Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir fjölmiðla hafa lagt flokkinn nánast í einelti Ásta Möller þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem hefur átt sæti á Alþingi síðustu tíu árin dettur nú af þingi. Hún segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart miðað við skoðanakannanir fyrir kosningar. Hún segist ekkert hafa ákveðið hvað taki nú við en margt hafi spilað inn í slæmt gengi flokksins í kosningunum. Ásta segir fjölmiðla ekki hafa hjálpað flokknum og hamast hafi verið á Guðlaugi Þór alla páskanna á meðan þagnarhjúpur hafi verið myndaður um Ingibjörgu Sólrúnu varðandi styrkjamálin. 26.4.2009 10:59
Fleiri greinast með svínaflensu Alþjóða heilbrigðismálastofnunin lýsti í gærkvöldi yfir vá gegn almannaheilsu um allan heim vegn svínaflensu sem greinst hefur í Mexíkó og Bandaríkjunum. 26.4.2009 10:37
Listi yfir þá sem taka sæti á Alþingi - 27 nýir þingmenn Af þeim 63 þingmönnum sem náðu kjöri í kosningunum eru 27 konur en þær hafa ekki verið eins margar á þingi áður. Framsókn nær inn 9 þingmönnum, Sjálfstæðisflokkur 16, Borgarahreyfingin 4, Samfylking 20 og VG 14. Frjálslyndiflokkurinn þurkkast út í kosningunum og fær engan mann inn á þing. Hér að neðan má sjá lista yfir þá sem taka sæti á Alþingi samkvæmt niðurstöðum kosninganna. 26.4.2009 10:06
„Fín sárabót í restina“ „Þessi tíðindi eru fyrst og fremst ánægjuleg og gleðileg. Ég held að við sjálfstæðismenn höfum átt þetta inni sem svona sárabót í restina,“ segir Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem datt inn á þing þegar síðustu tölur komu í hús um 9:00 leytið í morgun. Jón segir að flokkurinn hafi haft trú á því í alla nótt að þessi sextándi þingmaður kæmist inn og það hafi gengið eftir. 26.4.2009 09:29
„Ég fer ósár frá þessu“ Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði var í baráttusæti Samfylkinginarinnar í Suðvesturkjördæmi. Þegar síðustu tölur komu í hús nú rétt rúmlega 9:00 í morgun var ljóst að hann var ekki inni. Hann hefur verið inni og úti í alla nótt og segist í samtali við Vísi hafa spáð því að hann yrði Samúel Örn fram undir morgun og það virðist hafa ræst. 26.4.2009 09:13
Lokatölur kosninga: Sjálfstæðisflokkurinn tapar 9 þingmönnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar níu þingmönnum frá því í kosningum 2007. Talningu atkvæða lauk nú rétt eftir klukkan níu í morgun þegar lokið var við að telja atkvæði í Norðausturkjördæmi. 26.4.2009 09:12
Lokatölur úr Kraganum - Ögmundur verður þingmaður áfram Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra nær kjöri sem þingmaður í Suðvesturkjördæmi eftir að lokatölur hafa verið birtar. Samkvæmt tölunum fær VG tvo þingmenn í kjördæminu. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir verður annar þeirra og Ögmundur hinn. Eftir að fyrstu tölur voru birtar í Suðvesturkjördæmi leit ekki út fyrir að Ögmundur næði kjöri. 26.4.2009 07:46
Samstarf vinstri flokkanna ekki sjálfgefið Ekki er sjálfgefið að Samfylkingin leiti eftir stjórnarsamstarfi við Vinstri hreyfinguna - grænt framboð, að mati Magnúsar Orra Schram, sem er nýr þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. 26.4.2009 07:33
Lúðvík Geirsson er inni Lúðvík Geirsson bæjarstjóri er aftur kominn með sæti á Alþingi, en hann er fimmti maður Samfylkingarinnar í Suðvestur kjördæmi. Þeir Lúðvík Geirsson og Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafa skipst á jöfnunarsætinu það sem af er nóttu. Enginn veit enn hvernig sú staða endar. 26.4.2009 06:51
VG með þrjá þingmenn í NV kjördæmi Vinstri hreyfingin - grænt framboð nær þremur mönnum á þing í Norðvesturkjördæmi eins og staðan lítur út þegar búið er að telja atkvæði úr öllum kjördeildum. Þar með er VG með flesta þingmenn í kjördæminu. Einn maðurinn nær þó sæti sem jöfnunarþingmaður. Þingsætin skiptast með eftirfarandi hætti. 26.4.2009 06:00
