Fleiri fréttir

Sumir eru í afneitun

Verulega er farið að þrengja að fólki, bæði þeim sem bitu á jaxlinn þegar kreppan skall á haustið 2008 og tóku út séreignarsparnað sinn sem og barnafólki í skuldavanda.

Handtóku ísraelskan njósnara í Póllandi

Pólsk yfirvöld handtóku mann í byrjun júní sem þau gruna að sé njósnari á vegum Ísraelsmanna. Hann er grunaður um að tengjast morðinu á Hamasliðanum Mahmoud al-Mabhouh í Dubaí í janúar á þessu ári.

Franskt veiðiskip skútuskvísu til hjálpar

Talið er að hjálpræði muni berast sextán ára stúlku, sem lenti í hremmingum á Indlandshafi, þegar franskt veiðiskip nær til hennar seinnipartinn í dag. Stúlkan, sem heitir Abby Sunderland og er frá Bandaríkjunum, ætlaði sér að verða yngsti siglingakappinn til að sigla ein umhverfis heiminn.

Greiða atkvæði um stjórnlagaþing

Þingfundur hefst á Alþingi klukkan hálfellefu. Meðal annars verða greidd atkvæði um stjórnlagaþing að lokinni annarri umræðu og um breytingatillöguna. Í henni felst að boða eigi til þúsund manna þjóðfundar áður en stjórnlagaþing kæmi saman og að sérstök fagnefnd fari yfir niðurstöður fundarins.

Aldrei fleiri útskrifast úr Háskóla Íslands

Vorbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Laugardalshöll í dag. Heildarfjöldi kandídata að þessu sinni er 1.780, sem er mesti fjöldi sem brautskráður hefur verið frá Háskóla Íslands.

Þingmenn skiluðu ekki upplýsingum

Nokkrir þingmenn, minnst fjórir úr Framsókn og einn úr Samfylkingu, ættu að vera en eru ekki á lista Ríkisendurskoðunar yfir þá sem skiluðu upplýsingum vegna prófkjörs 2006, fyrir alþingiskosningar 2007. Fjallað verður um aðra flokka síðar.

Fækkun sparar 360 milljónir

Stjórnarfrumvarp sem lagt hefur verið fram á Alþingi gerir ráð fyrir að ráðuneytum verði fækkað um þrjú með sameiningu ráðuneyta.

Óþolandi að fá ekki sömu upplýsingar

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir óþolandi að fulltrúar opinberra starfsmanna hafi fengið kynningu á fjárlagavinnu ríkisstjórnarinnar og þeirri forgangsröðun sem þar er unnið út frá.

Rætt um að loka fyrir alla umferð

„Um 20 þúsund manns koma að skoða bjargið á hverju sumri og það er einfaldlega ekki hægt að bjóða fólki upp á svona aðstöðu," segir Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar. Hafnar eru umræður um endurbætur á merkingum og aðstöðu ferðafólks við Látrabjarg eftir að ferðamaður hrapaði þar til bana í vikunni.

Pétur Sigurgeirsson jarðsunginn

Herra Pétur Sigurgeirsson biskup var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í gær. Prestar í jarðarförinni voru séra Kristján Valur Ingólfsson og herra Karl Sigurbjörnsson biskup, sem jarðsöng.

Fundargerðir ASÍ verða ekki birtar

Aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, ASÍ, segir aðspurður að fundargerðir miðstjórnar sambandsins verði ekki birtar opinberlega.

Hafna herferð gegn lúpínu

„Við höfnum þessu öllu saman á þeim grunni sem það er sett fram á," segir Jón Loftsson, skógræktarstjóri Skógræktar ríkisins, um fram komnar tillögur um eyðingu og heftingu á útbreiðslu lúpínu.

Bygging Landspítala í félag

Alþingi hefur samþykkt samþykkt stofnun nýs opinbers hlutafélags vegna byggingar nýs Landspítala. Félagið hefur rekstur 1. júlí og er hlutafélaginu ætlað að standa að undirbúningi og útboði á byggingu spítalans.

Fleiri vilja norður í háskólanám

Háskólanum á Akureyri bárust tæpar 1.100 umsóknir fyrir næsta skólaár, sem er talsverð aukning frá fyrri árum. Heildarfjöldi nemenda er nú um 1.500.

Tveir danskir hermenn létust

Tveir danskir hermenn létu lífið í gærmorgun þegar óhapp varð á heræfingu á Jótlandi. Tveir aðrir hermenn særðust.

Keilir útskrifar á Akureyri

Keilir brautskráði tuttugu og einn einkaþjálfara, sem stunduðu nám við starfsstöð Keilis á Akureyri. Þetta var fyrsta brautskráning Keilis utan Ásbrúar í Reykjanesbæ.

Gæðavottun til rækjuvinnslu

Rækjuvinnsla Ramma á Siglufirði fékk nýlega BRC (British Retail Consortium) gæðavottun. Vottunin gerir fyrirtækinu kleift að selja vörur sínar til flestra kröfuhörðustu kaupenda rækju á Bretlandsmarkaði.

Breskir hermenn brutu lög

Nokkrir fyrrverandi breskir hermenn verða væntanlega dregnir fyrir dómara á Norður-Írlandi vegna atburðanna í borginni Londonderry sunnudaginn 30. janúar árið 1972. Þann dag beittu breskir hermenn skotvopnum á hóp kaþólskra mótmælenda með þeim afleiðingum að þrettán manns létu lífið.

Kviknaði í Selósi út frá rafmagni

Það kviknaði í trésmíðaverkstæðinu Selósi á Selfossi á miðvikudaginn út frá rafmagni í vinnuaðstöðu við lakkklefa, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu lögreglu. Talið er að um óhapp hafi verið að ræða. Rannsókn heldur áfram á Selfossi.

