Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tæpum milljarði úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2009. Samtals úthlutar ráðherra 952 milljónum króna til uppbyggingar hjúkrunarrýma, fækkunar fjölbýla á hjúkrunarheimilum, til endurbóta vegna öryggis- og aðgengismála, viðhalds á húsnæði og endurnýjun búnaðar og til uppbyggingar á félagsaðstöðu fyrir aldraða. 23.4.2009 09:37
Hálkublettir á Reykjanesbraut Á Reykjanesbraut og víða á höfuðborgarsvæðinu eru hálkublettir. Einnig eru hálkublettir á Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði. Hálka er á Sandskeiði og á Hellisheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 23.4.2009 09:34
Sigmundur Davíð á fjölskylduhátíð framsóknarmanna Sumarhátíð Framsóknarflokksins í Reykjavík verður haldin á Ingólfstorgi í dag klukkan 14. Boðið verður upp á grillaðar pylsur, græna frostpinna, hoppikastala, dýrablöðrur og andlitsmálningu. 23.4.2009 09:30
Færður á slysadeild eftir árás með eggvopni Karlmaður var í gærkvöldi fluttur á slysadeild eftir að til átaka kom í heimahúsi í Austurbænum sem endaði með maðurinn var skorinn í hökuna með eggvopn. Lögregla handtók tvo menn grunaða um verknaðinn og verða þeir yfirheyrðir í dag. 23.4.2009 09:06
Þóra Kristín kosin formaður Blaðamannafélags Íslands Þóra Kristín Ásgeirsdóttir var kjörin formaður Blaðamannafélags Íslands á aðalfundi félagsins sem fer fram nú í kvöld. Þóra hlaut 65% atkvæða en Kristinn Hrafnsson, fyrrverandi fréttamaður í Kompási, var einnig í framboði. Um 100 manns kusu. 22.4.2009 21:41
Össur vill ekki hækka skatta á fyrirtæki Össur Skarphéðinsson segir að ekki megi hækka skatta á fyrirtæki þrátt fyrir að rekstur ríkissjóðs sé erfiður um þessar mundir. Þetta kom fram í máli Össurar í þættinum „Hvernig á að bjarga Íslandi" á Stöð 2 í dag. Össur, líkt og margir aðrir sem fram komu í þættinum, sagðist telja að nauðsynlegt væri að lækka stýrivexti Seðlabankans. 22.4.2009 19:30
Reykræstu íbúð í Stakkahlíð Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að íbúð í Stakkahlíð rétt fyrir klukkan átta í kvöld vegna reyks sem lagði um íbúðina. Í ljós kom að einhverskonar óhapp hafði orðið við eldamennsku í íbúðinni sem olli reyknum. Slökkviliðsmenn reykræstu íbúðina og hurfu síðan á brott. 22.4.2009 21:55
Aldrei verið beðinn um eitthvað í staðinn fyrir styrki „Miðað vð það umhverfi sem þá var þá þóttu þetta ekki háar fjárhæðir," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um styrkveitingar vegna prófkjöra. Fram hefur komið í fjölmðlum að Guðlaugur Þór fékk samtals 4 milljónir króna frá FL Group og Baugi vegna styrkja. 22.4.2009 20:07
VG ekki á móti olíuleit á Drekasvæðinu „Vinstrihreyfingin - grænt framboð áréttar að flokkurinn hefur ekki lagst gegn olíuleit á Drekasvæðinu," segir í tilkynningu sem flokkurinn sendi frá sér fyrir stundu vegna fréttar á Stöð 2. Í tilkynningu segir að þingmenn 22.4.2009 19:51
Fengu tæpar 12 milljónir frá Baugi Baugur greiddi samtals 11,6 milljónir þeim 17 einstaklingum sem eru á lista DV yfir þá aðila sem fengu styrki fyrir prófkjör á árinu 2006. Fram hefur komið að upphæðirnar voru á bilinu 250 þúsund til tvær milljónir króna, en frambjóðendurnir fengu samsvarandi upphæðir greiddar frá FL Group. Í frétt DV kemur fram að listinn yfir styrkþega sé ekki tæmandi. 22.4.2009 19:33
