Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Michael Jackson tókst að halda Neverland Michael Jackson tókst á síðasta augnabliki að koma í veg fyrir að búgarður hans, Neverland, í Kaliforníu færi á nauðungaruppboð. 14.3.2008 07:47
Vændiskonan hagnast verulega á frægðinni Vændiskonan sem felldi ríkisstjórann í New York úr embætti kemur til með að hagnast verulega á nýtilkominni frægð sinni. 14.3.2008 07:44
Þyrla sótti veikann mann á sveitabæ hjá Flúðum Kalrmaður bráð veiktist á sveitabæ, skammt frá Flúðum í gærkvöldi og var kallað eftir lækni og sjúkrabíl. 14.3.2008 07:41
Skógarbjörn sektaður fyrir stuld úr býflugnabúi Skógarbjörn í Makedóníu hefur verið fundinn sekur fyrir dómstóli um að stela reglulega hunangi úr býflugnabúi bónda nokkurs í grennd við borgina Bitola. 14.3.2008 07:38
Stöðvuðu tvo 17 ára ökumenn á 140 km hraða Lögreglan stöðvaði tvo sautján ára pilta, sem höfðu mælst á liðlega 140 kílómetra hraða í kappakstri á Hafnarfjarðarveginum við Arnarnesbrú um miðnættið. 14.3.2008 07:35
Myndir: Sérsveitin yfirbugar mann í Keflavík Sérsveitin yfirbugaði 36 ára karlmann sem hafði læst sig inn á klósetti með haglabyssu í kvöld. Ljósmyndari Víkurfrétta var á staðnum og sendi Vísi myndir. Hægt er að skoða myndirnar í meðfylgjandi myndasafni. 13.3.2008 23:43
Læsti sig inni á klósetti með haglabyssu Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð að húsi í Reykjanesbæ nú í kvöld. Þar hafði 36 ára gamall karlmaður læst sig inni á klósetti með haglabyssu. Heimilisfólkið flúði og lögregla var kölluð til. 13.3.2008 22:26
Áfrýjunarnefnd lækkar sekt Eimskips um 80 milljónir Áfrýjunarnefnd samkeppniskeppnismála hefur staðfest þá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að Eimskip hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á sjóflutningamarkaði og brotið gegn samkeppnislögum. Hins vegar hefur áfrýjunarnefndin minnkað sekt félagsins um 80 milljónir króna, í 230 milljónir. 13.3.2008 21:46
Skrifaði um Laxness í góðri trú „Stærstum hluta krafna Auðar er hafnað og því ber að fagna. Hinsvegar eru einhverjar þeirra viðurkenndar og það er byggt á sjónarmiðum sem var útilokað fyrir Hannes að þekkja þegar hann ritaði bók sína,“ segir Heimir Örn Herbertsson lögmaður Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. 13.3.2008 20:45
Lögreglumenn á Suðurnesjum funda enn Nú stendur yfir fundur lögreglu- og tollgæslumanna á Suðurnesjum á Kaffi Duus í Reykjanesbæ. Boðað var til fundarins með félagsmönnum og stjórnmálamönnum af Suðurnesjum. Menn óttast uppsagnir vegna niðurskurðar. 13.3.2008 22:14
Hætt við mikla landfyllingu við Ánanaust Hætt hefur verið við fyrirhugaða landfyllingu við Ánanaust og var sú ákvörðun tekin á fundi borgarráðs í morgun. 13.3.2008 22:07
Vilja skoða lestarsamgöngur í ljósi hækkandi eldsneytisverðs Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja kanna hagkvæmni og fýsileika þess að koma á lestarsamgöngum milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar Reykjavíkur og einnig léttlestarkerfi innan borgarinnar. 13.3.2008 22:21
