Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eitraði fyrir manni sínum með frostlegi Bresk kona sem reyndi að drepa eiginmann sinn með því að setja frostlög í karríréttinn hans hefur verið dæmd í 30 ára fangelsi. Kate Knight var dæmd fyrir tilraun til að drepa Lee Knight á heimili þeirra í Stoke-on-Trent í Staffordshire árið 2005. 28.2.2008 13:36
Grunaður hryðjuverkamaður flýr úr varðhaldi Grunuðum hryðjuverkamanni tókst að flýja úr varðhaldi í Singapúr í gær. Mas Selamat Kastari, sem grunaður er um að vera leiðtogi herskárrar íslamskrar hreyfingar, bað um að fá að nota salernið þar sem hann var í haldi og sást ekki eftir það. 28.2.2008 13:25
Lögreglumennirnir fengu áfallahjálp eftir árás Litháanna Aðalmeðferð í máli þriggja Litháa sem sakaðir eru um árás gegn fjórum rannsóknarlögreglumönnum fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þrír Litháar eru ákærðir en þeir neita allir sök í málinu. Segjast ekki hafa gert sér grein strax að um lögreglumenn hafi verið að ræða. Lögreglumennirnir fengu áfallahjálp eftir árásina. 28.2.2008 13:24
Óumflýjanlegt að tilkynna um afnám stimpilgjalda Það var óumflýjanlegt að tilkynna um afnám stimpilgjalda við kaup á fyrstu íbúð áður en það kemst til framkvæmda, segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, þó að það þýði að sumir bíði með sín fyrstu íbúðakaup á meðan. 28.2.2008 13:18
Samkomulag náðist í Kenía Mwai Kibaki forseti Kenía og Raila Odinga leiðtogi stjórnarandstöðunnar hafa náð samkomulagi sem miðar að því að ná tökum á ofbeldisöldu sem riðið hefur yfir landið frá úrslitum forsetakosninganna. Kofi Annan tilkynnti þetta eftir fjögurra klukkustunda fund með leiðtogunum í dag. 28.2.2008 13:04
Tímar óreiðu og óvæginna ummæla Netinu á enda Allt bendir til þess að tíma óreiðu og óvæginna ummæla á Netinu sé að ljúka að mati prófessors í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hann segir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í bloggmálinu svokallaða vera tímamótadóm. 28.2.2008 12:59
ORF Líftækni fékk Nýsköpunarverðlaun ORF Líftækni fékk í morgun Nýsköpunarverðlaunin. Það eru Rannís og Útflutningsráð sem veita þau. 28.2.2008 12:48
Ekkert gert til að bæta merkingar við afleggjara Vegagerðin hefur ekkert gert til að bæta merkingar og hjáleiðir við vegamót Grindavíkur- og Vogavega við Reykjanesbrautina þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar lögreglunnar á Suðurnesjum. Þar verða langflest slys og óhöpp á Reykjanesbrautinni allri. 28.2.2008 12:35
Leita enn líka við gamalt upptökuheimili á Jersey Lögregla á Ermasundseyjunni Jersey grefur nú upp kjallara upptökuheimilis eftir að leitarhundar gáfu til kynna að þar kynnu að leynast líkamsleifar barna. Grunur er um stórfelldar misþyrmingar barna árum saman á heimilinu. 28.2.2008 12:30
Þriggja bíla árekstur á Bústaðavegi Þriggja bíla árekstur varð á Bústaðavegi nú fyrir hádegið. Einn farþegi var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en hann mun ekki hafa slasast alvarlega. 28.2.2008 12:28
Leggja áherslu á að loðna fari í frystingu Loðnuútgerðir og sjómenn leggja nú ofuráherslu að sem mest af takmörkuðum aflaheimildum fari í frystingu til manneldis því gríðarlegur verðmunur er á afurðum eftir vinnslu. 28.2.2008 12:25
Tekið eitt og hálft ár að ganga frá einföldum málum Það hefur tekið yfirlögregluþjóninn í Skagafirði allt að eitt og hálft ár að ganga frá einföldum málum, segir sýslumaður í áminningarbréfi. Út í hött, segir lögmaður yfirlögregluþjóns. 28.2.2008 12:13
2500 teknir í tollinum í fyrra Tæplega 2500 manns voru gripnir í tollinum með of mikinn varning á síðasta ári og greiddu þeir rúmar 32 milljónir króna í sektir og aðflutningsgjöld. 28.2.2008 12:06
Norðurlandasamvinna gegn hryðjuverkum Sænska og norska öryggislögreglan hefur handtekið sex manns í Stokkhólmi og Osló sem grunaðir eru um að skipuleggja og fjármagna hryðjuverk. 28.2.2008 12:05
Vinnubrögðin við Laugaveg 4 og 6 sögð fáheyrð Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir að vinnubrögð núverandi meirihluta borgarstjórnar við Laugaveg 4 og 6 séu fáheyrð þar sem virðing fyrir almannafé og vandaðri stjórnsýslu er gefið langt nef. 28.2.2008 11:52