19 Mexíkanar myrtir

Glæpamenn hafa skotið til bana 19 Mexíkana á meðferðarstofnun og sært að minnsta fjóra.

20 látnir í flóði í Arkansas

Að minnsta kosti 20 manns, sem höfðu tjaldað á afskektum stað í Arkansas fylki í Bandaríkjunum, létust í flóði sem kom í kjölfar mikillar rigningar.

Jón ætlar að svíkjaloforðið um aðgerðaleysi

Jón Gnarr, verðandi borgarstjóri, segist ætla að svíkja loforð sitt um að gera ekki neitt, þegar hann sest í borgastjórastólinn. Þetta kom fram í viðtali við Auðunn Blöndal á Stöð 2 í kvöld.

Útþynnt útgáfa af frumvarpi um stjórnlagaþing

Útþynnt útgáfa af frumvarpi um stjórnlagaþing nær væntanlega fram að ganga fyrir sumarleyfi Alþingis, eftir að komið var til móts við Sjálftæðismenn. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að frumvarp um breytingar á stjórnarskrá geti legið fyrir eftir tvö ár.

Eva Joly reiðubúin í forsetaframboð

Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknar, segist reiðubúin til að bjóða sig fram til forseta Frakklands árið 2012 ef græningjaflokkurinn þar í landi styður hana.

Boðað til mótmæla vegna ráðningar bæjarstjóra í Hafnarfirði

Boðað hefur verið til mótmæla fyrir utan Hafnarborg á mánudaginn þegar ný bæjarstjórn kemur saman. Ástæðan er ráðning Lúðvíks Geirssonar, sem bæjarstjóra en hann datt út úr bæjarstjórn í kosningunum þar sem hann sat í sjötta sæti á lista Samfylkingarinnar.

Tjaldborg við Alþingi

Hópur fólks reisti tjaldborg framan við Alþingi í dag til að mótmæla skorti á alvöru lausnum fyrir heimilin. Skorað var á þingheim að vinna í þágu almennings.

Hlunnindi starfsmanna OR tekin til endurskoðunar

Hlunnindi starfsmanna Orkuveitunnar hafa verið tekin til endurskoðunar að sögn Hjörleifs Kvarans, forstjóra Orkuveitunnar. Ástæðan er Benz bifreið sem var keypt á dögunum fyrir fjármálastjóra fyrirtækisins en upphaflega var greint frá málinu í DV.

Samtökin 78 þakklát og alsæl með ein hjúskaparlög

Formaður Samtaka 78, Svanfríður Lárusdóttir, segir samtökin afar þakklát og alsæl með nýsamþykkt frumvarp á Alþingi um ein hjúskaparlög. Þau gera það að verkum að samkynhneigðir geta gifst sig í Þjóðkirkjunni.

Hreyfingin: Alþingi hunsar eftirlitshlutverk sitt

Þingflokkur Hreyfingarinnar segir Alþingi hunsa eftirlitshlutverk sitt með því að samþykka lokafjárlög fyrir árið 2008 þegar bankakerfið hrundi. Þingmenn Hreyfingarinnar lögðu til að frumvarpinu yrði hafnað þar til fullnægjandi skýringar á falli Seðlabanka Íslands væru gefnar og fyrir lægi greinargerð um hvað unnt sé að læra af þeirri sóun á opinberum fjármunum sem þar átti sér stað, líkt og það er orðað í yfirlýsingu þingflokksins.

Tvö mál til ríkissáttasemjara

Félag skipstjórnarmanna og Flugvirkjafélag Íslands hafa vísað kjaradeilum sínum við fjármálaráðherra vegna Landhelgisgæslunnar til ríkissáttasemjara. Fyrstu fundir verða haldnir í byrjun næstu viku. Þetta kemur fram á vef Ríkissáttasemjara.

Háskólanum á Akureyri barst um 1100 umsóknir

Háskólanum á Akureyri barst tæplega 1100 umsóknir fyrir skólaárið 2010-2011 en það er aukning frá fyrri árum. Fjöldi umsókna er mikill ef litið er til heildarfjölda nemenda við háskólann sem er um 1500. Þetta eru hinsvegar hrátölur því sumir umsækjenda sækja um nám í fleiri en einum háskóla og eða fleiri en eina línu innan Háskólans á Akureyri. Lokatölur um fjölda nemenda fyrir næsta skólaár skýrast um miðjan júlí.

Að störfum samfleytt í yfir 20 klukkustundir

Björgunarsveitarmenn á Suðurlandi höfðu í nógu að snúast í gær og stóðu margir þeirra á vaktinni samfleytt í yfir 20 klukkustundir. Óskað var eftir aðstoð við að ná í bíl sem erlendir ferðamenn höfðu fest við Núpafjallsenda í Fljótshverfi austan við Kirkjubæjarklaustur og stóð til að fara í þann leiðangur snemma morguns, en áður en til þess kom eða klukkan sjö í gærmorgun kom útkall vegna leitar að pilti á tvítugsaldri. Hann fannst eftir hádegi og fóru björgunarsveitarmenn að Núpafjallsenda til að sækja bílinn.

Metfjöldi útskrifast frá Háskóla Íslands

Metfjöldi nemenda útskrifast frá Háskóla Íslands á morgun. Fyrir hádegi verða brautskráðir kandídatar sem lokið hafa framhaldsnámi við skólann en þeir eru 670 talsins að þessu sinni. Síðar um daginn fer fram brautskráning 1110 nemenda sem lokið hafa grunnnámi. Heildarfjöldi kandídata er því 1780 að þessu sinni sem er mesti fjöldi sem brautskráður hefur verið frá Háskóla Íslands.

Sjá næstu 50 fréttir