Fleiri fréttir

Þrír handteknir vegna kannabisræktunar

Lögregumenn á Seyðisfirði fundu í dag 60 kannabisplöntur og græðlinga við leit í húsi á Seyðisfirði. Að auki var talsvert af laufi í þurrkun og efni tilbúið til dreifingar og sölu. Þrír menn voru handteknir vegna málsins, einn á Seyðisfirði og tveir á Vopnafirði.

Enn haldið sofandi eftir fall í húsagrunn

Líðan mannsins sem slasaðist alvarlega þegar að hann fékk sjö steypustyrktarjárn í líkamann eftir fall ofan í grunn er óbreytt. Þetta segir vakthafandi læknir á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi.

Framsóknarmenn í Kópavogi halda prófkjör

Fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Kópavogi hefur ákveðið að efna til prófkjörs 27. febrúar næstkomandi um val á frambjóðendum Framsóknarflokksins til setu á framboðslista flokksins fyrir sveitastjórnarkosningar í vor.

Stjórn UVG mótmælir niðurskurði Árna Páls

Stjórn Ungra vinstri grænna leggst alfarið gegn tillögum Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra um frekari niðurskurð á fæðingarorlofi. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórnin sendi frá sér undir kvöld. Ungliðarnir minna á að kjör nýbakaðra foreldra hafi þegar verið skert umtalsvert á síðasta ári og hámarksgreiðslur lækkaðar.

Engin orka til Helguvíkur nema háspennulína fáist í Þorlákshöfn

Það verður ekkert framkvæmdaleyfi veitt fyrir Suðvesturlínum nema háspennulína komi einnig til Þorlákshafnar. Þetta er einróma afstaða sveitarstjórnar Ölfuss, sem ræðir nú við erlenda aðila um bæði sólarflöguverksmiðju og járnblendiverksmiðju og vill að stjórnvöld stuðli að orkufrekum iðnaði í Þorlákshöfn.

Hleypa Íslendingum að makrílborðinu

Íslendingum var í dag boðið að setjast að samningaborði um makrílkvóta í Norðaustur-Atlantshafi en Evrópusambandið, Færeyjar og Noregur hafa í nokkur ár neitað að hleypa Íslandi að. Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra segir þetta stóran áfanga og mikið fagnaðarefni.

Konur í ánauð neyddar til að skrifa upp á skuldaviðurkenningar

Dæmi eru um að erlendum konum sem haldið hefur verið í ánauð hér á landi hafi verið í svo mikilli einangrun að þær vita ekki hvar þær búa, enda þótt þær hafi dvalið hér árum saman. Þá hafa konur verið neyddar til að skrifa upp á skuldaviðurkenningar.

Geir Haarde verður 139 ára þegar almenningur verður upplýstur að fullu

Allt að 80 ára leynd mun hvíla á viðkvæmum upplýsingum sem rannsóknarnefnd Alþingis hefur haft til meðferðar í tengslum við skýrslu um bankahrunið. Um er ræða upplýsingar sem snerta launakjör einstaklinga og rekstur fyrirtækja. Forseti Alþingis segir að þetta muni ekki rýra gildi skýrslunnar.

Ákærð fyrir að stinga 5 ára stelpu

Ríkissaksóknari hefur ákært Selmu Guðnadóttur fyrir að stinga fimm ára telpu með hnífi í brjóstið þann 27. september en atburðurinn átti sér stað á heimili stúlkunnar í Reykjanesbæ.

Allir búnir að skila nema Ólafur

Allir borgarfulltrúar nema Ólafur F. Magnússon, fulltrúi F listans, hafa skilað inn upplýsingum um fjárhaglsega hagsmuni sína, samkvæmt yfirliti sem birt er á vef Reykjavíkurborgar.

Deilt um afstöðu lögspekinga í fjárlaganefnd

Höskuldur Þórhallsson nefndarmaður í fjárlaganefnd segist hafa aðra upplifun af þeim fundi sem haldinn var í fjárlaganefnd í dag þegar fjórir lögfræðingar voru kallaðir fyrir nefndina til að leggja mat sitt á hvort fyrirhugað frumvarp um Icesave stangist á við stjórnarskrá.

Báðust afsökunar á „fulleldis“ auglýsingu

„Það voru mikil vonbrigði að sjá auglýsinguna í Morgunblaðinu í morgun. Hún var ekki aðeins helmingi minni en í fyrra heldur einnig verulega illa unnin, bæði hvað varðar útlit og texta," segir í yfirlýsingu frá VR en heilsíðu auglýsing í Morgunblaðinu olli óánægju meðal félagsmanna. Tilgangur hennar var að fagna fullveldi Íslendinga.

