Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skorað á stjórnvöld að lækka eldsneytisgjald Neytendasamtökin taka undir áskörun Félags íslenskra bifreiðaeigenda til stjórnvalda um að lækka opinberar álögur á eldsneyti. Í frétt á vef samtakanna eru sögð full rök fyrir því að gjaldið sem nemur auknum tekjum af virðisaukaskatti. Þá minna samtökin á að eldsneytisgjald hér á landi er með því hæsta í heimi. 22.2.2008 14:11
Breskur fjöldamorðingi fékk lífstíðarfangelsi Fjöldamorðinginn Steve Wright hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bretlandi fyrir að myrða fimm konur í Suffolk árið 2006. Dómurinn er sá þyngsti sem hægt er að kveða upp í landinu. Kviðdómur var minna en átta tíma að taka ákvörðun um að dæma Wright fyrir dauða kvennanna sem fundust í Suffolk og höfðu allar verið afklæddar og kyrktar. 22.2.2008 13:09
Forsætisráðherra: Breiðavíkurdrengirnir fá bætur Ríkisstjórnin hefur ákveðið að láta semja frumvarp um hugsanlegar bætur til þeirra sem vistaðir voru í Breiðavík á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar, að sögn Geirs H. Haarde forsætisráðherra. 22.2.2008 12:57
Enn er leitað að Nödju Karitas Enn hefur ekkert spurst til 14 ára gamallar stúlku sem fór frá Dalvík í fyrradag. Stúlkan, Nadja Karitas Gulla Hallström, hvarf í hádeginu á miðvikudaginn og er talið að hún hafi ætlað til Reykjavíkur. 22.2.2008 12:50
Vill heilsársveg á hálendinu vegna lengingar flugbrautar Lenging flugbrautarinnar á Akureyri eykur nauðsyn þess að hálendið opnist almennilega fyrir ferðamenn með tengingu norðurs og suðurs. Þetta segir talsmaður í ferðaþjónustu sem vill heilsársveg. 22.2.2008 12:45
Leitað að flugvélinni í Andesfjöllum Enn er leitað að flaki flugvélarinnar sem brotlenti með 46 farþega innanborðs í afar slæmu veðri í Venesúela í gær. Björgunarsveitir leita í kulda í harðgerðu landslagi Andesfjalla en við sólarupprás hafði hvorki fundist tangur né tetur af vélinni. 22.2.2008 12:35
Hittast í dag til að skipuleggja loðnuleit Fulltrúar útvegsmanna og Hafrannsóknastofnunar ætla að hittast í dag til þess að skipuleggja leit að loðnu á tveimur Hafrannsóknaskipum og nokkrum loðnuskipum í næstu viku. 22.2.2008 12:30
Vill funda með Eyjamönnum um tillögur þeirra Sjávarútvegsráðherra segir hugmyndir bæjarstjórnar Vestmannaeyja í sjávarútvegsmálum athyglisverðar en vill ræða við menn þar áður en hann tekur efnislega afstöðu. 22.2.2008 12:17
Bréf umboðsmanns kemur Árna ekki á óvart Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir það ekki vera áfellisdóm að Umboðsmaður Alþingis taki skipun hans á Þorsteini Davíðssyni í embætti héraðsdómara til efnislegrar meðferðar. 22.2.2008 12:11
Ekki horfa á mig segir yfirmaður filippseyska herráðsins Æðsti hershöfðingi hersins á Filippseyjum sagði stjórnarandstöðunni í dag að hætta að hvetja hermenn til þess að taka undir kröfur um að Gloriu Macapagal Arrayo, forseta landsins verði steypt af stóli. 22.2.2008 11:49
Annmarkar á ákvarðanatöku varðandi vistun á Breiðavík Annmarkar voru á verklagi og málsmeðferð við töku ákvarðana í barnaverndarnefnd Reykjavíkur um vistun barna stóran hluta þess tímabils sem Breiðavík var starfandi, einkum á árunum 1952 til 1965-1966. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítarlegri skýrslu nefndar Breiðavíkurmálið sem kynnt var í morgun. 22.2.2008 11:45
Áfram leitað að flugvél í dag ef aðstæður leyfa TF-SYN, Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar, og varðskip frá stofnuninni hafa í morgun leitað flugvélarinnar sem saknað hefur verið fyrir austan land eftir að hún hafnaði í sjónum í gær. Reiknað er með að leit haldi áfram í dag ef aðstæður leyfa. 22.2.2008 11:30
ESB segir Serbum að vernda sendiráð Evrópusambandið hefur óskað eftir því að Serbía verndi erlend sendiráð í landinu eftir ofbeldi í Belgrad í gær. Serbar sem reiddust stuðningi vesturlanda við sjálfstæðisyfirlýsingu Kosovo kveiktu í bandaríska sendiráðinu og réðust á sendiráð Breta, Þjóðverja, Króata, Belga og Tyrkja. 22.2.2008 11:26
