Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
20 létust úr raflosti Að minnsta kosti tuttugu létust Nígeríu í dag þegar háspennustrengur féll ofan á strætisvagn með þeim afleingum að straumur hljóp í farþegana. Lögreglan í borginni Port Harcourt hefur staðfest að tuttugu hafi beðið bana en óttast er um líf fleiri. 13.2.2010 22:00
Páfinn birtir playlistann sinn Dagblað Vatikansins birti í dag tíu laga listan yfir þær hljómplötur sem ritstjórnin þar á bæ, sem væntanlega lýtur valdi páfans, myndi taka með sér á eyðieyju. Á meðal verka sem komast á listann má nefna Thriller með Michael Jackson, The Dark Side of the Moon með Pink Floyd og Revolver Bítlanna. 13.2.2010 22:00
28 slasaðir og þrír látnir eftir rútuslys í Þýskalandi 19 börn eru slösuð og þrír fullorðnir léstust þegar rúta með dönskum skíðaferðalöngum lenti í árekstri nærri þýsku borginni Dessau í dag. Yngsta barnið er fjögurra ára gamalt. 12 barnanna munu hafa hlotið minniáttar áverka en sjö eru alvarlega slösuð að því er lögreglan í Dessau segir. 13.2.2010 17:41
Landsvirkjun tryggi raforku til Helguvíkur Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra er fylgjandi því að Landsvirkjun tryggi raforku tímabundið til álvers í Helguvík svo smíði þess tefjist ekki enn frekar. 13.2.2010 18:57
Eldur um borð í Oddeyrinni í Hafnarfjarðarhöfn Allt tiltækt slökkvilið hefur verið kallað út vegna elds um borð í skipinu Oddeyrinni við Hafnarfjarðarhöfn. Að sögn vaktstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var tilkynnt um mikinn reyk í vélarrúmi skipsins og eru reykkafarar á leið niður í vélarrúm skipsins þar sem eldurinn er. Allir áhafnarmeðlimir eru komnir frá borði og varð engum meint af. 13.2.2010 16:49
Öflug sprenging á Indlandi - átta látnir Að minnsta kosti átta eru látnir og 33 særðir eftir sprengingu á veitingastað í vesturhluta Indlands í dag. Veitingastaðurinn er vinsæll á meðal ferðamanna á svæðinu en óljóst er hvort um sprengjutilræði hafi verið að ræða eða slys. Þó hefur innanríkisráðherra landsins sagt að líklegast hafi verið gerð árás á staðinn. 13.2.2010 16:28
Boða til bílalánamótmæla á þriðjudag Samtökin Nýtt Ísland sem stóðu meðal annara að mótmælum á Austurvelli í dag þar sem allt að 800 manns mættu, hafa boðað til mótmæla fyrir utan Íslandsbankaá Kirkjusandi á þriðjudaginn kemur klukkan 12:15 en þá verða sjöttu bílalánamótmæli samtakanna haldin. 13.2.2010 16:16
Lögregla lagði hald á 500 þúsund tonn af fölsuðum vörum Ítalska lögreglan hefur lagt hald á gríðarlegt magn af fölsuðum varningi í átta vöruhúsum fyrir utan Róm. Varningurinn er af alls kyns toga, úr, fatnaður og handtöskur og allt eftirlíkingar af frægustu tískumerkjum Ítalíu. 13.2.2010 16:10
Hátt í 400 manns á Austurvelli Hátt í fjögurhundruð manns eru nú stödd á mótmælafundi á Austurvelli en þar hefur fólk safnast saman síðustu mánuði á hverjum laugardegi. Mótmælin eru skipulögð af samtökunum Nýtt Ísland og Hagsmunasamtökum heimilanna. 13.2.2010 15:10
Sóknin í Afganistan gengur samkvæmt áætlun Stórsókn NATO herliðsins í Afganistan hefur staðið yfir í dag með fulltingi afganskra hermanna. Um er að ræða mestu hernaðaraðgerð frá því innrásin í Afganistan var gerð árið 2001 og þá fyrstu síðan Barack Obama bandaríkjaforseti fyrirskipaði um fjölgun hermanna í landinu í desember. 13.2.2010 14:33
TF-Líf á flugi yfir Smáralind Í framhaldi af 112 deginum sem haldinn var á fimmtudaginn var munu fulltrúar frá Landsbjörgu, lögreglu og Neyðarlínunni verða með kynningu á starfsemi sinni í Smáralindinni í dag. Þar verður ýmislegt til sýnis og gefst fólki til dæmis kostur á að skoða lögreglubíla og mótorhjól. 13.2.2010 14:05
