Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viðamikil snjóflóðaæfing björgunarsveita Viðamikil björgunaræfing fer fram ofan Sandskeiðs í dag og verða meðal annars tvær þyrlur á æfingunni, sem hefst upp úr klukkan tíu og stendur fram til klukkan tvö. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Landhelgisgæslan og greiningasveit Landspítala háskólasjúkrahúss æfa viðbrögð við snjóflóði og verður notast við búnað sem sérhannaður er til snjóflóðaleitar úr þyrlum en Landsbjörg færði Landhelgisgæslunni slíkan búnað að gjöf fyrir skömmu. 15.3.2008 10:13
Ekki á leið á Landspítalann Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ og fyrrverandi forstjóri Byko, þvertekur fyrir það að hún muni taka við starfi forstjóra Landspítalans. Eins og Fréttablaðið greinir frá í morgun hefur nafn Ásdísar Höllu ítrekað verið nefnt innan spítalans í umræðum um hver næsti stjórnandi spítalans verði. Þegar blaðamaður Vísis náði tali af henni í gærmorgun sagði slíkar vangaveltur ekki á rökum reistar. 15.3.2008 09:53
Flest skíðasvæði opin í dag Öll helstu skíðasvæði landsins eru opin í dag. Í Bláfjöllum og Skálafelli verður opið til klukkan sex en þar er um þriggja stiga frost og aðstæður til skíðaiðkunar með besta móti. 15.3.2008 09:50
Sveitarfélög á Suðurnesjum hafa áhyggjur af málum lögreglunnar Stjórn Samands sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur bæst í hóp fjölmargra aðila á Suðurnesjum sem lýsa yfir þungum áhyggjum vegna fjárhagsvanda sem blasir við embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum. 14.3.2008 19:58
Magnús fer vegna samskiptaörðugleika Samstarfsörðugleikar hafa verið á milli Magnúsar Péturssonar, fráfarandi forstjóra Landspítalans, og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra, samkvæmt heimildum Vísis. 14.3.2008 19:45
Neðanjarðarlest gæti kostað rúma 50 milljarða Neðanjarðarlestarkerfi í Reykjavík myndi kosta um það bil tvöfalt meira en fyrirhuguð Sundagöng eða rúma 50 milljarða króna. 14.3.2008 19:30
Útflutningsverðmæti sjávarafurða eykst Útflutningsverðmæti áls og sjávarafurða hefur aukist um allt að tuttugu milljarða vegna veikingar krónunnar. Hækkanir á erlendum mörkuðum auka verðmætið enn frekar. 14.3.2008 19:15
Krónan ekki veikari í fjölda ára Krónan hélt áfram að veikjast í dag og hefur hún ekki verið veikari í yfir sex ár. Verðhækkanir hellast yfir landsmenn með vorinu að óbreyttu. 14.3.2008 18:55
Forstjóri Landspítala lét ekki af störfum að eigin ósk Magnús Pétursson forstjóri Landspítalans lætur óvænt af störfum næstu mánaðamót. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 er það ekki að hans ósk. 14.3.2008 18:42
Norðurálsmenn halda áfram leikriti Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar, segir forsvarsmenn Norðuráls hafa haldið áfram leikriti í morgun í tengslum við byggingu álvers í Helguvík til þess að láta líta svo út að þeir séu búnir að landa málinu. 14.3.2008 17:16
Dæmdur fyrir að hrinda manni þannig að hann handleggsbrotnaði Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að að hafa hrint öðrum manni þannig að hann féll og handleggsbrotnaði. 14.3.2008 17:09
