Fleiri fréttir

Vegfarendur um Óshlíðarveg vari sig

Lögreglan á Vestfjörðum biður vegfarendur um að vara sig þegar þeir aka um Óshlíðarveg. Svo virðist vera sem hreyfing sé í hlíðinni, en skriða féll þar í morgun.

Gert ráð fyrir tengibyggingu úr gleri

Tengibygging úr gleri á milli gömlu húsanna númer fjögur og sex við Laugaveginn og þakgarður á bakhýsi, eru meðal annars að finna í tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir svæðið.

Veiddu 76 punda lax

Tveir norskir ellilífeyrisþegar fengu nýverið 76 punda lax á stöng í svo nefndum Breiðuvíkurbotnum og náðu að innbyrða hann í bát sinn. Mörg vitni voru að þessum atburði og sáu þegar laxinn var vigtaður með viðurkenndri vigt.

Ferðalangi blöskrar ofsaakstur forsetabifreiðar

Ingibjörg Bragadóttir var á leiðinni til Reykjavíkur úr Borgarnesi. Undir Akrafjalli var bíll við bíl á um 100 km hraða. Skyndilega fær Ingibjörg bíl alveg upp að afturenda bifreiðar sinnar. Henni blöskraði aksturslag bílsins og brá enn frekar í brún þegar hún sá að þarna var forsetabílinn. Hún segir að um ofsaakstur hafi verið að ræða en forsetaembættið vísar þeim ásökunum á bug.

Miðnæturbörn valin besta Booker-verðlaunabókin

Bresk-indverski rithöfundurinn Salman Rushdie fékk í dag verðlaunin ,,Besta Booker-verðlaunabókin". Verðlaunin fékk hann fyrir bókina Miðnæturbörn (Midnight's Children) sem hlaut Booker-verðlaunin árið 1981. Verðlaunin eru veitt nú til að fagna 40 ára afmæli Booker-verðlaunanna sem eru ein virtustu bókmenntaverðlaun í heimi.

Hönnuð atburðarrás sett af stað til höfuðs Guðmundi

Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur (OR) segir að ásakanir um að hann hafi tekið skjöl OR ófrjálsri hendi lykti af pólitík. Hann segir að með því að "leka" bréfi sem lögfræðingur skrifaði honum fyrir hönd OR í gær hafi "hönnuð atburðarrás" verið sett af stað.

Bílastæðaskussar varaðir við

„Barnavagninn minn á ekki að þurfa að fara út á götu,“ stendur á glaðlegum miða sem Bílastæðasjóður hefur látið gera. Ætlunin er að festa miðann á bifreiðar sem loka gangstéttum fyrir foreldrum með barnavagn og öðrum gangandi vegfarendum.

Ekki meiri tíma í Lissabon-sáttmálann

Forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy varaði þing Evrópusambandsins við því að eyða meiri tíma í samningaviðræður um Lissabon-sáttmálann. Hann telur að það þurfi að varast að Evrópusambandið verði ekki aðgerðaleysi að bráð. Hann sagði að neitun Íra á sáttmálanum mætti ekki leiða til ,,einhvers konar stofnanakenndrar sápuóperu."

Framleiða eldsneyti úr matvælafitu og olíu

Líforka, nýtt fyrirtæki í framleiðslu eldsneytis hér á landi, hefur þróað aðferð til að endurnýta alla þá fitu og olíu sem til fellur hjá matvælaframleiðendum á Íslandi.

Veðhafi leysir fyrirhugað áfangaheimili til sín

Byr sparisjóður leysir líklega í dag til sín eignir þrotabús Í skilum sem meðal annars á fasteignirnar Hólavað 1 til 11 en Reykjavíkurborg hyggst opna þar áfangaheimili í haust.

Afli íslenska flotans jókst í fyrra

Á árinu 2007 var afli íslenskra skipa tæp 1.396 þúsund tonn, 73 þúsund tonnum meiri en árið 2006. Þetta kemur fram í ritinu, Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2007, sem Hagstofan gefur út.

Jafn margir gestir í söfn og í bíó

Árið 2006 voru starfrækt 158 sýningarstaðir safna, setra, garða og sýninga, samanborið við 97 fyrir áratug. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofan sendir frá sér í tilefni af hinum íslenska safnadegi þann 13. júlí.

Nýjar leiðbeiningar í skyndihjálp

Á þessu ári var leiðbeiningum í skyndihjálp og endurlífgun breytt í samræmi við niðurstöður nýjustu rannsókna. Helstu breytingarnar í endurlífgun við drukknun voru að nú á að byrja á því að blása 5 sinnum og hefja síðan hefðbundna endurlífgun sem er hnoða 30 sinnum og blása tvisvar sinnum þar til viðkomandi fer að anda sjálfur eða að sérhæfð aðstoð berst.

Ferðamenn í vanda við Heklu

Björgunarsveitarmenn af Suðurlandi fundu í gærkvöldi erlenda ferðamenn, sem höfðu fest jeppling sinn norðan við Heklu.

Tveir ölvaðir teknir úr umferð

Tveir ölvaðir ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að vegfarendur höfðu tilkynnt lögreglu um einkennilegt ökulag þeirra.

Kynlíf á ströndinni gæti kostað sex ár í fangelsi

Ensk kona sér fram á allt að sex ára fangelsi í Dubai eftir að hún stundaði kynlíf með ferðafélaga sínum á opinberri baðströnd í landinu. Kynlíf utan hjónabands er stranglega bannað í Dubai.

Offita er vaxandi vandamál í Kína

Offita er nú vaxandi vandamál í Kína og talið er að fimmti hver Kínverji sé of þungur. Fjöldi of feitra Kínverja hefur vaxið eftir því sem velmegun þjóðarinnar hefur aukist á undanförnum árum.