Vaxtabætur þyrftu að tvöfaldast Vaxtabætur þyrftu að tvöfaldast ef ríkið ætlar að styðja við fólk sem er að kaupa sér húsnæði á sama hátt og það gerði fyrir rúmum áratug, að mati Stefáns Ólafssonar félagsfræðiprófessors. Fréttastofa Stöðvar tvö heldur áfram að skoða skattana í landinu. Í dag skyggnumst við á bak við tölur um aukna skattbyrði, hvað veldur og hversu langt þarf að ganga eigi að snúa þróuninni við. 13.3.2008 18:45
46 nýir bílar seljast á dag Þrjátíu prósent fleiri nýir bílar voru skráðir til heimilis á Íslandi það sem af er þessu ári, miðað við sama tíma í fyrra. Og enn fleiri bílum var fleygt í brotajárn. Bílasalar eru brattir og búast ekki við miklum samdrætti. 13.3.2008 18:45
Tveggja mánaða fangelsi fyrir að þykjast vera annar maður Hæstiréttur dæmdi pólverjann Pawel Janas í tveggja mánaða fangelsi í dag fyrir að hafa í tvö ár villti á sér heimildir og þóst vera annar maður. Héraðsdómur Austurlands hafði áður dæmdt manninn í hálfs árs fangelsi en sú refsing var milduð. 13.3.2008 18:14
Amerískra áhrifa gætir á Íslandi Geir H. Haarde fór um víðan völl í ræðu sinni á fundi Íslensk-Ameríska verslunarráðsins í New York í dag. Þar talaði hann um samskipti þjóðanna í gegnum árin og fór yfir stöðuna í viðskiptalífinu. Hann sagði margt líkt með þjóðunum sem hefur gert það að verkum að þeim hefur gengið svo vel á síðustu árum. 13.3.2008 17:46
Hannes dæmdur til að greiða ekkju Nóbelskáldsins skaðabætur Hæstiréttur dæmdi í dag Hannes Hólmstein Gissurarson til þess að greiða Auði Sveinsdóttur eina og hálfa milljón fyrir að hafa brotið gegn höfundarétti að verkum Halldórs Kiljans Laxness en Auður er ekkja Halldórs. 13.3.2008 16:38
Harður árekstur í Kömbunum Harður árekstur varð í Kömbunum rétt fyrir klukkan fjögur. Jepplingur reyndi að fara framúr öðrum bíl þar sem tvær akreinar liggja í sömu átt. 13.3.2008 16:30
Hálfs árs fangelsi fyrir að taka lögregluþjón hálstaki Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir árás á lögregluþjón og fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá var hann einnig sektaður um 140 þúsund krónur. 13.3.2008 16:13
Skipulagsstjóri segir upplýsingar Remax villandi Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri Garðabæjar segir að fasteignasali Remax hafi gefið villandi upplýsingar um hvað sé mögulegt að gera á 3600 fm eignarlóð sem Vísir fjallaði um í gærdag. 13.3.2008 16:10
Fjögurra mánaða fangelsi fyrir að dælda bíl Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að valda skemmdum á bifreið. 13.3.2008 16:00
Gúglað í BMW bifreiðum Þýski bílaframleiðandinn BMW sendi hefur tilkynnt að héðan í frá verði hægt að fá alla bíla fyrirtækisins útbúna með Internet-tengingu. „BMW mun vera fyrsti bílaframleiðandinn til að bjóða upp á þennan möguleika,“ segir í tilkynningu frá B&L, umboðsaðila BMW á Íslandi. „Bæði verður hægt að senda tölvupóst beint úr bílnum sem og vafra um netið. Skjárinn í mælaborði bílsins er notaður sem tölvuskjár og iDrive stýrihnappurinn er músin.“ 13.3.2008 15:59
Víkur ekki sæti í Björgólfsmáli Ásgeir Magnússon héraðsdómari hefur úrskurðað að hann sjálfur skuli ekki víkja sæti í máli Björgólfs Guðmundssonar gegn Kristjáni Guðmundssyni. 13.3.2008 15:48
Sýknaður af ákæru um líkamsárás á þorrablóti Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás á þorrablóti á Selfossi í janúar 2006 þar sem málið taldist fyrnt. 13.3.2008 15:38
