Fleiri fréttir

Lögreglan á Hvolsvelli þakkar fyrir aðstoðina

Lögreglan á Hvolsvelli hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan gosið á Fimmvörðuhálsi hófst. Nú undanfarið hefur verið gríðarlegur viðbúnaður vegna gossins í Eyjafjallajökli.

Fangelsi fyrir innflutning á kókaíni og kannabisræktun

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann á þrítugsaldri í níu mánaða fangelsi fyrir meðal annars innflutning á 110 grömmum af kókaíni. Einnig var hann dæmdur fyrir kannabisræktun og umferðarlagabrot.

Óvenju margir með Norrænu

Ferjan Norræna er væntanleg til Seyðisfjarðar um níu leytið með nokkuð á sjötta hundruð farþega, sem er meira en venjulega á þessum árstíma. Á sjöunda hundrað fara með ferjunni út klukkan átta annað kvöld og fullbókað er með henni frá Færeyjum til Danmerkur.

Íslendingum hefur fjölgað um 400 í ár

Í lok fyrsta ársfjórðungs 2010 bjuggu 317.900 manns á Íslandi, 159.900 karlar og 158.800 konur. Landsmönnum hafði þá fjölgað um 400 frá árslokum 2009 þegar þeir voru 317.500. Erlendir ríkisborgarar voru 21.600 í lok ársfjórðungsins. Á höfuðborgarsvæðinu einu bjuggu 201.200 manns.

Laus sæti með SAS til Osló eftir þrjá tíma

Farþegaþota frá SAS er nú á leið til landsins með farþega frá Osló. Vélin heldur til baka eftir um það bil þrjá klukkutíma. Um 100 sæti eru laus í vélinni fyrir þá sem þurfa að komast til Noregs.

Bond settur í salt

Framleiðslu á nýjustu James Bond myndinni hefur verið hætt um óákveðinn tíma. Framleiðendur myndarinnar segjast ekki vilja taka áhættuna á því að gera myndina, sem er sú 23 í röðinni, vegna óvissu um fjárhagslegt bolmagn og framtíð MGM kvikmyndaversins.

Opnað á milli Markarfljóts og Skóga

Þjóðvegurinn á milli Markarfljóts og Skóga var opnaður í gærkvöldi, en hann hefur verið lokaður síðan gosið hófst í Eyjafjallajökli og vegurinn var rofinn við Markarfljótsbrú.

Sæfari fékk á sig brotsjó

Engan sakaði þegar Grímseyjarferjan Sæfari fékk á sig brotsjó með þeim afleilðingum að rúður brotunuðu í gluggum og sjór komst inn í skipið, þegar það var á leið til Grímseyjar í gær.

Öskufallið dreifist umhverfis jökulinn

Búist er við að öskufall úr Eyjafjallajökli dreifist umhverfis jökulinn í dag, en ekki aðeins til suðurs og suðausturs, eins og verið hefur. Nú er réttur mánuður síðan gos hófst í Fimmvörðuhálsi, sem flutti sig svo í Eyjafjallajökulinn.

„Verðum að bíta í það súra epli“

Fersk jarðarber, kryddjurtir og viðkvæmar káltegundir með stuttan líftíma mun skorta hér á landi til skamms tíma vegna röskunar á millilandaflugi til meginlands Evrópu. Ávextir og grænmeti með lengri líftíma eru yfirleitt flutt hingað sjóleiðina.

Höfuðpaurs í kókaín-smygli leitað á Spáni

Átta manns, sjö karlar og ein kona, sitja nú í gæsluvarðhaldi grunuð um að tengjast innflutningi á rúmlega þremur kílóum af mjög sterku kókaíni til Íslands fyrr í mánuðinum. Kókaínið kom í tveimur sendingum frá Alicante á Spáni, og vó hvor sending um 1.600 grömm.

Aðsóknarmet á Vísi

Aldrei hafa fleiri skoðað Vísi en í síðustu viku. Notendur fóru upp í tæp 407 þúsund samkvæmt vef Samræmdrar vefmælingar og fjölgaði þeim um 47% miðað við fyrri viku. Hver notandi er aðeins talinn einu sinni.

Reykjavíkurborg virkjar varúðaráætlanir vegna gossins

Reykjavíkurborg hefur í varúðarskyni virkjað viðbragðsáætlanir sínar í samræmi við ákvarðanir Almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins, jafnvel þó að hverfandi líkur séu á að öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu að mati Veðurstofu Íslands. Er það gert til að tryggja viðeigandi vöktun og undirbúning í ljósi eldgossins í Eyjafjallajökli. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum og vatnsbólum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.

