Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bilun í gervihnetti Basel að kenna "Nei, þetta var ekkert stress. Maður er ýmsu vanur," sagði Pétur Guðmundsson útsendingarstjóri hjá Rúv nokkrum mínútum eftir að leik Þýskalands og Tyrklands lauk með sigri Þjóðverja. Á hápunkti leiksins datt gervihnötturinn út og milljónir áhorfenda horfðu á auðan skjá. 25.6.2008 20:44
Miltisbrandur í Garðabæ - íbúar með lokaða glugga Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan rannsakar nú dýrabein sem fundust í húsgrunni í Garðabæ. Grunur leikur á miltisbrandssmiti. Íbúi undrast samskiptaleysi af hálfu lögreglunnar. Hann hefur gluggana lokaða til vonar og vara. 25.6.2008 20:15
Fresta ákvörðun um Droplaugarstaði Velferðarráð Reykjavíkurborgar ákvað á fundi sínum í dag að fresta ákvörðun um hvort bjóða eigi út rekstur á hjúkrunarhemilinu Droplaugarstöðum. Minnihlutinn í ráðinu sakar meirihlutann um að halda stofnuninni í fjársvelti. 25.6.2008 19:30
Gruna Olís ekki um bensínstríð Gunnar Karl Guðmundsson, framkvæmdastjóri Skeljungs, segir tölvupóst þar sem fólk er hvatt til að sniðganga N1 og Shell fullan af rangfærslum. Hann grunar Olís ekki að standa á bak við hugsanlegt bensínstríð. 25.6.2008 19:16
Áfangasigur - segir lögfræðingur systursona Fischer "Það má segja að þetta sé áfangasigur," segir Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður systursona Bobby Fischer. Hæstiréttur ómerkti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði hafnað kröfum systursonanna um að dánarbúið yrði tekið til opinberra skipta. 25.6.2008 18:03
Ómerkir úrskurð héraðsdóms um dánarbú Fischers Hæstiréttur hefur ómerkt úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði kröfum systursona Bobbys Fischer, fyrrverandi skákmeistara, um að dánarbú hans yrði tekið til opinberra skipta. Er málinu vísað aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar. 25.6.2008 16:55
Kjartan: Mun athuga hvort ekki megi koma upp skjólbelti strax í Nauthólsvík Uppbygging í Nauthólsvík er í sífelldri skoðun segir Kjartan Magnússon, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, en forstöðumaður svæðisins hefur gagnrýnt stöðnun þess. 25.6.2008 16:46
SVÞ vilja aðildarviðræður við ESB Samtök verslunar og þjónustu hvetja íslensk stjórnvöld til að lýsa yfir vilja til að undirbúa viðræður að aðild að Evrópusambandinu. Samtökin vilja að samhliða aðildarviðræðum fari fram ,,ítarlegar, hlutlausar og fordómalausar umræður á opinberum vettvangi um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu," eins og segir í tilkynningu frá SVÞ. 25.6.2008 16:36
Ísraelski lögreglumaðurinn framdi ekki sjálfsmorð samkvæmt fjölskyldu hans Fjölskylda hins ísraelska lögreglumanns, sem skaut sig við kveðjuathöfn franska forsetans Nicolas Sarkozy í Ísrael í gær, segir ekki koma til greina að hann hafi framið sjálfsmorð. Raid Asaad Raid Ghanan hafi verið hamingjusamur og góðhjartaður sem hafði enga ástæðu til þess að fremja sjálfsmorð. 25.6.2008 16:17