Össur neitar að tjá sig meira um Gíslaskrif Össur Skarphéðinsson neitaði í dag að tjá sig um skrif sín á bloggsíðu sinni um Gísla Martein Baldursson. Ráðherrann var að koma af ríkisstjórnarfundi þegar blaðamenn reyndu að ná af honum tali. Össur vildi ekki veita viðtöl en sagðist þegar hafa tjáð sig um málið. 22.2.2008 11:14
Báðir flugmennirnir sofandi Talið er að báðir flugmenn farþegaþotu á Hawaii hafi sofnað undir stýri á leiðinni frá Honolulu til Hilo, í síðustu viku. 22.2.2008 11:04
Stjórnsýsluúttekt á Þróunarfélaginu á lokastigi Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi vonast til að stjórnsýsluúttekt á á Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar verði lokið í næstu viku en segir það þó ekki öruggt. 22.2.2008 11:02
Penninn og Habitat mega renna saman Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast sérstaklega vegna samruna Pennans og eignarhaldsfélagsins Smára sem rekur Habitat. 22.2.2008 10:33
Gráúlfurinn ekki lengur talinn í útrýmingarhættu Gráúlfurinn sem lifir í norðurhluta Klettafjallanna í Bandaríkjunum er ekki talinn lengur í útrýmingarhættu. Hefur hann því verið tekinn af lista bandaríska innanríkisráðuneytisins um dýr í útrýmingarhættu. 22.2.2008 10:17
Hafa þungar áhyggjur af ástandi Norðfjarðarflugvallar Bæjarstjórn Fjarðabyggðar lýsir þungum áhyggjum af bágbornu ástandi og viðhaldsskorti á Norðfjarðarflugvelli. 22.2.2008 10:16
RKÍ aðstoðar Rauðu Davíðsstjörnuna Rauði kross Íslands hefur sent tæpa eina milljón króna til að aðstoða systurfélag sitt í Ísrael, Rauðu Davíðsstjörnuna, við að setja á fót verkefni í sálrænum stuðningi 22.2.2008 10:09
Clinton og Obama þræta í Texas Hillary Clinton sakaði í gær keppinaut sinn Barack Obama um pólitískan ritstuld í beinni sjónvarpsútsendingu. Obama gerði lítið úr ásökuninni og sagðist standa fyrir öruggum breytingum, aðferð Clinton væri hluti af „bjánalegum“ stjórnmálaslag. 22.2.2008 10:07
Olga Lísa nýr skólameistari VA Menntamálaráðherra hefur skipað Olgu Lísu Garðarsdóttur í embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands til fimm ára frá 1. mars 2008 að telja 22.2.2008 09:55
Orðin sjö barna móðir 16 ára gömul Sextán ára gömul stúlka í Argentínu hefur fætt þríbura, í annað sinn á ævi sinni. Stúlkan sem heitir Pamela átti fyrri þríbura sína þegar hún var 15 ára gömul en hún eignaðist fyrsta barn sitt, son, þegar hún var 14 ára. 22.2.2008 09:43
Tyrkir ráðast inn í Írak Tíu þúsund manna tyrkneskt herlið réðst í dag yfir landamæri Íraks til að ráðast á búðir skæruliða Kúrdiska verkamannaflokksins svonefnda. 22.2.2008 09:42
Bíll með þremur hafnaði í húsgarði Engin meiddist alvarlega þegar fólksbíll með þremur mönnum um borð hafnaði á hliðinni inni í húsagarði í Keflavík seint í gærkvöldi. 22.2.2008 09:33
Tekur þátt í námstefnu um ofbeldi karla gegn konum Ingibjörg Sólrún Gíslasdóttir utanríkisráðherra er í hópi þriggja norrænna ráðherra sem taka þátt í námstefnu um ofbeldi karla gegn konum sem haldin verður í tengslum við þing Sameinuðu þjóðanna í næstu viku. 22.2.2008 09:32
Gates segir að eldflugavarnakerfi Bandaríkjanna virki Robert Gates varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir að eldflugavarnakerfi landsins virki. Velheppnað eldflugaskot gegn stjórnlausum njósnagervihnetti í vikunni sýni fram á þetta. 22.2.2008 09:30
Flugvélarinnar enn leitað Leit að bandarísku flugvélinni sem saknað hefur verið frá í gær, hefur enn ekki borið árangur. 22.2.2008 09:17
Vöruskiptahalli dregst saman um 68 milljarða á milli ára Tæplega 88 milljarða króna halli varð á vöruskiptum við útlönd í fyrra eftir því sem segir á vef Hagstofunnar. Fluttar voru út vörur fyrir tæpa 303 milljarða en inn voru fluttar vörur fyrir rúma 390 milljarða. 22.2.2008 09:16
Öldungardeildarþingmenn nauðlentu í Afganistan Þyrlur á vegum bandaríska hersins í Afganistan þurftu að nauðlenda í fjalllendi þar í gærkvöldi vegna blindbyls sem þær lentu í. Um borð í einni þyrlunni voru öldungardeildarþingmennirnir John Kerry, Jo Biden og Cuck Hagel. 22.2.2008 08:57
