Fleiri
Björn Ingi fær biðlaun 25.1.2008 16:01 Númeraplatan dýrari en bíllinn Breskur kaupsýslumaður hefur greitt metverð fyrir bílnúmeraplötu í Bretlandi, litlar 48,5 milljónir íslenskra króna. Á plötunni standa einkennisstafir Formúlu eitt „F1“. Afzal Khan bætti með kaupunum fyrra metið sem var tæpar 43 milljónir. Númerið mun hann setja á Mercedex SLR McLaren bifreið sína sem kostar um 43 milljónir króna. Khan býr í Bradford og á fyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun á bílum. 25.1.2008 16:01 Hjúskaparvottorð Fischers á leið til landsins Hjúskaparvottorð Bobbys Fischer og Miyoko Watai er á leið til landsins og er væntanlegt eftir fáeina dag. Árni Vilhjálmsson, lögmaður Watai, staðfesti þetta í símtali við Vísi í dag. 25.1.2008 15:52 Utanríkisráðuneytið veitir sjö milljónir til aðstoðar í Kenía Utanríkisráðuneytið hefur veitt Rauða krossinum sjö milljónir króna til neyðaraðstoðar í Kenía. Féð rennur til aðgerða Alþjóða Rauða krossins í landinu. 25.1.2008 15:49 Póstmannafélagið vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara Stjórn og samninganefnd Póstmannafélags Íslands hefur ákveðið að vísa kjaradeilu félagsins við Íslandspóst til ríkissáttasemjara. Þetta kemur fram á vef BSRB. 25.1.2008 15:42 Borgarstjóri ekki búinn að ráða aðstoðarmann Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra hefur ekki gefist tími til að ráða sér aðstoðarmann í ráðhúsið. Aðspurður hvort hann hyggðist gera það sagði Ólafur: „Ég get ekki tjáð mig um það á þessum tímapunkti." 25.1.2008 15:39 Dó fyrir ófæddan son sinn 25.1.2008 15:33 Fyrsti maðurinn sektaður fyrir „net-stríð“ Fyrsti maðurinn sem sektaður er fyrir að taka þátt í „net-stríði“ er 20 ára gamall maður af rússneskum uppruna. Hann var sektarður í Eistlandi fyrir aðild að netárás sem lokaði vefsíðu umbótaflokks forsætisráðherrans, Andrus Ansip. Dmitri Galushkevich var sektaður um rúmar 100 þúsund krónur fyrir atlöguna á síðuna sem átti sér stað frá 25. apríl og 4. maí árið 2007. 25.1.2008 15:21 Færð að batna á Suðurnesjum Færð er að batna á Suðurnesjum og er búið að opna Reykjanesbraut og Grindarvíkurveg. Eins er fært frá Keflavík út í Garð og Sandgerði og verið að opna út í Hafnir. 25.1.2008 15:10 Fimm handteknir í dóphraðsendingamáli Lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum hafa undanfarna daga handtekið og yfirheyrt fimm manns í tengslum við smygl á 5,2 kílóum af amfetamíni og kókaíni með hraðsendingu frá Þýskalandi í nóvember á síðasta ári. 25.1.2008 15:08 Steig á bensíngjöf en ekki bremsu og ók á mann Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og svipt hann ökurétti í fjóra mánuði fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. 25.1.2008 15:02 Telja upp að tíu Þegar Marie Lupe Cooley sá atvinnuauglýsingi í dagblaði í Jacksonville í Florida, varð hún ofsalega reið. Starfslýsingin passaði vel við hennar starf og símanúmerið var símanúmer yfirmanns hennar og eiganda fyrirtækisins. 25.1.2008 14:38 Þorrinn þreyður á Grænuvöllum 25.1.2008 14:33 Sjá næstu 50 fréttir
Fagnar nauðgunardómi Deildarstjóri neyðarmóttöku nauðgana fagnar dómi héraðsdóms Reykjavíkur í máli tveggja litháa sem dæmdir voru í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun í gær. Hún segist vilja sjá þyngri dóma við nauðgunum í framtíðinni, en dómurinn í gær sé skref í rétta átt. 26.1.2008 18:52
Framsókn í Reykjavík er óstarfhæfur flokkur Framsóknarflokkurinn í Reykavík er óstarfhæfur og af þeim sökum hætti Björn Ingi í borgarpólitíkinni. Þetta sagði Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarmanna á opnum fundi flokksins í Reykjavík í dag. 26.1.2008 18:43
Hundarnir komnir í leitirnar Síberíu husky hundarnir sem leitað hefur verið að á Suðurnesjum eru komnir í leitirnar. „Þeir fundust við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd heilir á húfi, segir vinur eigendanna sem stóð í ströngu í nótt við að finna hundana. 26.1.2008 16:17