Skotárásin í Alabama - kennari skaut samkennara sína Eins og greint var frá í gærkvöldi átti enn ein skotárásin sér stað í háskóla í Bandaríkjunum í gær. Þrír létu lífið og þrír slösuðust í háskólanum í Alabama. Þessi árás sker sig þó úr frá öðrum slíkum síðustu misserin því í þetta sinn var árásarmaðurinn kona, auk þess sem hún er aðstoðarprófessor við skólann. 13.2.2010 13:40
Stjórnvöld geti ekki vikið sér undan ábyrgð Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður, segir að stjórnvöld geti ekki vikið sér undan ábyrgð þegar kemur að fjárhagslegri endurskipulagningu skuldsettra fyrirtækja. Á fundi viðskiptanefndar með forsvarsmönnum bankanna í gær kom fram að þeir telji sig vinna að fullu eftir vilja stjórnvalda og þeim skilaboðum sem stjórnvöld hafi gefið bönkunum sem eigendur. 13.2.2010 12:08
Nýnasistar safnast saman í Dresden - búist við átökum Mikill viðbúnaður er nú í þýsku borginni Dresden en þar hafa þúsundir mótmælenda safnast saman til þess að stöðva göngu Nýnasista um borgina. Nasistarnir minnast þess í dag að 65 ár eru liðin frá því að bandamenn gerðu loftárás á borgina á síðustu dögum Seinni heimstyrjaldarinnar en talið er að um 25 þúsund manns hafi látist, mest óbreyttir borgarar. 13.2.2010 11:50
Rio í ruglinu - hélt framhjá í steggjapartíinu sínu Rio Ferdinand, nýskipaður fyrirliði enska landsliðsins í fótbolta gæti átt stuttan fyrirliðaferil en hann var skipaður eftir að upp komst um framhjáhald Johns Terry. Breska blaðið The Daily Mail greinir frá því í dag að ísraelsk fyrirsæta hafi átt vingott við Ferdinand í Tel Aviv nokkrum vikum áður en hann gekk að eiga heitkonu sína til sjö ára. Að sögn blaðsins hittist parið á næturklúbbi en vinir Rio voru að steggja hann í borginni. 13.2.2010 11:42
Eygló óskar eftir fundi í viðskiptanefnd Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins hefur óskað eftir því að haldinn verði fundur í viðskiptanefnd sem fyrst þar sem farið verði yfir gengistryggð lán og lagalega stöðu þeirra í ljósi dómsins sem féll í gær í héraðsdómi Reykjavíkur. Þar var bíleigandi sýknaður af kröfum fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar og komst dómarinn að þeirri niðurstöðu að ólögmætt sé að gengistryggja kaupleigusamning við erlenda gjaldmiðla. 13.2.2010 11:12
Vakningalestin á ferðinni Vakningalest samtakanna Nýtt Ísland er þessa stundina að vekja bankastjórn Íslandsbanka ásamt bankastjórum Íslandsbanka, Arion og Landsbankans til að minna þá á að mæta á tíunda kröfufund Hagsmunasamtaka heimilanna og samtakanna Nýs Íslands á Austurvelli klukkan þrjú í dag. 13.2.2010 10:17
Féll sex metra út um glugga - líðan telpunnar stöðug Líðan telpunnar sem féll eina sex metra út um glugga í Þingholtunum í gær er stöðug að sögn vakhafandi læknis. Hún er ekki í lífshættu en læknirinn vill ekki gefa upp hvort hún hafi beinbrotnað við fallið. 13.2.2010 10:13
Fagna niðurstöðu héraðsdóms í myntkörfumáli Samtökin Nýtt Ísland, sem staðið hafa að mótmælum á Austurvelli, undanfarna laugardaga fagna dómi vegna ólögmætis myntkörfulána sem dæmt var látakenda í vil í gær í Héraðsdómi. 13.2.2010 10:09
Ökuníðingar, innbrotsþjófar og slagsmálahundar Lögregla hafði í nógu að snúast í nótt um alla borg. Í miðbænum sást til ökumanns sem ók undarlega og ætlaði lögregla að stöðva manninn. Hann gaf hinsvegar í og ók á miklum hraða eftir götum miðborgarinnar. Að lokum var hann stöðvaður í Þingholtunum og reyndist um 17 ára pilt að ræða með bráðabirgðaökuskírteini. Hann var að auki ölvaður og fékk hann að sofa úr sér á lögreglustöðinni. 13.2.2010 09:56
Tæplega tíu þúsund manns mættu á Safnanótt Safnanótt var haldin í nótt og heppnaðist hún með með eindæmum vel að sögn skipuleggjenda. Tæplega 10.000 manns tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá Safnanætur og nutu 150 viðburða á þeim 35 söfnum sem tóku þátt. 13.2.2010 09:32
