Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umtalsverð auking á stuðningi almennings við Íbúðalánasjóð Stuðningur almennings við starfssemi Íbúðalánasjóðs jókst umtalsvert í fyrra en stuðningur íbúðakaupenda við íbúðalánastarfssemi banka og sparisjóða fór verulega þverrandi. 23.1.2008 07:48
Rúmlega 80% bera ekki traust til Ólafs F Magnússonar 81,4% af þeim sem kosið hafa í skoðanakönnun Vísis segjast ekki bera traust til Ólafs F Magnússonar sem borgarstjóra. 22.1.2008 23:33
Vinskapur hafði ekkert með lögfræðiálit að gera Bjarnfreður Ólafsson skattalögfræðingur segir álit sitt á skattamálum Framsóknarflokksins og frambjóðenda hans ekki tengjast þeim persónum sem eigi hlut að máli. „Þetta er einföld lögfræðileg niðurstaða og ætti að vera alveg óumdeild. Hún er ekkert tengd persónum enda er Óskar Bergsson kær vinur minn, Björn Inga þekki ég hinsvegar ekkert." 22.1.2008 21:59
Greiði skatta og skyldur af mínum hlunnindum „Ég greiði skatta og skyldur af mínum launum og hlunnindum og geri nákvæmlega það sem mér er sagt að gera frá mínum endurskoðanda,“ segir Björn Ingi Hrafnsson um þær ásakanir að hann hefði átt að greiða skatt af styrk sem hann fékk til fatakaupa fyrir kosningar árið 2006. 22.1.2008 21:14
Frjálslyndir á norðausturlandi styðja nýjan meirihluta Hin ýmsu félög tengd stjórnmálaflokkunum hafa sent frá sér yfirlýsingar þar sem nýr meirihluti í borginni nýtur annaðhvort stuðnings eða hann er fordæmdur. Kjördæmisráð Frjállyndaflokksins í norðausturkjördæmi lýsir yfir stuðningi í yfirlýsing. 22.1.2008 21:25
Dagur fór að hafa áhyggjur vegna fréttar Vísis „Það var vegna fréttar á Vísi sem ég heyrði í Ólafi á mánudagsmorgun. Hann var þá léttur og sagði þetta af og frá og ætlaði að leiðrétta þetta við blaðamann svo þetta yrði úr sögunni,“ sagði Dagur B Eggertsson fráfarandi borgarstjóri í viðtali við Kastljósið nú í kvöld. 22.1.2008 21:42
Flugvöllur í Vatnsmýri til langrar framtíðar Reykjavíkurflugvöllur verður áfram í Vatnsmýri til langrar framtíðar, segir Ólafur F. Magnússon, verðandi borgarstjóri. Hann segir stefnuskrá nýja meirihlutans vera sjötíu prósent F-lista plagg. 22.1.2008 19:06
Útförin var stórkostleg leikflétta Hin leynilega útför Fischers á bökkum Ölfusár í gærmorgun varð til þess að margir sem vonuðust til að geta kvatt hann, urðu af tækifærinu, þeirra á meðal Boris Spasský. 22.1.2008 19:03
Ólafur hefur umbylt embætti forseta Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur umbylt embætti forseta Íslands frá því hann tók við því meðal annars með því að nýta málskotsréttinn. Á fyrirlestri sem haldinn var um forsetann í dag var Ólafur kallaður útrásarforseti. 22.1.2008 18:49
Óánægður viðskiptavinur hindraði aðkomu sjúklinga að Læknavaktinni „Það var haft samband við mig og ég benti á að maðurinn gæti talað við skrifstofuna eftir helgi sem er mjög eðlilegt vinnulag," segir Gerður Árnadóttir læknir á Læknavaktinni en óánægður viðskiptavinur lét illa eftir að honum var neitað um endurgreiðslu fyrir skömmu. 22.1.2008 18:40
Kjartan Magnússon stjórnarformaður Orkuveitunnar Nýr meirihluti í borginni er byrjaður að leggja drög að skiptingu helstu ábyrgðarhlutverka innan borgarkerfisins. 22.1.2008 17:10
