Fleiri fréttir

Neitar að svara spurningum

Maðurinn sem lögreglan í Kaupmannahöfn handtók í gær vegna sprengjutilræðis á hóteli í miðborginni neitar svara spurningum í yfirheyrslum. Lögreglan hefur því ekki enn ekki fundið út hvort hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk eða ekki. Hann liggur á ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn en hann særðist þegar sprengjan sprakk á hótel Jörgensen, skammt frá Nörreport, í gær. Honum er lýst sem enskumælandi, með Miðjarðarhafshreim.

Á 166 kílómetra hraða við Selfoss

Ungur ökumaður var stöðvaður á ofsahraða austan við Selfoss á fjórða tímanum í nótt. Ökumaðurinn, sem fékk bílpróf í vor, mældist á 166 kílómetra hraða.Hann var færður á lögreglustöðina á Selfossi þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Ökumaðurinn ungi á yfir höfði sér háa sekt.

Betur fór en á horfðist þegar bíll valt

Betur fór en á horfðist þegar tveir menn sluppu án meiðsla þegar bíl sem þeir voru í valt við gatnamót Hringbrautar og Bústaðavegar í nótt. Að sögn lögreglu var aðkoman afar slæm og þurfti að loka veginum um stund. Ökumaðurinn, karlmaður á miðjum aldri, er ekki grunaður um ölvun en talið er að hraðakstur sé orsök slyssins. Bíllinn er ónýtur.

Hillir undir byltingu í endurgreiðslu lyfja

Allt bendir til þess að nýtt endurgreiðslukerfi lyfja verði tekið upp um áramótin, að sögn Álfheiðar Ingadóttur, fráfarandi heilbrigðisráðherra, í ítarlegu helgarviðtali. Endurskipulagning, ekki flatur niðurskurður, verður höfð að leiðarljósi til að ná markmiðum fjárlaga innan heilbrigðiskerfisins á næsta ári.

Niðurstöðu um ábyrgð ráðherranna vænst í dag

Þingnefnd sem Alþingi skipaði til að fjalla um mögulega ábyrgð ráðherra vegna efnahagshrunsins árið 2008 mun skila Alþingi niðurstöðu sinni klukkan 17 í dag. Nefndin getur lagt það til við Alþingi að ákveðnir ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm.

Vilja kaupa hitaveitu til baka

Bæjarstjórn Hveragerðis vill kaupa til baka hitaveitu bæjarins sem seld var Orkuveitu Reykjavíkur árið 2004.

Íslendingur vinnur náið með Angelinu

Jón Björvinsson starfar sem kvikmyndatökumaður og ljósmyndari um allan heim meðal annars á vegum Flóttamannastofnunarinnar. Hann starfar náið með leikkonunni Angelinu Jolie eins og sjá má

Stofninn minni en áætlað var

Rjúpnaveiðimenn veiddu á síðasta ári 94.000 fugla, 23.000 fleiri en Náttúrufræðistofnun Íslands, NÍ, ráðlagði. Rjúpnaveiðimenn veiddu einnig meira en ráðlagt var árin 2005 og 2006. Þessi umframveiði og gallar í útreikningum á hversu mikið má veiða gera það að verkum að hætta er á ofveiði á rjúpum segir Ólafur K. Nielsen vistfræðingur hjá NÍ í tímaritinu Skotvís.

Ekkert hæft í ásökunum

Bandaríkjastjórn tekur undir með írönskum stjórnvöldum, sem segja ekkert hæft í fullyrðingum stjórnarandstæðinga í Írak um að leynileg úranauðgunarstöð sé í smíðum neðanjarðar skammt frá Qazvin, um 120 kílómetra vestur af höfuðborginni Teheran.

Tókst ekki að róa sig niður

Rúmlega fertugur íbúi í Solingen í Þýskalandi forðaði sér hið snarasta þegar kona kom auga á hann, þar sem hann var nakinn á kvöldgöngu.

Stefnir í að fæðingum fækki aftur í ár

Aldrei hafa fæðst fleiri börn á einu ári hér á landi en á síðasta ári, þegar 5.027 börn komu í heiminn. Samkvæmt samantekt Hagstofunnar fæddust alls 2.466 stúlkur og 2.561 drengur árið 2009. Þetta er 111 börnum fleira en fyrra met frá árinu 1960, þegar 4.916 börn fæddust, og 192 fleiri en fæddust árið 2008.

Reykvískir skólar endurvinna

Leik- og grunnskólar borgarinnar hafa hafið átak til að draga úr magni sorps sem fellur til frá þeim. Þetta verður gert með því að flokka sorp og endurnýta í meiri mæli.

