Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundu töluvert af fíkniefnum á tveimur stöðum í borginni Lögregla á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á fíkniefni á tveimur stöðum í borginni á föstudag í húsleitum sem miða að því að draga úr sölu og dreifingu fíkniefna. 13.5.2008 23:25
NSS mótmæla áformum um Bitruvirkjun Náttúruverndarsamtök Suðurlands NSS, hafa gert athugasemdir við auglýstar breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árin 2002 - 2014. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út í dag. Í athugasemdunum leggjast samtökin „alfarið gegn áformum um virkjun við Bitru, áður nefnd Ölkelduhálsvirkjun og telja að virkjunin rýri verulega lífsgæði íbúa í Hveragerði og í næsta nágrenni.“ 13.5.2008 21:12
Sprengja fannst á svæði Hringrásar í Helguvík Um miðjan dag í dag fundu starfsmenn Hringrásar í Helguvík sprengjuvörpusprengu innan um járnaúrgang. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að hún hafi lokað staðnum af þar til starfsmenn sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar komu og fjarlægðu sprengjuna til eyðingar. 13.5.2008 19:06
Greiddi sekt á lögreglustöðinni með stolnu korti Karlmanni sem stal greiðslukorti tókst að svíkja út tæplega 340 þúsund krónur í verslunum á einum og hálfum sólarhring. Hann notaði kortið meðal annars til að greiða sekt á lögreglustöðinni í Reykjavík. 13.5.2008 18:39
Samfylkingin nálægt hreinum meirihluta Samfylkingin er nálægt því að ná hreinum meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur ef marka má könnun sem Gallup gerði og RÚV greindi frá í kvöldfréttum sínum. Flokkurinn bætir við sig þremur borgarfulltrúm og fengi sjö og einn borgarfulltrúi bætist í hóp Vinstri grænna í Ráðhúsinu sem fengju þá þrjá. Næsti maður inn væri hins vegar fulltrúi Samfylkingarinnar sem færi inn á kostnað Sjálfstæðismanns. 13.5.2008 18:32
20 þúsund manns undir rústum húsa Rúmlega 20 þúsund manns hið minnsta liggja grafnir í rústum húsa nærri upptökum jarðskjálftans í suðvestur Kína í gær. Björgunarmenn eru í kapphlaupi við tímann að bjarga fólkinu. Óttast er að 30 þúsund manns hið minnsta hafi týnt lífi í hamförunum. 13.5.2008 18:30
Ekkert amar að Ítalanum á Breiðamerkurjökli Nú er komið í ljós að ekkert amar að ítalska ferðamanninum sem óttast var um á Breiðamerkurjökli í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, var send á staðinn en henni hefur verið snúið við. 13.5.2008 17:55
Þyrla Landhelgisgæslunnar leitar Ítala Þyrla Landhelgsigæslunnar, TF-GNÁ, er nú að fara að leita Ítala við Breiðamerkurjökul eftir að neyðarsendir hans sendi frá sér boð á fjórða tímanum. 13.5.2008 17:01
Vilja að Reykjavíkurborg taki við flóttamönnum í stað Akraness Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri - grænna og Framsóknarflokksins í velferðarráði Reykjavíkurborgar hyggjast leggja fram þá tillögu í ráðinu á morgun að borgin taki á móti 30 flóttamönnum frá Palestínu sem væntanlegir eru til landsins. 13.5.2008 16:54
Tugir farast í sprengjuárásum á Indlandi Óttast er að að minnsta kosti sextíu manns hafi látið lífið í hrinu sprenginga í borginni Jaipur á Indlandi í dag. Á annað hundrað manns hafa særst. 13.5.2008 16:34
Efast um hæfi sveitarstjórnar í Bitruvirkjunarmáli Landvernd hefur efasemdir um hæfi sveitarstjórnar Ölfuss til þess að fjalla um breytingar á skipulagi sveitarfélagsins í tengslum við byggingu Bitruvirkjunar. Þetta kemur fram í athugasemd sem samtökin hafa sent Sveitarfélaginu Ölfusi. 13.5.2008 16:30
Falla frá ákæru á hendur 20. flugræningjanum Bandaríska varnarmálaráðuneytið Pentagon hefur fallið frá ákæru á hendur „tuttugasta flugræningjanum“ sem svo hefur verið nefndur. 13.5.2008 16:26
Ekki beint Zorró -en Hreyfing er öllum holl. Ekki síst er nauðsynlegt fyrir eldra fólk að púla dálítið til þess að halda hreyfigetu sinni. 13.5.2008 16:19
Stökk úr Sívala turninum í Kaupmannahöfn Kona lést eftir að hún féll niður úr Sívala turninum í Kaupmahöfn í dag, úr 36 metra hæð. 13.5.2008 16:03
