Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viðræðurnar ganga vel í góðum anda Nýji meirihlutinn í Reykjavík fundaði stíft í dag en ákveðið var að að taka frí í kvöld og gefa fólki tækifæri til að sinna fjölskyldum sínum eftir langa törn. Þetta segir Dagur B. Eggertsson, verðandi borgarstjóri í samtali við Vísi. 14.10.2007 21:28
Besta ár í sögu minkaræktar Geysihátt verð fæst fyrir minkaskinn og var síðasta ár það besta í sögu íslenskra loðdýrabænda, - það er að segja þeirra sem rækta mink, því aðeins einn bóndi er eftir í refarækt. Þar hefur afkoman verið mun lakari. 14.10.2007 19:37
Rekaviður hættur að berast að ströndum Íslands Rekaviður, sem biskupar fyrr á öldum töldu grundvöll Íslandsbyggðar, er mikið til hættur að berast að ströndum landsins. 14.10.2007 19:31
Byssurnar tala og leiðtogar deila í Írak Á fjórða tug manna hefur látið lífið í ofbeldisverkum í Írak nú um helgina, þegar múslimar um allan heim fagna lokum Ramadan föstumánaðarins. 14.10.2007 18:19
Lýsa eindregnum stuðningi við álver við Bakka Kjördæmisráð Sjálfstæðisfélaganna í Norðausturkjördæmi lýsir yfir eindregnum stuðningi við áform um byggingu álvers við Bakka við Húsavík. „Sá mikli viðsnúningur sem hefur orðið á byggðaþróun á Austurlandi við byggingu Fjarðaáls gefur skýr fyrirheit um þau jákvæðu áhrif sem framkvæmd á Bakka mun hafa," segir í ályktun sem samþykkt var einróma á kjördæmisþingi Sjálfstæðisfélagana í Norðausturkjördæmi. 14.10.2007 18:19
Höggmyndir fluttar niður Akropolishæð Tvö þúsund og fimm hundruð ára gamlar styttur voru í dag fluttar af Akropolis hæð í Aþenu niður að safni sem verður þeirra framtíðarheimili. 14.10.2007 18:17
Ferðamenn drukknuðu í tælenskum helli Sex evrópskir ferðamenn voru meðal átta manna sem létu lífið í Tælandi í dag þegar vatn flæddi skyndilega inn í helli sem þeir voru að skoða. Bresk kona komst lífs af. 14.10.2007 18:16
Stuðningur við íhaldsmenn ekki verið meiri í 15 ár Gordon Brown á ekki sjö dagana sæla þessa dagana. Hann tilkynnti nýverið að ekki yrði boðað til kosninga í haust og túlkuðu gagnrýnendur það á þann vega að hann væri ekki nógu afgerandi stjórnmálamaður. Íhaldsmenn voru fljótir til að segja að forsætisráðherrann þyrði einfaldlega ekki í kosningar þar sem hann væri ekki viss um sigur. Ef sá ótti var fyrir hendi virðist hann hafa átt við nokkur rök að styðjast, ef marka má nýja könnun í Sunday Telegraph þar sem Íhaldsflokkurinn í Bretlandi nýtur stuðnings 43 prósenta. Þetta er besti árangur flokksins í heil 15 ár. 14.10.2007 15:54
Ráðist á forseta Þýskalands Forseti Þýskalands Horst Koehler varð fyrir árás í dag þegar hann kom af verðlaunaafhendingu á bókamessunni í Frankfurt. 44 ára gamall maður frá Rúmeníu sem búsettur er í Þýskalandi vatt sér að forsetanum og greip í jakkaboðunga hans áður en lífverðir forsetans náðu að yfirbuga hann. 14.10.2007 14:13
Björn Ingi sá SMS: Til í allt - án Villa Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, sagði í Silfri Egils á RÚV í dag að hann hefði fyrir því „nokkuð áreiðanlegar“ heimildir að sjálfstæðismenn hefðu verið byrjaðir í meirihlutaviðræðum við aðra flokka þegar REI málið stóð sem hæst í síðustu viku. Hann segist einnig hafa séð SMS skilaboð þar sem stóð: Til í allt - án Villa. 14.10.2007 13:56
