Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrrum biskup kosinn forseti Paragvæ Fernando Lugo fyrrum kaþólskur biskup vann forsetakosningarnar í Paragvæ um helgina og batt þar með enda á 60 ára stjórn íhaldsmanna í landinu. 21.4.2008 07:25
Fyrsta hjónabandið út í geiminum Sir Richard Branson eigandi Virgin Galatic ætlar sér að setja enn eitt metið með því að verða sá fyrsti sem gefur par saman í hjónaband út í geiminum. 21.4.2008 07:23
Hótel í Ballerup rýmt vegna sprengjuhótunnar Lögreglan á Sjálandi rýmdi Hotel Grantoften í Ballerup í morgun vegna sprengjuhótunnar. Jafnframt var götunni sem hótelið stendur við lokað fyrir umferð bíla og vegfarenda. 21.4.2008 07:14
Obama og Hillary á þeytingi um Pennsylvaniu Þau Barak Obama og Hillary Clinton þeytast nú um Pennsylvaníu í baráttu sinni fyrir forkosningarnar sem þar verða haldnar á morgun. 21.4.2008 07:12
Yfir 10.000 skakkir á alþjóðadegi marijúana Yfir 10.000 manns komu saman fyrir utan háskólann í Colorado í Bandaríkjunum síðdegis í gær til að kveikja sér í marijúana-jónu eða fíra í einni feitri. 21.4.2008 07:03
Fimm útköll vegna sinubruna í Hafnarfirði Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fimm sinnum með skömmu millibili í gærkvöldi til að slökkva sinuelda í Hafnarfirði. 21.4.2008 07:00
Viðbragðsstaða vegna ferjuflugvélar í vanda Landhelgisgæslan hóf undirbúning björgunaraðgerða og áhöfn danska varðskipsins Vædderen var sett í viðbragðsstöðu í gærkvöldi, eftir að flugmaður á lítilli ferjuflugvél á leið frá Kanada til Keflavíkur, tilkynnti um gangtruflanir í vélinni. 21.4.2008 06:56
Sjóræningjar láta til skarar skríða á ný Sjóræningjar réðust í dag á basknest fiskiskip sem var við túnfiskveiðar undan ströndum Sómalíu. Tuttugu og sex eru í áhöfn skipsins og ekkert er vitað um afdrif þeirra að því er basknesk yfirvöld segja. Skipið var um 400 kílómetra undan ströndum Sómalíu og fullyrða talsmenn basknesku heimastjórnarinnar að skipið hafi verið á alþjóðlegu hafsvæði. 20.4.2008 21:13
Guðni væri sammála Birni ef hann skildi málið Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir í pistli á heimasíðu sinni að Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins skilji ekki út á hvað vandi lögregluembættisins á Suðurnesjum gengur. Ef Guðni gæfi sér tíma til að kynna sér málið myndi hann hins vegar án efa snúast á sveif með Birni. 20.4.2008 19:48
Vel gengur að slökkva í sinu á Vatnsleysu Tilkynnt var um sinueld á Vatnsleysuströnd rétt fyrir sjö og er slökkvilið frá Suðurnesjum á staðnum. Ekki er um mikinn eld að ræða en svæðið er nokkuð stórt. Eyðibýli er á landinu en eldurinn er vestan við bæinn Minni Vatnsleysu. Björgunarsveitarmenn aðstoða við að slökkva í sinunni. 20.4.2008 19:04
Stofna varalið lögreglu á þessu ári Stefnt er að því að tvöhundurð og fjörtíu manna varalið lögreglu verði stofnað á þessu ári. Þekktasta útkall varaliðs lögreglu var þegar NATO aðildin var samþykkt á Alþingi fyrir nærri 60 árum. Ekki hefur verið heimild til að kalla út varalögreglu síðan 1996. 20.4.2008 18:35
Fjaran iðaði af lífi Fjaran við Gróttu iðaði af lífi í dag þegar haldinn var hinn árlegi Gróttudagur. Talið er að yfir þúsund manns hafi komið í eyjuna í dag og hafa aldrei fleiri tekið þátt. 20.4.2008 18:45