Björn Ingi og Óskar brutu gegn skattalögum Frambjóðendur Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík árið 2006 hefðu átt að gefa fatastyrk sem þeir fengu upp til skatts sem hlunnindi eða gjafir, að mati lögfræðings. Fréttablaðið hefur það eftir Birni Inga Hrafnssyni borgarfulltrúa að hann hefði ekki séð ástæðu til að gefa styrkinn upp til skatts því að um svo lágar upphæðir hafi verið að ræða. 22.1.2008 16:55
Útlit fyrir að F-listi fái engan formann í nefndum og ráðum Ólafur F. Magnússon, verðandi borgarstjóri, segir að ákvörðun Margrétar Sverrisdóttur og Guðrúnar Ásmundsdóttur um að standa með gamla meirihlutanum í borginni sé merki um að þær séu að bregðast kjósendum sínum. Hann óttast ekki að Margrét slíti meirihlutanum fái hún tækifæri til þess. Úlit er fyrir að F-listi fái ekki formann í neinum nefndum og ráðum vegna ákvæða í sveitarstjórnarlögum. 22.1.2008 16:51
Tíu menn rændu póstflokkunarstöð í Gautaborg Mikil skelfing greip um sig í Gautaborg í Svíþjóð í dag þegar bíræfið póstrán var framið þar. 22.1.2008 16:43
79 prósent treysta ekki Ólafi F. samkvæmt könnun Vísis 78,9 prósent þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Vísis í dag segjast ekki bera trausts til Ólafs F. Magnússonar sem borgarstjóra. 1600 manns hafa tekið þátt í könnunni þegar þetta er skrifað. Ef þú hefur ekki enn telið þátt getur þú kosið hér. 22.1.2008 16:27
Segir frjálslynda ekki geta stutt Ólaf nema hann starfi í flokknum Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir flokkinn ekki geta lýst yfir stuðningi við Ólaf F. Magnússon, verðandi borgarstjóra, eða borið pólitíska ábyrgð á honum nema hann taki til starfa innan flokksins í fullu samráði við frjálslynda í Reykjavík. Þetta kemur fram á vefsíðu Jóns. 22.1.2008 16:25
„Ólafur er vinur minn“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson oddviti Sjálfstæðisflokksins segir að ekki verði mikið um óvænt tíðindi á fundi borgarstjórnar á fimmtudaginn þegar kosið verður í nefndir og ráð á vegum borgarinnar. „Við erum að undirbúa fundinn og höfum rætt í okkar hóp hvernig verður en það kemur allt í ljós á fimmtudaginn,“ segir Vilhjálmur. „Við erum með ágætis fólk sem hefur skilað góðu starfi síðustu misseri,“ segir hann. 22.1.2008 16:20
Trevor Rees fyrir réttarrannsókn Díönu á morgun Trevor Rees, eini maðurinn sem komst lífs af úr bílslysinu sem tók líf Díönu prinsessu mun bera vitni við réttarrannsóknina á dauða prinsessunnar á morgun. Auk Díönu lést Dodi Fayed ástmaður hennar og Henri Paul bílstjóri. 22.1.2008 16:10
Medvedev heldur fast í stefnu Pútíns Dímítrí Medvedev, frambjóðandi Sameinaðs Rússlands til forseta, sagði í dag að hann myndi halda fast í þá stefnu sem Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefði markað fyrir þjóðina. 22.1.2008 16:08
Þjófur eða þjófar á ferð í borginni að degi til Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar íbúa á höfuðborgarsvæðinu við þjófi eða þjófum sem taldir eru brotist inn í nokkur íbúðarhús á svæðinu að degi til á virkum dögum meðan íbúarnir eru að heiman. 22.1.2008 15:51
Íslenskir aðalverktakar og svissneskt félag bjóða lægst í Óshlíðargöng Íslenskir aðalverktakar og Marti Contractors frá Sviss áttu lægsta tilboðið í gerð Óshlíðarganga en tilboð vegna þeirra voru opnuð í dag hjá Vegagerðinni. 22.1.2008 15:14