Lögspekingar telja Icesave frumvarpið ekki stangast á við stjórnaskrá

Þrír af þeim fjórum lögspekingum sem kallaðir voru fyrir fjárlaganefnd í dag til þess að ræða hvort fyrirhuguð lög um ríkisábyrgð vegna Icesave samningana standist stjórnarskrá eru á því að svo sé ekki. Sá fimmti telur að þessa spurningu þurfi að kanna frekar.

Vill hækka útsvar í Reykjavík

Borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, vill fullnýta útsvarsins og lagði tillögu þess eðlis fyrir borgarstjórnarfund í morgun og var henni vísað til borgarstjórnar.

Miðbaugsmaddaman dæmd fyrir hórmang

Catalina Ncogo var sýknuð af ákærum um mansal í Héraðsdómi Reykjaness fyrir stundu en hún var hinsvegar dæmd fyrir að hafa haft viðurværi af vændi kvenna sem hún hélt úti í miðborg Reykjavíkur. Hún hlaut tveggja og hálfs árs fangelsi óskilorðsbundið fyrir sinn þátt í málinu.

Tiger og Elín þögul sem gröfin

Tiger Woods neitar enn að tala við lögregluna vegna bílslyssins sem hans lenti í. Dagblaðið Los Angeles Times segir að vegna þess hafi lögreglan leitað til sjúkrahússins sem hann var fluttur á til þess að fá áverkavottorð hans.

Ungir jafnaðarmenn leggjast gegn skerðingu á fæðingarorlofi

Ungir jafnaðarmenn leggjast gegn þeim áformum félagsmálaráðherra að skerða fæðingarorlof, hvernig sem þær tillögur verða framkvæmdar. Frá þessu segir í yfirlýsingu frá UJ. Í umræðu hafa verið tillögur um að skerða hámarksgreiðslur niður í 300 þúsund eða að gera foreldrum að fresta töku eins mánaðar af fæðingarorlofi um nokkur ár.

Baugsmál í uppnám vegna tímaritsgreinar

Fresta þurfti Baugsmálinu í dag vegna ritstjórnargreinar eftir Róbert Spanó sem finna má í nýjasta hefti Tímariti lögfræðinga og ber heitið: „Ne bis in idem - Mannréttindadómstóll Evrópu víkur frá fyrri fordæmum.“

Í fangelsi fyrir að stela tveimur nautalundum og kynlífseggi

Kona var í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í 90 daga fangelsi fyrir að rjúfa skilorð þegar hún stal tveimur nautalundum í Hagkaup og kynlífseggi í versluninni Adam og Evu. Nautalundirnar voru verðmetnar á rúmar tíu þúsund krónur og eggið á tæpar fimm þúsund. Ákærða játaði skýlaust brot sín og í ljósi þess að hún hefur á stuttu tímabili gerst sek um nokkur afbrot ákvað dómurinn að dæma hana nú í 90 daga fangelsi.

Dýrkeypt fegurð

Fyrrverandi ungfrú Argentína lést um helgina eftir misheppnaða fegrunaraðgerð á þjóhnöppun. Þetta hefur beint athyglinni að því að Argentína er að verða alheimsmiðstöð fyrir fegrunaraðgerðir.

Þorbjörn Jensson hlaut Barnamenningarverðlaunin 2009

Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, hlaut í dag Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2009 fyrir ómetanlegt starf sitt í þágu ungmenna. Verðlaunaféð, 3,5 milljónir króna, verður nýtt til að efla nýja uppbyggingu meðal annars tónlistardeild Fjölsmiðjunnar. Alls var úthlutað ríflega 26 milljónum króna úr Velferðarsjóði barna í dag en heildarúthlutunin úr sjóðnum í ár nemur alls um 160 milljónum króna.

Svandís gagnrýnd fyrir seinagang

Lagning nýs vegar um Vattarfjörð og Kjálkafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum þarf að fara í umhverfismat, þvert gegn vilja Vegagerðarinnar, samkvæmt úrskurði Svandísar Svavarsdóttur umhverfissráðherra. Gagnrýnt var á Alþingi í gær að það hefði tekið ráðherrann sjö mánuði að kveða upp úrskurðinn þegar lög gerðu ráð fyrir að hann hefði tvo. Ráðherrann lofaði bót og betrun vegna ítrekaðrar gagnrýni á ráðuneytið fyrir að draga úrskurði fram úr hófi.