Svandísarmálið fer sína leið Svandís Svavarsdóttir, oddviti VG í borgarstjórn segir ekki standa til að fella niður málshöfðun vegna eigendafundar Orkuveitu Reykjavíkur. Í Fréttablaðinu í gær var haft eftir Ragnari H. Hall að hann teldi ekki ólíklegt að málið verði fellt niður í ljósi þess að nýr meirihluti er tekinn við. Svandís segir hins vegar í samtali við Vísi að eðlilegt sé að málið fari sína leið í kerfinu. 14.10.2007 12:36
Troðfullt á tónleikum Megasar Meistari Megas spilaði fyrir fullri Laugardalshöll í gærkvöldi. Hann tók bæði nýja og gamla slagara við mikinn fögnuð áhorfenda. 14.10.2007 12:25
Howard boðar til kosninga í Ástralíu John Howard forsætisráðherra Ástralíu boðaði í dag til þingkosninga, sem verða haldnar 24. nóvember. Howard er 68 ára og hefur verið við völd í ellefu ár. 14.10.2007 12:24
Átök harðna í Kólumbíu Átök fara nú harðnandi milli stjórnarhersins og skæruliða FARC hreyfingarinnar, sem hefur reynt að bylta stjórn Kólumbíu í fjóra áratugi. Í gær féllu sex skæruliðar og þrír hermenn særðust í átökum í héraði, sem annars er helst þekkt fyrir mikla kókaínframleiðslu. 14.10.2007 12:22
Rice svartsýn á árangur Condoleeza Rice sagðist við upphaf fjögurra daga ferðar um Miðausturlönd efast um árangur af ferðinni. Hún ætlar að reyna að fá Ísraela og Palestínumenn til að fallast á umræðugrundvöll fyrir friðarráðstefnu sem halda á í Bandaríkjunum í næsta mánuði. 14.10.2007 12:20
Setja þarf lög hið fyrsta um eignarhald orkulindanna Það er ekki of seint að tryggja með lagasetningu að orkuauðlindirnar fari ekki úr almannaeigu segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Hún segir það vandasamt verk en ekki ógerlegt. 14.10.2007 12:18
Atvinnuleysi ekki minna í nítján ár Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna í landinu í 19 ár en innan við 1 prósent landsmanna eru skráðir atvinnulausir. 1336 manns voru skráðir atvinnulausir í september eða 0,8 landsmanna sem er 140 færri en í ágúst. 14.10.2007 11:02
Snuff á Selfossi Söluturni á Selfossi hefur verið lokað eftir að á annan tug snuffdósa fundust þar við leit lögreglu og tollgæslu. Svokallað snuff er fínkorna neftóbak sem ólöglegt er að flytja inn og selja. 14.10.2007 10:57
Opnað fyrir netið en andófsmenn lokaðir inni Stjórnvöld í Búrma hafa nú opnað fyrir netsamband í landinu og stytt útgöngubann sem hefur verið í gildi síðan mótmæli gegn þeim voru í hámarki fyrir tveimur vikum. 14.10.2007 09:48
Hillary Clinton með mikið forskot Hillary Clinton mælist nú með 21 prósenta forskot á næsta keppinaut sinn í hinu mikilvæga New Hampshire fylki fyrir útnefningu demokrataflokksins í Bandaríkjunum. 14.10.2007 09:47
„Öll flóran í bænum í nótt“ Mikill erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt. Allar fangageymslur voru fullar eftir nóttina og ekið var á gangandi vegfaranda á Geirsgötu en hann mun ekki hafa slasast alvarlega að sögn lögreglu. Lögregla hafði afskipti af fólki vegna, líkamsárása, brotum á lögreglusamþykkt, ölvun, heimilisófriði, rúðubrotum og fíkniefnum, eða allri flórunni eins og varðstjóri orðaði það í samtali við Vísi. 14.10.2007 09:47
Fimmtán ára á felgunni Lögreglan á Selfossi stöðvaði fimmtán ára gamlan ökumann í gærkvöldi. Segja má að drengurinn hafi verið á felgunni í tvennum skilningi þess orðs, því hann var ölvaður undir stýri auk þess sem sprungið hafði á bílnum þannig að hann rásaði um allan veg. 14.10.2007 09:32
Hamfaraflóð á ferðamannastöðum á Spáni Að minnsta kosti tveir hafa látið lífið í óveðri á helstu ferðamannastöðum Spánar. Rigningavatn hefur flætt um götur bæja og fresta hefur orðið flug- og ferjusamgöngum. 13.10.2007 19:16