Aðgengi almennings að Hallargarðinum ekki skert Hollvinir Hallargarðsins, sem héldu stofnfund sinn í dag, vilja tryggja að almenningur hafi áfram fullan aðgang að Hallargarðinum í Reykjavík. Talsmaður tilvonandi kaupenda að Fríkirkjuvegi 11 segir ekki rétt að aðgengi almennings að garðinum, sem umlykur húsið, verði skert. 20.4.2008 18:45
Mótettur J.S: Bach í flutningi Kammerkórs Langholtskirkju Kammerkór Langholtskirkju heldur tónleika í Langholtskirkju kl. 20 í kvöld þar sem efnisskráin samanstendur af fjórum mótettum eftir Johann Sebastian Bach. Mótetturnar eru talin einhver glæsilegustu virtuósaverk sem hafa verið fyrir kór 20.4.2008 18:44
Dómsmálaráðherra segir skiptingu Suðurnesjalögreglu standa á Samfylkingunni Einungis stendur á þingflokki Samfylkingar að afgreiða uppskiptingu á lögregluembættinu á Suðurnesjum, segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Ríkisstjórnin sé búin að afgreiða málið fyrir sitt leiti. 20.4.2008 18:36
Utanríkisráðherra segir að íhuga verði alvarlega aðild að ESB Utanríkisráðherra segir að þingmenn verði að íhuga alvarlega aðild að Evrópusambandinu ætli þeir sér ekki að vera úr takti við almenning. Ný skoðanakönnun sýnir að tæplega sjötíu prósent þjóðarinnar vill hefja undirbúning að umsókn í ESB. 20.4.2008 18:31
Hækkandi matvælaverð ógn við heimsfrið Ban Ki Moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna sagði í ræðu sem hann hélt í Accra í Afríkuríkinu Gana í dag að hækkandi matvælaverð væri ógn við heimsfrið. Moon var viðstaddur á viðskipta- og þróunarráðstefnu í landinu og í ræðunni kom fram að verði ekki tekið á vandanum sem við blasir sé öryggi heimsbyggðarinnar í hættu. 20.4.2008 17:46
Stofnandi Saving Iceland fyrir rétt á morgun Ólafur Páll Sigurðsson, stofnandi Saving Iceland, sem mótmælt hafa Kárahnjúkavirkjun síðustu ár, verður kallaður fyrir Héraðsdóm Austurlands á morgun ákærður fyrir eignaspjöll. Í tilkynningu frá samtökunum segir að Ólafur sé ákærður fyrir að valda tjóni á lögreglubifreið en að í raun hafi ökumaður bifreiðarinnar ekið á Ólaf. 20.4.2008 16:57
Guðni tekur ekki undir orð Valgerðar Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segist ekkert hafa um ummæli Valgerðar Sverrisdóttur í hádegisfréttum Stöðvar 2 að segja. Þar lýsti Valgerður, sem er varaformaður Framsóknarflokksins, þeirri skoðun sinni að ríkisstjórnin ætti að hefja undibúning að aðildarviðræðum við Evrópusambandið nú þegar. 20.4.2008 15:10
Mótorhjólaslys í Naustagili á Húsavík Mótorhjólaslys varð í Naustagili á Húsavík um hádegisbil í dag. Tveir voru á hjólinu og segir lögregla að svo virðist vera sem ökumaðurinn hafi misst hjólið á hliðina. Ökumaður og farþegi slösuðust eitthvað en óljóst er um alvarleika meiðslanna. Þeir munu þó ekki vera í lífshættu að sögn lögreglu. Þeir voru fluttir til skoðunnar á heilbrigðisstofnun bæjarins. 20.4.2008 14:35
Vilja tryggja fullan og frjálsan aðgang að Hallargarðinum Samtökin Hollvinir Hallargarðsins voru stofnuð í Hallgargarðinum eftir hádegi. Tilgangur samtakanna er að reyna að koma í veg fyrir að væntanlegir kaupendur Fríkirkjuvegs 11 sem garðurinn tilheyrir fái yfirráð yfir garðinum og að gera þar viðhafnar innkeyrslu. 20.4.2008 14:25
Kofi hvetur til friðsamlegrar lausnar í Zimbabwe Kofi Annan, fyrrum aðalritari Sameinuðu Þjóðanna, hvetur leiðtoga Afríkuríkja til að beita sér fyrir friðasamlegri lausn deilnanna í Zimbabwe. 20.4.2008 13:32