Árása minnst vestanhafs

Að venju hafa Bandaríkjamenn skipulagt ýmsar minningarathafnir 11. september þetta árið, þegar níu ár eru liðin frá árás hryðjuverkamanna á landið. Meiri styr stendur þó um atburðina og ýmislegt þeim tengt þar vestra en áður.

Mikilvægt að bændur kynni sér ESB

„Sænskir bændur voru mjög fylgjandi aðild Svíþjóðar að Evrópusambandinu. Þegar þeir rákust á vegg skrifræðisins, sem var mun þyngra í vöfum en þeir bjuggust við, urðu þeir neikvæðir í garð sambandsins. Bændurnir hafa jafnað sig síðan þá enda hafa þeir notið góðs af byggðastefnu ESB,“ segir Mats Persson, forstjóri Landbúnaðarstofnunar Svíþjóðar.

Gleymdi að spyrja um áverka

Mistök voru gerð hjá Neyðarlínunni á fimmtudagskvöld þegar starfskona á KFC í Kópavogi hringdi þangað vegna þriggja starfsbræðra sinna sem brenndust af gufu úr potti. Mennirnir þrír komu sér sjálfir á bráðamóttöku.

Bara sumir eigenda fengu tjón sitt bætt

Fjölmörg dæmi um meintan galla í spíssum Land Cruiser 120 bifreiða hafa komið inn á borð Fréttablaðsins í kjölfar umfjöllunar blaðsins síðustu tvo daga.

Leit lögreglu bar ekki árangur

Leit að karlmanni sem grunaður er um að hafa sýnt barni ósæmilega kynferðislega hegðun í Laugardalshverfinu í Reykjavík var hætt þegar Vísir hafði samband við lögreglu laust eftir klukkan átta í kvöld. Hann hafði þá ekki fundist, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Tíu erlendir ferðamenn hætt komnir

Tíu erlendir ferðamenn voru hætt komnir þegar að bíll þeirra festist í Hólmsá á leið þeirra að Axarfossi á Mýrdalssandi í dag. Björgunarsveitirnar Stjarnan úr Skaftártungu og Björgunarsveitin Lífgjöf úr Álftaveri voru kallaðar út til

Meints barnaníðings leitað

Karlmanns, sem grunaður er um að hafa sýnt barni ósæmilega kynferðislega hegðun, er leitað þessa stundina í Laugardalshverfinu í Reykjavik.

Fyrsti réttardagur Sunnlendinga

Fyrsti réttardagur Sunnlendinga er í dag, en réttað var í Hrunaréttum, Skaftholtsréttum í Gnúpverjahreppi og Fossrétt á Síðu.

Hvatningarverðlaun ÍTR afhent

Jón Gnarr borgarstjóri afhenti í dag Hvatningarverðlaun íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar.

Norðlingaalda: 80% eru ógrónir melar

Áttatíu prósent af því landi sem fer undir Norðlingalón eru ógrónir melar, að mati Landsvirkjunar. Andstæðingar Norðlingaölduveitu segja Landsvirkjun hins vegar þegar búna að taka nóg af vatni Þjórsárvera.

Norðlingaalda: Vatn tekið af magnaðri fossaröð

Norðlingaölduveita skerðir vatn á einhverri mögnuðustu fossaröð landsins. Landsvirkjunarmenn segja að lítill munur verði á fossunum yfir hásumarið en friðunarsinnar segja þá breytast í vatnslitla klettaveggi.

Önnur sprenging í Kaupmannahöfn

Danskir fjölmiðlar segja að fyrir stundu hafi heyrst sprenging í Örstedsparket í Kaupmannahöfn þar sem lögreglan situr um mann sem talinn er hafa ætlað að gera sjálfsmorðssprengjuárás í borginni.

Veiðimaðurinn varð bráðin -myndband

Veiðimennirnir voru á sléttum Afríku að leita að hlébörðum. Og þeir fundu einn. Hlébarðinn snerist hinsvegar til varnar og réðist á einn veiðimanninn.

Gísli Tryggvason: Telur ríkið ekki verða skaðabótaskylt

Aðspurður segist Gísli Tryggvason talsmaður neytenda ekki vera þeirrar skoðunar að ríkið verði skaðabótaskylt ákveði Landsdómur að sakfella fyrrverandi ráðherra fyrir vanrækslu. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði í gær vandséð hvernig hægt væri að sakfella ráðherrana fyrir vanrækslu án þess að ríkið sjálft verði bótaskylt vegna afleiðinga meintra misgjörða þeirra.

Færeysk hómófóbía varpaði ekki skugga á heimsókn Jóhönnu

Ég varð vör við að margir Færeyingar sem ég hitti í þessari ferð voru miður sín vegna ummæla þessa manns,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á blaðamannafundi í Stjórnarráðshúsinu í morgun en þar var hún spurð út í opinbera heimsókn sína til Færeyja.