Lúðvík úti - Jón Gunnarsson aftur inn Hafnfirski bæjarstjórinn og Samfylkingarmaðurinn Lúðvík Geirsson er aftur dottinn út af þingi í suðvesturkjördæmi. Fyrr í kvöld sagði hann við Vísi að hann væri Samúel Örn kosninganna en hann datt inn og út af þingi heila nótt þar til hann endaði sem varaþingmaður. 26.4.2009 05:51
Lúðvík Geirsson: Ég er Samúel Örn þessara kosninga „Ég er svona Samúel Örn þessara kosninga,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar sem segir það ekki sáluhjálparatriði hvort hann detti inn sem jöfnunarþingmaður eða einhver annar Samfylkingarmaður. Hann telur gott gengi Samfylkingarinnar útskýrast á evrópustefnu flokksins. 26.4.2009 05:30
Lokatölur í Suðurkjördæmi - Borgarahreyfingin fær mann kjörinn Borgarahreyfingin kemur inn manni í Suðurkjördæmi þegar að lokatölur hafa verið kynntar. Samfylkingin fær flest greidd atkvæði í kjördæminu en Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn fá hins vegar báðir 3 menn kjörna. 26.4.2009 05:29
Samfylkingin hagnast á uppbótarþingsætum Alls eru níu þingmenn komnir inn vegna uppbótarþingsæta. Ástæðan fyrir uppbótarþingsætum er vegna þess að niðurstöður kosninga, sætanna það er að segja, er skipt á milli kjördæma til þess að jafna atkvæðavægi. 26.4.2009 05:21
Ekki stærsti sigur Samfylkingarinnar Samfylkingin nær ekki því kjörfylgi sem flokkurinn hafði árið 2003 ef niðurstöður verða þær sömu þegar búið er að telja öll atkvæði og þau eru núna. Árið 2003 hlaut flokkurinn 31% atkvæða. Eins og staðan er núna er flokkurinn með tæplega 30% atkvæða. Flokkurinn var hins vegar með heldur minna fylgi fyrst þegar Samfylkingin bauð fram árið 1999 og árið 2007, en þá var fylgið 26,8%. 26.4.2009 05:16
Gríðarlegar sviptingar hjá þingmönnum Nokkuð hefur breyst síðan Vísir sagði frá því að þingmenn væru að detta út fyrr í nótt. Formaður þingflokks Sjálfstæðismanna, Arnbjörg Sveinsdóttir, er dottinn inn sem jöfnunarþingmaður í norðausturkjördæmi. Þá er Birgir Ármannsson kominn á þing á ný sem jöfnunarþingmaður. 26.4.2009 04:39
Fimm fjölmiðlamenn í hópi nýrra þingmanna Samfylkingarinnar Í hópi nýrra þingmanna Samfylkingarinnar eru fimm þingmenn sem hafa starfað á fjölmiðlum. 26.4.2009 04:15
Lokatölur Rn - Sigurður Kári og Ásta Möller atvinnulaus Sigurður Kári Kristjánsson er dottin út af þingi þegar að lokatölur úr Reykjavíkurkjördæmi norður hafa verið talin. 26.4.2009 04:02
27 nýir þingmenn Samkvæmt nýjustu tölum eru tuttugu og sjö nýir þingmenn að fara hefja sitt fyrsta kjörtímabil á Alþingi. Flestir þeirra tilheyra Samfylkingunni, eða níu þingmenn. Samfylkingin er jafnframt með mestu endurnýjunina. Það koma hinsvegar fæstir nýjir þingmenn frá Sjálfstæðisflokknum og því endurnýjun flokksins minnst. 26.4.2009 03:53
Lokatölur úr Reykjavík suður Lokatölur úr Reykjavíkurkjördæmi suður voru lesnar upp á fjórða tímanum. Samkvæmt þeim er Birgir Ármannssson með þingsæti. Lokatölur eru annars eftirfarandi. 26.4.2009 03:45
Sigurður Kári dottinn út af þingi Þingmaðurinn Sigurður Kári Kristjánsson er dottinn út af þingi en hann var jöfnunarmaður í Reykjavík suður. Hann var þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins en Ásta Möller einnig dottinn út af þingi. 26.4.2009 03:23
Óvíst um áhrif af umræðu um Drekasvæðið og Icelandair Það er erfitt að segja til um það hvort umræða um Icelandair Group og olíuvinnslu á Drekasvæðinu hafi haft áhrif á fylgi Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins. 26.4.2009 02:57
Þau eru að missa vinnuna Töluvert af sitjandi þingmönnum eru að detta út, þar af eru fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þar á meðal þingflokksformaðurinn. Það eru Arnbjörg Sveinsdóttir, Birgir Ármannsson, Ásta Möller og svo Jón Gunnarsson. Varaþingmaðurinn Erla Ósk Ásgeirsdóttir er ekki heldur inni á þingi. 26.4.2009 02:28
