Fleiri fréttir

Útilokar ekki bensínlækkun

Ekki er útilokað að eldsneytisverð verði lækkað í dag, segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað umtalsvert liðna daga og fór tunnan á Norðursjávarolíu undir 70 dollara.

Nokkur skip á síldarveiðum austur af landinu

Nokkur skip eru byrjuð veiðar úr norsk- íslenska síldarstofninum austur af landinu. Skipin veiða með flottrollum sem dregin eru í nokkrar klukkustundir í senn. Að sögn stýrimanns á einu skipanna í morgun, hafa skipin aðeins fengið slatta í hverju holi og er ekki mikla síld að sjá á miðunum, enn sem komið er. Í ráði er að frysta sem allra mest af aflanum á vertíðinni, bæði um borð í vinnsluskipum og í landi, til að auka verðmæti aflans.

Blair situr ekki aðgerðarlaus

Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur ráðið sig sem ráðgjafa áhættufjárfestingafyrirtækisins Khosla, sem sérhæfir sig í framleiðslu á umhverfisvænni tækni. Fyrirtækið er starfrækt í Silicon Valley í Kaliforníu.

Sinubrunar í Hafnarfirði og Breiðholti

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var tvívegis kallað út vegna sinubruna í gærkvöldi, annarsvegar í Hafnarfirði og hinsvegar í Breiðholti. Í báðum tilvikum var um minniháttar bruna að ræða og var hann slökktur á skammri stundu. Minna hefur verið um sinubruna á höfuðborgarsvæðinu í vor en undanfarin ár.-

Engin eldsumbrot í Eyjafjallajökli

Allt virðist hafa verið með kyrrum kjörum í Eyjafjallajökli í nótt eftir að nokkrir smáskjálftar mældust í jöklinum, suðvestur af Básum í Þórsmörk í gærkvöldi. Síðan hefur allt verði rólegt í jöklinum, en kraftur er að færast í hreinsunarstarf.

Fyrsta ferðahelgin lofar góðu

Töluvert mikil umferð var til höfuðborgarsvæðisins síðdegis í gær og fram á kvöld. Um tíma voru samfelldar bílaraðir bæði á Suðurlands- og Vesturlandsvegum, en engin óhöpp eða slys urðu. Að sögn lögreglu bar líka óvenju lítið á hraðakstri eða framúrakstri, þannig að ökumenn sýndu þolinmæði. Þessi fyrsta umferðarhelgi sumarsins þykir því lofa góðu.-

Europol aðstoðar við rannsókn kókaínmálsins

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann átta milljónir króna í tveimur aðskildum bankahólfum í tengslum við rannsókn sína á kókaínmáli, þar sem reynt var að smygla þremur kílóum af mjög hreinu kókaíni í ferðatöskum til landsins frá Spáni í síðasta mánuði.

Hefur ekki gefið sér tíma enn

„Ég geri það á morgun eða hinn,“ sagði Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi í gær, spurður hvenær hann hyggst gefa upp nöfn þeirra fyrirtækja sem gáfu honum styrki fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006.

Allt féð verði notað í viðhald á vegum

Sveitarstjórnarmenn og forsvarsmaður Vegagerðarinnar telja að viðhald og þjónusta eigi að vera í forgangi næstu árin á kostnað nýframkvæmda. Þeir segja gott dæmi um niðurskurð til vegamála að aðeins tólf milljónir króna eru eyrnamerktar vegamálum á Norðurlandi vestra á gildistíma samgönguáætlunar til ársins 2012. Svipaða sögu er að segja um allt land.

Skýrsla um Álftanes eftir kosningar

Ríkisendurskoðun segir að niðurstöður athugunar á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftanes muni ekki verða kynntar fyrr en um miðjan júní.

Nýjum þunglyndislyfjum gæti seinkað

Breytingar á greiðsluþátttöku heilbrigðisyfirvalda á þunglyndislyfjum gætu þýtt að ný lyf komi seinna á markað hér á landi, en ættu ekki að hafa neikvæð áhrif á meðferð þunglyndissjúklinga, segir Þórður Sigmundsson, yfirlæknir á bráðamóttökudeild geðsviðs Landspítalans.