Á móti olíuvinnslu á Drekasvæðinu Vinstri grænir leggjast gegn olíuleit á Drekasvæðinu. Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra kallar Drekaútboðið óðagotsaðgerð, - olíuvinnsla samrýmist hvorki stefnu um sjálfbæra nýtingu orkulinda né skuldbindingum Íslands á alþjóðavettvangi. 22.4.2009 18:32
Steinunn Valdís: Prófkjör kosta Guðlaugur Þór Þórðarson og Steinunn Valdís Óskarsdóttir fengu fjórar milljónir króna frá Baugi og FL Group til að fjármagna prófkjörsbaráttu sína árið 2006. Prókjör kosta, barnaskapur að halda annað, segir Steinunn Valdís. Björn Ingi Hrafnsson og Guðfinna Bjarnadóttir fengu milljón hvort í styrk frá Baugi samkvæmt leynistyrkjalista stjórnmálamanna sem DV birtir í dag. 22.4.2009 18:30
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 2 menn í Kraganum Það er ekki ofsagt að hið pólitíska landslag er að taka gríðarlegum breytingum þessar vikurnar. Þannig var samanlagt fylgi vinstri flokkanna í Kraganum minna en Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosningum - í nýjustu könnun fréttastofu eru bæði Vinstri græn og Samfylking stærri en Sjálfstæðisflokkur. 22.4.2009 18:30
Hvernig á að bjarga atvinnulífinu? Fréttamennirnir Heimir Már Pétursson og Sólveig Bergmann halda áfram að krefja frambjóðendur svara við spurninga sem brenna á allri þjóðinni fyrir kosningarnar. 22.4.2009 17:43
Fékk líka milljónir frá Baugi Steinunn Valdís Óskarsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar fékk tvær milljónir króna í styrk frá Baugi í prófkjörsbaráttunni árið 2006. Hún fékk einnig tvær milljónir frá FL Group líkt og Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur fram á fréttavef DV, dv.is, sem hefur undir höndum lista yfir þá sem þáðu styrki frá Baugi í prófkjörum fyrir þingkosningarnar 2007. 22.4.2009 16:46
Sameining á bráðamóttökum Landspítala framfaraskref Sameining á bráðamóttökum Landspítala á einn stað yrði mikið framfaraskref fyrir starfsemi sjúkrahússins, ef öll önnur bráðastarfsemi sjúkrahússins yrði jafnframt sameinuð á sama stað. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar læknaráðs Landspítala. Af slíku fyrirkomulagi hlytist bæði faglegur og fjárhagslegur ávinningur, að mati stjórnarinnar. 22.4.2009 16:40
Bjarni Ben á fjölskylduhátíð Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík og í Suðvesturkjördæmi efnir til fjölskylduhátíðar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík á morgun, Sumardaginn fyrsta, kl. 17.00-19.00. 22.4.2009 16:31
Samfylkingin með 35% í Reykjavík suður Samfylkingin nýtur mest fylgis allra flokka í Reykjavíkurkjördæmi suður en fylgi flokksins mælist 34,7% í nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup sem greint var frá í síðdegisfréttum Ríkisútvarpsins. Þrír flokkar ná kjördæmakjörnum mönnum á þing samkvæmt könnuninni. 22.4.2009 16:07