Komið í veg fyrir svifryksmengun með rykbindiefnum Svifryksmengun er undir heilsuverndarmörkum í dag þótt götur borgarinnar séu þurrar og veður stillt. Ástæðan er sú að í nótt og í morgun voru 290 km eknir til að dreifa 27 þúsund lítrum af rykbindiefnum á allar helstu umferðargötur í Reykjavík. 14.3.2008 17:05
Segist einungis hafa átt í steraviðskiptum við annan bróðurinn Annþór Kristján Karlsson sem sat í einangrun vegna svokallaðs UPS smyglmáls neitar að hafa komið nálægt innflutningi á fíkniefnunum. Samkvæmt heimildum Vísis segist hann við yfirheyrslur einungis hafa átt í steraviðskiptum við annan bróðurinn sem handtekinn var vegna málsins. 14.3.2008 16:17
Þýsk lögregla skaut bandarískan hermann Lögregla í Berlín skaut bandarískan hermann til bana í nótt eftir eltingaleik þar sem meðal annars var beitt þyrlu með nætursjónauka. Hermaðurinn, sem vopnaður var M4-herriffli, hafði kærustu sína í haldi á heimili hennar, batt hana þar og hafði uppi ógnandi tilburði. 14.3.2008 15:58
Fangaflugvél lenti í Keflavík í hádeginu Tveggja hreyfla vél í eigu fyrirtækisins Aviation Specialities lenti á Keflavíkurflugvelli í hádeginu í dag. Aviation Specialities er skúffufyrirtæki í eigu CIA sem grunað hefur verið um að notað í fangaflug. 14.3.2008 15:09
Shannon fundin eftir 24 daga leit Shannon Matthews, níu ára gömul skólastelpa frá Dewsbury í Yorkshire á Englandi er fundin, heil á húfi. Shannon hefur verið týnd í tuttugu og fjóra daga en síðast spurðist til hennar þegar hún var á leið heim úr skólanum. 14.3.2008 15:08
Kósóvó-Serbar lögðu undir sig dómhús SÞ Hundruð Kósóvó-Serba réðust inn í dómhús Sameinuðu þjóðanna í bænum Mitrovica í norðurhluta Kósóvó í dag og reistu þar við hún þjóðfána Serbíu í stað fána SÞ sem áður blakti þar. Samningamenn SÞ eiga nú í viðræðum við innrásarhópinn sem náði húsinu á sitt vald og stökkti varðmönnum SÞ á flótta. 14.3.2008 14:38
Vísbendingar um minni athygli ökumanna við stýrið Gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar voru tjónamestu gatnamót landsins í fyrra samkvæmt samantekt Forvarnahúss Sjóvar. Þar urðu 58 bótaskyld tjón og þar slösuðust 16 manns og nam tjónið 95 milljónum króna. 14.3.2008 14:20
Skorað á Kínverja að sleppa mótmælendum úr haldi Evrópusambandið skorar á Kínverja að sýna stillingu í Tíbet í kjölfar ofbeldisöldu sem gengið hefur yfir Lhasa, höfuðborg Tíbets í dag. Kínverjar hafa tekið hart á mótmælendum sem krefjast sjálfstæðis. 14.3.2008 14:05
Póstmenn samþykkja kjarasamning Póstmannafélag Íslands samþykkti kjarasamning félagsins við Íslandspóst með rúmum 76 prósentum atkvæða þeirra sem greiddu atkvæði. 14.3.2008 14:04
Harma að framkvæmdastjóri þjóðgarðs verði í Reykjavík Bæjarstjórn Hornafjarðar harmar þá ákvörðun yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs að nýráðinn framkvæmdastjóri yfirstjórnarinnar verði með starfstöð í Reykjavík. 14.3.2008 13:55
Fjögur hundruð kengúrur drepnar til að forðast gróðureyðingu Dýraverndunarsinnar í Ástralíu eru æfir eftir að ríkisstjórnin þar í landi ákvað að fella 400 kengúrur í kringum höfuðborgina Canberra til að koma í veg fyrir gróðureyðingu. 14.3.2008 13:42
