Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
ASÍ gagnrýnir yfirlýsingu Jóhönnu og Steingríms Alþýðusambandið gagnrýnir yfirlýsingu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Ekki sé ásættanlegur grunnur fyrir áframhaldandi samstarfi. 28.10.2009 18:09
Sex karlmenn úrskurðaðir í áframhaldandi varðhald Lögreglustjórinn á Suðurnesjum krafðist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness að dómurinn úrskurðaði sex karlmenn til að sæta áframhaldandi gæsluvarðahaldi allt til miðvikudagsins 4. nóvember. Mennirnir, fimm Litháar og einn Íslendingur, hafa setið í gæsluvarðhaldi að undanförnu vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi. 28.10.2009 17:13
AGS samþykkir endurskoðun efnahagsáætlunar Endurskoðun á efnahagsáætlun Íslendinga var samþykkt á fundi stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á fimmta tímanum í dag. Því mega stjórnvöld búast við greiðslu lána frá sjóðnum á næstunni. 28.10.2009 16:48
Auglýst eftir forstjóra Bankasýslu ríkisins Bankasýsla ríkisins hefur auglýst embætti forstjóra laust til umsóknar. Bankasýsla ríkisins hefur tekið við eigandahlutverki í viðskiptabönkunum þremur. Lúkning samninga við kröfuhafa verður þó áfram á hendi fjármálaráðherra. 28.10.2009 16:18
Bjarni Ármannsson hættir sem ræðismaður Lúxemborgar Fyrrum bankastjóri Glitnis, Bjarni Ármannsson, lét af störfum sem ræðismaður Lúxemborgar í Reykjavík í janúar 2008 en tilkynning þess eðlis er birt í lögbirtingablaðinu í dag fyrir hönd utanríkisráðuneytisins. 28.10.2009 15:44
Stöðugleikasáttmálinn: Sögulegur áfangi í að auka tiltrú á framtíðina Í yfirlýsingunni, sem gefin er út með hliðsjón af stöðugleikaviðræðum, og kemur frá forsætisráðuneytinu, segir að gerð stöðugleikasáttmálans síðastliðið vor hafi verið sögulegur og sameiginlegur áfangi til að hefja endurreisn efnahagslífsins og auka tiltrú þjóðarinnar á framtíðina. 28.10.2009 15:23
Siglir undir brú sem er sjö metrum of lág Það fylgjast sjálfsagt margir Danir með þegar risaskipið Oasis of The Seas reynir að sigla á fullri ferð undir Stórabeltisbrúna. Skipið er sjö metrum of hátt. 28.10.2009 15:21
Stefán Eiríksson: Dómstólar hafa svarað kalli lögreglumanna „Við fyrstu sýn er ég mjög sáttur við þennan dóm,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu um nýfallinn refsidóm yfir sjö mönnum sem réðust á tvo lögregluþjóna í Árbænum í október á síðasta ári. 28.10.2009 14:53
Þrjátíu manns af Rúv í forgangshópi vegna svínaflensu Þrjátíu starfsmenn Ríkisútvarpsins eru í forgangi í bólusetningu vegna svínaflensu. Ríkislöglreglustjóri hafði beðið RÚV um lista yfir hverjir ættu að fá bólusetningu svo hægt væri að halda úti lágmarks útsendingu. Á listanum eru frétta- og tæknimenn undir fimmtugt. Nú þegar hafa flestir í hópnum verið bólusettir. 28.10.2009 14:52
Hefði étið T-Rex í morgunmat Steingervingafræðingar í Bretlandi eru nú búnir að raða saman kjálkabeinum úr risavöxnu sæskrímsli sem fundust í fjöru í Dorset. Fyrstu beinin fundust árið 2002 og síðan hafa fundist tuttugu og fimm til viðbótar. 28.10.2009 14:50
Fordæmir árás í Kabúl - Íslendingarnir óhultir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og norrænir starfsbræður hans, fordæmdu í dag á blaðamannafundi í Stokkhólmi hina mannskæðu hryðjuverkaárás sem gerð var á starfsfólk Sameinuðu þjóðanna í Kabúl í morgun. 28.10.2009 14:33