Icelandair breytir flugi á morgun

Icelandair hefur tilkynnt um breytingu á flugi félagsins á morgun. Áætluðu flugi síðdegis til Kaupmannahafnar hefur verið aflýst. Sérstöku aukaflugi til Stokkhólms hefur verið seinkað frá kl 08.00 til kl. 11.00. Áætlunarflug til Stokkhólms í fyrramálið er hinsvegar óbreytt.

Deilt um Landsdóm

Vafi leikur á hvort Landsdómur standist Mannréttindarsáttmála Evrópu þar sem ekki er hægt að áfrýja niðurstöðu dómsins.

Þjóðvegurinn opnaður aftur milli Markarfljóts og Skóga

Lögreglan á Hvolsvelli hefur ákveðið að hleypa þeim, sem eiga brýnt erindi, áfram veginn milli Markarfljóts og Skóga fram til klukkan 10 í kvöld. Tekið skal fram að skyggni er slæmt undir Eyjafjöllum og á Mýrdalssandi og þar er nú mjög hvasst.

Enn talsvert gos í Eyjafjallajökli

Talsvert gos er enn í gangi í Eyjafjallajökli, samkvæmt upplýsingum frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Eldvirkni er enn í þremur gígum sem ennþá virðast vera aðskildir.

Íbúafundur á Kirkjubæjarklaustri í kvöld

Íbúafundur á Kirkjubæjarklaustri í kvöld mánudag 19. apríl kl. 20:30 um almannaverndarmál. Á fundinn koma jarðvísindamaður, veðurfræðingur og fleiri sérfræðingar sem að málum koma vegna náttúruhamfaranna.

Enn lýst eftir Emiliönu

Lögreglan á Akureyri og Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar lýsa enn eftir Emilíönu Andrésardóttur, sem strauk frá meðferðarheimilinu Stuðlum þann 15. apríl síðastliðinn. Síðast sást til hennar í Hafnarfirði á leið til Reykjavíkur. Emilíana er fædd árið 1996. Hún er dökkhærð, um 160 sentimetrar á hæð og grannvaxin.

Eldgosið stórskaðar blómaframleiðslu í Kenía

Eldgosið í Eyjafjallajökli er að stórskaða blómaframleiðslu í Kenía. Blómaframleiðendur þar í landi tapa þremur milljónum dollara á dag vegna öskufallsins en öll flugumferð liggur niðri vegna gossins og því geta blómaframleiðendur ekki flutt framleiðslu sína til Evrópu.

Leiðbeiningar vegna stórra loftræstikerfa og öskufalls

Almannavarnir hafa sent frá sér tilkynningu vegna öskufalls við hús sem eru með stór loftræstikerfi. Þar segir að best sé að ræða við þann sem hannaði kerfið til að fá leiðbeiningar um hvað eigi að gera til að búa það sem best undir öskufall.

Sjónrænt eldgos

Þrátt fyrir að eldgosið hafi gert Evrópubúum lífið leitt þá hefur sjaldan verið jafn mikið fjör hjá ljósmyndurum hér á landi.

Fimmtán ár frá árásinni í Oklahoma

Fimmtán ár eru í dag liðin frá sprengjuárásinni á stjórnsýsluhúsið í Oklahoma í Bandaríkjunum. Í árásinni létu 168 lífið og yfir 600 slösuðust.

Vilja opna lofthelgi að hluta til

Á símafundi evrópskra flugmálayfirvalda sem haldinn var í morgun var ákveðið að þróa aðferðafræði sem gæti gert kleift að opna evrópskt loftrými án þess að ógna flugöryggi á nokkurn hátt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Flugstoðum.

Tveir handteknir vegna eiturmáls- atburðarás óljós

Atburðarrásin er óljós varðandi fertugan mann sem innbyrti stíflueyði í teiti um helgina að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki sprenging innanborðs í herskipinu

Forseti Suður-Kóreu hefur lofað þjóðinni að gripið verði til ákveðinna aðgerða ef í ljós komi að herskipið sem sprakk í tvennt og sökk í síðasta mánuði hafi orðið fyrir einhverskonar árás.

Líkur á öskufalli í Reykjavík hverfandi

Samkvæmt Veðurstofu Íslands eru líkur á öskufalli úr eldgosinu í Eyjafjallajökli á höfuðborgarsvæðinu hverfandi. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að samkvæmt veðurspá muni vindátt breytast á fimmtudag og verða austanstæð en gert er ráð fyrir rigningu sem dregur verulega úr líkum á öskufalli.

Sjálfstæðismenn funda vegna afsagnar Þorgerðar

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins kemur saman til fundar í dag til að ræða þá stöðu sem upp er kominn í flokknum eftir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér sem varaformaður um helgina. Þá verður einnig ræddur sá möguleiki að flýta Landsfundi flokksins.

Sjá næstu 50 fréttir