Spenna á landamærum Tyrklands og Íraks Condoleeza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna skoraði á Tyrki í dag að láta ekki verða af fyrirhugaðri árás á kúrdíska skæruliða yfir landamærin við Írak. Þúsundir skærliða á vegum Verkamannaflokks Kúrdistans, eða PKK, hafast við í fjöllunum á landamærum Íraks og Tyrklands. 13.10.2007 19:15
Tælenskur trillusjómaður á Bakkafirði 37 ára gamall Tælendingur er orðinn trillusjómaður á Bakkafirði, er í grásleppunni á vorin en hefur verið á línu og handfærum í haust, og segist hafa fínar tekjur. 13.10.2007 19:11
Samfylkingin kastar út Græna netinu Samtökin Græna netið hafa verið stofnuð. Um er að ræða samtök umhverfis- og náttúruverndarmanna í tengslum við Samfylkinguna. Fullt heiti samtakanna er Græna netið - félag jafnaðarmanna um náttúruna, umhverfið og framtíðina. Í tilkynningu segir að Græna netinu sé ætlað að vera „vettvangur umræðna og stefnumótunar og að veita forystumönnum flokksins í þessum málaflokkum samráð, hvatningu og aðhald." 13.10.2007 17:51
Samiðn mótmælir framferði atvinnurekanda Á kjaramálaráðstefnu Samiðnar, Sambands iðnfélaga, sem lauk í dag á Hótel Selfossi voru samþykktar ályktanir þar sem siðlausu framferði atvinnurekenda gagnvart starfsréttindum iðnaðarmanna er mótmælt. 13.10.2007 16:03
Grátbiður lögreglu um að hreinsa nafn sitt Robert Murat, maðurinn sem fyrstur féll undir grun í Madeleine málinu grátbiður portúgölsku lögregluna um að hreinsa hann af grunsemdum um að vera viðriðin hvarf Madeleine McCann. Murat hefur í fimm mánuði verið með stöðu grunaðs í málinu án þess að hann hafi verið handtekinn eða ákærður vegna málsins. Þrátt fyrir fjölmiðlabann sem sett var á hann á sínum tíma kom Murat fram í viðtali við BBC. „Það hafa liðið fimm mánuðu, sparifé mitt er uppurið og mamma hjálpar mér eins og hún getur en það er erfitt," segir Murat sem býr hjá móður sinni í grennd við hótelið sem McCann fjölskyldan gisti á. 13.10.2007 15:59
Flugskeytaárás á Gaza Ísraelsher gerði flugskeytaárás á Gaza landræmuna í morgun með þeim afleiðingum að einn maður lét lífið og fimm særðust. Maðurinn sem féll var vopnaður Hamas-liði, en meðal þeirra sem særðust var ungur drengur. 13.10.2007 15:19
Ný félagshyggjustjórn að taka við í borginni Dagur B. Eggertsson, verðandi borgarstjóri, segir að ný félagshyggjustjórn sé að taka við í borgarstjórn Reykjavíkur, sem muni leggja ríka áherslu á húsnæðis-. velferðar og leikskólamál. Það var fjölmennt á fundi Samfylkingarinnar við Hallveigarstíg í morgun. Þar fór Dagur yfir helstu málin sem nýr meirihluti ætlar að takast á við. 13.10.2007 14:42
Ótrúlegt að binda hendur OR á þennan hátt Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ótrúlegt að binda hendur Orkuveitunnar til 20 ára eins og samningur OR og REI gerir ráð fyrir. Gísli og félagar hans í borginni fengu ekkert að heyra af samningnum þrátt fyrir að tveir kynningarfundir hefðu verið haldnir um málið. 13.10.2007 12:41
Vildi Geir funda án borgarstjóra? Óljóst er hver átti frumkvæðið að því að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins funduðu með formanni og varaformanni flokksins án Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi kvaðst í hádegisviðtalinu á Stöð tvö í gær halda að Geir H. Haarde hafi viljað hitta borgarfulltrúana eina án borgarstjórans. 13.10.2007 12:36