Vaxtastefnan snara um háls atvinnulífsins Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir að samtökin hafi ítrekað sagt að koma verði atvinnulífinu af stað til að hægt sé að skapa störf. Lækka verði vexti hratt. „Vaxtastefnan hérlendis hefur verið sem snara um háls atvinnulífsins. Háir vextir hérlendis lama hundruð fyrirtækja í hverjum mánuði og koma þeim úr umferð. Munum að hávaxtastefnan er heimatilbúin og ein stærsta einstaka ástæðan fyrir því hversu illa er komið fyrir landinu okkar,“ sagði Þór í ræðu á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í dag. Hann var endurkjörinn formaður með 74% greiddra atkvæða. 22.4.2009 15:50
Fékk tvær milljónir frá Baugi Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins fékk tvær milljónir króna frá Baugi í prófkjöri flokksins árið 2006 vegna þingkosninganna árið eftir. Þetta er sama upphæð og hann fékk frá FL Group í sama prófkjöri. Þetta fullyrðir fréttavefur DV, dv.is, í dag en þeir hafa undir höndum lista yfir þá sem fengu styrki frá Baugi í prófkjörinu. 22.4.2009 15:32
Atvinnulaus sjálfstæðismaður á bak við nafnlausu auglýsingarnar Einn af forsvarsmönnum hóps sem kallar sig Áhugafólk um endurreisn Íslands og birti nýverið umdeildar auglýsingar í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu er flokksbundinn sjálfstæðismaður. Hópurinn hefur sent frá sér yfirlýsingu og undir hana skrifa Benedikt Guðmundsson og Sigurður Hjaltested. Í umræddum auglýsingum segir að bæði Vinstri grænir og Samfylkingin hafi talað um skattahækkanir í aðdraganda þingkosninganna. Flokkarnir hafa hinsvegar báðir gert athugasemdir við auglýsinguna og sagt þær uppfullar af rangfærslum. Sigurður segir í samtali við fréttastofu að þeir hafi fengið upplýsingarnar upp úr stefnu og viðtölum við frambjóðendur vinstriflokkanna í fjölmiðlum. 22.4.2009 15:01
Vinstri grænir kæra fleiri myndbirtingar af Steingrími Vinstri hreyfingin grænt framboð hefur kært auglýsingu Vefþjóðviljans, andriki.is sem haldið er úti af hægri mönnum, til siðanefndar SÍA en auglýsingin birtist í Fréttablaðinu í dag. Þar er birt mynd af Steingrími J. Sigfússyni formanni flokksins og vill flokkurinn kanna hvort myndbirtingin standist siðareglur SÍA. Áður hefur VG kært Sjálfstæðisflokkinn í Norðvesturkjördæmi fyrir svipaðar auglýsignar sem birst hafa í héraðsblöðum. Stjórnarmaður Andríkis segir merkilegt að VG hafi ekki gert neina efnislega athugasemd við auglýsinguna. Fordæmi eru fyrir myndbirtingum af fólki úr öðrum flokkum í kosningum. 22.4.2009 15:00
Fulltrúar Framsóknarflokksins dýrastir Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna ferða- og dagpeningagreiðslna borgarfulltrúa og annarra fulltrúa borgarstjórnarflokkanna voru að minnsta kosti 16,3 milljónir króna á árunum 2006 til 2008. Heildargreiðslur vegna fulltrúa Framsóknarflokksins voru hlutfallslega hæstar miðað við fylgi í síðustu borgarstjórnarkosningum og fjölda borgarfulltrúa. 22.4.2009 14:00
Segja fyrningu aflaheimilda aðför að 32.000 fjölskyldum í landinu Félag ungs fólks í sjávarútvegi segir að fyrning aflaheimilda sé aðför að 32.000 fjölskyldum í landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en þar segir ennfremur að vinstriflokkarnir sem nú séu í framboði til Alþingis hafi það á stefnuskrám sínum að gera aflaheimildir sjávarútvegsfyrirtækja upptækar undir yfirskrift fyrningarleiðar. 22.4.2009 13:41
