Fleiri fréttir

Clinton tókst á við framíkallara -myndband

Bill Clinton hefur alltaf þótt með snjallari ræðumönnum. Hann er einnig þekktur fyrir að halda ró sinni þegar eitthvað gengur á. Hann átti því ekki í neinum sérstökum vandræðum þegar einhver dólgur reyndi að, trufla með framíköllum þegar forsetinn fyrrverandi var að flytja ræðu í St. Petersburg í Flórída á dögunum.

Krikketmógúll vísar Íslandsáhuga á bug

Lögmaður indverska krikketmógúlsins Lalit Modi hefur nú vísað því á bug sem helberum lygum að Modi vilji fá íslenskan ríkisborgararétt. Mikið hefur verið fjallað um málið á Indlandi síðustu daga en fullyrt var í fjölmiðlum að Modi hafi ætlað að reyna að nota góð tengsl eiginkonu sinnar, Minal Modi, við Dorit Moussaieff forsetafrú til að útvega sér dvalarleyfi á Íslandi.

Fimm mánaða fangelsi fyrir hnífaárás

Tvítugur karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á mann með hnífi og veita honum áverka. Árásin var gerð í heimahúsi í Kópavogi í byrjun apríl 2008. Pilturinn sem ráðist var á hlaut skurði í hársverði, á vinstri öxl og sár á hægri síðu.

Heimili og skóli: Niðurskurður harmaður

Stjórn Heimilis og skóla fagnar þeim orðum mennta- og menningarmálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur að fyrir þjóð sem er að byggja sig upp skipti öflugt menntakerfi sköpum. Í tilkynningu frá samtökunum segir að ráðherra hafi sent bréf þess efnis til skóla á öllum skólastigum, sveitarfélaga, skólanefnda, foreldrafélaga og ýmissa hagsmunaaðila á dögunum.

Tilkynnt um færri nauðganir

Tilkynnt hefur verið um færri nauðganir það sem af er ári en á sama tíma í fyrra. Fyrstu níu mánuði ársins var embætti ríkislögreglustjóra tilkynnt um 40 nauðganir. Á sama tíma í fyrra höfðu embættinu borist 47 tilkynningar og 48 árið þar á undan.

Sólskinsdrengurinn fékk heiðursverðlaun

Sólskinsdrengurinn, heimildarmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar um einhverfa drenginn Kela, vann til Heiðursverðlauna á Voice-verðlaunahátíðinni sem voru afhent í Paramount Studios í Hollywood. Friðrik gat ekki veitt verðlaununum viðtöku en hann var að kynna síðustu mynd sína Mömmu Gógó í Suður-Kóreu.

Deilt um skuldastöðu heimilanna

Stjórnvöld hafa ekki gert neina könnun á stöðu heimilanna síðan að Seðlabanki Íslands gerði slíka könnun í byrjun árs 2009. Eftir því sem Vísir kemst næst er ástæðan ágreiningur um það hvort gera eigi einfalda könnun sem yrði nokkuð sambærileg við þá könnun sem Seðlabankinn gerði þá eða hvort gera eigi flóknari könnun.

Fár vegna flugsýningar -myndband

Skipuleggjendur flugsýningar í San-Francisco um síðustu helgi hafa verið harðlega gagnrýndir vegna lágflugs breiðþotu yfir borgina.

Lögreglan lýsir eftir stolnu fjórhjóli

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að fjórhjóli sem stolið var úr húsnæði fyrirtækis við Fossaleyni í Grafarvogi fyrir hálfum mánuði. Að sögn lögreglu er um að ræða Polaris Sportsman 800, grænt og svart að lit, skráningarnúmer SO-G77.

Farþegarnir útskrifaðir í dag

Farþegarnir fimm, sem fluttir voru veikir á sjúkrahús úr erlendri farþegaþotu, sem lenti óvænt á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir klukkan sjö í morgun, eru allir á batavegi og verða útskrifaðir í dag.

Efast um að mjólkurhristingur bæti sjónina

Fjöldinn allur af fullyrðingum hellist yfir þjóðina, margar þeirra eru þó óleyfilegar. Þetta segir prófessor í matvæla- næringarfræði við Háskóla Íslands og kallar eftir viðbörgðum eftirlitsaðila.

Fyrningarfrumvarp réttarbót - en vextir hækka

Vextir á almennum lánamarkaði munu hækka verði frumvarp um fyrningu gjaldþrots samþykkt á Alþingi. Þingmaður framsóknarflokks telur að frumvarpið feli í sér víðtæka réttarbót fyrir skuldara.

Börnum fækkar í Þjóðkirkjunni

Börnum og unglingum sem skráð eru í Þjóðkirkjuna hefur fækkað á undanförnum árum. Nú eru 80 prósent barna og unglinga 17 ára og yngri skráð í Þjóðkirkjuna. Árið 2000 var þetta hlutfall 90 prósent. Fækkunin nemur því 12,5 prósentum

Arabiskur prins í lífstíðar fangelsi

Saudi-Arabiskur prins hefur verið dæmdur lífstíðar fangelsi í Bretlandi fyrir að misþyrma og myrða þjón sinn á hóteli í Lundúnum. Prinsinn er 34 ára gamall. Afi hans er bróðir konungs Saudi-Arabíu.

Vilja viðræður um fríverslunarsamning við BNA

Utanríkisráðherra mun óska eftir viðræðum við ríkisstjórn Bandaríkja Norður-Ameríku um gerð tvíhliða fríverslunarsamnings milli Íslands og Bandaríkjanna, verði þingsályktunartillaga fjögurra þingmanna þessa efnis samþykkt.