Lögguníðingarnir í Árbæ dæmdir í fangelsi Sjö karlmenn voru allir dæmdir í óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Mennirnir sem allir eru meðlimir í þekktu gengi filipseyinga, réðust á tvo lögregluþjóna í Árbæ, sem komu í samkvæmi þar sem kvartað hafði verið undan hávaða. Árásin þótti með öllu tilefnislaus en þrír mannanna hlutu 9 mánaða fangelsisdóm. 28.10.2009 14:10
Lögreglan kölluð í „blóðugt“ partý Það er ekki bara í Bandaríkjunum sem menn halda ærlega upp á hrekkjuvökuna. Slíkt er líka gert á Íslandi en það varð einmitt tilefni til afskipta lögreglu á ónefndum stað á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Lögreglu bárust fréttir af grunsamlegum vettvangi og fylgdi sögunni að þar væri allt útatað í blóði. 28.10.2009 13:42
Norðmenn vilja losna við erlend glæpagengi Norðmenn eru orðnir svo þreyttir á þjófagengjum frá Austur-Evrópu að þeir ætla að kanna hvort sé hægt að framlengja varðhald yfir þeim þartil hægt er að vísa þeim úr landi. 28.10.2009 13:06
Líklega farið fram á áframhaldandi varðhald Lögreglan á Suðurnesjum segir líklegt að farið verði fram á að flestir ef ekki allir grunaðir í mansalsmálinu svonefnda sitji áfram í gæsluvarðhaldi. 28.10.2009 11:27
Verðlaunum rignir í Stokkhólmi Ársþing Norðurlandaráðs er haldið í Stokkhólmi að þessu sinni. Auk þess að ræða margvísleg málefni landanna eru þar einnig veitt margvísleg verðlaun. 28.10.2009 11:15
Íslendingar neyddir til einhliða ákvörðunar um makrílveiðar Íslensk stjórnvöld eru neydd til að taka einhliða ákvöðrun um makrílveiðar sínar á næsta ári. Íslendingar fá ekki að koma að samningum um þessar veiðar þar sem ESB, Noregur og Færeyjar vilja ekki viðurkenna stöðu Íslands sem strandríkis. 28.10.2009 11:10
Sjóðsstjóri og miðlari fyrir rétt á morgun Aðalmeðferð fer fram í sakamáli gegn fyrrverandi sjóðsstjóra peningamarkaðssjóðs Kaupþings og skuldabréfamiðlara sama banka á morgun. Sjóðstjórinn, Daníel Þórðarson og skuldabréfamiðlarinn Stefnir Ingi Agnarsson, hafa verið ákærðir af ríkislögreglustjóra fyrir markaðsmisnotkun með því að búa til falska eftirspurn og hækka verð á skuldabréfum í Exista í janúar og febrúar á síðasta ári. Exista var þá aðaleigandi Kaupþings. 28.10.2009 10:07
Lögfræðingar á Norður- og Austurlandi: lífsgæði verða skert Aðalfundur félags lögfræðinga á Norður- og Austurlandi, sem haldinn var á Egilsstöðum 24. október síðastliðinn, var samþykkt ályktun sem mótmælir eindregið og varar við framkomnum hugmyndum um sameiningu og niðurlagningu ýmissa embætta sem nú starfa á landsbyggðinni. 28.10.2009 09:51
Áttatíu fórust í sprengjuárás í Pakistan Að minnsta kosti áttatíu manns fórust og tugir særðust þegar öflug sprengja sprakk í markaðsgötu í borginni Peshawar í Pakistan í dag. 28.10.2009 09:45
Upptökur af Baghdad-sprengingum birtar Yfirvöld í Írak hafa birt myndbandsupptökur úr öryggismyndavélum sem sýna sprengingarnar er urðu 155 manns að bana í miðborg Baghdad á sunnudaginn. 28.10.2009 08:57
Enn sprengt í Pakistan Að minnsta kosti sextán létust og tugir eru slasaðir eftir að stór sprengja sprakk á markaði í pakistönsku borginni Peshawar í morgun. Eldur læsti sig í nærliggjandi byggingar eftir að sprengjan sprakk. Ekkert lát virðist vera á sprengjuárásum í landinu sem virðast vera hefndaraðgerðir gegn aðgerðum stjórnarinnar gagnvart Talíbönum. Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna er nú í opinberri heimsókn í höfuðborginni Islamabad. 28.10.2009 08:55