Alþjóðlegt átak gegn ólöglegum innflytjendum frá Afríku Evrópusambandið ætlar að koma af stað alþjóðlegu átaki til að stöðva straum ólöglegra innflytjenda frá Afríku til Evrópu. 22.2.2008 08:51
Fordæma árásina á bandaríska sendiráðið í Serbíu Árásirnar sem gerðar voru á bandaríska sendiráðið í Belgrað höfuðborg Serbíu og þrjú önnur sendiráð í borginni í gærkvöldi hafa verið fordæmd af Bandaríkjastjórn og Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. 22.2.2008 08:46
Lögreglumaður fékk heilahristing eftir átök í lögreglubíl Lögreglumaður var fluttur með heilahristing á slysadeild Landspítalans í gærkvöldi eftir að óður maður sparkaði í höfuð hans um borð í lögreglubíl. 22.2.2008 07:55
Sjómaður í komst í hann krappann við Arnarstapa Sjómaður á litlum plast fiskibáti komst í hann krappann þegar hann ætlaði að sigla inn til Arnarstapa í gærkvöldi. 22.2.2008 07:50
Farþegaþota með 46 manns hrapaði í Venesúela Farþegaþota með 46 manns innanborðs harpaði til jarðar í fjalllendi í vesturhluta Vensúela í nótt. 22.2.2008 07:48
Eyjamenn vilja að álögum sé létt af sjávarútvegi Bæjarstjórn Vestmannaeyja vill að íþyngjandi álögum verði þegar létt af sjávarútvegi til að vega eitthvað á móti hinu mikla tekjutapi, sem verður vegna stöðvunar á loðnuveiðum. 22.2.2008 07:22
Varðskip og Fokker leita enn að flugvélinni Varðskip leitar nú á svæðinu suðaustur af landinu, þar sem lítil eins hreyfils bandarísk flugvél, með einum manni um borð, brotlenti skömmu fyrir hádegi í gær. 22.2.2008 06:47
Einangrunarfangi getur fengið tíu ár Íslenski karlmaðurinn sem situr í einangrun í fangelsi í Færeyjum getur fengið allt að tíu ára fangelsi verði hann dæmdur fyrir fleiri en eitt brot. 22.2.2008 00:01
Mikil eftirvænting fyrir Food & Fun Matarhátíðin Food & Fun, sem myndi útleggjast á íslensku sem Fóður og fjör, verður á veitingastaðnum Við Pollinn á Ísafirði um helgina. "Við erum mjög spenntir en þetta er skemmtileg ný hugmynd. Það er búinn að vera mikill undirbúningur fyrir hátíðina, en við erum búnir að vera að vinna að þessu síðan á áramótum“, segir Eiríkur Gísli Johansson, annar eigandi veitingarstaðarins. Ellefu veitingastaðir hafa tekið sig saman og ætla að kynna íslenskt hráefni til matargerðar auk þess sem hvert landsvæði ætlar að kynna sína menningu og hráefni sem er fáanlegt að vetrarlagi. "Hátíðin stendur yfir frá fimmtudegi til sunnudags og hver staður velur sér einn eða fleiri af þessum dögum. Við verðum með hátíðina á föstudag- og laugardagskvöld en sunnudagurinn er frátekinn fyrir konudag sem verður haldinn hátíðlegur hjá okkur í samstarfi við Blómaturninn“, segir Eiríkur. 21.2.2008 07:38
Varðskip leitar að vélinni – frekari ákvörðun tekin í fyrramálið Leitin að Piper Cherokee flugvélinni, sem hvarf af ratsjá fyrir austan land um hálftólfleytið í dag, hefur enn engan árangur borið. 21.2.2008 21:46
Friðrik Valur líklega farinn úr landi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir sautján ára pilti í gærdag. Sá heitir Friðrik Valur Hákonarson og var beðinn um að hringja heim til sín. 21.2.2008 21:37
Týnda stúlkan á Akureyri ófundin í Reykjavík Lögreglan á Akureyri lýsti í dag eftir 14 ára gamalli stúlku, Nadju Karitas Gulla Hallström. Hún fór frá Dalvík fyrir hádegi í gærdag þann 20. febrúar og er talið að hún hafi farið til Reykjavíkur. 21.2.2008 22:00
Kveðjuhóf Björns Inga - allir mættu nema Villi Kveðjuhóf fyrir Björn Inga Hrafnsson var haldið í Höfða í kvöld. Þar voru allir borgarfulltrúarnir mættir nema Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson oddviti Sjálfstæðismanna. 21.2.2008 21:06
Davíð Oddsson fær bréf frá Guðna Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins hefur sent Davíði Oddssyni seðlabankastjóra bréf þar sem hann fer fram á að Seðlabankinn svari nokkrum spurningum ásamt hagfræðilegum rökstuðningi og greinargerð. Svörin vill Guðni fá innnan mánaðar. 21.2.2008 20:46
Enn óvíst með oddvita sjálfstæðismanna „Það eru engar nýjar fréttir varðandi forystumál Sjálfstæðisflokksins,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir þegar Vísir náði tali af henni nú síðdegis. 21.2.2008 20:14