"Telur þetta sín prívat gögn"

Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, segir Guðmund Þóroddsson hafa álitið gögnin sem hann tók með sér þegar hann hætti störfum sín eigin. Jeppinn sé að mati Guðmundur hluti af 12 mánaða starfslokasamningi hans.

Eldur í Ingunnarskóla

Eldur kom upp í Ingunnarskóla fyrr í kvöld. Lögregla og slökkvilið var á staðnum. Íbúi í grennd tók þessa mynd sem sýnir slökkvibíl að störfum og reyk stíga upp frá skólanum.

12 ára drengur barði 18 mánaða stúlku til dauða

Tólf ára drengur í Miami hefur verið dæmdur til refsivistar á unglingaheimili fyrir að berja 18 mánaða stúlku til dauða. Drengurinn var úrskurðaður hæfur til að fara fyrir rétt af sálfræðingum en slapp við fangelsisvist.

Auglýsir eftir eigenda svangs og einmana hunds

Þorsteinn Kjartansson, ellilífeyrisþegi, sá aumur á villuráfandi hundi við sumarbústaðinn sinn. Hann auglýsir eftir eigenda að hundinum sem bæði horaður og svangur.

Tók trúnaðargögn og farinn í frí

Ekki næst í Guðmund Þóroddson, fyrrverandi forstjóra Orkuveitunnar, sem tók með sér marga kassa af trúnaðargögnum þegar hann lét af störfum og neitar að skila jeppa frá fyrirtækinu. Barnfóstra hans segir Guðmund í fríi úti á landi.

Áfangaheimili opnar ekki nema húsnæði verði tryggt

Velferðarsvið Reykjavík hefur ekki lokið við gerð samnings við Heilsuverndarstöðina um rekstur áfangaheimilis í Hólavaði í Norðlingaholti þar sem ekki liggur endanlega fyrir hvort umrætt húsnæði sé til ráðstöfunar þar sem það er nú í eigu þrotabús.

Foreldrar sex ára fegurðardrottningar drápu hana ekki

Yfirvöld i Bandaríkjunum hafa loksins hreinsað fjölskyldu JonBenet Ramsey af grun um að hafa átt hlut í dauða hennar. JonBenet var drepin árið 1996 þegar hún var sex ára og dáð fegurðardrottning í heimabæ sínum.

Almannatengill segir Geir eiga að vera jákvæðari

Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur ítrekað birst landsmönnum sem önugur að undanförnu. Sjálfstæðismaðurinn og almannatengillinn Ólafur Hauksson ráðleggur honum að breyta hegðun sinni gagnvart fréttamönnum.

Þyrlan lenti með slasaða konu

Þyrlan Landhelgisgæslunnar lenti nú fyrir skömmu með slasaða konu við Borgarspítala. Konan féll af hestbaki á Snæfellsnesi og hlaut brjóstholsáverka.

Katrín búin að kæra

Katrín Theódórsdóttir lögfræðingur Paul Ramses er búin að leggja inn kæru vegna synjunar Útlendingastofnunar á efnismeðferð í máli hans.

McCain vil drepa Írani með sígarettum

Forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum, John McCain, lét miður heppileg ummæli falla við blaðamenn í gær þegar hann var spurður út í síaukinn útflutning bandarískra vindlinga til Írans. Sagði McCain að kannski væri þetta ein leið til að drepa Írani.

Sextán ára sonur Osama hvetur til eyðileggingar Vesturlanda

Eplið fellur sjaldan langt frá eikinni. Ljóð sem sagt er samið og flutt af sextán ára syni Osama Bin Laden í tilefni þess að þrjú ár eru liðin frá hryðjuverkaárásinni á London birtist í gær á vefsíðu öfgamanna. Myndband á síðunni hefst á stuttri kynningu á Sheikh Hamza Bin Laden, sem er yngstur átján sona Osama, sem svo flytur ljóð þar sem hann er hvetur til eyðileggingar Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands og Danmerkur.

Yfir 300 manns á kynningarfundi í Kópavogi

Á milli þrjú og fjögur hundruð manns mættu á kynningarfund hjá skipulags- og umhverfissviði Kópavogsbæjar í gærkvöldi um skipulagshugmyndir á Kársnesi.

Landspítalinn með áætlun í bakhöndinni

Nú stendur yfir fundur í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga og ríkisins hjá Ríkissáttasemjara en fundurinn hófst klukkan ellefu í morgun. Hjúkrunarfræðingar hafa boðað yfirvinnubann sem tekur gildi á morgun, náist ekki að semja. Anna Stefánsdóttir framkvæmdarstjóri hjúkrunar Landspítalans segir spítalann vera með áætlun í bakhöndinni ef til yfirvinnubannsins kemur.

Biðjast afsökunar á hávaða við Hallgrímskirkju

Um helgina fengu nokkrir íbúar á Skólavörðuholtinu nóg af hávaðanum sem stafar af viðgerðum á Hallgrímskirkju. Vísir sagði frá óánægðum íbúa á laugardaginn sem kvartaði undan því að framkvæmdir hæfust klukkan 07:00 á laugardagsmorgnum.

Ekki skemmdarverk á strætóskýlum

Undanfarna daga hafa fjölmargir vegfarrendur haft samband við AFA JCDecaux sem annast auglýsingaskiltin á strætóskýlum borgarinnar. Hafa þeir látið vita um skemmdarverk á skiltunum þar sem búið er að líma veggspöld með slagorðinu Skítt með kerfið yfir aðrar auglýsingar.

Sjá næstu 50 fréttir