Sjálfstæðiskonur ánægðar með nýjan meirihluta í borginni Landssamband Sjálfstæðiskvenna hefur ályktað um nýjan meirihluta í Reykjavík. Þær fagna því að sjálfstæðismenn fari aftur með völd í Reykjavík. „Allt tal um að stjórnarskiptin séu ólýðræðisleg á ekki við rök að styðjast. Nýr meirihluti er löglega kjörinn meirihluti í borginni,“ segir í ályktuninni. 26.1.2008 14:10
Sakhæfur þrátt fyrir slys í Egyptalandi Jón Pétursson, sem tvívegis hefur verið dæmdur fyrir nauðganir á skömmum tíma, er sakhæfur. Þetta er niðurstaða tveggja matsmanna sem fengnir voru til þess að meta hvort slys sem Jón varð fyrir í Egyptalandi hafi leitt til framheilaskaða. 26.1.2008 13:36
Annan krefst rannsóknar á ofbeldinu í Kenía Kofi Annan fyrrum framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna krafðist í morgun rannsóknar á ofbeldi undanfarinna daga í Kenýa. Annan hefur í dag verið að ferðast um svæði þar sem átök blossuðu upp í gær. 26.1.2008 13:27
Strandaði á leið til Hólmavíkur Gat kom á botn flutningaskipsins ICE Bird eða Ísfuglsins þegar það rakst utan í sker á leið til hafnar í Hólmavík. Kafarar könnuðu skemmdir skipsins sem reyndust ekki miklar og var því siglt til Akureyrar þar sem það fer í slipp. 26.1.2008 13:23
Rætt um þorsk á Hótel Loftleiðum Ráðstefna stendur yfir á vegum Hafrannsóknarstofnunar um þorsk á Íslandsmiðum á Hótel loftleiðum í dag. Markmiðið með ráðstefnunni er að varpa skýrara ljósi á þorskrannsóknir við Íslandsmið og verður þar fjöldi erlendra sérfræðinga sem kynnir niðurstöður rannsókna sinna við Íslandsmið. 26.1.2008 13:17
Abbas vill að Palestínumenn annist landamæravörslu Abbas forseti palestínsku heimastjórnarinnar ætlar að leggja til við Ísraela að sveitir hans yfirtaki stjórn landamæra Gaza-svæðisins og Egyptalands. Abbas hittir Olmert forsætisráðherra á morgun. Íbúar Gaza fóru þúsundir saman yfir til Egyptalands á ný í morgun. 26.1.2008 13:15
Gagnrýnir stjórnsýslu borgarinnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra segir stjórnsýslu Reykjavíkurborgar í málum húsanna tveggja á Laugavegi fjögur og sex ekki hafa verið nægilega skýra og góða. Hún hvetur skipulagsyfirvöld eindregið til að vinna betur að húsafriðunarmálum í framtíðinni. 26.1.2008 13:10
Vefverðlaunin 2007: Vísir tilnefndur Vísir er tilnefndur sem besti afþreyingarvefurinn þegar Vefverðlaunin 2007 verða veitt á Hótel Sögu 1. febrúar næstkomandi. Samtök vefiðnaðarins standa að verðlaununum en fimm vefir eru tilnefndir í hverjum flokki og eru flokkarnir einnig fimm. 26.1.2008 12:35
Ólafur F. tjáir sig um veikindi sín Ólafur F. Magnússon, nýkjörinn borgarstjóri Reykjavíkur, ræðir í fyrsta sinn opinberlega um veikindi sín sem gerðu það að verkum að hann var að mestu fjarverandi frá borgamálunum á síðasta ári. Í viðtölum í Fréttablaðinu og 24 stundum segist hann hafa verið „nokkuð langt niðri á tímabili," og að hann hafi sótt sér „viðeigandi aðstoð og aðhlynningu" til að sigrast á veikindunum. 26.1.2008 11:37
Ingibjörg Sólrún undirritar fríverslunarsamning við Kanada Í dag undirritaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli EFTA ríkjanna og Kanada. Undirritunin fór fram í Davos í Sviss. Samningurinn mun öðlast gildi og koma til framkvæmda þegar hann hefur verið fullgiltur af EFTA ríkjunum og Kanada. 26.1.2008 11:19
Sextán ára á stolnum bíl Sextán ára piltur var tekinn á stolnum bíl á Ísafirði í nótt. Pilturinn var réttindalaus og sinnti ekki stöðvunarmerki lögreglu sem þurfti að elta hann í smá tíma þar til hann stöðvaði bílinn. Í ljós kom að pilturinn var undir áhrifum áfengis. 26.1.2008 10:27
Palestínumenn streyma til Egyptalands Egypskir hermenn hörfuðu frá landamæramúrnum við Gaza í nótt eftir að hermaður fékk skot í fótinn. Þúsundir Palestínumanna þustu yfir landamærin til Egyptalands í morgun. Þar er nú engan egypskan hermann að sjá. 26.1.2008 10:22