Selja unglingum tóbak

Unglingarnir í Hafnarfirði gátu keypt sígarettur i 27% tilfella í september og í 17% tilfella sem börnin reyndu að kaupa neftóbak tókst þeim það.

Fjórtán manns skotnir í Malmö

Sænska lögreglan gerir nú mikla leit að manni sem hefur skotið fjórtán manns af handahófi undanfarna daga. Þrír voru skotnir í nótt.

Fjögur fíkniefnabrotamál á dag

Um fjögur fíkniefnabrotamál komu til kasta lögreglunnar á hverjum degi að meðaltali í september síðastliðnum, samkvæmt tölfræði Ríkislögreglustjóra sem kom út í dag. Brotin voru alls 119 talsins. Þau voru um 30% færri í fyrra en um 30% fleir árið 2008. Flest voru brotin á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og á Akureyri.

Konur lifa í 83 ár

Meðalævilengd kvenna var 83,3 ár í fyrra en 79,7 ár hjá körlum, samkvæmt upplýsingum í Landshögum 2010, árbók Hagstofunnar, sem kemur út í tuttugasta sinn í dag, á Alþjóðadegi hagtalna sem haldinn er að tilstuðlan Sameinuðu þjóðanna.

Bandaríkjaher tekur inn samkynhneigða nýliða

Bandaríkjaher er farinn að taka við samkynhneigðum nýliðum eftir að dómari í Kaliforníu felldi úr gildi reglur hersins um að samkynhneigðum hermönnum bæri að þegja um kynhneigð sína.

Verkföll og mótmæli halda áfram í Frakklandi

Franskir verkamenn ætla að halda áfram verkföllum sínum og mótmælaaðgerðum í dag, sjöunda daginn í röð. Því er reiknað með áframhaldandi öngþveiti og bensínskorti í landinu.

Gleymdu lögum um þjóðaratkvæði

„Ég er að leggja þetta fram til að þjóðin fái að segja álit sitt á málinu,“ segir Vigdís Hauksdóttir, fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu sjö þingmanna úr öllum flokkum nema Samfylkingu um þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins.

Þjófur laus þrátt fyrir myndbirtingu

Þjófur sem stal jakka með veski, síma, myndavél og öðrum verðmætum á Ölstofunni aðfaranótt sunnudags gengur enn laus þrátt fyrir að myndband af þjófnaðinum hafi verið birt á Netinu í gær.

Heilbrigðisþjónusta er mannréttindi

Dr. Brigit Toebes, lagaprófessor og virtur fræðimaður á sviði heilbrigðisréttar og alþjóðlegrar mannréttindaverndar, segir fyrirhugaðan niðurskurð í íslenska heilbrigðiskerfinu verða að taka mið af mannréttindum. Toebes heldur fyrirlestur á vegum lagadeildar Háskólans í Reykjavík á morgun þar sem hún ræðir meðal annars sparnað í heilbrigðiskerfinu, hagræðingu og einkavæðingu og hvernig það tengist mannréttindum.

Ættleiðingar á sjöunda tuginn

Alls var 61 barn ættleitt hér á landi í fyrra, sem er nokkur fækkun frá árinu þar á undan samkvæmt samantekt Hagstofunnar. Sautján börn voru ættleidd frá útlöndum. Árið áður voru þau þrettán.

Óvíst hvenær Landeyjahöfn opnast

„Maður bara horfir upp í himininn,“ er fyrsta svar Sigmars Jónssonar, hafnarvarðar í Landeyjahöfn, þegar hann er spurður hvað hann fáist við á meðan Vestmannaeyjaferjan Herjólfur kemst ekki inn í höfnina vegna sands í innsiglingunni.

Úr 87 þúsund tonnum í 6.500

„Þetta var óumflýjanleg niðurstaða. Hún hafði verið í kortunum lengi,“ segir Kristján Freyr Helgason, formaður samninganefndar Íslands, á fundi í London þar sem kolmunnakvóti næsta árs var ákveðinn.

Hissa á skiptum skoðunum

Það kom sumum úr hópi fyrrverandi Evrópuþingmanna sem hittu Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að máli á mánudag, á óvart að mjög skiptar skoðanir eru innan ríkisstjórnar og Alþingis um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.

Ísland er óviðbúið árásum tölvuþrjóta

Engar varnir gegn tölvuárásum sem gagn er að eru til staðar hér á landi, þrátt fyrir að ítrekað hafi verið bent á þörf fyrir þær. Tölvuárásir gætu lamað samskipti í gegnum Netið, og jafnvel haft áhrif á hluta símkerfisins.

Tillögur um bönn ekki úthugsaðar

Formaður mannréttindaráðs Reykjavíkur segir margt of óljóst í tillögum meirihluta ráðsins um breytingar á samstarfi kirkju og skóla í Reykjavík.

Samkynhneigð ekki falin meir

Bandaríska hermálaráðuneytið gaf í gær út fyrirmæli um að nú megi taka homma og lesbíur í herinn, jafnvel þótt þau fari ekki dult með kynhneigð sína.

Harka færist í mótmælin

Grímuklædd ungmenni tókust á við lögreglu í nokkrum borgum Frakklands í gær, þar sem fjöldi fólks hefur mótmælt áformum stjórnvalda um að hækka eftirlaunaaldur.

Ekki stætt á banni lengur

Reglur Evrópusambandsins gera það að verkum að Norðmenn geta ekki mikið lengur komið í veg fyrir áfengisauglýsingar á sjónvarpsstöðvum, sem senda út í öðrum löndum, jafnvel þótt útsendingin sé einkum ætluð áhorfendum í Noregi.

Sjá næstu 50 fréttir