Kaþólskur prestur hjálpar syrgjandi Pólverjum „Þeir hafa ekki fengið áfallahjálp en kaþólski presturinn í Keflavík hefur rætt við þá,“ segir Sveinn Ingvar Hilmarsson, vinnuveitandi og leigusali Pólverjanna, sem syrgja nú landa sinn sem lést eftir að hafa fengið höfuðáverka í híbýlum mannanna við Frakkastíg fyrir rúmum tveimur vikum. 25.6.2008 16:15
45 daga fangelsi fyrir bílþjófnað Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt 24 ára karlmann í 45 daga fangelsi fyrir bílstuld. 25.6.2008 15:44
Bætur vegna Exxon Valdez slyssins lækkaðar Hæstiréttur Bandaríkjanna lækki í dag þær bætur sem olíufélagið Exxon Mobil þarf að greiða vegna olíuslyss sem varð undan ströndum Alska árið 1989 þegar risaolíuflutningaskipið Exxoon Valdez strandaði. 25.6.2008 15:20
Tsvangirai vill samningaviðræður Fyrrverandi forsetaframbjóðandinn og stjórnarandstöðuleiðtoginn Morgan Tsvangirai ávarpaði fréttamannafund í dag og kallaði eftir pólitískum samningaviðræðum svo Simbabve fengi að hlú að sárum sínum. 25.6.2008 15:08
Borga 2,6 prósent af heildarkostnaði ráðherrabíla Ráðherrar greiða 2,6 prósent af heildarkostnaði við rekstur ráðherrabifreiða. Ráðherrar greiða skatt af bifreiðahlunnindum sínum og er samanlagur kostnaður þeirra rúmar 2,2 milljónir á ári. Á árunum 1998 til 2003 var meðalkostnaður á ári við rekstur bílanna 82,3 milljónir. 25.6.2008 15:03
Ingibjörg Sólrún í Damaskus að ræða friðarmál Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fundaði í dag í Damaskus með sýrlenskum ráðamönnum um stöðu mála í Mið-Austurlöndum og málefni Íraks og Íran. Heimsóknin tengist áherslum ráðherra á málefni Mið-Austurlanda og nauðsyn þess að friður komist á fyrir botni Miðjarðarhafs eins og segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. 25.6.2008 14:51
Dauðarefsing ekki heimiluð yfir þeim sem nauðga börnum Hæstiréttur Bandaríkjanna komst að þeirri niðurstöðu í dag að ríki landsins gætu ekki beitt dauðarefsingu sem hegningu fyrir nauðgunarbrot gegn börnum. 25.6.2008 14:48
Ákvörðun um Droplaugarstaði frestað Velferðarráð Reykjavíkur ákvað á aukafundi sínum nú fyrir stundu að fresta ákvörðun um tillögu varðandi rekstrarform hjúkrunarheimilisins Droplaugarstaða við Snorrabraut fram í ágúst. 25.6.2008 14:36
Kartöflur betri fyrir loftslagið en hrísgrjón Borðaðu kartöflur í stað hrísgrjóna ef þú vilt vinna gegn loftslagsbreytingum. Þetta ráð kemur frá Moniku Pearson hjá sænsku matvælastofnuninni en hún hélt fyrirlestur um málið á námstefnu í Växjö í dag. 25.6.2008 14:27
BÍ sakar stjórnvöld um tilraun til ritskoðunar í ísbjarnarmáli Blaðamannafélag Íslands harmar að yfirvöld skyldu hafa takmarkað aðgang fréttamanna að ísbjarnarhræinu við Hraun á Skaga í síðustu viku. 25.6.2008 14:01
Gert ráð fyrir að yfirvinnubannið taki gildi Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir félagið ekki gera ráð fyrir öðru en að boðað yfirvinnubann hjúkrunarfræðinga sem vinna hjá ríkinu taki gildi þann 10. júlí. 25.6.2008 13:55
Hjúkrunarfræðingar hjá ríkinu í yfirvinnubann 10. júlí Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur boðað yfirvinnubann frá og með 10. júlí næstkomandi eftir að fundi þess með samninganefnd ríkisins lauk án árangurs í morgun. 25.6.2008 13:27