Árni aflaði sér ekki nýrra gagna Árni Mathiesen fjármálaráðherra leitaði sér ekki nýrra gagna þegar hann ákvað að skipa Þorstein Davíðsson sem dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Austurlands og gekk þar þvert á álit sérstakrar hæfisnefndar. Þetta kemur fram í svari hans við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar, þingmanns Vinstri - grænna, um málið. 28.2.2008 11:44
Þingmenn fá ´gula spjaldið´ Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, hefur skipað Sir Philip Mawer í stöðu sérstaks rágjafa. 28.2.2008 11:36
Uppskerubrestur úr sögunni? Finnskir og bandarískir vísindamenn hafa uppgötvað genasamband plantna sem orðið gæti til þess að uppskerur gætu þolað mikla þurrka. 28.2.2008 11:25
Sjómaður synti 10 klukkutíma til lands Ástralskur sjómaður synti í meira en 10 klukkutíma eftir hjálp fyrir tvo félaga sína sem hann skildi eftir á sökkvandi bát. Maðurinn var að niðurlotum kominn þegar hann komst á austurströnd Ástralíu. Þar fannst hann og strandgæslu tókst að finna einn mannanna sem voru á bátnum. Sá hafði haldið dauðahaldi í brak úr bátnum í um 30 klukkustundir. 28.2.2008 11:24
Ekki ástæða til sérstakrar rannsóknar á fangaflugi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir ekki ástæðu til þess að ráðast í sérstaka rannsókn á fangaflugi hér á landi líkt og gert hefur verið í nágrannalöndunum. Ef vísbendingar fáist hins vegar um að íslenskir flugvellir hafi verið notaðir með ólögmætum hætti þá sé ástæða til þess að skoða málið. 28.2.2008 11:07
Nýs forseta bíða miklar áskoranir í utanríkismálum Næsti forseti Bandaríkjanna mun standa frammi fyrir mun meiri áskorunum í utanríkismálum en núverandi forseti þegar hann tók við embætti. Möguleikinn á fyrsta kvenforsetanum, eða svarta forsetanum hefur beint sjónum manna að demókrataflokknum. Sérstaklega þegar tekið er tillit til óánægju á alþjóðavettvangi með utanríkisstefnu Bush sem þykir hafa orsakað sundrungu og sundurlyndi. 28.2.2008 10:55
Litháarnir bera af sér sakir í héraðsdómi Aðalmeðferð fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli þriggja Litháa sem ákærðir eru fyrir líkamsárás gegn tveimur lögreglumönnum úr götuhóp fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Árásin var gerð þegar hópurinn var við skyldustörf á Laugavegi þann 11. janúar síðastliðinn. 28.2.2008 10:54
Töfin kostar þrjá milljarða Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi formaður framkvæmdanefndar um byggingu háskólasjúkrahúss við Hringbraut, segir að töfin sem orðið hefur á framkvæmdinni kosti að minnsta kosti þrjá milljarða króna. Alfreð var settur af þegar Guðlaugur Þór Þórðarson settist í stól heilbrigðisráðherra. 28.2.2008 10:36
Óðinn mátaður við bryggjuna við Sjóminjasafið Nú klukkan hálfellefu var ætlunin að máta varðskipið Óðinn við bryggjuna við Sjóminjasafnið í Reykjavík en ætlunin er að gera skipið að safni um björgunarsögu Landhelgisgæslunnar og þorskastríðin. 28.2.2008 10:27
Chavez hvetur til betri aðbúnaðar FARC gísla Hugo Chavez forseti Venesúela biðlaði í dag til FARC skæruliðasamtakanna í Kólumbíu að bæta aðstæður háttsetts stjórnmálamanns sem er í haldi þeirra. Þetta kom fram á fundi Chavez í forsetahöllinni með fjórum gíslum sem leystir voru úr haldi mannræningjanna í gær, en forsetinn hafði milligöngu um lausn þeirra. 28.2.2008 10:09
Konur í fyrsta sinn meirihluti skólastjóra Konur eru í fyrsta sinni meirihluti skólastjóra í grunnskólum, eða 95 konur á móti 89 körlum. Þetta leiðir samantekt Hagstofunnar í ljós. 28.2.2008 10:09
Með fiðrildi á fyrsta fundinum Ég var með fiðrildi í maganum áður en fundurinn hófst," segir Amal Tamimi sem í fyrradag varð fyrsti innflytjandinn til að taka sæti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. 28.2.2008 09:54
Sjaldgæfasti fiskur Bretlands nemur ný vötn Sjaldgæfasti fiskur Bretlands, sem á uppruna sinn að rekja til síðustu ísaldar, þrífst vel í nýjum heimkynnum sínum í Skotlandi. 28.2.2008 09:52