Margrét og Guðrún binda sig við fráfarandi meirihluta Borgarfulltrúar Samfylkingarnnar, Vinstri - grænna og Framsóknarflokks ásamt öðrum og þriðja manni F-lista hafa ákveðið að starfa áfram saman að heildum og hafa nána samvinnu um málflutning og tillögugerð. 22.1.2008 14:55
Styðja uppbyggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri Fastanefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga um samgöngumál lýsir yfir fullum stuðningi við fyrirhugaða byggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri í Reykjavík. 22.1.2008 14:39
Rúmlega tólfhundruð manns hafa skráð sig á mótmælalista Rúmlega tólfhundruð manns hafa nú skráð sig á mótmælalista á netinu þar sem vinnubrögðum við myndun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Ólafs F. Magnússonar er mótmælt. 22.1.2008 14:21
My Icelandic Experience in a Week Eva Firicka is an editorial intern at the Reykjavík Grapevine. She will be spending the next four months with us. Here you can read some random reflections from her first week. 22.1.2008 14:18
Kosið um hvort Prodi njóti trausts Kosið verður um það á ítalska þinginu hvort Romano Prodi forsætisráðherra landsins njóti trausts eftir afsögn samstarfsmanns hans í stjórninni í síðustu viku. Með honum hverfur meirihluti samsteypustjórnar forsætisráðherrans sem var einungis upp á einn mann. 22.1.2008 14:18
Reykvíkingar verða með þrjá borgarstjóra á launum Reykvíkingar verða með þrjá borgarstjóra á launum þegar Ólafur F. Magnússon tekur við sem borgarstjóri á fimmtudag eins og gert er ráð fyrir. Með meirihlutaskiptunum fer Dagur B. Eggertsson á biðlaun og fyrir er Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson á biðlaunum. 22.1.2008 14:15
Ekkja Bobby Fischer erfir 140 milljónir Miyoko Watai, ekkja Bobby Fischer, mun erfa þær 140 milljónir sem Fischer skildi eftir sig við andlát sitt. Staðfest hefur verið að Watai var eiginkona Fischers en ekki unnusta eins og oft hefur verið haldið fram og mun því erfa þær rúmu 140 milljónir króna sem Vísir hefur heimildir fyrir að hann láti eftir sig, auk 67 fermetra íbúðar í Espigerði. 22.1.2008 14:14
Deilt um aðgerðir og aðgerðaleysi í efnahagsmálum Þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu deildu um það í upphafi þingfundar hversu vel ríkissstjórnin stæði sig í þeim ólgusjó sem nú er í efnahagsmálum í heiminum. 22.1.2008 13:42
Clinton og Obama takast harkalega á Hillary Clinton og Barack Obama sem berjast um útnefningu Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í nóvember, tókust harkalega á í kappræðum fyrir forkosningarnar í Suður-Karólínu. Obama sakaði Clinton um að segja hvað sem er til að fá atkvæði. 22.1.2008 13:16
Ólafur segir að Svandísi hafi verið boðinn borgarstjórastóllinn Ólafur F. Magnússon, verðandi borgarstjóri, segir að sjálfstæðismenn í borgarstjónr hafi verið að þreifa á öllum flokkum í fráfarandi meirihluta alveg frá því að upp úr samstarfi D- og B - lista slitnaði fyrir þremur mánuðum. 22.1.2008 13:07
Samhæfingarstöð lokað en enn varað við slæmu veðri víða Samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð, sem virkjuð var í gærkvöld vegna veðurs, hefur verið lokað. Fram kemur í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra að enn sé þó slæmt veður víða um land og lítið ferðaveður. Er fólk hvatt til þess að fylgjast vel með veðri og færð. 22.1.2008 12:55