Ökumönnum mótorhjóla bannað að hafa með sér farþega Yfirvöld í Guatemala hafa bannað ökumönnum mótorhjóla að hafa með sér farþega. Mótorhjól eru eitt helsta verkfæri glæpagengja í landinu. 22.4.2009 13:30
Skildu börnin sín eftir á pizzastað Ítalska lögreglan leitar nú að þýsku pari sem skildi þrjú börn sín eftir á pizzastað um síðustu helgi. Börnin eru átta mánaða tveggja ára og fjögurra ára. Starfsfólk veitingastaðarins höfðu samband við lögregluna eftir að foreldrarnir fóru út til þess að fá sér sígarettu og komu ekki aftur. 22.4.2009 12:46
Tamíl tígrar innikróaðir Útlit er fyrir að komið sé að endalokum Tamíl tígra á Sri Lanka. Her þeirra er innikróaður á nokkurra ferkílómetra svæði í norðurhluta landsins. 22.4.2009 12:37
Misskipting í vestrænum ríkjum jókst mest á Íslandi Misskipting tekna varð meiri hér en í nokkru öðru vestrænu ríki á árunum 1993 til 2007. Þetta fullyrðir Arnaldur Sölvi Kristjánsson hagfræðingur hjá Þjóðmálastofnun Háskólans. Ríkustu tíu prósent Íslendinga tóku til sín fjörutíu prósent allra tekna í hittiðfyrra. 22.4.2009 12:27
Þrjú hundruð manns taka þátt í hópmálsókn gegn bönkunum Hátt í þrjú hundruð manns hafa ákveðið að taka þátt í hópmálsókn gegn bönkunum vegna lána sinna. Björn Þorri Viktorsson lögmaður segir marga íhuga alvarlega að hætta að borga af lánum sínum. Stefnt er að fyrsta prófmálið fari fyrir dómstóla strax í maí eða júní. 22.4.2009 12:22
Átak til að rannsaka hugsanleg skattalagabrot Fjármálaráðuneytið hefur í samvinnu við skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra ákveðið að hafið verði sérstakt átak til að rannsaka hugsanleg brot á skattalögum í tengslum við hrun bankanna og í aðdraganda þess. 22.4.2009 12:07
Fangar á Litla-Hrauni kjósa til Alþingis í dag Töluverður áhugi er meðal fanga á komandi kosningum en þeir munu kjósa utan kjörfundar í dag. Fulltrúi sýslumanns á Selfossi kemur í fangelsið og þeir sem vilja geta tekið þátt. Um 90 fangar eru á Litla-Hrauni nú en af þeim eru einhverjir útlendingar sem ekki hafa kosningarétt. Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn sem hefur rætt við kjósendur á Litla Hrauni í aðdraganda kosninganna. 22.4.2009 12:00
ESB ekki að fara að taka upp íslenskættað kvótakerfi Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, fullyrðir að Evrópusambandið sé ekki að fara að taka upp íslenskættað kvótakerfi. 22.4.2009 11:30
Íranar fagna boði um kjarnorkuviðræður Yfirvöld í Íran taka vel í tilboð sex ríkja um að hefja viðræður um kjarnorkuáætlun landsins. Bandaríkin eru í hópi þeirra sem vilja ræða við Írana um málið og í yfirlýsingu frá stjórnvöldum sem lesin var upp í íranska ríkisútvarpinu í dag var greint frá því að þar á bæ fagni menn uppbyggilegum viðræðum um málið. 22.4.2009 10:36
Sjálfstæðismenn fá frest fram yfir kosningar til að svara kæru VG Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi hafa frest fram yfir kosningar til að kom á framfæri sínum sjónarmiðum vegna kæru Vinstri grænna til siðanefndar SÍA, Sambands íslenskra auglýsingastofa. Þetta segir Jóhannes Gunnarsson, formaður siðanefndarinnar SÍA. Hann vill ekki tjá sig efnislega um kæruna. 22.4.2009 10:34
