Erlent

Ekki stætt á banni lengur

Reglur Evrópusambandsins gera það að verkum að Norðmenn geta ekki mikið lengur komið í veg fyrir áfengisauglýsingar á sjónvarpsstöðvum, sem senda út í öðrum löndum, jafnvel þótt útsendingin sé einkum ætluð áhorfendum í Noregi.

Norðmönnum hefur ekki tekist að fá undantekningar þar að lútandi frá þriggja ára gamalli tilskipun Evrópusambandsins um hljóð- og myndfjölmiðla, og verða nú að innleiða tilskipunina hið fyrsta.

Í norska dagblaðinu Aften­posten, sem skýrði frá þessu í vikunni, segir að úr því öll aðildarríki sambandsins hafi verið sammála um þetta fyrirkomulag, þá sé ekki hægt að veita Norðmönnum neina sérmeðferð.- gb



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×