Gaskútum stolið í Mosfellsbæ

Tveimur gaskútum var stolið í Mosfellsbæ í gær. Að sögn lögreglu hafa allnokkur slík mál verið tilkynnt til lögreglunnar undanfarnar vikur en gaskútum hefur verið stolið á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Eigendur gaskúta ættu því að gera ráðstafanir ef þeir mögulega geta, ekki síst þeir sem eru með fellihýsi úti við og hafa ekki fjarlægt af þeim gaskútana.

Ólafur Ragnar hitti Íþróttaálfinn í Kína

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í gær setningarræðu á orkuráðstefnu sem haldin var í sýningarskála Íslands á heimssýningunni í Shanghai. Ráðstefnuna sóttu forystumenn orkumála víða að úr Kína ásamt stjórnendum orkustofnunar landsins sem og kínverskir sérfræðingar.

Viðar Már Matthíasson skipaður hæstaréttardómari

Viðar Már Matthíasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, hefur samkvæmt tillögu Ögmundar Jónassonar dómsmála- og mannréttindaráðherra verið skipaður dómari við Hæstarétt Íslands frá og með deginum í dag, 10. september 2010.

Seltirningar breyta skipuriti

Meirihluti bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar samþykkti á bæjarstjórnarfundi á dögunum tillögu ráðgjafafyrirtækisins Capacent um nýtt skipurit yfirstjórnar sveitarfélagsins.

Sjómenn á Kanaríeyjum kaupa íslensk ullarnærföt

Þórir N. Kjartansson, framkvæmdastjóri Víkurprjóns hf., vinnur að því að afgreiða stærstu pöntun sem hann hefur fengið í áraraðir en sjómenn á Kanaríeyjum bíða nú eftir 400 settum af ullarnærfötum og 900 pörum af ullarsokkum.

Ögmundur ræður tvo aðstoðarmenn

Halla Gunnarsdóttir, blaðamaður, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar, í dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu. Ögmundur er einnig yfir samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu og hefur Einar Árnason hagfræðingur verið ráðinn aðstoðarmaður Ögmundar þar. Þau hafa bæði hafið störf.

Perlan farin til Landeyjahafnar

Dýpkunarskipið Perlan lagði nú fyrir hádegi af stað til Landeyjahafnar og hefur vinnu við dýpkun innsiglingarinnar um leið og það kemur á staðinn, eða um miðnætti í kvöld. Gera má ráð fyrir að þessi lota taki nokkurn tíma en ölduhæð ræður mestu þar um. Veður við suðurströndina hefur verið rysjótt eins og jafnan á haust og vetrarmánuðum en Perlan verður til taks svo lengi sem þörf krefur.

Jóhanna boðuð á þjóðfund

Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, var boðið á þjóðfundinn sem verður haldinn í Laugardalshöllinni von bráðar. Fundurinn mun endurskoða stjórnarkrá Íslands.

Fleiri fremja sjálfsvíg en deyja í bílslysum

„Ungmenni gera sér oft ekki grein fyrir endanleikanum sem felst í því að taka eigið líf. Það er alltaf hægt að fá nýtt líf í tölvuleikjum. Við höfum heyrt frá krökkum sem var bjargað á síðustu stundu að þau eru ákaflega þakklát og segjast ekki skilja hvað þau hafi verið að hugsa," segir Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri Þjóðar gegn þunglyndi.

Guðni Th.: Erfitt að draga fyrrverandi ráðherra fyrir Landsdóm

Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, segir að erfitt geti reynst að draga fyrrverandi ráðherra úr ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, fyrir Landsdóm vegna gjörða í aðdraganda bankahrunsins. Ákæruefni geti ekki verið almenn, heldur þurfi að negla niður saknæmar athafnir.

Landhelgisgæslan leigir þriðju þyrluna

Ríkisstjórnin samþykkti tillögur Ögmundar Jónassonar, dómsmálaráðherra, á fundi sínum í morgun, um að leigð verði þriðja þyrlan til björgunarstarfa fyrir Landhelgisgæsluna. Þetta þýðir að þá yrðu ávallt tvær áhafnir til taks.

Alvarlegur misbrestur varð á að tilkynna um vinnuslys

Alvarlegur misbrestur virðist hafa orðið á að tilkynna réttum aðilum um alvarlegt vinnuslys sem varð á kjúklingabitastað KFC í Kópavogi í gærkvöldi. Þrír starfsmenn staðarins brenndust og liggur einn þeirra á gjörgæsludeild.

Svindlað með ellismellum

Japanar verða allra manna elstir. Sumir þeirra verða þó ekki jafn gamlir og þjóðskrá segir til um.

Sjá næstu 50 fréttir