Hljóp út á flugbraut Heathrow Miklar tafir urðu á flugi Heathrow flugvallar í einn og hálfan klukkutíma í dag eftir að maður með bakpoka hljóp í veg fyrir flugvél á norðurbraut vallarins. Gripið var til mikils öryggisbúnaðar og handtóku öryggisverðir manninn stuttu síðar. Grunur lék á að sprengja væri í pokanum en svo reyndist ekki vera. 13.3.2008 15:22
Eins árs fangelsi fyrir hrottafengna árás og nauðgun Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í eins árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun gagnvart unnustu sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar sex hundruð þúsund krónur í miskabætur. 13.3.2008 15:20
Björn tekur ekki afstöðu til kæru á hendur einkaþjálfara Björn Leifsson framkvæmdastjóri World Class segir ekki tímabært að taka afstöðu til kæru sem lögð hafi verið fram gegn einkaþjálfaranum Benjamíni Þóri Þorgrímssyni sem starfar í líkamsræktarstöð Björns. 13.3.2008 15:15
Ásta fer fyrir nefnd um markaðssetningu íslenska hestsins Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað Ástu Möller alþingismann formann nefndar um markaðssetningu íslenska hestsins erlendis. 13.3.2008 14:49
Reiðibylgjan berst Birni til Slóveníu Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að þrátt fyrir að Alþingi hafi nýlega samþykkt hert ákvæði um þyngri refsingu ef ráðist væri á lögreglumann sjáist það ekki á nýföllnum dómi héraðsdóms. Hann skrifar á heimasíðu sína um dóminn yfir þremur Litháum sem kærðir voru fyrir að ráðast á lögreglumenn á Laugaveginum. Dómari sýknaði tvo þeirra og sá þriðji fékk 60 daga skilorðsbundinn dóm. 13.3.2008 14:44
280 manns í farþegaskipi sem lekur Farþegaskip með 280 farþega um borð steytti á skeri við eynna Poros nálægt Aþenu rétt eftir hádegi í dag. Fólkið er ekki í hættu en vatn lekur inn í skipið. Björgunarþyrla og þrjú skip strandgæslunnar eru á leið á slysstaðinn, en allir bátar í nágrenninu hafa verið beðnir um að hjálpa samkvæmt upplýsingum yfirvalda sem samhæfa björgunaraðgerðir á sjó. 13.3.2008 14:33
Erkibiskup sem var rænt í Írak er látinn Paulos Faraj Rahho kaþólskur erkibiskup í Írak sem var rænt í Mosul í síðasta mánuði fannst látinn í dag. Íraskur lögreglumaður og starfsmaður líkhúss staðfesta fréttir um að lík biskupsins hefði fundist grafið í jörðu nálægt Mosul þaðan sem honum var rænt. 13.3.2008 14:23
Segist hafa farið að lögum í hvívetna við undirbúning álvers Norðurál segist hafa farið í hvívetna efir lögum og reglum um framkvæmdir við undirbúning álvers í Helguvík og segist hafa gert samninga um flestalla þætti málsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á félaginu. 13.3.2008 14:20
Lögreglustjóri vill áfrýjun - Segir sýknudóm rangan „Ég er þeirrar skoðunar að þessi dómur sé þess eðlis að það sé augljóst að honum verði áfrýjað," segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, um nýfallinn dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli þriggja Litháa sem gefið var að sök að hafa ráðist á hóp lögreglumanna við hefðbundið fíkniefnaeftirlit við Laugarveg. 13.3.2008 14:16
RÚV ætlar með launamál Þórhalls og Sigrúnar fyrir dómstóla Ríkisútvarpið neitar að láta Vísi í té upplýsingar um laun dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins og dagskrárstjóra útvarps, þrátt fyrir að úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafi úrskurðað að Ríkisútvarpinu sé skylt að veita þessar upplýsingar. 13.3.2008 14:16