Valgerður: Ríkisstjórnin hefji undirbúning að ESB umsókn Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, segir að ríkisstjórnin eigi að hefja undirbúning að ESB umsókn, enda sé það það sem þjóðin vilji og svigrúm sé til þess innan stjórnarsáttmálans. 20.4.2008 12:05
Fjölskyldudagur í Gróttu í dag Kvenfélagið Seltjörn og Skólaskrifstofa Seltjarnarness, standa fyrir fjölskyldudegi í Gróttu í dag á milli klukkan 11 og 14;30. Boðið verður upp á veitingar og skemmtilega stemmningu í Fræðasetrinu í Gróttu. 20.4.2008 11:31
Drengurinn fylltist skelfingu en gaf sig fram skömmu síðar Faðir piltsins sem ók á stúlku við Breiðholtsbraut í gærdag vill koma því á framfæri að sonur hans hafi ekki stungið af eftir slysið eins og greint var frá á Vísi í gær. Faðirinn segir að sonur hans hafi ekki séð hvað hann keyrði á en að hann hafi stansað. Þegar hann heyrði mikil læti hafi hann farið á taugum og ekið af stað. Hann stöðvaði skammt frá við verslun og hljóp til félaga síns. 20.4.2008 10:57
Hurðin þeyttist af hjörunum Sprenging varð í íbúð í Heiðarhverfi í Reykjanesbæ um ellefu leytið í gærkvöldi. Við sprenginguna þeyttist hurð af hjörunum og hurðarkarmurinn fylgdi í kjölfarið að því sem fram kemur á fréttavef Víkurfrétta. 20.4.2008 10:45
Páfinn ræðir fortíð sína í Hitlersæskunni Benedikt 16. páfi talaði í gær í fyrsta sinn opinberlega um veru sína í Hitlersæskunni á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Á unglingasamkomu í New York í gær sagði páfi að unglingsár hans hafi verið eyðilögð af hinu ískyggilega þriðja ríki. 20.4.2008 10:20
Óboðnir baðgestir á Selfossi Lögreglan á Selfossi stöðvaði tvo fyrir ölvunarakstur í bænum í nótt en að öðru leyti var nóttin róleg. Þó barst tilkynning um að fjórir einstaklingar hafi ákveðið að bregða sér í sundlaugina á Selfossi um hálffjögur í nótt. 20.4.2008 10:13
Hörð átök í Mogadishu 27 eru sagðir látnir eftir hörð átök í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu í gær. 11 óbreyttir borgarar féllu í átökunum sem brutust út milli íslamskra uppreisnarmanna og eþíópíska hersins. 20.4.2008 10:11
Níu Finnar létust í rútuslysi á Spáni Níu finnskir ferðamenn létu lífið þegar rúta valt nærri ferðamannastaðnum Benalmadena á suðurhluta Spánar í gærkvöldi. Meðal þeirra sem létust var sjö ára stúlka. 19 aðrir, allt finnskir ferðamenn, slösuðust í slysinu og þar af nokkrir alvarlega. 20.4.2008 10:06
Kyndillinn á leið til Nepal Yfirvöld í Nepal segjast tilbúin til að grípa til skotvopna komi til mótmæla þegar hlaupið verður með Ólympíueldinn á Mount Everest í maí næstkomandi. 20.4.2008 09:52
Kviknaði í bíl á ferð Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að kviknað væri í bíl í Bakkahverfinu í Breiðholti rétt fyrir klukkan sex í morgun. Bíllinn var á ferð en þegar slökkviliðið kom á staðinn voru bílstjóri og farþegar komnir út úr bílnum. Þau sakaði ekki en bílinn er töluvert skemmdur. Slökkviliðið var einnig kallað tvisvar út í gærkvöldi til að slökkva í sinu í Hafnarfirði. 20.4.2008 09:41
Óku of hratt á Reykjanesbrautinni Þrír ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í nótt. Sá sem hraðast ók mældist á hundrað fjörtíu og eins kílómetra hraða en hámarkshraði á brautinni er nítíu. 20.4.2008 09:31