Vísir sagði fyrst frá 20 ára samningnum Vísir greindi fyrstur miðla frá því í gær að Orkuveitan hefði samþykkt að veita REI forgangsrétt að öllum þeim verkefnum sem Orkuveitunni kunni að bjóðast á erlendri grund. Samningurinn er til 20 ára. Það er því rangt sem fram kemur fram í dag í Morgunblaðinu í dag að Ríkisútvarpið hafi fyrst fjölmiðla greint frá málinu. 13.10.2007 11:40
Gassprenging í Úkraínu lagði byggingu í rúst Íbúðabygging í Úkraínu skemmdist í gassprengingu í morgun. Sex létust og fjölmargir slösuðust og óttast björgunarmenn að tala látinna eigi eftir að hækka. 13.10.2007 11:35
Keyrði fullur útaf og kallaði á lögreglu Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur á Selfossi í nótt. Annar var tekinn við hefðbundið eftirlit en hinn keyrði útaf veginum og óskaði eftir aðstoð lögreglu. Kom þá í ljós að hann var ölvaður og gisti hann fangageymslur í nótt. 13.10.2007 09:41
Hu styrkir sig Varaforseti Kína, Zeng Tsínghong, lætur af embætti á þingi kínverska kommúnistaflokksins í næstu vikuk, að sögn heimildarmanna Reuters. 13.10.2007 09:39
Sendifulltrúi dæmdur fyrir peningaþvætti Rússneskur sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum var í gærkvöldi dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir peningaþvætti. Sendifulltrúinn, Vladimir Kuznetsov, var formaður fjárlaganefndar hjá Sameinuðu þjóðunum. 13.10.2007 09:38
Rice ræðir mannréttindi í Rússlandi Condolezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna fundaði í morgun með mannréttindafrömuðum í Rússlandi og hét þeim aðstoð við að vernda einstaklinga gegn "ofurvaldi ríkisins," eins og hún orðaði það. 13.10.2007 09:36
Þrír keyrðu útaf á sama stað í nótt Þrjú umferðaróhöpp urðu á sama staðnum á Reykjanesbraut til móts við Vogaveg. Um minniháttar meiðsli var að ræða í tveimur atvikanna en þriðji ökumaðruinn slapp ómeiddur. Í öllum tilvikum óku menn útaf. Einn ökumaðurinn er grunaður um ölvunarakstur. 13.10.2007 09:32
Ók útaf og skildi bílinn eftir Loka þurfti hringtorginu á Hringbraut við Suðurgötu nú í morgun. Bíl hafði verið ekið útaf og skemmdist hann nokkuð. Í stað þess að kalla á aðstoð lét ökumaðurinn sig hins vegar hverfa og hefur ekkert spurst til hans. Lögregla og slökkvilið mættu á staðinn og var bíllinn dreginn á brott með kranabíl. Að sögn lögreglu er bíllinn ekki stolinn en að öðru leyti er ekkert vitað um hvað ökumanninum gekk til. 13.10.2007 09:23
Hrói höttur á reiðhjóli Tuttugu og sex ára gamall laganemi við háskólann í Árósum vinnur með náminu við það að stela reiðhjólum. 12.10.2007 21:45
Bush vill frelsa fangana á Kúbu George Bush sagði í ræðu í Miami í dag að senn sæi fyrir endann á stjórnartíð hins grimma einræðisherra á Kúbu. Castro er bæði gamall og veikur og því ekki óeðlilegt að búast við að hann safnist til feðra sinna á næstu áratugum eða svo. Castro er búinn að lifa ansi marga Bandaríkjaforseta sem hafa villjað hann feigan. Forsetinn hafði mörg orð um þær breytingar sem alþjóðasamfélagið vildi sjá á Kúbu eftir Castro. Meðal annars sagði hann að þjóðir heims yrðu að krefjast þess að föngum á Kúbu yrði sleppt. 12.10.2007 21:00
Skömm að Nóbelsverðlaunum Gore Danski umhverfisverndargagnrýnandinn Björn Lomborg segir að það sé til skammar að Al Gore hafi fengið friðarverðlaun Nóbels fyrir umhverfisverndarstefnu sína. 12.10.2007 20:30
Vinstri grænir fagna vasklegri framgöngu Svandísar Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík fagnar nýjum meirihluta í Reykjavíkurborg. 12.10.2007 20:01
Tony Blair ekki í kot vísað Tony og Cherie Blair eru náttúrlega flutt úr Downingstræti 10. En þeim var ekki í kot vísað. 12.10.2007 20:00