Barn fann gleymda byssu og skaut sig í höfuðið Tólf ára gamall drengur í Flórída liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hann fann skammbyssu, sem foreldrar hans höfðu gleymt að þau ættu, og skaut sig í höfuðið af slysni. Byssan var í skókassa inni í skáp og hafði verið þar síðan fjölskyldan flutti fyrir nokkrum árum. 22.4.2009 08:26
Ferrari-safn í smíðum í Modena Hinir nafntoguðu sportbílar, sem bera nafn hönnuðarins Enzo Ferrari og gera það gott jafnt í Formúla 1-kappakstrinum sem á götum úti um gervallan heiminn, eru nú um það bil að fá safn reist til heiðurs sér og sögu sinni í Modena þar sem Ferrari fæddist árið 1898. 22.4.2009 08:10
Krikketáhugamenn í hungurverkfalli Hundruð vistmanna í fangelsi í indversku borginni Kolkata eru í hungurverkfalli eftir að yfirvöld neituðu þeim um sjónvarpstæki til að horfa á stórmót í krikket sem fram fer í Suður-Afríku um helgina en Indverjar senda landslið sitt á mótið. 22.4.2009 08:08
Vinnustaðaárásir vandamál í Bandaríkjunum Farið er að grípa til sérstakra aðgerða á sumum bandarískum vinnustöðum af ótta við hefndaraðgerðir fólks sem sagt hefur verið upp störfum. 22.4.2009 07:18
Herinn áfram á götum í Mexíkó Mexíkósk yfirvöld hafa ákveðið að her landsins verði í viðbragðsstöðu á götum helstu borga landsins allt til ársins 2013 til að berjast gegn fíkniefnabarónum en átök þeirra, meðal annars í borginni Ciudad Juarez, hafa kostað um 2.000 manns lífið á þessu ári. 22.4.2009 07:16
Fjöldi sjórána tvöfaldast milli ára Árásum sjóræningja á skip á hafi úti hefur fjölgað svo að nánast er um tvöföldun að ræða miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt tölum Alþjóðasiglingastofnunarinnar. 22.4.2009 07:13
Khodorkovsky ákærður á ný Rússneski auðjöfurinn Mikhail Khodorkovsky kveðst sýkn saka í nýju dómsmáli sem höfðað hefur verið gegn honum fyrir fjársvik þegar hann gegndi forstjórastöðu rússneska olíurisans Yukos. 22.4.2009 07:10
Hugsanleg saksókn yfirheyrslureglusmiða Ekki er útilokað að þeir embættismenn stjórnar George Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem settu reglur um aðferðir við að yfirheyra grunaða hryðjuverkamenn verði sóttir til saka að undirlagi Baracks Obama forseta. 22.4.2009 07:04
Sneisafullar fangageymslur 19 gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt sem er óvenju há tala að sögn varðstjóra. Flestir þurftu að sofa úr sér ölvímu en fjórir voru handteknir við innbrot. 22.4.2009 06:40
Ólafur F. vill innkalla lóðir Björgólfa Ólafur F. Magnússon vill að borgin leysi til sín lóðir sem Björgólfsfeðgar eiga í Reykjavík. Hann hefur boðað tillöguflutning þess efnis á næsta borgarstjórnarfundi. Er þar horft til lóða við Laugaveg þar sem listaháskóli er fyrirhugaður og Fríkirkjuveg 11. 22.4.2009 03:30
Dani á áttræðisaldri ákærður fyrir kynferðisbrot Danskur karlmaður á áttræðisaldri hefur verið úrskurðaður i fjögurra vikna gæsluvarðhald, grunaður um að hafa misnotað unga stúlku kynferðislega, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Silkeborg. Maðurinn er í einangrun og lögreglan vill ekki tjá sig um málið við fjölmiðla í Danmörku. Þó þykir ljóst að maðurinn hafi brotið gegn stúlkunni bæði áður og eftir en að hún varð 15 ára gömul. 22.4.2009 00:12