Fleiri fréttir

Fundu „skunk“ í bíl dópaðs ökumanns

Lögreglan á Selfossi lagði í síðustu viku hald á nokkrar kannabisplöntur við húsleit eftir að hún hafði stöðvað mann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Skjólbelti við Ylströnd algjörlega til skammar

Lítil uppbyggingin hefur verið við Ylströndina í Nauthólsvík frá því að hún opnaði sumarið 2000. Andvaraleysi borgarstjórnar í málefnum svæðisins endurspeglast líklegast best í sérstöku skjólbelti sem gróðursett var fyrir ofan ströndina og heldur hvorki vatni né vindi eins og kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær.

Í lagi að nota ráðherrabíla í eigin þágu

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir að ráðherrum sé heimilt að nota ráðherrabifreiðar í einkaerindum. ,,Það er alveg ljóst að ráðherrum er heimilt að nota bifreiðar í einkaþágu."

Á sjötta hundrað manns vísað frá MH og Verzló

Innritun í framhaldsskóla fyrir næsta haust er nú lokið en alls sóttu um 4426 nemendur úr 10 bekk og 4100 eldri nemendur. Verzlunarskóli Íslands og Menntaskólinn við Hamrahlíð voru vinsælustu skólarnir og þurftu að vísa frá á sjötta hundrað manns.

Víkka út leitarsvæðið á Skaga

Leit lögreglunnar á Sauðárkróki og Landhelgisgæslunnar að hugsanlegum hvítabirni á Skaga í Skagafirði hefur enn engan árangur borið og til stendur að víkka út leitarsvæðið.

Farþegamet hjá Sæferðum

Farþegamet var slegið hjá Sæferðum í Stykkishólmi á laugardaginn var þegar rúmlega ellefu hundruð farþegar sigldu með skipum fyrirtækisins.

ESB beitir frekari refsiaðgerðum gegn Íran

Evrópusambandið hefur samþykkt að beita Íran frekari refsiaðgerðum til þess að reyna að fá þá til að hætta auðgun úrans. Mun nú þeim aðgerðum beitt að frjósa allar inneignir íranska bankans Melli innan ESB-landa.

Ísbjörn við Bjarnarvötn? - mynd

Sjónarvottarnir sem telja sig hafa séð ísbjörn við Bjarnarvötn í gær segjast vissir í sinni sök um að dýrið sem þau sáu hafi verið ísbjörn. Á fréttavefnum Skagafjörður.com er viðtal við fólkið en þau náðu mynd af kvikindinu áður en þau tóku til fótanna.

Krýsuvíkurvegur lokaður að hluta vegna malbikunar

Krýsuvíkuvegur verður lokaður frá Bláfjallaafleggjara klukkan átta í kvöld til morguns vegna malbikunarframkvæmda. Loftorka vinnur að verkinu og menn þar á bæ höfðu samband við fréttastofu og báðu hana um að koma þessu á framfæri.

Forsetakosningar verða í Simbabve

Opinberir starfsmenn í Simbabve segja að ekki verði hætt við forsetakosningar í Simbabve þrátt fyrir að Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hafi dregið framboð sitt til baka.

Uggur meðal starfsmanna Icelandair

Uggur er meðal starfsmanna Icelandair en félagið hefur boðað fjöldauppsagnir um næstu mánaðamót. Starfsmenn félagsins funda á morgun.

Nýrri eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar breytt

Tímamót urði í smíði nýrrar eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar á föstudaginn var þegar flugvélaverksmiðjan Bombardier í Toronto afhenti hana til Field Aviation sem breytir henni í eftirlitsflugvél.

Lést í umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi

Drengurinn sem lést í umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk aðfaranótt laugardagsins 21. júní 2008 hét Örn Sigurðarson, búsettur að Granaskjóli 52 í Reykjavík. Örn var 19 ára.

80-100 missa vinnuna hjá Flugþjónustunni

Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli hefur sagt upp á bilinu 80-100 manns í 70-75 stöðugildum og missa starfsmenn vinnuna í lok september. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar.

Bíður eftir niðurstöðu fundar

Jóhannes Bjarni Guðmundsson, formaður Félags atvinnuflugmanna, vill að svo stöddu ekki láta hafa neitt eftir sér varðandi fyrirhugaðir uppsagnir hjá Icelandair.