Mávarnir fúlsuðu við eitrinu 57 mávar voru drepnir með eitri í tilraun sem framkvæmd var fyrir tilstilli Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu á liðnu ári. „Það sem kom einna mest á óvart við þessa tilraun var að einungis um helmingur beitunnar skilaði sofandi mávi," segir í frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Tilraunin var gerð í Þerney á Kollafirði og í Garðaholti á Álftanesi í júní 2007. Svæfa mátti allt að 600 pör en varp árið 2007 var lélegt, þriðja árið í röð. Skýrsla um málið hefur nú verið kynnt. 13.3.2008 13:50
Stal pelsi frá konu í erfidrykkju Hann reyndist vandlátur þjófurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greip á dögunum. 13.3.2008 13:33
Vilja að Ísland hafi frumkvæði í friðarmálum Miðausturlanda Samtök hernaðarandstæðinga standa fyrir útifundi á Ingólfstorgi á laugardag á alþjóðlegum baráttudegi gegn stríðinu í Írak. 13.3.2008 12:58
Loftslagsmál efst á lista leiðtogafundar ESB Loftslagsbreytingar, öryggi í orkumálum og endurbætur munu vera ráðandi á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel. Sambandið vill vera leiðandi í alþjóðlegri viðleitni til að minnka gróðurhúsalofttegundir og hefur heitið verulegri minnkun á útblæstri slíkra lofttegunda. 13.3.2008 12:55
Sluppu lítið meiddar í veltu við Litlu kaffistofuna Tvær konur sluppu lítið meiddar þegar önnur þeirra missti stjórn á bíl sínum á hálku á Suðurlandsvegi skammt vestan við Litlu kaffistofuna á níunda tímanum í morgun. 13.3.2008 12:40
Öllum barnaskólum lokað í Hong Kong vegna flensu Öllum leik- og barnaskólum í Hong Kong hefur verið lokað eftir að dularfull flensa dró fjögur börn til bana. Um tvö hundruð eru sýktir. 13.3.2008 12:31
Alvarlegum umferðarslysum fjölgaði verulega í fyrra Þrettán færri banaslys urðu í umferðinni í fyrra en árið áður og varð aðeins eitt þeirra í þéttbýli. Alvarleglum umferðarslysum þar sem allir halda lífi fjölgar hins vegar verulega. 13.3.2008 12:28
Þungt hljóð í lögreglumönnum á Suðurnesjum Þungt hljóð var í lögreglumönnum á Suðurnesjum á fjölmennum fundi þeirra í gær þar sem staða lögreglunnar var rædd sem og fregnir af niðurskurði innan embættisins. 13.3.2008 12:15
Evrópuþingið hálfrar aldar gamalt Hálfrar aldar afmæli Evrópuþingsins var fagnað í Strassborg í Frakklandi í gær. Á upphafsárunum var það fremur áhrifalítið en til þess leituðu ríkisstjórnir aðildarlanda Evrópusambandsins með valin mál. 13.3.2008 12:09
Vill bíða með að vopna lögreglu þar til hún verður fyrir skotárás Atli Gíslason, þingmaður Vinstri - grænna, vill bíða með að vopna lögreglu þar til hún verður fyrir skotárás. Þetta sagði hann í samtali við Bítið á Bylgjunni þar sem sýknudómur yfir tveimur Litháum frá í gær var til umræðu. Lögreglufélag Reykjavíkur segir dóminn hneyksli. 13.3.2008 12:09
Setur skilyrði fyrir samruna á markaði fyrir fólksflutninga Samkeppniseftirlitið hefur sett ákveðin skilyrði fyrir samruna Reynimels ehf. og Kynnisferða sem sinna fólksflutningum. Á vef stofnunarinnar kemur fram að hún hafi ógilt samrunann í fyrra þar sem hann hindraði samkeppni á markaði fyrir fólksflutninga. 13.3.2008 12:03