Geitungar í Kópavogi boða vorið Heiðlóan á undir högg að sækja í samkeppni sinni við aðra íslenska vorboða en geitungar eru löngu orðnir fastur liður hér á landi með hækkandi sól. Nokkrir smiðir sem vinna að viðhaldi gamals húss við Þinghólsbraut í Kópavogi töldu sig greina vor í nánd þegar einn gulbröndóttur í stærri kantinum birtist á vinnupallinum hjá þeim nú í hádeginu. 14.3.2008 13:34
Segir Baugsmál hafa molnað í höndum skattayfirvalda „Þetta mál hefur molnað niður í höndum skattyfirvalda og núna þarf að endurgreiða okkur rúmlega 75 milljónir af þeim 142 sem okkur var gert að greiða. Þá spyr maður sig hvort ekki hafi verið full hátt reitt til höggs af þeirra hálfu?,“ segir Hreinn Loftsson stjórnarmaður í Baugi og lögmaður félagsins. 14.3.2008 13:34
Búið að gera við um helming Nissan Navara bíla Öryggisbúnaður í rúmlega tvö hundruð Nissan Navara pallbílum hér á landi hefur verið endurbættur eftir að bíllinn fékk falleinkunn í árekstraprófun. Í endurteknum prófunum eftir breytingar fær bíllinn hins vegar mun betri einkunn. 14.3.2008 13:12
Magnús Pétursson hættir sem forstjóri Landspítala Magnús Pétursson forstjóri Landspítalans hefur ákveðið að láta af störfum. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu kemur fram að ákvörðun Magnúsar hafi verið tekin í samkomulagi við ráðherra. Anna Stefánsdóttir, framkvæmdarstjóri hjúkrunar, og Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga munu fylla skarð Magnúsar uns nýr forstjóri hefur verið ráðinn. 14.3.2008 13:05
Ný heilsugæslustöð rís í Árbæjarhverfi Smíði nýrrar heilsugæslustöðvar í Árbæjarhverfi í Reykjavík er hafin og stóð til að heilbrigðisráðherra skrifaði undir leigusamning um húsnæðið nú laust fyrir hádegi. 14.3.2008 13:04
Tæplega hundrað með salmonellu eða kampýlóbakter í fyrra Níutíu og þrír greindust með salmonellusýkingu hér á landi í fyrra samkvæmt upplýsingum frá sýkladeild Landspítalans. Aðeins16 þessara smita eru talin vera af innlendum uppruna. 14.3.2008 12:53
Dagur segir borgarstjóra hafa frestað tillögu frá meirihluta Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar segir að Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hafi farið fram á frestun á sameiginlegri tillögu allra borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Tillagan gekk út á að kanna hagkvæmni þess og fýsileika að koma á lestarsamgöngum milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar Reykjavíkur og léttlestakerfi í Reykjavík. 14.3.2008 12:52
Meiðyrðamáli dómara á hendur lögmanni vísað frá Ríkissaksóknari hefur vísað frá meiðyrðamáli sem dómari á Akureyri höfðaði gegn lögmanni eftir ummæli hans í fréttaviðtali við Stöð 2. 14.3.2008 12:43
Inflúensan sögð væg og seint á ferðinni Inflúensan hefur að því er virðist verið fremur væg það sem af þessum vetri og kom tiltölulega seint. Þetta kemur fram í nýjum Farsóttarfréttum Landslæknisembættisins. 14.3.2008 12:38
Óttast að loðnuvertíðinni sé lokið Sjómenn óttast að loðnuvertíðinni sé lokið. Ekkert hefur veiðst í tvo sólarhringa nema smávegis af hængi sem fer í bræðslu. 14.3.2008 12:31
Smíða kerskála um leið og samið verður við verktaka Fyrstu framkvæmdir vegna álvers við Helguvík á Reykjanesi hófust í morgun og hefst smíði kerskálanna strax og samið hefur verið við verktaka. 14.3.2008 12:15