Slagsmál á Akureyri Lögreglan á Akureyri var þrisvar sinnum kölluð út í nótt vegna slagsmála fyrir utan skemmtistaði í bænum. Að sögn lögreglu voru slagsmálin tengd drykkju og skemmtanahaldi og einn slagsmálaahundanna gisti fangageymslur í nótt. 26.1.2008 10:15
Skipuð formaður barnaverndarnefndar að henni forspurðri Kristín Edwald, hæstaréttarlögmaður mun ekki taka við embætti formanns barnaverndarnefndar en hún var skipuð formaður í nefndina af núverandi meirihluta í borgarstjórn. Kristín var að henni forspurðri skipuð formaður nefndarinnar. 26.1.2008 10:11
Hellisheiðin opnuð en varað við hálku Hellisheiðin hefur verið opnuð en þar er hálka og skafrenningur. Þá er einnig hálka og skafrenningur í Þrengslum og á Eyrarbakkavegi. 26.1.2008 09:29
Fimm á slysadeild eftir árekstur við Korpúlfsstaði Fimm voru fluttir á slysadeild í árekstri tveggja bíla við Korpúlfsstaði klukkan hálft tvö í nótt. Tækjabíll slökkviliðsins var kallaður á vettvang og tók um hálftíma að losa þann sem mest slasaðist úr flaki bifreiðarinnar. Í fyrstu var talið að einn hinna slösuðu væri alvarlega slasaður en eftir skoðun og aðhlynningu á slysadeild fékk fólkið að fara heim. 26.1.2008 09:18
Hvaða fangar eru bestu nágrannarnir? Afstaða, félaga fanga stóð fyrir skoðanakönnun á vef sínum þar sem spurt var hvert viðhorf fólks væri ef fyrrverandi fangi flytti í hverfið. Alls tóku 174 þátt í könnuninni sem stóð yfir í um mánuð. 25.1.2008 21:48
Hundarnir á Reykjanesbraut ekki enn fundnir Síberíuhusky sleðahundarnir sem sluppu frá Vogum á Vatnsleysuströnd í dag eru ekki enn fundnir. Síðast sá til þeirra í Kúagerði um hálf sex leytið. 25.1.2008 22:01
Nýjast frá Vegagerðinni Vakin er athygli á að þjónustu er víðast hvar lokið á vegum í dag. Á leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar lýkur þjónustu klukkan tíu. Hellisheiði er ófær en Þrengslunum verður sinnt til miðnættis. 25.1.2008 23:00
Alfreð fordæmir vinnubrögð Guðjóns Ólafs Stjórn Alfreðs, Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður, hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna atburða undanfarinna daga. 25.1.2008 19:47
Hellisheiði lokuð til morguns Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er Hellisheiðin ófær og ekki verður reynt að opna hana þar til á morgun. Hinsvegar er opið um Þrengslin. 25.1.2008 17:55
Borgin kaupir Laugaveg 4 og 6 á 580 milljónir Reykjavíkurborg samdi í dag við Kaupvang ehf. um að kaupa húsin við Laugaveg 4 og 6. Samkvæmt öruggum heimildum Vísis er kaupverðið um 580 milljónir. 25.1.2008 17:45
Hjálpsamir borgarar gleymdu bíllykli á Ásvallagötu Tveir borgarar, að öllum líkindum feðgar, komu stúlku til hjálpar á Ásvallagötu um kl. 07.45 í morgun og aðstoðuðu hana við að komast leiðar sinnar í ófærðinni. Hún ók rauðum VW Golf en svo óheppilega vildi til að bíllykill mannanna varð eftir í bíl stúlkunnar. Um er að ræða fjarstýringu og lykil að Mazda-bifreið. Hinir hjálpsömu borgarar geta nú nálgast fjarstýringuna og lykilinn á lögreglustöðinni við Hverfisgötu en þangað kom stúlkan síðdegis. Hún telur að heiðursmennirnir, sem hún kallar svo, búi á Ásvallagötu eða þar nærri. 25.1.2008 17:38
Týndir sleðahundar á Reykjanesbraut Tveir svartir og hvítir Síberíhusky sleðahundar sluppu úr heimahúsi í Vogum á Vatnsleysuströnd í dag. Eigandi hundanna leitar þeirra nú á Reykjanesbraut. 25.1.2008 17:35
Íslendingar leggja 10 milljónir til hjálparstarfs í Kenía Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að leggja 7 milljónir kr. til hjálparstarfs Rauða krossins í Kenía. Neyðarástand hefur skapast í landinu í kjölfar forsetakosninga sem fram fóru þann 30. desember sl. 25.1.2008 17:27
