Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Í kapphlaupi við tímann Sóttvarnalæknir hvetur fólk með undirliggjandi sjúkdóma til að panta bólusetningu gegn svínaflensu sem fyrst. 6.11.2009 06:00
Kastar rússneskum borgararétti Utanríkisráðherra Georgíu hefur afsalað sér rússneskum ríkisborgararétti og skorið á fyrri tengsl við Moskvu. 6.11.2009 05:45
Kemur í veg fyrir aðra óráðsíu „Við ætlum ekki að breyta þeirri grundvallarhugmynd að einkahlutafélög eru með takmarkaðar ábyrgðir. Það er grundvöllur hlutafélagaformsins,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. 6.11.2009 05:30
Grunað um tvö morð í janúar Rússneska lögreglan hefur handtekið mann og konu sem grunuð eru um aðild að skotárás í Moskvu í janúar, þegar mannréttindalögmaðurinn Stanislav Merkelov og blaðakonan Anastasia Baburova voru myrt. 6.11.2009 05:00
Embættismenn sem draga lappirnar hindra samstarf Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vill láta skoða kosti og galla þess að ríkisstjórn Ísland verði fjölskipað stjórnvald, eins og til dæmis í Svíþjóð. Þá bæri ríkisstjórnin sameiginlega ábyrgð á málum, sem lögð eru fyrir Alþingi, og hefði sameiginleg yfirráð yfir stjórnsýslunni í stað þess að einn ráðherra beri ábyrgð á hverju máli eins og nú er. 6.11.2009 05:00
Framkvæmt á vatnsverndarsvæði Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur, heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis og Skipulagsstofnun telja allar að vatnsvernd verði ógnað með lagningu Suðvesturlínu. 6.11.2009 04:30
Einu máli vísað til saksóknara Slitastjórn Kaupþings hefur vísað einu máli til sérstaks saksóknara eftir athugun á bókhaldi félagsins. Slitastjórnin hefur unnið að rannsókn á ráðstöfunum bankans í aðdraganda hruns með liðsinni endurskoðunarfyrirtækisins PricewaterhouseCoopers frá því í ágúst. 6.11.2009 04:00
Tölurnar sagðar niðurdrepandi „Danska hagstofan hefur komið af stað mjög niðurdrepandi umræðu vegna talna um fjölda gjaldþrota og nauðungaruppboða,“ segir í frétt danska viðskiptablaðsins Børsen í gær. 6.11.2009 04:00
Þjóðskrá færi sig milli húsa Hagkvæmni þess að sameina starfsemi Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands er í skoðun að beiðni Rögnu Árnadóttur, dómsmála- og mannréttindaráðherra. 6.11.2009 02:45
Fjölþrepa skattkerfi með láglaunaþrepi Fjölþrepa skattkerfi með lágu þrepi fyrir láglaunafólk er ein þeirra leiða sem ríkisstjórnin hefur til athugunar við endurskoðun skattkerfisins. Þetta kom fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra við fyrirspurn frá Höskuldi Þórhallssyni, þingmanni Framsóknarflokksins, á Alþingi í gær. Höskuldur spurði hvort láglaunafólk mætti eiga von á því að persónuafslátturinn yrði hækkaður um næstu áramót í takt við verðlagsbreytingar, eins og umsamið var árið 2006. 6.11.2009 02:30
Hömlur settar á lausagöngu Þingmenn úr þremur af stærstu flokkum Færeyja leggja til að hömlur verði settar á lausagöngu sauðfjár í landinu. Einnig á að afmarka rétt sauðfjáreigenda til að halda fé sitt í byggð, þar sem það éti úr görðum og ógni trjágróðri. 6.11.2009 02:15
Ein lög fyrir allt heilbrigðisstarfsfólk Fram er komið í þinginu, í þriðja sinn, frumvarp til laga um heilbrigðisstarfsmenn. Nær það til allra faggreina í heilbrigðisþjónustu en nú eru í gildi sérlög um fjölda greina og aðrar starfa eftir reglugerðum. 6.11.2009 02:00
Árás vekur óhug Breta „Hvers konar stríð er þetta?“ spurði breska dagblaðið Daily Mail í fyrirsögn á forsíðu í gær, daginn eftir að fimm breskir hermenn voru skotnir til bana í Afganistan. Árásarmennirnir voru afganskir lögreglumenn, sem tóku upp vopn sín þegar Bretarnir voru að hita sér te. 6.11.2009 02:00