Þingflokksformaður ekki inn á þingi Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Arnbjörg Sveinsdóttir er ekki inni á þingi samkvæmt nýjustu tölum úr norðaustukjördæmi. Sjálfstæðisflokkurinn tapar talsvert í kjördæminu. Þingmaðurinn Kristján Þór Júlíusson og svo Tryggvi Þór Herbertsson eru öruggir inn. 26.4.2009 01:55
Sigmundur hlakkar til að taka til starfa „Jú, ég er bara farinn að hlakka til að taka til starfa á nýjum vettvangi," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson nýr þingmaður Samfylkingarinnar í samtali við fréttastofuna. Það er búið að vera sérstakt að horfa á 26.4.2009 01:51
Kemur vel til greina að hafa utanþingsráðherra áfram Þau Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir segja bæði vel koma til greina að halda áfram með utanþingsráðherra. Þau voru spurð að þessu í formannaspjalli á Ríkisútvarpinu. Þau sögðu bæði ákaflega góða reynslu af því að fá þau Gylfa Magnússon viðskiptaráðherra og Rögnu Árnadóttur til liðs við ríkisstjórnina þrátt fyrir að þau sitji ekki á þingi. 26.4.2009 01:37
Davíð eyðilagði landsfund Sjálfstæðisflokksins Davíð Oddsson eyðilagði landsfund Sjálfstæðisflokksins með ræðu sinni á fundinum, segir Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og formaður Endurreisnarnefndar flokksins. 26.4.2009 01:33
Þorgerður Katrín: Þetta er grautfúlt „Þetta er grautfúlt," sagði þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður sjálfstæðisflokksins um afhroð Sjálfstæðisflokksins í kosningunum í viðtali á RÚV. Hún sagði að flokkurinn þyrfti að halda áfram, ekki mætti dvelja í fortíðinni heldur horfa fram á við og læra af reynslunni: „Eins og ég segi alltaf, það er eitt skref til hægri og ekkert til vinstri." 26.4.2009 01:14
Kosningaskýring: Samfylkingin komin í lykilstöðu Meginniðurstaða kosninganna er sú að Samfylkingin hefur tekið við lykilstöðu Sjálfstæðisflokksins sem stærsti flokkur landsins. Þetta gerir það að verkum að Samfylkingin hefur nú möguleika á því að mynda meirihluta með einum flokki hvort sem er til vinstri eða hægri við sig. 26.4.2009 01:00
Samfylkingin að stíga á sviðið sem kjölfestuflokkur Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að Samfylkingin sé með kosningunum nú að stíga á sviðið sem kjölfestuflokkur í íslenskum stjórnmálum. Þetta kom fram í viðtali við hann í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins. 26.4.2009 00:51
Ögmundur nær kjöri samkvæmt nýjustu tölum Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra nær kjöri sem þingmaður samkvæmt nýjustu tölum. Ögmundur er í öðru sæti á lista Vinstri grænna í 26.4.2009 00:50
Krefst afsagnar formanns Frjálslynda flokksins „Ég tel að formaðurinn hafi keyrt flokkinn í þrot og hann eigi að segja sér sem og öll stjórnin," segir Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins og fyrrum varaformaður hans en honum er brugðið vegna slæmrar útreiðar flokksins í kosningunum. 26.4.2009 00:47
Jóhanna segir Evrópumálin eiga þátt í sigri Samfylkingarinnar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist telja að Evrópumálin eigi verulegan þátt í sigri Samfylkingarinnar í kosningunum. Jóhanna sagði í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 að Samfylkingin hafi lagt verulega áherslu á evrópumálin. Það sé sannfæring flokksins að sú stefna sé leiðin út úr vandræðunum. Hún segist telja að fólkið vilji fá að kjósa um þá kosti sem séu til staðar varðandi Evrópusambandið. 26.4.2009 00:29
Möguleiki á þremur stjórnarmeirihlutum Samfylkingarinnar Samfylkingin hefur möguleika á því að mynda þrennskonar ríkisstjórnir miðað við hvernig fylgið lítur út núna. Í fyrsta lagi getur Samfylkingin endurnýjað samstarfið við Vinstri hreyfinguna grænt framboð. Í öðru lagi getur flokkurinn myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Í þriðja lagi getur flokkurinn myndað þriggja flokka meirihluta með Borgarahreyfingunni og Framsóknarflokknum. 26.4.2009 00:16