Skartgripasölumennirnir héldu leiðar sinnar í morgun Rúmenarnir sem lögreglan á Selfossi handtók í gær fyrir ólöglega skartgripasölu hafa verið látin laus. Fólkið var handtekið í gær eftir að kvartað hafði verið yfir því að þau væru að selja verðlaust glingur sem fínasta skart. Að sögn lögreglunnar var fólkið vistað í fangageymslum lögreglunnar í nótt en þeim sleppt í morgun eftir að mál þeirra höfðu verið gerð upp. 25.6.2008 13:23
Frumbyggjar fá land á Nýja-Sjálandi Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi afsöluðu í morgun nærri tvö hundruð þúsund hektara landi til sjö frumbyggjaætbálka Maóría. 25.6.2008 13:15
Ráðherrar borga 15 þúsund fyrir afnot af ráðherrabílum Ráðherrar greiða í grunninn 14.896 krónur á mánuði fyrir einkaafnot af ráðherrabílum. Allir núverandi ráðherrar hafa einkabílstjóra og aka um á ráðherrabílum í eigu hins opinbera. 25.6.2008 13:00
Loftsteinn gæti búið yfir vísbendingum um fæðingu sólkerfisins Fágæt tegund loftsteins gæti búið yfir vísbendingum um þau skilyrði sem orsökuðu sköpun sólkerfisins fyrir 4,5 milljörðum ára. Steinninn gæti einnig gefið svör um þær efnasamsetningar sem gerðu líf á jörðinni mögulegt. 25.6.2008 12:54
Yngri heilabilunarsjúklingar látnir bíða dauðans í geymslu Íslenska heilbrigðiskerfið gerir vart ráð fyrir að fólk undir 65 ára aldri greinist með heilabilunarsjúkdóm. Sérhæfð úrræði eru af skornum skammti og yfirleitt er sjúklingum einfaldlega komið fyrir á hjúkrunarheimilum með mun eldra fólki þar sem ekkert er ýtt undir andlega virkni. 25.6.2008 12:45
Níu hundruð skógareldar í Kaliforníu Slökkviliðsmenn í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum berjast nú við nærri níu hundruð skógarelda sem kviknuðu í þrumuveðri um síðustu helgi. 25.6.2008 12:43
Afríkuleiðtogar funda um ástandið í Simbabve Leiðtogar ríkja í sunnanverðri Afríku koma saman í Svasílandi í dag til að ræða ástandið í Simbabve. Forsætisráðherra Kenía varar við þjóðarmorðum þar, svipuðum þeim sem framin voru í Rúanda fyrir fjórtán árum, ef alþjóðasamfélagið grípi ekki þegar í taumana. 25.6.2008 12:21
Ísraelar loka landamærum að Gaza Ísraelar lokuðu í morgun landamærum sínum að Gaza-svæðinu. Það er svar við flugskeytaárás herskárra Palestínumanna þaðan á Suður-Ísrael í gær. Ísraelsmenn segja það gróft brot á vopnahlésskilmálum. 25.6.2008 12:16
Engin lausn í sjónmáli í deilu flugumferðarstjóra og Flugstoða Engin lausn virðist vera í sjónmáli í deilu flugumferðarstjóra og Flugstoða. Búist er við miklum röskunum á áætlunarflugi þegar verkfallsaðgerðir hefjast á föstudaginn. 25.6.2008 12:08
Baráttan gegn Þjórsárvirkjunum ekki töpuð Baráttan gegn Þjórsárvirkjunum er ekki töpuð, segir Sigþrúður Jónsdóttir, íbúi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hún segir fleiri landeigendur íhuga málaferli gegn Landsvirkjun eftir að hreppsnefndin ákvað einróma í fyrrakvöld að setja tvær af þremur fyrirhuguðum virkjunum í Þjórsá inn á aðalskipulag. 25.6.2008 12:02
Fjölga þarf meginferðamannastöðum á landinu Efla þarf Ferðamálastofu sem opna og greiðfæra gátt fyrir aðkomu ríkisins að ferðaþjónustu og fjölga þarf meginferðamannastöðum á landinu. 25.6.2008 11:39