Skýrslutökur hefjast á föstudag Skýrslutökur yfir stúlkunum þremur sem kært hafa séra Gunnar Björnsson sóknarprest á Selfossi fyrir kynferðislega áreitni hefjast á föstudaginn. Ekki hafa fleiri kærur borist vegna prestsins. 13.5.2008 15:49
Túlipanarnir blómstra í Hollandi Það er löngu komið sumar í Evrópu. Óvíða sést það jafn vel á gróðurlitunum og í Hollandi þar sem túlípanaakrarnir skera sig rækilega úr landsleginu með litadýrð sinni. 13.5.2008 15:47
Ráðist á Guðmund í Byrginu Ráðist var á Guðmund Jónsson, sem kenndur er við Byrgið, við heimili hans í Grímsnesi um kvöldmatarleytið í gær. 13.5.2008 15:41
Eins prósents atvinnuleysi í apríl Atvinnuleysi í nýliðnum aprílmánuði reyndist eitt prósent á landinu. Er það um átta prósentum minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,1 prósent. 13.5.2008 15:25
Slökkviliðið hreinsar upp olíu í Elliðavogi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er nú að hefja hreinsun á olíu sem fór í sjóinn í gær. Aðgerðin fer fram í Elliðavogi og búast menn við að vera í þessu eitthvað fram eftir degi. Talsverð olía fór í sjóinn. 13.5.2008 14:49
Dagur: Ráðning Jakobs Frímanns að vissu leyti læknamistök Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segist ekki munu eltast við orð sem Jakob Frímann Magnússon, nýráðinn framkvæmdastjóri miðborgarmála, viðhafði um hann í Mannamáli á Stöð 2 á sunnudag. 13.5.2008 14:43
Þrír kenndir við stýri - tveir við sama stýrið Lögregla á Seyðisfirði átti nokkra góða spretti í síðustu viku ef marka má frásögn á fréttavef lögreglunnar. Nokkuð var um umferðarlagabrot ýmiss konar og bar þar hæst ölvunarakstur þriggja ökumanna en þar af voru tveir teknir á sama ökutækinu, þó ekki á sama tíma. 13.5.2008 14:36
Íslenskt blogg frá jarðskjálftunum í Kína Tvær ungar íslenskar konur blogga frá borginni Chengdu í Kína, sem hefur verið skekin af jarðskjálftum undanfarinn sólarhring. 13.5.2008 14:35
Guðbjartur þingmaður ræður sér aðstoðarkonu Guðrún Vala Elísdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarmaður Guðbjarts Hannessonar þingmanns. Guðrún Vala er búsett í Borgarnesi en ólst upp í Dölunum. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1987, BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands 1995, Bed próf frá Kennaraháskóla Íslands 1996, Diploma Ed í stjórnun 2001 og Diploma Ed í sérkennslufræðum 2004 frá framhaldsdeild Kennaraháskóla Íslands. 13.5.2008 14:29
Má ég sjá öryggispassann þinn? Fyrir öndum er eitt hús ekkert merkilegra en annað. Þessi önd sem var með unga sína á vappi í rigningunni í Washington hafði enga hugmynd um að hún væri að ganga yfir aðkeyrsluna að Hvíta húsinu. 13.5.2008 14:17
Hliðarspegill sýnir blinda blettinn Það kannast sjálfsagt margir ökumenn við að hafa litið í hliðarspegilinn áður en þeir beygðu, og ekki séð neitt vegna þess að bíllinn á eftir var of nálægt. 13.5.2008 14:05
Boruðu dýpstu holu landsins Menn á vegum Jarðborana slógu á dögunum aðeins þriggja mánaða gamalt met við borun á Skarðsmýrarfjalli á Hellisheiði. Holan sem boruð var reyndist 3.322 metrar og var þar með 211 metrum dýpri en fyrri methola sem lokið var við í febrúar. 13.5.2008 14:02
UNICEF laumaði gögnum til Búrma Í fréttatilkynningu frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, kemur fram að starfsmenn stofnunarinnar í birgðastöð hennar í Kaupmannahöfn hafi unnið baki brotnu um hvítasunnuna við að pakka neyðargögnum ætluðum fórnarlömbum náttúruhamfaranna í Búrma. 13.5.2008 13:42
Öskuský hylur sólina í Argentínu Eldfjallið Chaiten í Chile heldur áfram að spúa eldi og eimyrju. Öskuský frá fjallinu teygir sig nú þúsundir kílómetra í austurátt og liggur meðal annars yfir Argentínu og Úrúgvæ. 13.5.2008 13:38
Áskilja sér allan rétt verði af Bitruvirkjun Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti aukafundi í morgun harðorða bókun gegn Bitruvirkjun sem rísa á í nágrenni bæjarins. Þar áskilja forsvarsmenn bæjarins sér allan rétt til aðgerða verði af virkjuninni. 13.5.2008 13:23