Talningu lokið Nú er talningu lokið í Alþingiskosningunum. 193.934 greiddu atkvæði en síðustu tölur komu frá Norðausturkjördæmi. Úrslit kosninganna eru á þann veg að Sjálfstæðisflokkurinn missir níu þingmenn á landsvísu, með 22.9 prósent og fá þeir 16 þingmenn kjörna. 26.4.2009 00:01
Munum sækja fylgið til baka „Við erum með fólkið. Við erum með stefnuna í farteskinu til að snúa stöðunni við. Og við munum sækja fylgið til baka," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á kosningavöku Sjálfstæðisflokksins. 25.4.2009 23:39
Á von á að viðræður hefjist á morgun „Ég geri ráð fyrir að við hittumst jafnvel strax á morgun," sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, fyrir stundu um möguleika á stjórnarsamstarfi VG og Samfylkingarinnar. Steingrímur sagði í samtali við fréttastofu Ríkissjónvarpsins að úrslit kosninganna væru söguleg. Þetta væri hrun Sjálfstæðisflokksins og nýfrjálshyggjunnar. Um væri að ræða gríðarlega vinstri sveiflu í þessum kosningum. Hann sagði að það væru mikil tíðindi hve mikinn stuðning VG fær í Norðausturkjördæmi, sem er kjördæmi Steingríms. 25.4.2009 23:21
Ríkisstjórnin heldur velli Ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt fyrstu tölum allra kjördæma. Ríkisstjórnin hefur 52,9 prósent eða 35 þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn er að tapa í öllum kjördæmum. 25.4.2009 22:18
Ögmundur Jónasson: Sallarólegur þrátt fyrir að vera ekki inni „Ég hef áður reynt að vera inni og úti alla nóttina, síðast var það í þingkosningum árið 1995," segir heilbrigðisráðherrann Ögmundur Jónasson sem er ekki inni fyrir Vinstri græna í suðvestukjördæmi. Hann segist haga sér eins og hann gerði nóttina árið 1995: „Ég er sallarólegur og að landið rísi með nóttinni." 25.4.2009 23:54
Mikið um útstrikanir í Reykjavík Fyrrum formaður Samfylkingarinar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, var mikið strikuð út samkvæmt RÚV, en ekki er búið að birta nákvæmar tölur um útstrikanir. Það verður ekki get fyrr en eftir helgi. Athygli vekur að Ingibjörg er mikið strikuð út en hún vermdi síðasta sæti lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður. 25.4.2009 23:21
Kosningaskýring: ESB sinnuð framboð sigurvegararnir Evrópusambandssinnar eru sigurvegarar þessa kosninga. Samfylkingin hlýtur sína bestu kosningu frá upphafi og bætir við sig fjórum þingmönnum. Og Borgarahreyfingin er sem stendur með þrjá menn kjördæmakjörna á suðvesturhorni landsins. 25.4.2009 22:40
VG stærst í Norðaustur kjördæmi Vinstri Grænir eru stærsti í Norðaustur kjördæmi með 1819 atkvæði eða 30,3 prósent. Samfylkinging er næst stærst með rúm 26 prósent atkvæða. 25.4.2009 22:13
Svínaflensa veldur vá gegn almannaheilsu Alþjóða heilbrigðismálastofnunin lýsti nú í kvöld yfir vá gegn almannaheilsu um allan heim vegna svínaflensu sem greinst hefur í Mexíkó og Bandaríkjunum. 25.4.2009 21:06
Kosningasjónvarpið í beinni á Vísi Kosningasjónvarp Stöðvar 2 er í beinni útsendingu á Vísi frá klukkan níu í kvöld. Fréttastofa Stöðvar 2 verður með fréttatíma klukkan tíu í kvöld og aftur á miðnætti. Logi Bergman Eiðsson mun hins vegar halda úti eldhressum kosningaþætti í opinni dagskrá. Logi mun fylgjast með gangi mála í bland við lauflétt skemmtiatriði. Félagarnir Auddi og Sveppi munu einnig heimsækja kosningavökur og taka púlsinn á frambjóðendum flokkanna. 25.4.2009 19:53
Sóttvarnarlæknir í viðbragðsstöðu vegna svínaflensu Alþjóða heilbrigðismálastofnunin varaði í dag við mögulegum heimfaraldri svínaflensu. Sjúkdómurinn hefur dregið nærri sjötíu til dauða í Mexíkó síðan um miðjan mars. Sóttvarnarlæknir er í viðbragðsstöðu. 25.4.2009 19:25