ríkissjóði í ár. 19.1.2011 06:00
Beðið viðbragða frá stjórnvöldum Samtök atvinnulífsins (SA) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) undirrituðu á mánudag viðræðuáætlun um sameiginleg mál, en samkvæmt því skal ríkissáttasemjari taka að sér stjórn viðræðna vísi eitthvert aðildarsamtaka ASÍ kjaradeilu sinni til hans. 19.1.2011 05:00
Ingó í Veðurguðunum: Einn af þeim sem allir kunnu vel við „Hann var ótrúlega frábær náungi, rosalega glaðlegur og vinalegur og alltaf í góðu skapi,“ segir Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó í Veðurguðunum, vinur Sigurjóns Brink sem var bráðkvaddur á heimili sínu í gær. 18.1.2011 22:25
Vilja að ríkið kaupi land HS orku Reykjanesbær ætlar að bjóða ríkinu að kaupa land bæjarins sem HS orka nýtir fyrir virkjun sína á Reykjanesi. Með því komist landið og þær jarðauðlindir sem því fylgir í ríkiseigu. Tillaga þessa efnis var lögð fram í bæjarstjórn Reykjanesbæjar í dag. 18.1.2011 22:39
Bílvelta við Brúará: Farþegi kastaðist út úr bílnum Ökmaður bifreiðar missti stjórn á bíl sínum á Biskupstungnabraut við Brúará um hálf þrjúleytið í dag. Sex voru í bílnum og kastaðist einn farþegi út um afturrúðu bílsins og hlaut skurð á höfði. 18.1.2011 21:22
Varasamt að senda SMS - datt ofan í gosbrunn Það getur verið vandasamt að senda SMS og ganga í leiðinni. Sérstaklega ef að stærðarinnar gosbrunnur verður á vegi þínum. Meðfylgjandi myndskeið gengur nú eins og eldur í sinu um netheima en þar sést ung kona fljúga á hausinn ofan í gosbrunn í verslunarmiðstöð. 18.1.2011 21:00
Fangar fá ljósabekki Fangar í rússneska fangelsinu Butyrskaya í Moskvu hafa löngum búið við heldur frumstæðar aðstæður. Nú verður þó bragarbót gerð þar á því fangarnir fá brátt að sóla sig í ljósabekkjum sem settir verða upp í fangelsinu. 18.1.2011 21:00
Skaut á samnemendur sína Að minnsta kosti þrír eru særðir eftir að nemandi í skólanum Gardena High School í Los Angeles hóf skothríð í dag. Talsmaður lögreglunnar segir að einn maður sé í haldi grunaður um verknaðinn. 18.1.2011 20:48
Bráðsmitandi pest með svæsnum uppköstum og niðurgangi Heilbrigðsstofnun Suðurnesja, tvö hjúkrunarheimili og Landakot taka ekki lengur á móti sjúklingum vegna bráðsmitandi niðurgangspestar, og nauðsynlegt gæti verið að endurskoða heimsóknartíma á Landspítalanum. Þar er álagið slíkt að gangar og setustofur eru nýttar undir sjúklinga. 18.1.2011 20:07