Keyrði á barn í Breiðholti og stakk af Um tvöleytið í dag var keyrt yfir fót á barni við Breiðholtsbraut í Breiðholti. Ökumaðurinn stakk af en náðist síðar. Barnið var flutt á slysadeild og telst málið upplýst. 19.4.2008 19:36
Ræddi aftur um misnotkun presta Benedikt Páfi XVI ræddi aftur um kynferðislega misnotkun innan kaþólsku kirkjunnar á ferð sinni í New York í dag. Talaði hann þar til presta og nunna innan kirkjunnar. 19.4.2008 21:00
Hvetur til friðsamlegra lausna í Zimbabwe Kofi Annan, fyrrum aðalritari Sameinuðu Þjóðanna, hvetur leiðtoga Afríkuríkja til að beita sér fyrir friðasamlegri lausn deilnanna í Zimbabwe. Varaði hann við því að ástandið í landinu væri eldfimt og áhrif þess gætu náð út fyrir landamæri þess. 19.4.2008 20:30
Nýr framhaldsskóli í Kópavogi Nýr framhaldsskóli fyrir afreksíþróttamenn er í undirbúningi í Kórahverfi í Kópavogi. Samhliða því verður reist ein glæsilegasta íþróttaaðstaða landsins. 19.4.2008 18:53
REI verður ekki selt Borgarstjóri stendur fast á því að fyrirtækið REI verði ekki selt. Hann telur tillögu meirihluta stjórnar Orkuveitunnar, þess efnis að áhættuverkefni fyrirtækisins verði seld, ekki víkja frá þeirri stefnu sem stýrihópur um REI markaði. 19.4.2008 18:50
Tollstjórinn í Reykjavík vill frekari fækkun embætta Dómsmálaráðherra vill stía lögreglu og tollgæslu á Suðurnesjum í sundur til að bregðast við fjárhagsvanda embættisins. Það hefur verið gagnrýnt en fleiri eru sömu skoðunar og hann. 19.4.2008 18:43
Sjálfstæðisflokkurinn verður að fara að girða sig í brók Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn segir stefnu minnihlutans í málefnum REI vera skýra en bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn skipti um skoðun frá degi til dags. Hann segir upphlaupið sem er í kringum REI núna eiga rætur að rekja til innbyrðis átaka meirihlutans en komi verkefnum REI lítið við. 19.4.2008 18:34
Vilhjálmur Þ: Allir sammála um að REI verði ekki í áhættufjárfestingum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir fulla einingu í meirihlutanum að takmarka starfsemi REI við ráðgjöf og þróunarverkefni, sem ekki fylgi fjárhagsleg áhætta. Um þetta hafi tillaga meirihluta stjórnar OR kveðið í gær. 19.4.2008 18:02
Vinir Tíbets mótmæla í sjöunda sinn Félagið Vinir Tíbets mættu í sjöunda sinn fyrir utan kínverska sendiráðið í dag. í tilkynningu frá félaginu segir að þeim eina og hálfa mánuði sem liðinn er síðan þau hófu aðgerðir hafi lítið gerst hjá ráðamönnum landsins. 19.4.2008 15:23
Hollvinir Hallargarðsins hittast við Fríkirkjuveginn Á morgun sunnudaginn 20. apríl kl. 13 verða stofnuð Hollvinasamtök Hallargarðsins. Undirbúningshópurinn hafði auglýst opið hús að Fríkirkjuvegi 11 kl. 13-14 en síðdegis á föstudegi bárust boð um að búið væri að banna borgarminjaverði að sýna húsið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. 19.4.2008 14:47
Reykur í Turninum í Kópavogi - enginn eldur Tilkynnt var um reyk í Turninum í Kópavogi fyrir stundu. Slökkviliðið var með töluverðan viðbúnað og sendi lið sitt á staðinn. Síðan kom í ljós að enginn eldur var á staðnum og kom reykurinn frá iðnaðarmönnum sem voru að vinna með tjörupappa á þaki hússins. 19.4.2008 14:29
Vandi OR og REI ekki einungis Sjálfstæðismanna Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skrifar pistil á heimasíðu sína í dag þar sem hann fjallar um Orkuveitu Reykjavíkur og REI. 19.4.2008 13:38