Dæmdur fyrir ölvun í björgunaraðgerðum Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur til þess að greiða 160 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir að hafa ekið bifreið sinni undir áhrifum áfengis. 13.5.2008 13:08
Vilja strætó milli Borgarness og Reykjavíkur Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt samhljóða að óska eftir sérleyfi fyrir akstursleiðina á milli Borgarness og Reykjavíkur þegar leyfið losnar um áramót. 13.5.2008 12:51
Mikill viðsnúningur á nýskráningu ökutækja á síðustu vikum Nýskráðum ökutækjum á fyrstu 130 dögum ársins fækkaði lítillega, eða um 0,6 prósent, á milli ára samkvæmt samantekt Umferðarstofu. 13.5.2008 12:42
Minnkandi vinningslíkur í Lottóinu Möguleikar á að fá fyrsta vinning í Lottóinu minnka úr einum á móti 500 þúsundum niður i einn á móti 650 þúsund, eftir að Lottótölunum var fjölgað um tvær eða upp í fjörutíu. 13.5.2008 12:37
Forsætisráðherra beri ábyrgð á sölu á hlut í ÍAV Þingmaður Vinstri - grænna segir sölu á 40 prósenta hlut ríkisins í Íslenskum aðalverktökum siðlausa og kallar forsætisráðherra til ábyrgðar. Hæstiréttur hefur úrskurðað að salan sé ólögmæt. 13.5.2008 12:21
Ekið á gangandi vegfaranda í miðbænum Ekið var á gangandi vegfaranda á Skothúsvegi í miðbænum fyrir stundu. Lögregla og slökkvilið eru á vettvangi en frekari upplýsingar er ekki að fá um málið að svo stöddu. 13.5.2008 12:13
Ekkert því til fyrirstöðu að afgreiða frumvarp Valgerðar Ekkert er því til fyrirstöðu að afgreiða frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur um afnám eftirlaunalaganna sem setið hefur fast í allsherjarnefnd Alþingis síðan í haust, segja þingflokksformenn Framsóknarflokksins og Vinstri - grænna. 13.5.2008 12:07
Skýrslutökur í TR-máli Skýrslutökur fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag yfir sakborningum í fjársvikamáli tengdu Tryggingastofnun ríkisins. 13.5.2008 12:02
Tólf þúsund hið minnsta látnir í Kína Umfangsmiklar björgunaraðgerðir standa yfir í suðvesturhluta Kína eftir að einhver öflugasti jarðskjálfti í áratugi reið þar yfir í gær. Minnst tólf þúsund manns fórust og er eftirlifenda leitað í rústum húsa. 13.5.2008 11:58
Saksóknari í Byrgismáli segir niðurstöðuna ásættanlega Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari sem sótti hið svokallaða Byrgismál fyrir ákæruvaldið segist nokkuð sátt með niðurstöðu héraðsdóms frá því á föstudag. Þá fékk Guðmundur Jónsson gjarnan kenndur við Byrgið þriggja ára fangelsisdóm. Guðmundur var dæmdur í öllum ákæruliðunum. 13.5.2008 11:52
Kannast ekki við að strandað hafi á sjálfstæðismönnum Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, kannast ekki við að það hafi strandað á sjálfstæðismönnum að breyta eftirlaunalögunum umdeildu á vordögum 2006. 13.5.2008 11:49
Sendi Kínverjum samúðarkveðju vegna hamfara Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag forseta Kína, Hu Jintao, samúðarkveðju vegna þeirra hörmunga sem orðið hafa í kjölfar jarðskjálftanna í Kína. 13.5.2008 11:34
Vilja skjóta sér leið inn í Burma Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur sagði á fundi með fréttamönnum í dag að alþjóða samfélagið yrði að skoða þann möguleika að skjóta sér leið inn í Burma til þess að aðstoða þá sem eiga um sárt að binda vegna fellibylsins sem þar gekk yfir fyrir rúmri viku. 13.5.2008 11:29
Ákærður fyrir að stela Merrild-kaffi úr vinnuskúr Við Héraðsdóm Reykjaness var í dag þingfest ákæra á hendur tæplega sextugum karlmanni. 13.5.2008 11:28
Harður árekstur á Vesturlandsvegi í morgun Þrennt var flutt á sjúkrahús á Akranesi eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla við Skorholt, rétt við Hafnarfjall, á Vesturlandsvegi um áttaleytið í morgun. 13.5.2008 11:09
Veður hamlar hjálparstarfi í Sichuan-héraði Stíf vindátt og skemmdir vegir hamla öllu hjálparstarfi í Sichuan-héraði í Kína sem varð illa úti í jarðskjálfta í gær. Nú eru um 10.000 manns taldir af og kínverska Xinhua-fréttastofan telur að sú tala eigi eftir að hækka enn frekar. 13.5.2008 10:51