Franskar herþotur æra Keflvíkinga Íbúar í Reykjanesbæ hafa kvartað til bæjarfélagsins vegna hávaða frá Mirage þotum franska flughersins sem nú sér um loftrýmiseftirlit yfir landinu. Bæjarbúar segja að hávaðinn í vélunum sé mun meiri en hann var þegar Bandaríkjamenn voru hér á sínum tíma með sínar herþotur. Ekki hefur borið á kvörtunum hjá utanríkisráðuneytinu. 25.6.2008 11:28
Vill ekki skapa vangaveltur um forstjórastöðu LSH Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Aker-sjúkrahússins í Noregi, segir að hún vilji ekki skapa vangaveltur varðandi sig og forstjórastöðu LSH. Hulda hefur verið nefnd sem hugsanlegur forstjóri. 25.6.2008 11:28
Segja flugumferðarstjóra ekki vinna mikla yfirvinnu Flugstoðir ohf. hafna þeim fullyrðingum formanns Félags íslenskra flugumferðarstjóra að vinna þeirra sé keyrð á yfirvinnu. Eins og fram hefur komið hafa flugumferðarstjórar boðað til 20 vinnustöðvana frá og með föstudeginum og vilja með því knýja á um nýjan kjarasamning. 25.6.2008 11:25
Mál séra Gunnars sent saksóknara í dag Lögreglan á Selfossi hefur lokið rannsókn sinni á meintum kynferðisbrotum séra Gunnars Björnssonar, sóknarprests á Selfossi, og verður málið sent ríkissaksóknara í dag. Þetta staðfesti Elís Kjartansson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Selfossi, við Vísi. 25.6.2008 10:59
Brugðist verði við flóðahættu í Bretlandi eins og hryðjuverkavá Flóðahætta í Bretlandi eykst og stjórnvöld verða að bregðast við því með fyrirbyggjandi aðgerðum líkt og gert er með faraldra og hryðjuverk. 25.6.2008 10:34
Hilton byggir 300 ný hótel í Asíu Hilton-hótelkeðjan hefur uppi áform um að byggja 300 ný hótel í Asíu á næstu tíu árum. Fyrir á Hilton 47 hótel í álfunni. 25.6.2008 09:21
Utanríksiráðherrar norrænu ríkjanna vilja lýðræði í Simbabve Utanríkisráðherrar norrænu ríkjanna hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er undir ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna varðandi ástandið í Simbabve. 25.6.2008 09:19
Fjöldi talibana féll í loftárásum Hersveitir á vegum afganskra stjórnvalda og bandamanna í Afganistan felldu í nótt 35 talibana eftir að hópur talibana gerði árás á tvo bæi í austurhluta landsins, nærri landamærunum að Pakistan. Frá þessu greindi lögreglustjóri héraðsins í morgun. 25.6.2008 09:08
Rottum fjölgar í dönsku þéttbýli Rottum hefur fjölgað mjög á þéttbýlissvæðum Danmerkur eftir því sem segir í tilkynningu frá sambandi sveitarfélaga í Danmörku. 25.6.2008 09:05
Obama með töluvert forskot á McCain Forsetaframbjóðandi Demókrata, Barack Obama, hefur töluvert forskot á keppinaut sinn, repúblikanann John McCain, við upphaf kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum. 25.6.2008 09:01
Fjöldi milljónamæringa yfir 10 milljónir Fjöldi þeirra sem eiga eignir að verðmæti ein milljón dollara eða meira fór yfir 10 milljónir í fyrra. 25.6.2008 08:55
Ungverskri kirkjuklukku stolið Lögreglan í Ungverjalandi leitar nú að þjófum sem stálu 300 kg þungri koparklukku úr turni kirkjunnar í bænum Kadusnay. 25.6.2008 08:10
Nakta kúrekanum er heimilt að lögsækja M&M Nakta kúrekanum í New York-borg er heimilt að lögsækja framleiðanda M&M-sælgætisins vegna heimildalausrar notkunar vörumerkis. 25.6.2008 07:54