Á spítti á 180 kílómetra hraða Ökumaður mældist á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Vogaveg í nótt. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, ók áfram vestur Reykjanesbraut og beygði inn á Grindavíkurveg þar sem hann stöðvaði loks för sína. 13.2.2010 09:28
Fjórflokki ekki treyst Þær miklu vonir sem vöknuðu í brjóstum fólks í búsáhaldabyltingunni, svo sem um lýðræðisumbætur og stjórnlagaþing, hafa ekki ræst. 13.2.2010 08:00
Hótanir í Hrútafirði vegna bensínstöðvar Staðarskáli ehf. og eigendur jarðarinnar Staðar í Hrútafirði sögðust í bréfi til hreppsnefndar Bæjarhrepps myndu beita afli sínu til að hindra að leyfi yrði gefið fyrir öðrum þjónustuskála í Hrútafirði. 13.2.2010 07:00
Telur erlendum arkitektum hyglað í forvali Landspítala Hilmar Þór Björnsson, arkitekt og stjórnarmaður í Arkitektafélagi Íslands, segir að kröfur í forvali í arkitektasamkeppni fyrir nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut útiloki íslenska arkitekta. Hann telur kröfurnar benda til að meðvituð ákvörðun hafi verið tekin um að beina verkefninu út fyrir landsteinana. Formaður forvalsnefndar segir þetta alfarið rangt. 13.2.2010 06:45
100 milljarðar í Helguvík Framkvæmdir við álver í Helguvík standa undir 100 milljörðum af þeirri 265 milljarða króna fjárfestingu í raforkumannvirkjum og orkufrekum iðnaði, sem stefnt er að í ár og næstu þrjú ár. 13.2.2010 06:00
Saga mistaka og fordóma Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra bað heyrnarlausa afsökunar á langri sögu „mistaka, fordóma og forræðishyggju“ sem einkennt hefði viðhorf stjórnvalda til heyrnarlausra um áratugaskeið. 13.2.2010 06:00
Enn óvissa með útgáfu skýrslu Allsendis er óvíst hvort skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kemur út í þessum mánuði. Upphaflega átti hún að koma út 1. febrúar, en því var frestað og sagt að hún kæmi út fyrir mánaðamótin. 13.2.2010 06:00
Aukið aðgengi fyrir borgarbúa Skipa á sérstakan starfshóp til að skilgreina hlutverk Höfða í framtíðinni. Er þetta gert í kjölfar endurbóta á húsinu eftir brunann sem þar varð í september síðastliðnum. Talið er nauðsynlegt að endurskoða notkun Höfða og huga almennt að húsinu og umhverfi þess eins og segir í tillögu frá forsætisnefnd sem borgarráð samþykkti. „Sérstaklega hefur verið rætt um mikilvægi þess að opna húsið enn frekar fyrir almenningi,“ segir í tillögunni. Formaður starfshópsins verður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar. - gar 13.2.2010 05:00
Starfsmönnum LSH fækkar Starfsmönnum á Landspítalanum hefur fækkað um 350 á síðustu misserum og eru þeir nú 4.600 talsins. Á síðasta ári fækkaði dagvinnustöðugildum á spítalanum um 202 og eru nú 3.650 alls. 13.2.2010 04:15
Skorað á Natóher að hlífa borgurum Afganistan, AP Öldungar í þorpinu Marjah í Helmand-héraði í Afganistan skora á hersveitir Natóríkjanna að hlífa almennum borgurum þegar stór árás verður gerð á þorpið. 13.2.2010 04:00
Frjálslyndir fá styrk frá borg Reykjavíkurborg greiðir hér eftir Frjálslynda flokknum árlegan styrk en ekki Borgarmálafélagi F-lista Ólafs F. Magnússonar, sem var kjörinn fulltrúi F-lista, framboðs frjálslyndra og fleiri. 13.2.2010 03:00
Síbrotamaður í gæslu dæmdur Karlmaður sem situr í gæsluvarðhaldi vegna síbrota hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, þar af tvo á skilorði, fyrir fjölmarga þjófnaði, húsbrot, eignaspjöll, líkamsárás og fleiri sakir. 13.2.2010 03:00
Enn í kór eftir tæp áttatíu ár Hafnfirðingurinn og söngfuglinn Páll Þorleifsson fagnar hundrað ára afmæli í dag. Páll, sem þekktur er í Hafnarfirði sem húsvörður í Flensborg, hefur sungið samfleytt með kórum í 77 ár, fyrst á Héraðsskólanum á Laugarvatni en frá 1933 með karlakórnum Þröstum í Hafnarfirði. 13.2.2010 02:30
Kaþólskir biðja með vúdúfólki Haítí, AP Leiðtogar beggja opinberu trúarbragðanna á Haítí, biskup kaþólskra og æðstiprestur vúdúmanna, báðir hvítklæddir, tóku þátt í sameiginlegri bænastund með prestum mótmælenda í höfuðborginni Port-au-Prince í gær. 13.2.2010 02:00