Enginn eyddi meira en 300 þúsund Helmingur þeirra frambjóðenda til Alþingis, sem ekki höfðu skilað inn fjárhagsupplýsingum um framboð sitt til Ríkisendurskoðunar á miðvikudag, var úr VG, eða 18 af 36. 6.11.2009 01:30
Enn dælt fé í efnahagslífið Evrópski seðlabankinn og Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, ákváðu báðir að halda stýrivöxtum óbreyttum í gær. Á sama tíma héldu þeir áfram að dæla fjármagni inn í hagkerfið með ýmsu móti, svo sem til að liðka fyrir útlánavexti. Stýrivextir á evrusvæðinu standa í einu prósenti. Vextir Englandsbanka eru hálft prósent. 6.11.2009 01:15
Dreifðist með kartöflusalsa Noro-veiran sem herjað hefur á starfsfólk Kaupþings banka að undanförnu breiddist út með kartöflusalsa, auk þess að smitast á milli manna, að sögn Óskars Ísfeld Sigurðssonar, forstöðumanns Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Ekki er vitað hvort veiran barst inn í bankann með matvælum eða fólki. Óskar segir að rannsókninni sé ekki fulllokið en sennilega fáist aldrei úr því skorið hvernig veiran hafi komist í bankann. Noro-veiran stingi sér alltaf öðru hvoru niður í samfélaginu. 6.11.2009 01:00
Líf flutti tvo á spítala Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 18:58 beiðni frá Neyðarlínunni um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna alvarlegs bílslyss í Langadal í Húnavatnssýslu samkvæmt tilkynningu. 5.11.2009 21:45
12 látnir - 31 særðir eftir skotárás í Bandaríkjunum 12 einstaklingar eru látnir og 31 er slasaður eftir skotárásirnar sem átti sér stað í Fort Hood klukkan 13:30 að staðartíma. Einn árásarmannanna hefur verið skotinn til bana og búið er að handtaka tvo aðra menn. 5.11.2009 21:23
Sigrún Elsa: Ég er ekki að misskilja neitt „Það er einfaldlega ekki rétt sem stjórnarformaðurinn heldur fram að rekja megi hluta kostnaðaraukans vegna tafa á álveri í Helguvík til aðgerða ríkistjórnarinnar,“ segir Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, en stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur sagði fyrr í dag að Sigrún Elsa væri að misskilja. 5.11.2009 19:46
Laxveiðiferðir heita ráðgjafaþjónusta á bankamáli Laxveiðiferðir bankamanna virðast síður en svo liðnar undir lok. Fullyrt er að sá háttur sé hafður á að reikningar fyrir veiðferðir séu skráðir sem sérfræðiráðgjöf í bókhaldi ríkisbankanna. 5.11.2009 18:50
Könnun: ESB yrði kolfellt í kosningum Íslendingar myndu kolfella tillögu um inngöngu að Evrópusambandinu yrði kosið um það nú. Innan við þriðjungur þjóðarinnar er hlynntur aðild. 5.11.2009 18:41
Stjórnarformaður OR: Sigrún er að misskilja Guðlaugur Sverrisson formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur telur að ákveðins misskilnings gæti hjá Sigrúnu Elsu Smáradóttur fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. 5.11.2009 17:23
Borginni gert að greiða milljónir í bætur Reykjavíkurborg þarf að greiða karlmanni rúmlega 55 milljónir auk dráttarvaxta í bætur eftir að framkvæmdir við söluskála í Reykjavík voru stöðvaðar eftir að ágreiningur um framkvæmdina kom upp við íbúa í ´nágrenninu. Áður hafði maðurinn fengið byggingarleyfi hjá borginni. 5.11.2009 17:02
Kengúrur kvelja Ástrala Það hefur ekki rignt í vesturhluta Queensland í marga mánuði og gróður er allur skrælnaður. Banhungruð kengúrugreyin flykkjast því inn í bæi á nóttunni þar sem þær nærast í görðum og á umferðareyjum og hvar sem er stingandi strá að finna. 5.11.2009 16:44
