Fleiri fréttir

Ekki of margir í Herjólfi

„Nei, það getur ekki verið, ég hefði frétt af því,“ segir Sigmar Jónsson hafnarstjóri við Landeyjahöfn. Vestmannaeyingur hafði samband við fréttastofu og fullyrti að það hefðu farið helmingi fleiri um borð í Herjólf í morgun en leyfilegt er. En báturinn tekur 500 manns.

Lindsey laus úr fangelsi

Hinni 24 ára gömlu leikkonu Lindsay Lohan hefur verið sleppt úr fangelsi en hún sat inni í 14 daga af þeim 90 sem hún var dæmd í. Fangelsisdóminn fékk hún vegna brots á skilorðsbundnum dómi sem hún fékk vegna fíkniefnamáls árið 2007.

Rigningin róaði fólkið

Lögreglan í Vestmannaeyjum segir að ekki sé hægt að kvarta undan nóttinni miðað við þann fjölda sem er að skemmta sér á Heimaey. Um þrír gistu fangageymslur fyrir ölvun og óspektir og eitthvað var um pústra í Herjólfsdal.

Mikil ölvun á Mýrarbolta

Nokkur erill var hjá Lögreglunni á Ísafirði í nótt. Mikil ölvun var í bænum en Mýrarboltanum lauk í gær með tilheyrandi balli. Að sögn varðstjóra var eitthvað um minniháttar pústra en enginn gisti fangageymslur fyrir vestan í nótt.

Hafa áætlun um að ráðast inn í Íran

Mike Mullen, háttsettur stjórnandi hjá bandaríska hernum, segist hafa áætlun um að ráðast á Íran ef þurfa þykir til að koma í veg fyrir að landið öðlist kjarnorkuvopn. Hann segir að það sé erfitt að spá fyrir um afleiðingarnar enda ríkir mikið ójafnvægi í þessum heimshluta.

Vill að Obama segi íslenskum stjórnvöldum að loka Wikileaks

Liz Cheney, dóttir fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna Dick Cheney, lét þau orð falla í spjallþætti á sjónvarpsstöðinni Fox News í gærkvöldi að forseti Bandaríkjanna ætti að fara þess á leit við íslensk stjórnvöld að þau loka vefsíðunni Wikileaks.

Fá að blása í áfengismæli

Nóttin var róleg hjá Lögreglunni á Hvolsvelli. Að sögn varðstjóra eru lögreglumenn staddir við Landeyjahöfn en fyrsta ferðin með Herjólfi var að koma að landi. Þar leyfa lögreglumenn gestum Þjóðhátíðar að blása í áfengismæli áður en lagt er af stað í bíla sína.

Engin teljandi vandræði á Akureyri

Einhver ölvun var á Akureyri í nótt að sögn lögreglu, en engin teljandi vandræði. Engar kærur hafa verið lagðar fram eftir nóttina.

Rólegt í Reykjavík

Róleg var hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu í nótt en þó voru minniháttar pústrar í miðborginni. Mjög fáir gista fangageymslur og í flestum tilfellum er um að ræða fólk sem var ósjálfbjarga vegna ölvunar.

Hamfarir í Rússlandi

Beðið var fyrir fónarlömbum skógarelda í Rússlandi í hópgöngu í dag. 28 hafa látist og 77 bæir hafa ýmist eyðilaggst eða skemmst af völdum eldanna.

1100 látnir í miklum flóðum í Pakistan

Ellefu hundruð manns hafa látið lífið í miklum flóðum í norðvestur Pakistan. Björgunarmenn vinna að því að bjarga yfir 27 þúsund manns sem hafa einangrast vegna flóðsins.

Fastur í London vegna fugls í hreyfli í Danmörku

Finnur Stefánsson farþegi með Iceland Express situr nú á Hilton hóteli í London. Hann átti að fara með flugfélaginu heim til Íslands í gærkvöldi en hefur litlar sem engar upplýsingar fengið frá félaginu í dag vegna seinkunarinnar. Upplýsingafulltrúi Iceland Express segir að seinkun sé vegna fugls sem lenti í hreyfli vélarinnar á leið Danmerkur.

Mikið stolið úr tjöldum á Þjóðhátíð

Mikið hefur verið um það á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum að verið sé að stela úr tjöldum og jafnvel tjöldunum sjálfum. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum fór dagurinn í dag mest í það að hjálpa fólki sem hafði týnt hlutum.

Mikið af amfetamíni í umferð um helgina

Lögreglan í Vestmannaeyjum og í Borgarnesi hefur lagt hald á talsvert meira magn af fíkniefnum um verslunarmannahelgina í ár en undanfarin ár. Amfetamín er áberandi á Þjóðhátíð. Lögreglan í Borgarnesi hefur tekið mikið af kannabisefnum ætluðum til sölu á Akureyri og Snæfellsnesi.

Traktor dró slökkviliðsbílinn

„Það var verið að gera við kúplinguna í honum vissi ég og það var verið að prufukeyra hann en þá fór hann bara aftur í sama farið,“ segir Óskar Torfason slökkviliðsstjóri hjá Slökkviliðinu á Drangsnesi á Vestfjörðum.