Lögreglumorð í Seattle: Morðinginn skotinn til bana

Lögreglan í Seattle í Bandaríkjunum hefur skotið til bana mann sem grunaður var um að hafa myrt fjóra lögreglumenn með köldu blóði. Morðin voru framin á kaffihúsi á sunnudagsmorgun og hefur verið gerð gríðarleg leit að morðingjum síðan.

Áhyggjur af HIV smiti með sprautunálum

Konur eru í meirihluta þeirra sem smituðust af HIV hér á landi en tólf manns hafa greinst með sjúkdóminn á þessu ári. Í þessum hópi eru fjórir karlmenn og átta konur en enginn samkynhneigður hefur greinst með smit á árinu. Í dag er alþjóðlegi baráttudagurinn gegn alnæmi.

Pústrar í Vestmannaeyjum

Það var í ýmis horn að líta hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í vikunni þrátt fyrir að engin alvarleg mál hafi komið upp.

Dabbi Grensás ákærður fyrir að kýla kampavínskóng

Davíð Smári Helenarson hefur verið ákærður fyrir að slá eiganda Kampavínsklúbbsins Strawberries, Viðar Má Friðfinnsson, á vinstra gagnaugað með þeim afleiðingum að andlitsbein hans brotnaði. Árásin á að hafa átt sér stað í febrúar síðastliðnum.

Fjárlaganefnd: Lögspekingar ræða Icesave og stjórnarskrá

Nokkrir af virtustu lögfræðingum landsins hafa verið boðaðir á fund fjárlaganefndar í hádeginu í dag. Kallað hefur verið eftir áliti þeirra á því hvort fyrirliggjandi frumvarp um ríkisábyrgð í Icesave málinu standist stjórnarskrána. Á meðal gesta nefndarinnar í dag er Sigurður Líndal prófessor sem á dögunum skrifaði grein í Fréttablaðið þar sem vakin er athygli á því hve lítil umræða hafi farið fram um Icesave með tilliti til stjórnarskráarinnar.

Dæmdur fyrir nefbrot á Tunglinu

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í morgun fyrir að nefbrjóta mann á skemmtistaðnum Tunglinu í miðborg Reykjavíkur í september á síðasta ári. Maðurinn sló fórnalamb sitt einu höggi með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði.

Fjölskylduhjálp: „Það er allt tómt, allar frystikistur, allir skápar“

Fjölskylduhjálp Íslands er orðinn uppiskroppa með matvæli en líknarfélagið biðlar til þjóðarinnar allrar að aðstoða félagið svo það geti aðstoðað þá sem minna mega sín. Góðgerðarfélagið hefur hingað til aðstoðað 49 þúsund einstaklinga á ári - allt stefnir í að það met verði slegið í ár.

Barn kafnaði við brjóstagjöf

Fjögurra mánaða gamalt barn kafnaði þegar móðir þess sofnaði við að gefa því brjóst í einni af flugvélum United Airlines.

Ungir bændur ánægðir með skipun vinnuhóps

Stjórn Samtaka ungra bænda, fagnar því að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrra hefur skipað vinnuhóp til að fjalla um breytingar sem verða á eignarhaldi bújarðar vegna bankahrunsins og að vilji sé fyrir hendi til að tryggja að jarðir fari ekki úr landbúnaðarnotkun og leitast sé við að tryggja áframhaldandi búsetur á þeim.

Hannaði hjálpartæki gleðinnar

„Kínversk speki segir að ef þú brosir fimm sinnum á hverjum degi án tilefnis, breytir þú lífi þínu á nítíu dögum," segir listamaðurinn Gegga, eða Helga Birgisdóttir, sem hefur hannað svokallaðan brosara sem fólk getur nýtt sér til þess að fást við lífið og tilveruna.

Íranar handtaka áhöfn af seglskútu

Íranar hafa í haldi fimm breska skipverja af kappsiglingasnekkju sem þeir segja að hafi komið inn í landhelgi sína síðastliðin miðvikudag.

Neyðarkall frá Fjölskylduhjálp Íslands

Fjölskylduhjálp Íslands biðlar til þjóðarinnar um aðstoð fyrir jólin en matarkistur og skápar Fjölskylduhjálpar Íslands eru tómar samkvæmt tilkynningu frá Ásgerði Jónu Flosadóttur, formanns Fjölskylduhjálpar.

Gleyma 10.000 símum á mánuði í leigubílum

Lundúnabúar skilja að jafnaði 10.000 farsíma eftir í leigubílum í hverjum mánuði og enn fleirum í jólamánuðinum. Auk símanna gleymast eða týnast að jafnaði 1.000 annars konar rafmagnstæki, svo sem fartölvur eða iPod-spilarar, sem farþegar hafa með sér í leigubílana.

Sjá næstu 50 fréttir