Nóróveirusýkingin í rénun Nóróveirusýkingin sem kom upp í Nýja Kaupþing banka og tengdum félögum í Reykjavík í liðinni viku er í rénun. Alls er talið að um 250 manns hafi veikst af veirunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sóttvarnalækni, Matvælaeftirliti - Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og Matvælastofnun. 5.11.2009 16:42
Abbas vill hætta -mikið áfall Mahmoud Abbas forseti palestínumanna mun ekki gefa kost á sér til endurkjörs í forsetakosningum sem haldnar verða í janúar næstkomandi, að sögn aðstoðarmanna. 5.11.2009 15:46
Íslandsstofu ætlað að efla ímynd og orðspor Íslands Markmið nýrrar stofnunnar, Íslandstofu, sem sett verður á laggirnar á grunni Útflutningsráðs Íslands er að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. Stjórnarfrumvarpi um hina nýju stofnun var dreift á Alþingi í dag. 5.11.2009 15:44
Vilja svarta kassa í bíla Evrópusambandið íhugar að setja reglur um að svokallaðir svartir kassar skuli settir í bíla. Þeir myndu gegna svipuðu hlutverki og flugritar í flugvélum en þaðan er nafnið svarti kassinn komið. 5.11.2009 15:30
Linda skildi marga eftir fjárhagslega og tilfinningalega gjaldþrota Linda Björk Magnúsdóttir, sem situr í fangelsi í Bandaríkjunum fyrir að vera ólöglegur innflytjandi þar í landi er fyrrverandi forstöðumaður í sértrúarsöfnuði. Söfnuðurinn hét Frelsið, kristileg miðstöð, og var starfræktur á árunum 1995 – 2001. 5.11.2009 15:26
Rússneskt hlerunardufl rak á land Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar var í gær kölluð út til að kanna dufl sem barst á land í Skarðfjöru í grennd við Kirkjubæjarklaustur. Við nánari athugun reyndist um að ræða rússneskt hlerunardufl en einnig fannst í fjörunni rússnesk siglingabauja ásamt hita- og seltumælir úr kafbát sem notaður er til að mæla seltu- og hljóðhraða í sjónum. Fram kemur ávef Landhelgisgæslunnar að sjófarendum hafi ekki stafað hætta af hlutunum. Hvorki er vitað um aldur hlerunarduflsins né mælisins. 5.11.2009 15:17
Fækkar á Landspítalanum vegna svínaflensu Í dag liggja 29 sjúklingar á Landspítala með svínaflensu eða H1N1 inflúensuna. Þar af átta sem haldið er á gjörgæslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá farsóttarnefnd spítalans. Síðasta sólarhringinn hafa sex sjúklingar verið útskrifaðir af Landspítalanum en á móti kemur hafa tveir hafa verið lagðir inn. 5.11.2009 14:57
Fjöldamorðingi fær ekki lausn gegn tryggingu Bandaríski fjöldamorðinginn Anthony Sowell fær ekki að ganga laus gegn tryggingu þartil réttarhöldin yfir honum hefjast. 5.11.2009 14:45
Eitt land ver meira fé til menntamála en Ísland Einungis eitt land í Evrópu ver meiru fé en Ísland til menntamála miðað við verga landsframleiðslu. Þetta kemur fram í ritinu Key Data on Education in Europe 2009 sem er nýkomið út. 5.11.2009 14:40
Var Lenín framsóknarmaður? Iðnaðarráðherra segir að það sé skýr vilji ríkisstjórnarinnar að ráðast í stófellda í atvinnuuppbyggingu á Norðausturlandi. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins gefur ekki mikið fyrir þau orð og telur brýnt að nýir flokkar taki sæti í ríkisstjórn til að auka vægi atvinnusköpunar á landinu. Þetta var meðal þess sem kom fram í umræðu utan dagskrár á þingfundi í dag um álversuppbyggingu á Bakka við Húsavík. Í umræðunum velti þingmaður VG upp þeirri spurningu hvort Vladimir Lenín hafi verið framsóknarmaður. 5.11.2009 14:31
Dómsmálaráðherra vill aukafjárveitingu vegna hrunsins Dómsmálaráðherra fer fram á 106 milljóna króna aukafjárveitingu til dómstóla til að mæta auknu álagi vegna bankahrunsins. Ráðherra kynnti málið á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn þriðjudag. 5.11.2009 14:12