Dauðsföllum stúlkna í Indlandi fjölgar

Fjöldi stúlkna sem vex úr grasi í Indlandi hefur náð lágmarki samanborið við drengi þar í landi. Hlutfallið hefur farið allt niður í 300 stúlkur miðað við hverja 1000 drengi í einu héraði landsins. Venjulega hefur þetta hlutfall verið 950 stúlkur á hverja 1000 stráka.

Þriðji ísbjörninn á Skaga?

Við hefðbundið ísbjarnarflug á Skagaheiði í gærkvöld sást hvítt þunglamalegt dýr á ferðinni. Ekki tókst að staðfesta að um ísbjörn væri að ræða en leit hélt áfram í nótt og stendur í raun enn eftir því sem segir á vefnum Skagafjörður.com.

Maður lést af höfuðáverkum - Mögulegt manndráp á Frakkastíg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort Pólverji, sem lést af höfuðáverkum á sjúkrahúsi á föstudag, hafi verið myrtur. Landi hans, sem heimildir Vísis herma að sé nágranni mannsins, hefur setið í gæsluvarðhaldi í hálfa aðra viku en það rennur út í dag.

Vill ekki tjá sig um uppsagnir Icelandair

Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair vill ekki tjá sig um fyrirhugaðar uppsagnir félagsins að svo stöddu. Í samtali við Vísi í morgun benti hann á fjölmiðlafulltrúa félagsins en ekki hefur tekist að ná tali af honum í morgun.

Pele rændur

Tíu manna hópur rændi brasilísku knattspyrnugoðsögnina Pele um helgina þar sem hann var á leið frá borginni Sao Paulo til húss sem hann á við ströndina utan við borgina.

Segja skipulagt fyrir forsetann

„Tillagan virðist fyrst og fremst gerð með það í huga að taka út lóðina Miðskóga 8,“ bókuðu fulltrúar minnihluta Sjálfstæðisflokks þegar meirihluti Á-lista í skipulagsnefnd Álftaness samþykkti breytingu á deiliskipulagi Vestur-Skógtjarnarsvæðis.

Enginn á lífi eftir ferjuslysið á Filippseyjum

Óttast er að rúmlega þúsund manns hafi farist þegar fellibylur fór yfir Filippseyjar um helgina. Ferju með hátt í níu hundruð manns um borð hvolfdi í veðurofsanum og aðeins er vitað um fjóra sem komust lífs af. Við vörum við myndunum sem fylgja þessari frétt.

Búið að finna eiganda hvolpsins

Lögreglan á suðurnesjum er búin að finna eiganda hvolpsins sem fannst í hrauni við Kúagerði skammt frá veginum þar sem keyrt er að Keili. Málið verður rannsakað enn frekar. Dýralæknir sem annaðist hvolpinn segir hann á góðum batavegi og muni jafna sig að fullu.

Hátt í 90% keyra minna eftir eldsneytishækkun

Hátt í níutíu prósent landsmanna eru farin að keyra minna eftir að bensínverðið rauk upp, samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2. Fleiri konur spara við sig í dýrtíðinni en karlar og þeir sem hæstar hafa tekjurnar eru ólíklegastir til að draga úr notkun bílsins.

Baðstrandargestir leita skjóls undir rofabörðum

Enn er áratugur hið minnsta þar til skjól skapast við eina baðstrandarsvæði Reykvíkinga - Ylströndina í Nauthólsvík. Umsjónarmaður svæðisins segir dapurt að borgaryfirvöld hafi ekki hugsað fyrir skjólmyndun. Barátta hans fyrir skjóli hefur skilað gróðurbelti sem nú teygir sig fáeina sentímetra í loft upp.

Þyrla landhelgisgæslunnar sá enga ísbirni

Þyrla landhelgisgæslunnar flaug eftirlitsflug nú í dag til þess að kanna hvort einhverjir ísbirnir væru á vappi. Flaug þyrlan yfir svæði frá Aðalvík að Sauðárkróki en sáu enga ísbirni á leiðinni.

Bilun í jarðskjálftamæli

Glöggir lesendur heimasíðu Veðurstofu Íslands ráku upp stór augu þegar jarðskjálftamælir stofunnar sýndi jarðskjálfta upp á 5,7 á richter rúma 11,5 km SSA af Bárðarbungu um klukkan 15:00 í dag.

Sjá næstu 50 fréttir