Innbrot í Hafnarfirði Brotist var inn í veitingastaðinn Aktu taktu á Hafnarfjarðarvegi í nótt um klukkan hálfþrjú. Öryggisverðir komu að þjófinum í miðjum klíðum en sá náði að forða sér á hlaupum og er hans nú leitað. Óljóst er hvort hann hafi komist á brott með einhver verðmæti en einhverjar skemmdur vann hann á staðnum þegar hann braust inn. 28.10.2009 07:10
Bensíndropinn dýr í Bretlandi Félag breskra bifreiðaeigenda hefur lýst yfir áhyggjum af því að lítrinn af eldsneyti þar í landi kosti nú að meðaltali 1,07 pund, rúmar 200 íslenskar krónur, en slíkar álögur hafa ekki sést þar í landi fram að þessu. 28.10.2009 07:09
Sex starfsmenn SÞ drepnir í Afganistan Sex erlendir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna í Afganistan voru myrtir í nótt og níu særðust í árás sem gerð var í höfuðborg landsins Kabúl. Árásin var gerð á gistihúsi sem starfsmenn samtakanna nota að staðaldri en vígamenn sáust fara inn í bygginguna. 28.10.2009 07:06
Bílvelta við Leirubrú Umferðaróhapp varð á Leiruvegi við Leirubrú í umdæmi lögreglunnar á Akureyri um klukkan hálftíu í gærkvöldi. Svo virðist sem ökumaðurinn sem var einn í bílnum hafi misst stjórn á bílnum á brúnni en þar hafði myndast mikil hálka auk þess sem brúin liggur í boga. 28.10.2009 07:05
Sjóræningjar hafa bresk hjón í haldi Sómalskir sjóræningjar hafa lýst á hendur sér mannráni bresku hjónanna Paul og Rachel Chandler sem hurfu sporlaust í siglingu frá Seychelles-eyjum til Tansaníu. Í tilkynningu frá sjóræningjunum segir að þeir hafi náð snekkju hjónanna í Indlandshafi og væru á leið með hana til hafnar. 28.10.2009 07:04
Húsin í Austurstræti: Innri endurskoðun rannsaki útboðið Á fundi innkauparáðs Reykjavíkurborgar í gær var samþykkt að óska eftir því við innri endurskoðun borgarinnar að hún skoði stjórnarhætti og stjórnsýslu í tengslum við útboð á uppsteypu húsa við Austurstræti og Lækjargötu, en framkvæmd útboðsins hefur verið talsvert til umfjöllunar í fjölmiðlum. Samtök iðnaðarins hafa gert athugasemdir við framkvæmd útboðsins auk þess sem fyrirspurnir hafa verið lagðar fram í borgarráði um málið, en hætt var við fyrirhugað lokað útboð í tengslum við verkið. 28.10.2009 06:32
Kjarasamningar halda - deilt um skattamál Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins í gærkvöldi var ákveðið að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði skyldu framlengdir til nóvemberloka 2010. Í tilkynningu frá samtökunum segir hinsvegar að þau geti ekki fallist á ákveðin atriði í fyrirliggjandi drögum að yfirlýsingu forsætis- og fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, um framgang stöðugleikasáttmálans. 28.10.2009 06:17
Niðurskurðarhnífnum ekki beitt af nægjanlegri hörku Ríkisendurskoðun vandar stjórnvöldum ekki kveðjurnar í skýrslu um framkvæmd fjárlaga. Ekki var farið að tilmælum um að bæta rekstur stofnana í vanda. Aðhald og eftirlit með rekstri Landspítalans er veikt. 28.10.2009 06:15
Mikil óvissa er um orkuna á Reykjanesi Orkumálastjóri er ekki hrifinn af því að rætt sé um að knýja Helguvík einungis með orku af Reykjanesi. Því hægar og víðar sem farið sé í jarðhitanýtingu, þeim mun betra. Ágeng orkunýting þurfi ekki endilega að vera ósjálfbær. 28.10.2009 06:00
Ofbeldismaður víki í stað brotaþola Unnið er að lögfestingu brottvísunar eða „austurrísku leiðarinnar“ í dómsmálaráðuneytinu. 28.10.2009 05:30
Skattar álfyrirtækja 1,9 milljarðar í fyrra Álfyrirtæki á Íslandi greiddu samtals 1,9 milljarða í tekjuskatt og tryggingagjald í fyrra. Fjármálaráðuneytið óskaði upplýsinga um þetta eftir að forstjóri Alcoa sagði í viðtali að fyrirtækið hefði greitt um fjóra milljarða í beina skatta í fyrra. 28.10.2009 05:15