Skipsverjar af Octopus kafa í Silfru

„Já, það eru tveir frá þeim sem eru hérna með okkur. En þetta er ekki Paul Allen sjálfur, bara einhverjir af áhöfninni,“ segir Tobías Klose hjá Dive.is sem er að fara kafa í Silfru með tveimur úr áhöfninni á risasnekkjunni Octopus, sem er í eigu auðjöfursins Pauls Allen. Snekkjan kom hingað til lands á fimmtudaginn og kom fram í fréttum að áhöfnin hafi kannað möguleika til að kafa á Þingvöllum.

Sjö teknir fyrir of hraðan akstur á Blönduósi

Lögreglan á Blönduósi hefur tekið sjö ökumenn fyrir of hraðan akstur í dag. Að sögn lögreglumanns hjá embættinu er búið að vera rólegt um helgina enda engin hátíð í nágrenni við sveitarfélagið. Sá sem ók hraðast í dag var á 118 kílómetra hraða og þá var einn tekinn á 105 kílómetra hraða. Umferðin hefur aukist síðustu klukkutíma og þá minnkar hraðinn á vegum landsins í kjölfarið.

Kveikti í rusli - þurfti svo að slökkva það sjálfur

Tilkynnt var eld við Selvatn í dag. Þegar lögregla og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins mættu á vettvang var maður á kveikja í rusli á svæðinu. Það gerði hann vegna þess að það dýrt er að henda rusli, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Ekið á gangandi vegfaranda - töluvert slasaður

Ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum, Brekkugötu, Gránufélagsgötu og Oddeyrargötu á Akureyri klukkan tvö í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Akureyri er talið að maðurinn hafi slasast töluvert en hann var með litla meðvitund þegar hann var fluttur á slysadeild.

Aðstoðuðu vélarvana bát skammt frá landi

Björgunarsveitin Lífsbjörg þurfti að aðstoða vélarvana bát um hálf ellefu leytið í morgun. Fjórir björgunarsveitamenn fóru á björgunarskipinu Björgu til aðstoða bátinn, en að sögn Páls Stefánssonar í björgunarsveitinni var enginn hætta á ferð.

Laxadauði í Norðurá

Farið er að bera á laxadauða í Norðurá í Borgarfirði vegna þurrka. Ástandið er verra en sumarið 2007. Að sögn leiðsögumanna við Norðurá er ástandið orðið alvarlegt. Áin er við það að þorna upp og minnir ástandið á þurrkana sumarið 2007, en er þó öllu verra að þessu sinni þar sem áin nær ekki að kólna á næturnar

Tekinn með 42 grömm af amfetamíni á Þjóðhátíð - 32 fíkniefnamál

Karlmaður fæddur árið 1987 var handtekinn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um klukkan 21 í gærkvöldi með 42 grömm af amfetamíni. Maðurinn játaði að eiga efnin en hann var nýkominn inn á hátíðarsvæðið þegar lögreglan fann efnin á honum við hefðbundið eftirlit.

Árni Johnsen: Þetta er ekkert flókið

„Nei, ég er aldrei spenntur maður, það er allt svo erfitt. Ég æfi ekki, ég keppi bara," segir Árni Johnsen kátur í samtali við fréttastofu nú fyrir stundu. Eins og venjan er á Þjóðhátíð mun Árni stjórna brekkusöngnum í kvöld.

Clinton gifti sig í gær

Fyrrum forsetadóttirin Chelsea Clinton, dóttir þeirra Bill og Hillary Clinton, giftist ástinni sinni, fjárfestingabankamanninum Marc Mezvinsky í gærkvöldi. Brúðkaupið fór fram í Rhinebeck, fallegum bæ við Hudson ána.

Róleg nótt í Reykjavík

Nóttin var sallaróleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og var lítið sem ekkert um pústra í miðborginni í nótt.

Hollenski herinn fer frá Afganistan

Veru hollenska hersins í Afganistan lýkur í dag þegar Bandaríkjamenn og Ástralir taka formlega við öryggisgæslu í Uruzgan héraðinu í mið-Afganistan. Hollendingar hafa að meðaltali verið með um tvö þúsund hermenn í Afganastan síðastliðin fjögur ár.

Þyrlan sótti konu sem villtist í þoku

TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar, leitaði í nótt að konu sem hafði villst í þoku. Lögreglunni á Ólafsfirði barst tilkynning um konu sem hafði farið af stað yfir Reykjaheiði, sem er á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar.

Talsverð ölvun á Akureyri

Talsverð ölvun var á Akureyri í nótt að sögn lögreglu, en allt fór þó þokkalega fram. Fimm gistu fangageymslur fyrir ölvun og slagsmál, en engar líkamsárásir hafa verið kærðar.

Tveir í fangaklefa vegna sömu árásar

Nóttin var nokkuð róleg á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum miðað við aðfaranótt sunnudags á þjóðhátíð, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra.

Brúnn sykur lítið hollari en hvítur

Brúnn sykur er ekki hollari en venjulegur hvítur sykur, segir danski næringarfræðingurinn Katja Maria Jackson. Í samtali við Danmarks Radio segir Katja að brúnn sykur sé einfaldlega hvítur sykur sem sé húðaður með svokölluðum melassa, en það er dökkbrúnt sýróp sem er búið til úr sykurreyr.

Sjá næstu 50 fréttir