Nærri tvö af hverjum þremur kerjum hafa verið gangsett Búið er að gangsetja nærri tvo þriðju af kerjum álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að seint í gær hafi tvöhundraðasta kerið verið tekið í gagnið en alls eru þau 336 talsins. 25.1.2008 16:48
Unglingsdrengur ætlaði að ræna farþegaflugvél Bandarísk yfirvöld hafa ákært unglingsdreng sem segist hafa áformað að ræna farþegaflugvél sem hluta af sjálfsmorðstilraun. Drengurinn sem er 16 ára var handtekinn af flugvallalögreglu í Nashville í Tennessee á þriðjudagskvöld eftir að flug frá Los Angeles. 25.1.2008 16:43
Litháen íhugar nafnbreytingu Litháen er að hugsa um að breyta sínu enska nafni til þess að gera fólki auðveldara að bera það fram og muna það. Á enskunni í dag er nafnið Lithuania. 25.1.2008 16:32
Eldsupptök á Kaffi Krók enn óljós Enn er allt á huldu um eldsupptök í einu sögufrægasta húsi Skagafjarðar sem hýsti Kaffi Krók og gjöreyðilagðist í bruna fyrir rúmri viku. 25.1.2008 16:22
Númeraplatan dýrari en bíllinn Breskur kaupsýslumaður hefur greitt metverð fyrir bílnúmeraplötu í Bretlandi, litlar 48,5 milljónir íslenskra króna. Á plötunni standa einkennisstafir Formúlu eitt „F1“. Afzal Khan bætti með kaupunum fyrra metið sem var tæpar 43 milljónir. Númerið mun hann setja á Mercedex SLR McLaren bifreið sína sem kostar um 43 milljónir króna. Khan býr í Bradford og á fyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun á bílum. 25.1.2008 16:01
Hjúskaparvottorð Fischers á leið til landsins Hjúskaparvottorð Bobbys Fischer og Miyoko Watai er á leið til landsins og er væntanlegt eftir fáeina dag. Árni Vilhjálmsson, lögmaður Watai, staðfesti þetta í símtali við Vísi í dag. 25.1.2008 15:52
Utanríkisráðuneytið veitir sjö milljónir til aðstoðar í Kenía Utanríkisráðuneytið hefur veitt Rauða krossinum sjö milljónir króna til neyðaraðstoðar í Kenía. Féð rennur til aðgerða Alþjóða Rauða krossins í landinu. 25.1.2008 15:49
Póstmannafélagið vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara Stjórn og samninganefnd Póstmannafélags Íslands hefur ákveðið að vísa kjaradeilu félagsins við Íslandspóst til ríkissáttasemjara. Þetta kemur fram á vef BSRB. 25.1.2008 15:42
Borgarstjóri ekki búinn að ráða aðstoðarmann Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra hefur ekki gefist tími til að ráða sér aðstoðarmann í ráðhúsið. Aðspurður hvort hann hyggðist gera það sagði Ólafur: „Ég get ekki tjáð mig um það á þessum tímapunkti." 25.1.2008 15:39
Fyrsti maðurinn sektaður fyrir „net-stríð“ Fyrsti maðurinn sem sektaður er fyrir að taka þátt í „net-stríði“ er 20 ára gamall maður af rússneskum uppruna. Hann var sektarður í Eistlandi fyrir aðild að netárás sem lokaði vefsíðu umbótaflokks forsætisráðherrans, Andrus Ansip. Dmitri Galushkevich var sektaður um rúmar 100 þúsund krónur fyrir atlöguna á síðuna sem átti sér stað frá 25. apríl og 4. maí árið 2007. 25.1.2008 15:21
Færð að batna á Suðurnesjum Færð er að batna á Suðurnesjum og er búið að opna Reykjanesbraut og Grindarvíkurveg. Eins er fært frá Keflavík út í Garð og Sandgerði og verið að opna út í Hafnir. 25.1.2008 15:10
Fimm handteknir í dóphraðsendingamáli Lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum hafa undanfarna daga handtekið og yfirheyrt fimm manns í tengslum við smygl á 5,2 kílóum af amfetamíni og kókaíni með hraðsendingu frá Þýskalandi í nóvember á síðasta ári. 25.1.2008 15:08
Steig á bensíngjöf en ekki bremsu og ók á mann Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og svipt hann ökurétti í fjóra mánuði fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. 25.1.2008 15:02
Telja upp að tíu Þegar Marie Lupe Cooley sá atvinnuauglýsingi í dagblaði í Jacksonville í Florida, varð hún ofsalega reið. Starfslýsingin passaði vel við hennar starf og símanúmerið var símanúmer yfirmanns hennar og eiganda fyrirtækisins. 25.1.2008 14:38