Aðalmeðferð í Byrgismáli í fjóra daga Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins á hendur Guðmundir Jónssyni, fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins, vegna meintra kynferðisbrota hans gegn fjórum konum hófst í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. 14.3.2008 11:49
Andmæla hugmyndum um einkavæðingu Hólaskóla Vinstri - græn í Skagafirði skora á stjórnvöld að standa vörð um Hólaskóla, Háskólann á Hólum, sem sjálfstætt menntasetur í þjóðareigu eins og hann hafi verið um aldir og andmælir harðlega hugmyndum um einkavæðingu. 14.3.2008 11:33
Vill neðanjarðarlestir í Reykjavík Hægt er að leysa vandamál almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu án fjölgunar strætisvagna eða taka dýrmætt land undir vegi. Björn Kristinsson verkfræðingur segist hafa lausnina. 14.3.2008 11:24
Bjarni ósáttur við leka í röðum framsóknarmanna Valgerður Sverrisdóttir vill ekki tjá sig um gagnrýni Bjarna Harðarsonar sem birtist í bréfi sem hann ritaði nokkrum samflokksmönnum sínum á dögunum. DV birtir nokkra kafla úr bréfinu í dag en í því kemur fram gagnrýni á ræðu sem Valgerður flutti um Evrópumál á Iðnþingi. 14.3.2008 11:00
Ríkisskattstjóri endurgreiði Baugi 75 milljónir króna Ríkisskattstjóra hefur verið gert að endurgreiða Baugi Group 75 milljónir króna vegna oftekinna opinberra gjalda samkvæmt ákvörðun yfirskattanefndar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Baugi. 14.3.2008 10:36
Settu upp stíflu í anddyri Landsvirkjunar Nokkrir krakkar settu upp stíflu við inngang Landsvirkjunar í morgun. Tilefnið var alþjóðlegur baráttudagur fyrir ár og fljót í heiminum. Krakkarnir voru prúðir og kurteisir en hurfu fljótt á brott þar sem þau þurftu að mæta í skóla. 14.3.2008 10:32
Játar á sig fjársvik í Tryggingarstofnunarmáli Fjölmennasta þingfesting í sögu Héraðsdóms Reykjavíkur var í morgun í máli ríkislögreglustjóra á hendur 20 manns sem ákærðir eru í tengslum við fjársvik innan Tryggingarstofununar ríkisins sem talin eru nema um 76 milljónum króna. 14.3.2008 10:20
Óku inn í Árbæjarapótek Lögreglan rannsakar nú tilraun til innbrots í Árbæjarapótek í Hraunbæ í Reykjavík. Svo virðist sem þjófarnir hafi keyrt fólksbifreið á hurð apóteksins. Ekki liggur fyrir hvort einhverju var stolið. 14.3.2008 10:08
Dæmd til að greiða um tíu milljónir vegna slyss í Mýrarhúsaskóla Móðir barns í Mýrarhúsaskóla sem skellti hurð á höfuð kennara með þeim afleiðingum að hann hlaut örorku var dæmd til að greiða kennaranum 9,7 milljónir króna í bætur vegna slyssins. Seltjarnarnesbær var hins vegar sýknaður í málinu. Þá var móðirin dæmd til að greiða eina milljón króna í málskostnað. 14.3.2008 09:34
Tekjuafgangur hins opinbera um 67 milljarðar í fyrra Tekjuafgangur hins opinbera í fyrra reyndist nærri 67 milljarðar króna samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Til samanburðar reyndist tekjuafgangurinn árið 2006 um 74 milljarðar eða sjö milljörðum króna meiri. 14.3.2008 09:20
Fundu hof frá tímum fyrir Inkanna í Perú Fornleifafræðingar í Perú hafa fundið hof sem er frá því fyrir tíma Inkanna. 14.3.2008 09:15
Vilja endurtaka kosningar í Flórída og Michigan Demókratar í Michigan og Flórída eru nú að leita leiða til að endurtaka forkosningarnar þar með þeirri breytingu að kjörmenn úr þeim hafi atkvæðisrétt á flokkþingi flokksins í ágúst. 14.3.2008 09:09