Grunnskólanemendum fækkar næstu árin Grunnskólanemendur í íslenskum skólum reyndust um 43.800 síðastliðið haust sem er fjölgun um innan við hundrað nemendur frá fyrra ári. 28.2.2008 09:38
William F. Buckley er látinn Bandaríski rithöfundurinn og álitisgjafinn William F. Buckley er látinn 82 ára að aldri. 28.2.2008 08:43
Grænland tengt við umheiminn Norræni fjárfestingabankinn og fjarskiptafyrirtækið Tele Greenland hafa undirritað lánasamning um fjármögnun á neðansjávarljósleiðara sem mun tengja Grænland við Kanada og Ísland. 28.2.2008 08:42
Metfé fyrir listaverk Metfé var greitt fyrir nútímalistaverk á uppboði hjá Sothebys í gær en meðal þeirra voru verk eftir Francis Bacon og Andy Warhol. Alls fengust um 13 milljarðar króna fyrir verkin í heild. Dýrasta verkið, Stúdía á naktri konu í spegli, eftir Bacon frá árinu 1969 var slegið á 2,6 milljarða króna og Þrjár sjálfsmyndir eftir Warhol frá árinu 1986 var slegið á 1,5 milljarð króna. 28.2.2008 08:39
Mynd af borgarstjóra á nærbuxum kostaði hana starfið Carmen Kontor, fyrsta konan sem nær því að verða kjörin borgarstjóri í bænum Arlington í Oregon í Bandaríkjunum, hefur verið rekin úr starfinu. 28.2.2008 08:38
Eldhúsið fór í kássu Það varð heldur lítið úr kvöldmáltíðinni hjá 66 dönskum vist-spilurum sem komu saman í Hróarskeldu í vikunni til spilamennsku. Spilararnir höfðu sett upp pott með 30 kílóum af danskri kássu eða skipperlabskovs , oft kölluð lafglás hérlendis. 28.2.2008 08:36
Dauðrefsing gegn mansali í Sómalíu Yfirvöld í Sómalíu hafa ákveðið að beita dauðrefsingu gegn öllum þeim sem staðnir verða að mansali í landinu. 28.2.2008 08:35
Thaksin frjáls ferða sinna í Taílandi Thaksin Shinawatra fyrrum forsætisráðherra Tailands er frjáls ferða sinna í landinu eftir að hann greiddi rúmlega 13 milljón króna tryggingu. 28.2.2008 08:30
Vilja fá að kaupa litað bensín Fjögur þúsund og fimm hundruð manns hafa ritað undir áskorun þess efnis að stjórnvöld heimili Atlantsolíu að selja litað bensín á tæki, sem ekki nota vegakerfið. Það eru meðal annars þyrlur, skemmtibátar og sláttuvélar. 28.2.2008 08:29
Níu slösuðust í tveimur árekstrum á Akureyri Níu slösuðust, en engin lífshættulega, í tveimur árekstrum sem urðu á Svalbarðsstrandarvegi skammt frá Akureyri undir kvöld í gær. 28.2.2008 08:28
Ökumenn þurftu aðstoð á Reykjanesbraut í nótt Lögreglan á Suðurnesjum hefur þurft að aðstoða þó nokkra ökumenn í nótt þar sem þeir hafa fest bíla sína. 28.2.2008 07:56
Eiginkona skopmyndateiknarans rekin og ráðin Morðhótanirnar gegn Kurt Westergaard sem teiknaði skopmyndina af Mohammed spámanni í Danmörku leiddu til þess að eiginkonu hans, Gitte, var vikið úr starfi sem fóstru við leikskóla í Árósum í gær en ráðin aftur í dag. 28.2.2008 07:46
Kínverska leyniþjónustan njósnar um íþróttafréttamenn Á morgun kemur út í Frakklandi bók sem greinir frá því að hin umfangsmikla leyniþjónusta Kína sé nú í fullum gangi að njósna um alla fréttamennina og fleiri sem verða viðstaddir Olýmpíuleikana í Bejing í sumar. 28.2.2008 06:58
Nokkur loðnuskip fengu risaköst Loðnuveiðar hofust af fullum krafti um leið og veiðibanninu var aflétt í gær. Nokkur skip fengu risaköst, eða vel á annað þúsund tonn í kasti, og eru farin heim til löndunar. 28.2.2008 06:55
Hafa áhyggjur af öryggi hinsegin fólks í Belgrad Full ástæða er til að hafa verulegar áhyggjur af öryggi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgenderfólks sem hyggjast fara til Belgrad í Serbíu þegar Eurovision verður haldið þar í vor. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Gay Pride á Íslandi. 27.2.2008 22:12
Fagna nýjum jafnréttislögum Stjórn Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar fagnar því að nýtt jafnréttisfrumvarp er nú orðið að lögum. Sérstaklega ber að fagna nýjum ákvæðum í lögunum um rétt einstaklinga til að segja þriðja aðila frá launum sínum, auknu umboði og eftirlitsheimildum Jafnréttisstofu og því að úrskurður kærunefndar jafnréttismála er nú bindandi fyrir málsaðila. 27.2.2008 23:24
Stúlkan fundin Harpa Rut Þórlaugsdóttir, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld, er fundin. 27.2.2008 23:17