Mælingar segja ekkert strax

„Ennþá er ekki alveg ljóst hvort kvikuaðstreymið hafi núna haldið áfram að neðan, og fjallið þá þanist út, og það er það sem skiptir sköpum í því hvort framhald verður á þessari sögu eða ekki. Slíkt kemur ekki í ljós fyrr en næstu daga, og það gætið tekið viku og upp í tíu daga að afskrifa þessa atburðarás,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur.

Formaður telur stöðuna óbreytta

Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður þingkjörinnar nefndar um erlenda fjárfestingu, segist ekki telja, í fljótu bragði, að nefndin þurfi að fjalla á ný um viðskipti Magma Energy og Geysi Green Energy með hlutabréf í HS Orku en Magma hefur eignast 98,53 prósent í GGE.

Suður-Kórea hótar hörðum refsingum

Stöðvun allra viðskipta við Suður-Kóreu verður væntanlega þungur skellur fyrir íbúa Norður-Kóreu, því næst á eftir Kína eiga Norður-Kóreumenn mest viðskipti við nágranna sína í Suður-Kóreu.f

Vilja slaka mjög á reglunum

Alþjóðasamtök flugfélaga, IATA, gagnrýna evrópsk flugmálastjórnvöld harðlega fyrir það hve strangar reglur gilda um flug þegar aska frá eldgosum er í loftinu.

Kýrnar ánægðar að komast út í sumarið

„Hér ríkir náttúrulega mikil gleði og menn urðu strax bjartsýnir þegar ljóst var að gosið væri hugsanlega að stöðvast. Við settum kýrnar út í fyrsta skipti í dag og þær voru að vonum ánægðar,“ segir Heiða Björg Scheving frá bænum Hvassafelli, sem er einn af Steinabæjum undir Eyjafjöllum.

Ekki á að nota kúst eða ryksugu

Þegar sparperur brotna er hætt við kvikasilfursmiti, að því er fram kemur í umfjöllun TV2 í Danmörku. Umhverfisráðuneyti Dana stendur nú fyrir vitundarvakningu um málið. Á vef Landlæknis kemur fram að kvikasilfur í of miklu magni geti haft „skaðvænleg áhrif á vefi líkamans“.

Húðflúrin komu upp heimskan innbrotsþjóf

Lögreglan í Bandaríkjunum var ekki lengi að handsama hinn tvítuga Anthony Brandon Gonzales fyrir innbrot í Colorado en hann braust inn á heimili Elvis-eftirhermu og stal þaðan verðmætum.

Facebook-forstjóri játar mistök

Hinn tuttugu og sex ára gamli Mark Zuckerberg, sem er forstjóri Facebook, skrifaði dálk í Washington Post á dögunum þar sem hann sagði að að uppsetningin á öryggismálum Facebook, sem snýr að notendum, hafi beinlínis verið of flókin.

Klippti á naflastrenginn og fingurgóminn með

Bresk ljósmóðir varð fyrir því óhappi á dögunum að klippa framan af fingurgómi nýfædds barns þegar hún ætlaði að klippa á naflastrenginn. Samkvæmt bresku fréttstofunni SKY þá tók fæðingin fjórar klukkustundir.

Ástralar reka Ísraelskan diplótama úr landi

Ástralska ríkisstjórnin hefur rekið ísraelskan diplómat úr landi vegna ásakanna um að ríkisstjórn Ísraels hafi falsað ástralskt vegabréf. Vegabréfið var falsað í þeim tilgangi að koma morðingjunum, sem myrtu leiðtoga Hamas samtakanna í Dubai fyrr á árinu, inn í landið.

Þung umferð frá Selfossi til Reykjavíkur

Það er bíll við bíl frá hringtorginu á Selfossi langleiðina til Reykjavíkur að sögn varðstjóra lögreglunnar á Selfossi. Ferðamennirnir eru farnir að halda heim á leið en gríðarlega fjöldi manns fóru úr bænum um Hvítasunnuhelgina.

Lilja Mósesdóttir: Margir sagt sig úr VG vegna Magma

„Ég hef fengið mjög harðorða gagnrýni frá mínum stuðningsmönnum og margir hafa sagt sig úr flokknum vegna málsins,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um óánægju með kaup kanadíska orkufyrirtækisis Magma á hlut Geysis Green Energy á HS Orku.