Arnold fær styttu af Pútín Rússneska vaxtarræktarsambandið hefur látið gera brjóstmynd af Vladimír Pútín sem gefa á Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóra Kaliforníu. 28.10.2009 05:00
Helgi Hjörvar næsti forseti Þing Norðurlandaráðs stendur nú yfir í Stokkhólmi. Þingið sitja alþingismennirnir Helgi Hjörvar, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Siv Friðleifsdóttir, Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson auk nokkurra ráðherra. 28.10.2009 05:00
Geta nú talað saman á gelísku Nú má nota gelísku í formlegum samskiptum milli ráðherra skosku stjórnarinnar og embættismanna Evrópusambandsins. 28.10.2009 05:00
Hlýrri barnalaug í Vesturbæ „Það er aldrei að vita nema maður skelli sér bara út í og vígi þetta,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi og formaður Íþrótta- og tómstundaráðs. Smíði stálþils milli grunna og djúpa hluta Vesturbæjarlaugarinnar, sem ætlað er að hækka hitastigið í grunna hlutanum sem gjarnan er nefndur barnalaugin, lauk í gær. Þá hefur hitunarbúnaður grunnu laugarinnar verið endurnýjaður. 28.10.2009 05:00
Flugferðum fjölgað í sumar Þýskum ferðamönnum á Íslandi mun fjölga umtalsvert næsta sumar, að sögn Oddnýjar Bjargar Halldórsdóttur, sölustjóra hjá Ferðaþjónustu bænda. Fulltrúar þrettán ferðaþjónustufyrirtækja kynna nú Ísland sem áfangastað fyrir þýska ferðamenn. Er þetta upphaf markaðsátaks íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í Evrópu. Sams konar strandhögg verður í desember í Amsterdam og Brussel. - bþs 28.10.2009 05:00
Síldin er ennþá sýkt að hluta Fyrstu niðurstöður benda til þess að íslenska sumargotssíldin sé ennþá sýkt. Þetta staðfesta sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar. 28.10.2009 04:45
Áhugasamir skrái sig á netinu Bankasýsla ríkisins hefur skipað valnefnd til að tilnefna fulltrúa ríkisins til setu í stjórnum bankanna. Í nefndinni sitja Kristín Rafnar, forstöðumaður í Kauphöllinni, Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar HR, og Helga Valfells, sérfræðingur hjá Nýsköpunarsjóði. 28.10.2009 04:30
Reykjavík leiði rafbílavæðingu Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkur hefur stofnað starfshóp sem finna á leiðir til að gera Reykjavík forystuborg í rafbílavæðingu. Forsvarsmenn borgarinnar telja kjöraðstæður fyrir hendi til að gera borgarbúum fært að reka rafbíla á hagkvæman hátt. 28.10.2009 04:15
Hrækti í andlit lögreglumanns Karlmaður á þrítugsaldri játaði í gær að hafa sparkað í sköflunginn á ungum lögreglumanni og hrækt í andlitið á öðrum. 28.10.2009 04:15
Íranar vilja breytingar á samningnum Íranar eru reiðubúnir að ganga til samninga við Sameinuðu þjóðirnar um kjarnorkueftirlit, en þó aðeins ef veigamiklar breytingar verða gerðar á þeim samningi sem nú liggur fyrir. 28.10.2009 04:00
Reykjanesbær fær 150 milljónir króna Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga nema í ár rúmlega 1,2 milljörðum króna og voru þrír fjórðu hlutar þeirra, 931 milljón, greiddir út í gær. Afgangurinn verður greiddur út fyrir áramót. 28.10.2009 04:00
Bændur óttuðust að verða fyrir tjóni Hættu á að bændur yrðu fyrir tjóni ef bilanir kæmu upp í mjaltakerfum frá norska fyrirtækinu DeLaval var að mestu afstýrt í fyrradag. Þá var undirrituð viljayfirlýsing milli Fóðurblöndunnar og DeLaval um að Fóðurblandan tæki yfir sölu og þjónustu á vörum DeLaval á Íslandi. Tekur hún gildi um mánaðamót. 28.10.2009 04:00