Kanna hvort Fischer hafi verið kvæntur Hugmyndin um að Bobby Fischer yrði grafinn í þjóðargrafreit á Þingvöllum var borin undir ekkju hans, Miyko Watai. Hún hafnaði hins vegar hugmyndinni með þeim orðum að það hefði ekki verið vilji Fischers og valdi fremur útför í kyrrþei. 22.1.2008 12:47
Enn varað við nígerískum fjársvikum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við fjársvikum með erlendum tékkum. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að svikin fari þannig fram að viðskiptum sé komið á í gegnum íslenska sölusíðu. 22.1.2008 12:42
Fundu LSD og þýfi í húsi í Hafnarfirði Götuhópur fíkniefnadeildarinnar fann 26 skammta af LSD auk ætlaðs þýfis við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði um síðustu helgi. 22.1.2008 12:32
Þjóðverjar skila Nokia símum Þýskir stjórnmálamenn keppast um að skila Nokia símunum sínum eftir að finnski símaframleiðandinn ákvað að færa verksmiðju sína í Þýskalandi til Rúmeníu. 22.1.2008 12:32
Sir Edmund Hillary borinn til grafar Ævintýramaðurinn Sir Edmund Hillary var borinn til grafar í Auckland, höfuðborg Nýja Sjálands í morgun. Ísöxin sem hann notaði við að komast á toppinn á Evrest-fjalli var grafin með kistunni. Mörg hundruð manns fylgdu Sir Edmund til grafar. 22.1.2008 12:28
Auralaus og kærustulaus á Akranesi Lögreglan á Akranesi glímdi við heldur óvenjulegt verkefni í liðinni viku. Þá tóku lögreglumenn á eftirlitsferð eftir manni sem sat á ferðatösku, árla morguns, skammt frá Akratorgi. 22.1.2008 12:24
Loðnan er fundin Áhöfnin á loðnuskipinu Bjarna Ólafssyni AK segir á heimasíðu sinni að þeir hafi loksins fundið loðnuna sem lengi hefur verið leitað. Í gær fékk skipið 120 tonn af stórri og góðri loðnu sem var þar að auki átulítil. 22.1.2008 12:16
Mótmæla vinnubrögðum við myndun nýs meirihluta Hafin er undirskriftasöfnun á netinu til að mótmæla vinnubrögðum við myndun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Ólafs F. Magnússonar. 22.1.2008 12:14
Margrét hafnar boði um fund með Ólafi Margrét Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi F-listans, hafnaði boði Ólafs F. Magnússonar um að koma til fundar við hann í morgun. 22.1.2008 12:08
Segir nýtt meirihlutasamstarf millileik hjá sjálfstæðismönnum Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir að samstarf sjálfstæðismanna við Ólaf F. Magnússonar, oddvita F-lista, í borgarstjórn vera millileik hjá sjálfstæðismönnum. Samstarfið við Ólaf sé skyndibrullaup og efnt verði til stærra brúðkaups í Ráðhúsinu við fyrsta tækifæri. 22.1.2008 12:00
Vonskuveður víða á Vestfjörðum og flughálka á nokkrum stöðum Vegagerðin varar enn við vonskuveðri á Vestfjörðum og sömuleiðis flughálku á nokkrum stöðum á landinu. 22.1.2008 11:43
Tannlæknir býður þjónustu í gegnum netið Jerry Watson tannlæknir í London sinnir eftirliti á sjúklingum sínum í gegnum internetið. Hann skoðar tennur þeirra í gegnum vefmyndavél og ákveður þannig hvort hann þurfi að hitta þá í eigin persónu eða ekki. Þetta gerist á læknastofu á vegum tannlæknisins þar sem myndir eru teknar og tennurnar hreinsaðar á sama tíma. Kostnaðurinn er um sex þúsund krónur. 22.1.2008 11:31
Tilboð í Óshlíðargöng verða opnuð eftir hádegi Tilboð í Óshlíðargöng við Bolungarvík verða opnuð eftir hádegi í dag að viðstöddum samgönguráðherra. 22.1.2008 11:27