Vinnufundi vegna gossins frestað

Vegna hugsanlegra gosloka er vinnufundi vegna eldgossins í Eyjafjallafjallajökli sem vera átti á morgun, þriðjudaginn 25. maí á Hvolsvelli, frestað um óákveðinn tíma samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum.

Lúðvík Geirsson: „Það er allt í járnum“

„Ég er sannfærður um að stuðningur íbúanna muni skila sér í kjörkassann á laugardaginn,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, en hann nær ekki kosningu inn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar samkvæmt nýjustu skoðanakönnuninni sem félagsvísindastofnun framkvæmdi fyrir viku síðan.

Líklegra að Jón Gnarr verði borgarstjóri en Sóley Tómasdóttir

Veðmálafyrirtækið Betsson ætlar ekki að láta komandi sveitstjórnarkosningar á Íslandi framhjá sér fara. Meðal annars er hægt að veðja á hver verði næsti borgarstjóri í Reykjavík. Líklegast er að Dagur eða Hanna Birna hljóti nafnbótina samkvæmt veðmálasíðunni.

Suður-Kórea setur viðskiptabann á Norður-Kóreu

Suður Kórea hefur hætt öllum viðskiptum við Norður Kóreu og krafist afsökunarbeiðni, eftir að rannsókn leiddi í ljós að Norður Kóreumenn hafi sökkt herskipi sunnanmanna sem kostaði 46 manns lífið. Norður Kóreumenn segja rannsóknina óþolandi og alvarlega ögrun.

Annar flugritinn fundinn

Annar flugriti indversku flugvélarinnar sem fórst í Mangalore á laugardag er fundinn en hann inniheldur upptökur á samræðum flugmanna í flugstjórnarklefanum fyrir slysið.

Segir Framsókn eiga hugmyndina um uppboðsmarkað á gjaldeyri

Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins segir áhugavert að stjórnarliðar hafi loksins séð ljósið varðandi uppboðsmarkað á gjaldeyri, eins og Framsóknarflokkurinn hafi áður lagt til. Flokkurinn hyggst leggja þetta til á ný og vonist til að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hætti að standa í vegi fyrir að þessi leið verði farin.

Ísland er barn-fjandsamlegt samfélag

„Aðaldánarorsök barna á Íslandi eru slys,“ segir Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnarhússins, en alþjóðleg rannsókn var kynnt á dögunum þar sem í ljós kom að Ísland er með lægstu dánartíðni barna undir fimm ára í hinum vestræna heimi. Bretar eru hinsvegar á botninum.

Flugraskanir þrátt fyrir gosleysi

Þótt gosinu í Eyjafjallajökli sé lokið halda raskanir á flugi áfram í Bretlandi því á miðnætti lögðu flugliðar British Airways niður vinnu.

Leigusamningum fækkar verulega

Rúmlega tuttugu prósent færri leigusamningar íbúðahúsnæða voru gerðir í apríl miðað við marsmánuð.

Höfrungar þekkja sig í spegli

Hvalir og höfrungar ættu að njóta „mannréttinda“ til lífs og frelsis vegna þess að allar vísbendingar benda til þess að þeir séu mjög greindir, segir hópur náttúruverndasinna og sérfræðingar í siðfræði, lögum og siðfræði. Samkvæmt rökum þeirra er óverjandi að veiða hvali til matar eða geyma þá í sædýrasöfnum.

Tólf fórust í flóðum í Póllandi

Að minnsta kosti 12 hafa farist í miklum flóðum í Póllandi um helgina. Um 20 þúsund Pólverjar hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna og þá er rafmagnslaust víða. Í kjölfar mikillar úrkomu flæddu árnar Vistula, Odra og Warta yfir bakka sína.

Synti í jökullóni á Everest

Breskur maður sem berst fyrir umhverfismálum varð í gær fyrstur manna til að synda í jökullóni á Everest fjalli. Hinn fertugi Lewis Gordon Pugh synti einn kílómeter yfir Pumori vatnið sem er í 17.400 feta hæð.

Suður-Kóreumenn undirbúa viðbrögð

Lee Myung-bak, forseti Suður-Kóreu, og ráðamenn í Seúl undirbúa nú viðbrögð við árás Norður-Kóreu á herskip sunnanmanna í lok mars. Forsetinn hyggst leita til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir gagnvart nágrönnum sínum í norðri.

Sjá næstu 50 fréttir