Borgin kallar á fyllri skýringar Skipulagsráð Reykjavíkur frestaði á fundi á miðvikudag að afgreiða fyrirspurn Álftavatns ehf. um það hvort leyft yrði að innrétta hótel í Heilsuverndarstöðinni á Barónsstíg. Ráðið vill að Álftavatn leggi fram nánari gögn, meðal annars greinargerð vegna reksturs hótels þar sem fram komi á hvaða hátt þurfi að breyta húsinu og hver fjöldi hótelherbergja verður. 13.2.2010 02:00
Dapurt á gulldepluveiðum „Það má sennilega best orða þetta með því að segja að það er ákaflega rólegt yfir þessum veiðum. Við drögum trollið allan daginn og megum þakka fyrir að ná 100 tonna afla. Í gær fengum við reyndar ekki nema 60 tonn og það er ekki viðunandi árangur,“ sagði Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri á Lundey NS, í viðtali á heimasíðu HB Granda. 13.2.2010 01:30
Jafnar sig eftir hjartaþræðingu Bandaríkin, AP Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður vera við góða heilsu eftir að hafa þurft að gangast undir hjartaþræðingu á sjúkrahúsi í New York. 13.2.2010 01:00
Bíleigandi sýknaður af kröfum Lýsingar Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing tapaði í dag máli í héraðsdómi sem það höfðaði gegn viðskiptavini sem gert hafði kaupleigusamning við fyrirtækið. Samningurinn að hluta til í erlendri mynt með gengistryggingu og krafðist Lýsing þess að maðurinn greiddi fyrirtækinu rúmar 466 þúsund krónur auk dráttarvaxta en stefndi taldi að samningurinn sem gerður var í upphafi hafi verið ólögmætur. 12.2.2010 23:52
Þrír létust í skotárás í háskólanum í Alabama Þrír létust og einn særðist í skotárás sem gerð var í háskólanum í Alabama í Bandaríkjunum í kvöld. Þetta er enn ein skotárásin af þessum toga í landinu síðustu misserin en í þessu tilviki var árásarmaðurinn kona. Lögregla náði henni á lífi og er hún í varðhaldi að því er lögreglustjórinn í Huntsville borg segir. Ekki er ljóst hvað konunni gekk til. 12.2.2010 23:40
Fjölmenni á stofnfundi Sjálfstæðra Íslendinga Fjölmenni var á stofnfundi Sjálfstæðra Evrópumanna í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Á heimasíðu hinna nýstofnuðu samtaka segir að færri hafi komist að en vildu og eru stofnfélagar um 200. 12.2.2010 22:21
Kennedy veldið á enda runnið Ein frægasta og valdamesta fjölskylda Bandaríkjanna er ekki svipur hjá sjón frá því sem var en margir frægustu stjórnmálamenn landsins hafa verið af því slekkti og þar er frægastur John F. Kennedy fyrrverandi forseti sem myrtur var árið 1963. Patrick Kennedy, sonur Edwards Kennedys sem lést á dögunum, mun tilkynna á sunnudag að hann ætli sér ekki að sækjast eftir endurkjöri í fulltrúadeild Bandaríkjaþings þar sem hann hefur átt sæti. 12.2.2010 21:36
Jóhanna: Óþolandi að útrásarvíkingar fái sérstaka meðferð Forsætisráðherra segir að stóreignamenn sem stóðu að útrásinni og sæti rannsókn, ættu að sýna sóma sinn í að halda sig til hlés þar til rannsókn á orsökum efnahagshrunsins sé lokið. Það sé óþolandi ef þeir fái sérstaka meðhöndlun í bankakerfinu með stórfelldum afskriftum en haldi samt fyrirtækjum sínum. 12.2.2010 19:40
Kreppa áfram spýti ríkisstjórnin ekki í lófana Mikið atvinnuleysi, léleg lífskjör og versnandi velferðarkerfi verða hlutskipti Íslendinga um langa framtíð nema ríkisstjórnin spýti í lófana, segja Samtök atvinnulífsins. Þau gagnrýna stjórnvöld harðlega fyrir dugleysi og rangar ákvarðanir og segja að fimm prósenta árlegan hagvöxt þurfi til að vinna þjóðina út úr kreppunni. 12.2.2010 19:16
Kísilver í Þorlákshöfn komið á fleygiferð Samningsdrög við erlent fyrirtæki um kísilver í Þorlákshöfn voru lögð fyrir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í dag og er stefnt að undirritun á mánudag. 12.2.2010 19:03