Vill búa í Boeing breiðþotu Norskur flugstjóri hefur sótt um lóð fyrir fjögurra hreyfla Boeing 747 breiðþotu í smábænum Farsund á suðurströnd Noregs. 5.11.2009 14:04
Slökkvilið kallað að Hofsvallagötu Slökkviliðið var kallað að húsi við Hofsvallagötu í Reykjavík um hálftvö í dag þegar kveikt var í blaðabunka þar inni. Húsráðandi taldi sig ekki geta ráðið við eldinn einsamall og kallaði því á aðstoð slökkviliðsins. Engu að síður tókst að ráða niðurlögum eldsins áður en slökkviliðið kom á staðinn. 5.11.2009 13:50
Vatn komið á í Stykkishólmi Vatn rennur nú að nýju í vatnsveitu Stykkishólms. Í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur kemur fram að mestur hluti bæjarins hafi vatn, en búast má við truflunum fram eftir degi. Vatnið fór af í gær þegar unnið var að viðgerð á aðveituæðinni frá vatnsbóli veitunnar í Svelgsárhrauni, um 13 kílómetrum frá bænum. Mun lengri tíma tók að ná upp þrýstingi en ætlað hafði verið og hefur verið unnið að viðgerð í alla nótt. 5.11.2009 12:57
Furðar sig á yfirlýsingum Guðlaugs Ár er síðan Orkuveitan samdi um eins milljarðs króna skaðabætur við Mitzubishi vegna tafa á túrbínum og það komi einhverjum línulögnum ekki nokkrum sköpuðum hlut við Sigrún Elsa Smáradóttir, segir fulltrúi Samfylkingarinnar, í stjórn Orkuveitunnar sem furðar sig á yfirlýsingum stjórnarformanns Orkuveitunnar. Hún segir kostnaðarauka Orkuveitunnar frekar skýrast af því að framkvæmdir hafi verið fjármagnaðar á yfirdrætti undanfarið ár. 5.11.2009 12:42
Hallinn eykur þrýsting á aukinn niðurskurð Hallinn á ríkissjóði á þessu ári verður 30 milljörðum meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir þrátt fyrir að stjórnvöld hafi gripið til aðgerða í sumar sem minnka áttu hallann um 20 milljarða. Þetta eykur þrýsting á aukinn sparnað, niðurskurð og skattheimtu á næsta ári. 5.11.2009 12:29
Pylsuvagn datt af króki bifreiðar Pylsuvagn datt af króki bifreiðar sem átti að flytja hann á milli staða um hádegið í dag. Vagninn tafði umferð og því þurfti lögreglan að hafa afskipti af málinu eins og sést á meðfylgjandi mynd. 5.11.2009 12:19
Magnús Þór: Hefur áhyggjur af dóttur sinni Magnús Þór Sigmundsson, tónlistarmaður, er faðir Lindu Bjarkar, konunnar sem nú er í haldi lögreglu í Bandaríkjunum. Linda Björk var stöðvuð á landamærum Bandaríkjanna og Kanada en hún hafði ekki tilskylda pappíra til þess að komast inn í landið. Áður en hún var leidd fyrir dómara tókst henni að sleppa úr varðhaldi og upphófst mikil leit að henni. Hún var aftur handtekin í morgun og situr nú í fangelsi í Clinton sýslu í New York ríki. 5.11.2009 12:03
Sigmundur Davíð: Jóhanna veit ekki hvað felst í frumvarpinu Formaður Framsóknarflokksins sagði í umræðum á Alþingi í dag að forsætisráðherra hafi ekki hugmynd hvað felist í lagafrumvarpinu um Icesave samkomulagið. Forsætisráðherra vísaði þeim orðum á bug. Þá sagðist ráðherrann eiga von á því að svar myndi berast frá forsætisráðherrum Breta og Hollendinga vegna bréfs sem sent voru í lok ágúst. 5.11.2009 11:30
Búið að handtaka íslensku konuna í Bandaríkjunum Linda Björk Magnúsdóttir, konan sem lögreglan í Bandaríkjunum leitaði í nótt, náðist í morgun og er nú í haldi lögreglunnar. Konan slapp úr varðhaldi lögreglu á meðan hún beið þess að vera leidd fyrir dómara. 5.11.2009 11:16
Á batavegi eftir vinnuslys í Krónunni Konan sem slasaðist í vinnuslysi við kjötborð í Krónunni í gær er á batavegi, samkvæmt upplýsingum frá Ólafi R. Þórhallssyni, verslunarstjóra hjá Krónunni í Lindarhverfi. 5.11.2009 11:10